Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Qupperneq 25
Sport | 25Mánudagur 16. maí 2011
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
Nóvember
Staðan á toppnum breytist mikið þar
sem United vinnur þrjá heimaleiki,
þar af 7-1 stórsigur gegn Blackburn
þar sem Berbatov skorar þrennu.
Jafntefli gegn City og Aston Villa verða
ekki of dýrkeypt þar sem Chelsea nær
aðeins í eitt stig allan mánuðinn og
tapar þremur leikjum, þar af 3-0 tap
gegn Sunderland. Arsenal hrynur
heima gegn Newcastle og Tottenham
sýnir hvað það er brothætt.
Staðan í lok mánaðar: 1. Man. Uni-
ted 15 leikir og 31 stig, 2. Chelsea 15
leikir og 29 stig, 3. Arsenal 15 leikir og
29 stig.
Desember
Snjórinn byrjar að falla og þá byrj-
ar frestun leikja, þar á meðal frest-
un á hinum gríðarlega mikilvæga
leik Chelsea og United á Stamford
Bridge. City endar árið á toppnum
ásamt Manchester United. United er
áfram ósigrað eftir sigur á Ars enal en
fær á sig jöfnunarmark í uppbótar-
tíma gegn Birmingham. Arsenal nær
fram hefndum gegn Chelsea og vinn-
ur innbyrðis leik liðanna 3-1 en þarf
að sætta sig við jafntefli gegn Wigan
í næsta leik, 2-2. Tæpur 1-0 sigur á
Bolton er eina gleðistund Chelsea öll
jólin.
Staðan í lok mánaðar: 1.-2. Uni-
ted/City 18 leikir og 38 stig, 3. Ars-
enal 19 leikir og 36 stig, 4. Chelsea 19
leikir og 34 stig.
Janúar
Fjórir sigrar í fimm leikjum ásamt
jafntefli gegn Tottenham úti er fín
uppskera fyrir United í janúar. Þar á
meðal var hinn magnaði leikur gegn
Blackpool þar sem liðið vann 3-2 eftir
að hafa lent 2-0 undir. Arsenal byrjar
að líta út sem helsta ógn United en það
fær ekki á sig mark allan janúar, þrátt
fyrir jafntefli gegn City heima. Töp-
uð stig gegn Aston Villa og óvænt tap
heima gegn Úlfunum færir Chelsea
enn fjær toppnum.
Staðan í lok mánaðar: 1. Man. Uni-
ted 23 leikir 51 stig, 2. Arsenal 23 leik-
ir og 46 stig, 4. Chelsea 23 leikir og 41
stig.
Febrúar
Man. United tapar loks leik en það
er óvænt, gegn Úlfunum á útivelli.
Jákvæði hluturinn fyrir Ferguson og
hans stráka er þó undramark Way-
nes Rooney gegn Man. City á heima-
velli. Liðið rúllar einnig yfir Wig-
an, 4-0, úti. Arsenal nær í tíu stig af
tólf mögulegum en nær á einhvern
óskiljanlegan hátt að glutra niður
4-0 forystu gegn Newcastle í jafn-
tefli. Chelsea dettur alla leið niður í
fimmta sætið, en á þó leik til góða.
Staðan í lok mánaðar: 1. Man.
United 27 leikir og 60 stig, 2. Arsenal
27 leikir og 56 stig, 5. Chelsea 26 leik-
ir og 45 stig.
Mars
Toppbaráttan galopnast þegar Uni-
ted tapar útileikjum gegn Chelsea og
Liverpool. Dimitar Bertbatov er þó
hetjan þar sem hann nær þremur stig-
um í hús gegn Bolton en þar var Uni-
ted-liðið manni færra. Arsenal nær
ekki að notfæra sér mistök United og
gerir sjálft jafntefli gegn Sunderland og
WBA. Chelsea er aftur á móti vaknað
eftir 2-1 sigur á United og klárar mán-
uðinn með fullt hús stiga eftir sigra á
Blackpool og Man. City.
Staðan í lok mánaðar: 1. Man. Uni-
ted 30 leikir 63 stig, 2. Arsenal 29 leik-
ir og 58 stig, 3. Chelsea 29 leikir og 54
stig.
Apríl
Man. United sýnir að það ætlar sér að
vinna titilinn með þremur sigrum og
jafntefli gegn Newcastle. Mánuðurinn
var þó engin lautarferð þar sem Uni-
ted þurfti að koma til baka eftir að hafa
lent 2-0 undir gegn West Ham og þá
skoraði Javier Hernandez síðbúið sig-
urmark gegn Everon. Jafntefli úti gegn
Stoke virðist hafa lokað á alla mögu-
leika Chelsea að vinna titilinn annað
árið í röð. En þá vinnur liðið fimm leiki
í röð og er aftur komið í annað sætið.
Arsenal hikstar þó verulega og nær að-
eins í sigur gegn Blackpool. Tap gegn
Bolton gerir nánast út um alla mögu-
leika liðsins á titlinum.
Staðan í lok mánaðar: 1. Man. Uni-
ted 34 leikir og 73 stig, 2. Chelsea 35
leikir og 70 stig, 3. Arsenal 34 leikir og
64 stig.
Maí
Tap hjá Man. United á útivelli gegn
Arsenal opnar toppbaráttuna enn
eina ferðina og setur upp úrslitaleik
Man. United og Chelsea á Old Traf-
ford. Þar sýna strákarnir hans Fergu-
son úr hverju þeir eru gerðir og vinna
vægast sagt sannfærandi sigur, 2-1.
Ancelotti viðurkennir eftir leikinn
að titillinn sé á leiðinni til Old Traf-
ford. Arsenal tapar á sama tíma 3-1
gegn Stoke. Man. United þarf ekki
nema eitt stig úr útileik gegn Black-
burn og heimaleik gegn Blackpool til
að verða meistari í 19. sinn. Það hefst
með jafntefli úti gegn Blackburn í
næstsíðustu umferð og Manchester
United er Englandsmeistari 2011.
Staðan þegar ein umferð er eftir:
1. Man. United 37 leikir og 77 stig, 2.
Chelsea 37 leikir og 71 stig, 3. Arsenal
37 leikir og 67 stig.
Leiðin inn í sögubæ urn r
Úrslit
Enska úrvalsdeildin
Blackpool - Bolton 4-3
0-1 Kevin Davies (6.), 1-1 DJ Campbell (9.), 2-1
Jason Puncheon (19.), 2-2 Matthew Taylor
(24.), 3-2 DJ Campbell (45.), 3-3 Daniel
Sturridge (53.), 4-3 Charlie Adam (63.).
Sunderland - Úlfarnir 1-3
0-1 Jody Craddock (22.), 1-1 Stéphane Ses-
segnon (34.), 1-2 Steven Fletcher (54.), 1-3
George Elokobi (78.).
WBA - Everton 1-0
1-0 Youssouf Mulumbu (10.).
Rautt: Dinijar Biljaletdinov, Everton (77.).
Blackburn - Man. United 1-1
1-0 Brett Emerton (21.), 1-1 Wayne Rooney
(73. víti).
Chelsea - Newcastle 2-2
1-0 Branislav Ivanovic (1.), 1-1 Jonas
Gutierres (9.), 2-1 Alex (82.), 2-2 Steven
Taylor (90.+2).
Arsenal - Aston Villa 1-2
0-1 Darren Bent (10.), 0-2 Darren Bent (49.),
1-2 Robin van Persie (88.)
Birmingham - Fulham 0-2
0-1 Brede Hangeland (5.), 0-2 Brede
Hangeland (49.).
Liverpool - Tottenham 0-2
0-1 Rafaen van der Vaart (9.), 0-2 Luka
Modric (55. víti).
Wigan - West Ham 3-2
0-1 Demba Ba (12.), 0-2 Demba Ba (26.), 1-1
Charles N‘Zogbia (57.), 2-2 Conor Sammon
(68.), 3-2 Charles N‘Zogbia (90.).
STAðAN
Lið L U J T M St
1 Man. Utd 37 22 11 4 74:35 77
2 Chelsea 37 21 8 8 69:32 71
3 Arsenal 37 19 10 8 70:41 67
4 Man. City 36 19 8 9 55:33 65
5 Tottenham 37 15 14 8 53:45 59
6 Liverpool 37 17 7 13 59:43 58
7 Everton 37 12 15 10 50:45 51
8 Fulham 37 11 15 11 47:41 48
9 Stoke City 36 13 7 16 46:44 46
10 Bolton 37 12 10 15 52:54 46
11 WBA 37 12 10 15 53:68 46
12 Newcastle 37 11 12 14 53:54 45
13 Aston Villa 37 11 12 14 47:59 45
14 Sunderland 37 11 11 15 42:56 44
15 Blackburn 37 10 10 17 43:57 40
16 Wolves 37 11 7 19 44:63 40
17 Birmingham 37 8 15 14 36:56 39
18 Blackpool 37 10 9 18 53:74 39
19 Wigan 37 8 15 14 39:61 39
20 West Ham 37 7 12 18 43:67 33
MÁNUDAGUR 16. MAÍ:
HUR MÅNGA LINGON FINNS DET
I VÄRLDEN? 18:00, 20:00, 22:00
ROUTE IRISH 17:50, 20:00, 22:10
KURTEIST FÓLK 18:00
BOY 20:00, 22:00
HAFIÐ 18:00
(Sýnd með enSkum texta)
HÁSETA VANTAR Á BÁT 20:00
(Sýnd með enSkum texta)
ÍSLENSKA ALÞJÓÐA-
BJÖRGUNARSVEITIN 22:00
(Sýnd með enSkum texta)