Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Blaðsíða 29
Fólk | 29Mánudagur 30. maí 2011
Elskhuginn
BiEBEr
Justin Bieber og Selena Gomez:
S tórstjarnan Justin Bieber var ekki feim-in við að láta tilfinningar sínar í ljós þegar hann skemmti sér á ströndinni í
Havaí um helgina. Hann var þar ásamt kær-
ustunni sinni Selenu Gomez sem einnig
er að gera það gott í poppheimum. Bieber
sprangaði um ber að ofan og splæsti knúsi og
kossum á sína heittelskuðu, hægri, vinstri.
Eftir að parið unga fékk sér að borða stökk
það í sjóinn en með í för voru fjölskyldur
þeirra. Hópurinn þeystist um á sjóköttum
og sigldu við ströndina á bátum. Bæði komu
Justin og Selena fram á Billboard-tónlist-
arhátíðinni fyrir skömmu en þau eiga án efa
eftir að vera áberandi í poppbransanum um
ókomin ár.
Eftirsóttur Það eru margar ungar
stúlkur sem eru afbrýðisamar út í Selenu.
Slapp við ákæru
Mariah Carey drakk bjór á fæðingardeildinni:
B arnaverndaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa ákveðið að hætta rann-
sókn á meintri óábyrgri hegðun
Mariuh Carey og Nicks Cannon
gagnvart nýfæddu barni sínu.
Þeim var gefið að sök að hafa
neytt áfengis og annarra vímu-
efna á meðan þau dvöldu á fæð-
ingardeildinni. Nafnlaus ábend-
ing varð til þess að rannsóknin
fór af stað. Mariah hefur reyndar
viðurkennt að hafa drukkið Gu-
inness-bjór á deildinni en hún
segir að það hafi verið fyrir sam-
kvæmt ráðum læknaliðsins sem
hafi sagt henni að bjórinn gæti
komið mjólkurframleiðslu í
brjóstum söngkonunnar af stað.
Hjónin lýstu yfir hneykslun sinni
á þessum ásökunum og segja
söguna fráleita. „Þetta er bara
sorglegt,“ lét hinn nýbakaði faðir
hafa eftir sér.
Á góðri stund
Mariah Carey fékk
sér Guinness á
fæðingardeildinni,
að ráði lækna.
Hvolfdi í
Sig vodka
H ún virtist vera út úr heim-inum. Hún ráfaði um og muldraði eitthvað,“ sagði
vegfarandi sem varð vitni að síð-
ustu ferðum Amy Winhouse áður
en hún gekk inn á meðferðar-
stofnun í norðurhluta Lund-
úna. Það var snemma morguns
sem hann varð hennar var, úti á
götu. Hún virtist ákaflega illa á
sig komin. Hún gekk inn í næstu
verslun sem seldi vín og keypti
sér litla vodkaflösku. Henni
hvolfdi hún í sig og skakklappað-
ist svo áfram eftir götunni, að því
er sjónarvotturinn segir. Skyndi-
lega tók hún á rás, fór inn á hár-
greiðslustofu og hljóp inn á bað-
herbergi. Skömmu síðar kom
hún fram og sagði þvoglumælt:
„Ég var að æla yfir baðherberg-
ið ykkar,“ áður en hún gekk á dyr.
Þaðan fór hún rakleiðis í með-
ferð, enda tími til kominn. Tals-
maður hennar hefur staðfest að
hún sé í meðferð en segir að um
brandara hafi verið að ræða þeg-
ar hún sagðist hafa kastað upp,
það hafi hún ekki gert. Trúi því
hver sem vill.
Á botninum Amy hefur stundum
litið betur út.
Amy Winehouse áður en hún fór í meðferð:
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
Endurnærir og hreinsar ristilinn
allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
30+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox