Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Síða 26
26 | Fólk 16. maí 2011 Mánudagur
„Ég var með litla strákinn minn með mér svo
að ég var ekki lengi. Þetta var fyrsta Eurovisi-
on-partíið hans en hann verður eins árs í júní,“
segir Víkingur Kristjánsson, leikari og með-
limur Vesturports, en vinir og fjölskylda Sjonna
hittust í Tjarnarbíói og horfðu þar á keppnina á
laugardagskvöldið. Víkingur segir að þeir fegðar
hafi farið um leið og keppnin var búin. „Þetta
var samt verulega gaman, það var góð mæting
og allir í hátíðarskapi. Við hefðum kannski vilj-
að fá fleiri stig en það var enginn neitt verulega
fúll.“ Hann er mjög ánægður með þetta framtak
að hóa saman þessum hópi til að horfa saman
á keppnina. Allir hafi skemmt sér vel, fullorðnir
og börn saman.
Víkingur segir að strákarnir hafi staðið
sig virkilega vel á sviðinu og það hafi nægt
partígestunum. Allir hafi verið ánægðir með
frammistöðuna. Persónulega er Víkingur ekki
hrifinn af vinningslaginu og var spenntari fyrir
danska laginu og írsku tvíburunum.
Aðspurður hvort fólk hafi verið óánægt með
stigagjöf Norðurlandanna segir hann svo ekki
hafa verið. „Stundum var púað en það var bara
rosalega mikil gleði og góð stemning. Við vor-
um svo ánægð með að þeir hafi komist í úrslit
og fengið að vera með í lokakeppninni. Það var
aðalmálið.“ Víkingur hafði ekki heyrt í vinum
Sjonna eftir keppnina en segir að talað hafi
verið við þá þegar þeir komu af sviðinu. „Þeir
gerðu sér kannski ekki miklar vonir en voru í
verulega góðum gír.“
gunnhildur@dv.is
Flottir feðgar Baldur Hrafn, tæplega
eins árs, fór í sitt fyrsta Eurovision-partí á
laugardaginn. Mynd Björn Blöndal
Víkingur Kristjánsson mætti í Eurovision-partí með ungan son sinn:
„Allir í hátíðArskApi“
Oddný í ljótakór
Nokkrir þekktir einstaklingar tróðu upp
í Hörpu um helgina þegar gestum og
gangandi bauðst að berja nýja tónlistar-
húsið augum. Meðal þeirra voru Eva María
Jónsdóttir sjónvarpskona og Oddný
Sturludóttir borgarfulltrúi sem sungu
saman með Ljótakór. Kórinn söng óvænt
fyrir gesti Silfurbergs í Hörpu en kórinn sýndi
líka leikna útgáfu af málverkinu Ópinu eftir
Edvard Munch. Páll Valsson rithöfundur
söng síðan einsöng lagið „Ég er kominn
heim“ við undirleik kórsins.
„skemmtilegasta
gigg ársins“
Selma Björnsdóttir, söng- og leikkona, steig
á svið á Eurovision-kvöldi tónlistarmanns-
ins Páls Óskars Hjálmtýssonar sem fram fór
á Nasa við Austurvöll á laugardagskvöld.
Selma skemmti sér, og gestum í húsinu,
konunglega. „Þetta er alltaf skemmti-
legasta gigg ársins. Takk Páll Óskar fyrir
að halda boðið á hverju ári og takk Inga á
Nasa!“ skrifaði hún á Facebook-síðuna sína
nokkrum klukkustundum eftir að hún hafði
sungið All Out of Luck, sem tryggði henni
annað sætið í Eurovision árið 1999. „Er strax
farin að hlakka til næsta árs.“
M
eðlimir Vesturports, velunnarar og fjölskylda
Sjonna Brink hittust í Tjarnarbíói á laugar-
dagskvöldið og fylgdust með sínum mönn-
um keppa í Eurovision. Strákarnir stóðu sig
vel, enduðu í 20. sæti eftir að hafa þvælst töluvert á milli
sæta á meðan stigagjöfin fór fram. Í ljós hefur komið að
lagið hafnaði í fjórða sæti í undanriðlinum.
Rúnar Freyr Gíslason var meðal gesta og segir að
stemningin hafi verið frábær og fjölskylduvæn. Börn-
in hafi hlaupið um og skemmt sér með. Hann segir að
strákarnir hafi staðið sig frábærlega. „Þarna voru afar
og ömmur og börn og bara rosalega skemmtilegt,“ segir
Rúnar Freyr. Hann segir alla hafa verið stolta af strák-
unum og að þeir hafi staðið sig afskaplega vel. „Það var
bara svo gaman að sjá hvað þeir voru afslappaðir og allir
eru svo sáttir við þeirra árangur. Þetta var bara allt óað-
finnanlegt,“ segir Rúnar Freyr.
Gísli Örn Garðarson segir að kvöldið hafi verið mjög
skemmtilegt og að allir hafi verið mjög stoltir af hópn-
um. „Þetta var mjög fínt kvöld. Við erum öll bara svo
snortin yfir þeirra frammistöðu, þeir stóðu sig mjög vel,“
segir Gísli Örn. Matthías Matthíasson, einn af með-
limum Vina Sjonna, segir hópinn sem stendur að baki
þeim vera afar ánægðan með frammistöðuna. „Við erum
ofboðslega hamingjusöm og vorum ánægð með okkar
frammistöðu í kvöld. Grínlaust þá erum við ofboðslega
hamingjusöm. Við komumst í úrslitin. Við erum bara í
fíling,“ sagði Matthías í Düsseldorf á laugardagskvöldið.
n Fjölskylda Sjonna, velunnn-
arar og Vesturportarar hitt-
ust í Tjarnarbíói og horfðu á
Eurovision n „Þetta var bara
óaðfinnanlegt“ n Snortin yfir
frammistöðu Vina Sjonna
Eurovision-partí
í Tjarnarbíói Systir Sjonna Nína Dögg og Andri Snær Helgason bróðir hennar voru glöð í partíinu. Myndir Björn Blöndal
Með Sjonna Brink á upphandleggnum
Rúnar Freyr Gíslason, Gísli Örn Garðarsson, Björn
Thors og Sigurpáll H. Jóhannesson t. h. sem er með
nafn Sjonna Brink húðflúrað á upphandlegg sinn.
Glatt var á hjalla Mikil stemning
myndaðist í Tjarnarbíói.