Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 30. maí 2011 Mánudagur Ný friðarvísitala gefin út Ísland er friðsælasta landið Þrátt fyrir búsáhaldabyltingu, fjölda- mótmæli og aukna glæpa er Ísland friðsælasta land heims samkvæmt mælingu stofnunnar sem kallast Institute for Economics and Peace og birt var nýlega. Stofnunin gefur út svokallaða alþjóðlega friðarvísitölu. Samkvæmt friðarvísitölunni fyrir árið 2011 er Ísland á toppnum. Mælingin hófst árið 2008 og hef- ur Ísland alltaf skorað meðal hæstu þjóða. Árið 2008 var Ísland einnig á toppnum. Árið 2009, þegar mikið umrót var á landinu í kjölfar hruns- ins, féll Ísland niður í 4. sæti og í fyrra var Ísland í öðru sæti listans. Í mælingunni eru bornir saman ýmsir þættir á borð við hversu margir hafa látist í átökum í landinu, hversu mikill stöðugleiki er í stjórnmálum, hversu mikil hætta er á hryðjuverk- um og hversu hátt hlutfall lands- framleiðslu fer í hergagnakaup. Þá er gerður samanburður á glæpa tíðni, fjárútlátum til friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna, aðgengi að skotvopnum og fjölda vopna á hverja 100.000 íbúa. Mælingin skoðar einn- ig aðra þætti á borð við hversu lýð- ræðislegar og frjálsar kosningar eru í hverju landi, frelsi fjölmiðla og menntunarstig. Nýja Sjáland er í 2. sæti á listan- um og Japan í því þriðja. Danmörk er síðan 4. friðsælasta ríki heims og Tékkland er í 5. sæti. Í neðstu sætum listans eru svo ríki sem hafa skrapað botninn árum saman. Sómalía er á botninum og Írak er næstófriðsæl- asta land í heiminum. Í næstu sætum fyrir ofan eru svo Súdan, Afganistan, Norður-Kórea og Kongó. Athygli vek- ur að Rússland er 147. friðsælasta ríki heims. valgeir@dv.is Viðurkenndar stuðningshlífar í úrvali Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18 Friðsöm þjóð Ísland er friðsælasta land heims. Kaupmáli, sem hjón gerðu fyrir tæp- um tveimur árum, var ógiltur með dómi Hæstaréttar fyrir helgina. Ástæðan virðist vera handvömm hæstaréttarlögmanns sem annaðist gerð kaupmálans. Hæstiréttur taldi að vottun lögmannsins fullnægið ekki formskilyrðum hjúskaparalaga þar sem málsaðilar hefðu ekki undirritað skjalið áður en hann vottaði það. Eftir að hafa tapað málinu í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í apríl síðast- liðnum skaut annar málsaðila, eigin- konan, dóminum til Hæstaréttar. Málsaðilar, sem nú hafa slitið sam- vistir, gerðu kaupmálann 30. septem- ber 2009. Eftir bankahrunið ákváðu þau að gera með sér kaupmála af ótta við að sjálfskuldarábyrgðir, sem eink- um maðurinn hafði tekist á hendur í tengslum við fjárfestingar, kynnu að falla á þau. Var þess því freistað að verja eignirnar, sem eru umtalsverðar, á meðan samið yrði við lánardrottna. Viðskiptafélagarnir Leitað var til Ólafs Garðarssonar hæstaréttarlögmanns, en hann og Magnús Jónatansson, annar málsað- ila, hafa um árabil verið viðskiptafé- lagar. Í dómskjölum segir að fyrrver- andi eiginkonu Magnúsar hafi verið hætt að lítast á blikuna varðandi fjár- málaumsvif hans í lok árs 2008 og byrjun árs 2009. Til að mynda hefði komið í ljós að Magnús hafði veðsett fjármuni í eignastýringu MP banka þótt á milli hans og konunnar hafi verið skýrt samkomulag um að þess- ir fjármunir væru lífeyrisjóður þeirra og ætti alls ekki að veðsetja. Því vildi kona hans fyrrverandi gera kaup- mála. „Með kaupmála, þar sem hjú- skapareignir sóknaraðila yrðu gerðar að séreign hennar, hafi varnaraðili tal- ið sig í betri stöðu, færu fjárfestingar sóknaraðila, sem hún vissi takmarkað um, á versta veg,“ eins og segir í skjöl- um málsins. Samkvæmt gögnum málsins voru báðir aðilar sammála um að skyn- samlegt væri að gera kaupmála og leitaði Magnús til Ólafs, lögfræð- ings og viðskiptafélaga síns, um gerð kaupmálans. Fram kemur í gögnum að drög að kaupmála hafi verið gerð 28. septem- ber 2009. Ákveðið hafi verið að bæta fleiri eignum inn í kaupmálann og með þeirri viðbót hafi kaupmáli ver- ið dagsettur 30. september, tveimur dögum síðar. Fyrir rétti bar konan að fyrri kaup- málinn hafi verið vottaður af Ólafi og hún ekkert velt því fyrir sér hvort öll- um lagalegum formsatriðum væri fullnægt enda hefði hún treyst því að Ólafur vissi hvað hann væri að gera. Afglöp við gerð kaupmála Krafa Magnúsar um ógildingu kaup- málans byggist á því að formkröfum hjúskaparlaga hafi ekki verið fullnægt við gerð hans. „Það sé fortakslaus krafa að vottun undirritunar kaup- mála sé gerð um leið og undirritun fari fram, ekki nægi að vottunin fari fram á undan eða eftir að undirritun fari fram heldur skulu hún fara fram samtímis ... Skýringin á því að slak- að hafi verið á forminu vegna þessa kaupmála sé sú að báðir aðilar hafi vitað nákvæmlega hvers vegna skjöl- in voru útbúin.“ Jafnframt segir að það hafi verið hreinn vinargreiði af hálfu Ólafs að „aðstoða vinafólk sitt við gerð kaupmálans...“ Ólafur bar vitni í málinu en Guð- rún Helga Brynleifsdóttir, meðeig- andi hans á Lögfræðistofu Reykjavík- ur, rak mál Magnúsar viðskiptafélaga hans fyrir dómstólum. Ólafur bar fyrir rétti að honum væri kunnugt um formskilyrði kaupmála, en hann samdi kaupmálann og vott- aði eins og áður segir. Dögg Pálsdótt- ir, hæstaréttarlögmaður, var verjandi konunnar í þessu máli. Í niðurstöðu héraðsdóms segir að varnaraðili telji að vottun og undirskriftir undir kaup- mála þurfi ekki að gerast samtímis þegar vottarnir séu löglærðir. Héraðsdómur féllst ekki á þetta og staðfesti Hæstiréttur fyrir helgina að kaupmálinn væri ógildur, „þar sem votturinn (Ólafur) var hvorki vitni að því að málsaðilar undirrituðu kaup- málann né gat staðfest að kaupmál- inn hefði þegar verið undirritaður af málsaðilum þegar hann undirritaði hann.“ Þannig virðist ljóst að Magnús, við- skiptafélagi Ólafs, hafi fengið kaup- málann ógiltan í krafti þess að Ólaf- ur Garðarsson, viðskiptafélagi hans, viðurkenndi fyrir rétti handvömm við gerð hans. n Handvömm hæstaréttarlögmanns veldur ógildingu kaupmála n Vildi kaupmála vegna glæfralegra ábyrgða og skuldbindinga eiginmannsins Viðskiptafélagar fá kaupmála ógiltan Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar johannh@dv.is „ Jafnframt segir að það hafi verið hreinn vinargreiði af hálfu Ólafs að „að- stoða vinafólk sitt við gerð kaupmálans... Kaupmáli ógiltur Hæstiréttur staðfesti fyrir helgi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um ógildingu kaupmála. Hæstaréttar- lögmaðurinn Ólafur Garðarsson hæstaréttarlög- maður klúðraði gerð kaupmála fyrir vinafólk sitt. Kom sér vel fyrir við- skiptafélaga hans. Jóhanna vill skapa nýjan vettvang: ESB-sinnar myndi einn flokk Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, hvatti á flokks- stjórnarfundi um helgina til sam- stöðu fólks úr öllum flokkum um jöfnuð, nýjan gjaldmiðil, aðild að ESB og auðlindastefnu. Hún sagði flokka ósamstíga um grundvallar- mál og þeir hefðu ekki mótað stefnu í samræmi við þá stöðu sem Ísland sé nú í. Eins og Alþingi væri samsett væri lítil von til þess að ná mikil- vægum skrefum á kjörtímabilinu í átt til upptöku evru. „Hversu lengi ætla Evrópusinn- ar að starfa í flokkum sem berjast leynt og ljóst gegn aðildarviðræð- um? Hversu lengi ætla þeir, sem viðurkenna að íslenska krónan býð- ur atvinnulífi og heimilum landsins ekki upp á annað en viðvarandi höft og takmarkanir, að starfa í flokkum sem skella skollaeyrum við þessu mikilvæga hagsmunamáli? Hversu lengi ætla stuðnings- menn aukins jöfnuðar, aukins lýðræðis, aukins arðs þjóðarinn- ar af auðlindum landsins og öfl- ugara velferðarkerfis að starfa í flokkum sem leynt og ljóst berjast gegn framgangi þessara mikilvægu mála?“ Jóhanna sagði að Samfylkingin stæði öllum þessum hópum opin og menn ættu að vera reiðubúnir að ganga til móts við þá sem vilji stíga skrefið til fulls og leggja þessum mikilvægu málefnum lið í sam- starfi. „Breytt skipulag, nýtt nafn, ný forysta eða annað á ekki að standa í vegi fyrir því að þessi mikilvægu málefni fái kröftugan framgang og jafnaðarmenn í öllum flokkum geti sameinast á öflugum flokks- vettvangi. Í þessum efnum má ekki standa á okkur í Samfylkingunni.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.