Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Blaðsíða 13
Fréttir | 13Mánudagur 30. maí 2011
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
með fyrirvara. Mér finnst bara ótrú-
legt að þessi maður hafi verið metinn
hæfur og að enginn hafi séð í gegn-
um hann. Hann segir félagsráðgjaf-
anum að hann sé hættur í neyslu og
hún tekur því sem heilögum sann-
leik. Á meðan ég er að reyna vernda
barnið fyrir föður sínum fæ ég dag-
sektir og þau skilaboð að ég sé vond
móðir.“ Þrátt fyrir sögu mannsins um
ofbeldi og fíkniefnaneyslu fékk mað-
urinn góða umsögn hjá félagsráð-
gjafanum sem sagði hann hafa góða
nærveru og tala fallega um sam-
ferðafólk sitt.
Ekki hæfur til að búa í blokk
Hún telur að margt sem kemur
fram í greinargerðinni sé ekki rétt
og að auðveldlega hefði verið hægt
að vinna hana betur. „Þegar þessi
skýrsla var gerð þá var augljóslega
ekki verið að vinna vinnuna sína.
Til dæmis hitti mig aldrei neinn frá
barnaverndarnefnd. Hvorki mann-
eskjan sem gerði skýrsluna um
mig né hin sem gerði skýrsluna um
barnsföður minn.“ Hún segir það
reyndar eiga sína skýringu því þeg-
ar hún var beðin um að mæta átti
barnsfaðir hennar að vera þar við-
staddur. „Mér var boðið að hafa lög-
reglumann á staðnum en lögreglan
getur ekki verndað mig alltaf og ég
treysti mér ekki til að mæta. Ég tal-
aði því við félagsráðgjafana í nokk-
ur skipti í gegnum síma og þá var ég
ásökuð um að vera slæm móðir af því
að ég vildi ekki leyfa barninu að hitta
pabba sinn.“
Eins bendir hún á að svo virðist
sem mismunandi deildir innan
félagslega kerfisins vinni ekki sam-
an sem skyldi því að á sama tíma og
hann var metinn hæfur til að um-
gangast son sinn var hann borinn út
úr félagslegri íbúð á vegum bæjarins.
„Þær hljóta að hafa vitað að maður-
inn væri í neyslu því á sama tíma var
honum hent út úr félagslegri íbúð út
af óreglu. Hann var metinn hæfur til
að umgangast son sinn en hann var
ekki metinn hæfur til að búa í blokk
með öðrum út af ónæði. Það finnst
mér óskiljanlegt.“
Féll með barnið
Þrátt fyrir að Jóna hafi verið treg til að
veita barnsföður sínum umgengni
við son þeirra hefur hún þó verið
einhver í gegnum tíðina. „Hann hafði
verið með smáumgengni þegar hann
bjó á áfangaheimili í lok árs 2006.
Það varði þó aðeins í um tvo mánuði
eða þar til ég kom að sækja son minn
eitt skiptið og hann var fallinn. Hann
var þá útúrdópaður einn með syni
mínum sem þá var nýorðinn þriggja
ára. Eftir þetta hætti ég algjörlega að
treysta honum.“
Maðurinn sóttist seinna eftir því
að nýju í að fá að hitta son sinn og var
Jónu gert að fara með barnið til föð-
ur þess eftir umgengnisplani sem fé-
lagsráðgjafi barnaverndar hafði sett
upp, en til að byrja með var starfs-
maður barnaverndaryfirvalda við-
staddur. Að sögn Jónu datt sú um-
gengni upp fyrir eftir nokkur skipti
þegar maðurinn hótaði félagsráð-
gjafanum sem átti að vera viðstadd-
ur meðan á heimsókninni stóð, þeg-
ar drengurinn komst ekki eitt skipti
vegna veikinda. „Eftir það hefur hann
ekki fengið mikla umgengni. Það
hefur verið farið með hann nokkr-
um sinnum í heimsókn til pabba síns
þegar hann hefur setið í fangelsi og
þá hef ég alltaf farið með. Hann hefur
ekkert fengið að vera einn með hon-
um fyrr en þarna síðasta sumar. Þá
var byrjað að láta reyna á umgengni.
Frá því að hann fékk umgengni bað
hann alltaf um að strákurinn fengi
að gista en ég var með slæma tilfinn-
ingu fyrir því og neitaði. Á endanum
lét ég undan og ákvað að láta reyna á
það eina nótt. Það virtist hafa gengið
ágætlega og það var reynt aftur en þá
vildi strákurinn ekki fara. Hann hefur
því bara fengið að gista tvisvar sinn-
um hjá pabba sínum.“
Klassísk einkenni
Að sögn Jónu urðu miklar hegð-
unarbreytingar á drengnum í fyrra-
sumar sem hún og núverandi sam-
býlismaður röktu til aðstæðna sem
voru til staðar á heimilinu. „Okk-
ur grunaði að ástæðuna fyrir hegð-
unarbreytingunum mætti rekja til
þess að samband mitt og núverandi
sambýlismanns var erfitt. Við erum
í raun bæði brotin eftir gömul sam-
bönd og það hefur verið dálítið erfitt
að pússa okkar samband saman. Við
vorum ítrekað að skilja og taka sam-
an aftur og töldum að það væri að
rugla hann í ríminu. Hann var farinn
að pissa undir á nóttunni og það kom
fyrir að hann missti hægðir, líka þeg-
ar hann var í skólanum. Hann fékk
martraðir á nóttunni og þegar ég lít
til baka þá var hann með öll þessi
klassísku einkenni misnotkunar, en
það var vinkona mín sem sendi mér
netpóst um einkenni barna sem hafa
orðið fyrir kynferðislegri misnotkun
eftir að ég hafði sagt henni frá vanda-
málum sonar míns. Ég fékk algjört
sjokk eftir lesturinn því barnið mitt
var eitt gangandi einkenni.“
Jóna spurði son sinn varfærnis-
lega að því hvort pabbi hans hafði
einhvern tímann gert eitthvað sem
honum hafi fundist skrýtið eða
óþægilegt og þá opnaði hann sig
smám saman að hennar sögn.
Hótanir í yfirheyrslum
Jóna tilkynnti barnavernd um hina
meintu misnotkun og voru maðurinn
ásamt frænda hans handteknir dag-
inn eftir. Mennirnir voru í kjölfarið
úrskurðaðir í gæsluvarðhald þar sem
maðurinn hótaði fjölskyldunni ítrek-
að. Einnig hótaði hann Sveini Andra
Sveinssyni lögmanni sem var fyrst
skipaður verjandi hans, sem varð til
þess að hann lét málið frá sér. Sem
stendur býr fjölskyldan í Svíþjóð en
vegna þess að maðurinn deilir enn
forræði með Jónu fær drengurinn
ekki sænska kennitölu og getur því
ekki hafið skólagöngu þar í landi og
fengið viðeigandi hjálp eins og sál-
fræðimeðferð. Hann er greindur með
þroskaskerðingu og mat sálfræðing-
ur hann vera með þroska á við fimm
ára barn. Hann þarf mikinn stuðning
við nám og það er erfitt fyrir hann að
vinna upp það sem hann hefur þeg-
ar misst úr námsefninu. „Við stönd-
um frammi fyrir því núna að barn-
ið fær ekki þá aðstoð sem það þarf
á að halda. Hann er eftir á og hann
má ekki við því að missa úr skóla.
Það hefði verið svo gott fyrir hann að
komast inn í skóla til að undirbúa sig
fyrir næsta ár upp á tungumálið að
gera. Núna er hann bara heima hjá
okkur og við reynum að hlúa að hon-
um eins og við getum.“
Langþreytt á stríði
Jóna krefst þess að gerð verði for-
sjársvipting og hún fái fullt forræði
yfir syni sínum. Hún bendir á að í
29. grein barnaverndarlaga standi
að barnaverndarnefnd sé heimilt að
krefjast þess fyrir dómi að foreldri,
annað eða bæði, skuli sviptir forsjá
ef hún telur fullvíst að líkamlegri
eða andlegri heilsu barns eða þroska
þess sé hætta búin sökum þess að
foreldrar eru augljóslega vanhæfir til
að fara með forsjána, svo sem vegna
vímuefnaneyslu, geðrænna trufl-
ana, greindarskorts eða að breytni
foreldra sé líkleg til að valda barni
alvarlegum skaða. Hin meinta kyn-
ferðislega misnotkun er í rannsókn
á Ríkissaksóknara en telja má full-
víst að maðurinn hafi verið í neyslu
þar sem fíkniefni fundust heima hjá
honum við húsleit í apríl þegar málið
kom upp. „Barnaverndarnefnd seg-
ir að við verðum að koma heim og
höfða forsjármál á hendur barnsföð-
ur mínum. Það er sem sagt ekki nóg
að hann sé grunaður um hrottalega
misnotkun og hafi augljóslega ver-
ið í neyslu til að barnaverndarnefnd
gangi í málið. Ég hélt að tilgangur
hennar væri að vernda börn og ég er
orðin langþreytt á að standa í stríði
við þessa stofnun. Það eina sem yf-
irvöld í Svíþjóð fara fram á er að fá
staðfestingu frá barnaverndarnefnd
á því að þetta mál hafi átt sér stað og
barnið hafi sagt frá að það hafi ver-
ið misnotað. Það þarf að koma fram
að það hafi farið fram lögreglurann-
sókn en barnaverndarnefnd segist
í fyrstu ekki geta staðfest það. Við
fengum þau svör að barnið væri ekki
lengur með lögheimili í Kópavogi og
því gætu þau ekkert aðhafst í mál-
inu. Það er ekki rétt því við fáum ekki
að breyta lögheimilii hans fyrr en að
fenginni staðfestingu frá þeim.“
Dagsektir þrátt fyrir
umgengnisbann
Jóna tekur sem dæmi um léleg
vinnubrögð barnaverndar að hennar
mati að henni hafi ekki verið til-
kynnt um breytingu á umgengnis-
rétti barnsföður síns. „Við vorum
búin að ákveða að flytja út áður enn
þetta mál kom upp en vissum ekki
hvenær. Við vorum því búin að hafa
samband við barnaverndarnefnd í
Hafnarfirði til þess að kanna það ef
ég færi í forræðismál við hann hvort
ég fengi þeirra stuðning. Þá tilkynna
þær mér að manninum hafi verið til-
kynnt árið 2008 að hann fengi ekki
frekari umgengni við strákinn en þá
hafði hann sagt við yfirmann barna-
verndarnefndar í Hafnafirði að hann
reykti hass og að hann mundi aldrei
hætta því. Aftur á móti var mér aldrei
tilkynnt um þetta og það var ekki haft
samband við sýslumann til að breyta
umgengnisúrskurðinum. Hann var
því áfram með sameiginlegt forræði
á pappírum og ég hélt áfram að fá
dagsektir, þrátt að nefndin væri búin
að taka fyrir umgengni.“
Margir sem brugðust
Jóna segir að enn í dag eigi drengur-
inn til að vakna upp við martraðir.
Hann sé hættur að pissa undir en á
það ennþá til að missa hægðir þegar
honum líður illa. „Það eru svo margir
búnir að bregðast syni mínum. Núna
langar mig bara að fá tækifæri til þess
að hefja nýtt líf hér úti og að sonur
minn fái tækifæri til að lifa eðlilegu
lífi. Það er búið að ganga svo mikið
á að mér finnst eins og ég sé ekki
ennþá búin að átta mig á öllu sem
búið er að gerast. En núna skiptir öllu
málið að sonur minn fái að ganga í
skóla og honum fari að líða betur.“
„Við vorum búin að ákveða að flytja út áður en
þetta mál kom upp en vissum ekki hvenær.
Í Svíþjóð Jóna býr nú með syni sínum og nýjum sambýlismanni í Svíþjóð.
Umfjöllun DV
DV fjallaði um mál Jónu
í byrjun apríl á þessu ári.
4 | Fréttir 6. apríl 2011 Miðvikudagur
Fyrirtækið Allrahanda byggir tvö þúsund fermetra húsnæði:
Stórframkvæmd í kreppunni
„Þetta eru rúmir tvö þúsund fermetrar
og er stærsta framkvæmd sem fer í
gang á Reykjavíkursvæðinu á þessu
ári,“ segir Sigurdór Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtæk-
isins Allrahanda.
Á laugardag var tekin fyrsta skóflu-
stungan að byggingu nýs húsnæð-
is undir starfsemi fyrirtækisins. „Við
erum á tveimur stöðum í dag og erum
að reyna að sameina þetta,“ segir Sig-
urdór en byggingin mun rísa í Kletta-
görðum niðri við Sundahöfn. Kostn-
aðaráætlun hljóðar upp á um 300
milljónir króna að hans sögn.
„Það var allt í lagi. Við áttum góðan
sjóð í þetta sjálfir þannig að fjármögn-
un er ekki nema um 60 prósent,“ seg-
ir hann þegar hann er spurður hvort
erfitt hafi reynst að fjármagna fram-
kvæmdina. Áætlanir gera ráð fyrir að
húsnæðið verði tilbúið um mánaða-
mótin ágúst/september en BM Vallá
sér um að byggja húsið. Sigurdór seg-
ir að lögð hafi verið áhersla á að nota
íslenska framleiðslu og vonast hann
einnig til þess að framkvæmdin muni
skapa störf fyrir íslenska verkamenn.
Allrahanda er stórt ferðaþjónustu-
fyrirtæki og skipuleggur meðal ann-
ars dagsferðir til og frá Reykjavík fyr-
ir ferðamenn. Fyrirtækið sér einnig
um skólaakstur fyrir sveitarfélögin á
höfuð borgarsvæðinu og hefur því í
nógu að snúast. Sigurdór segir að yfir
vetrartímann séu starfsmenn um 60
en fari vel yfir hundrað yfir sumartím-
ann þegar erlendir ferðamenn heim-
sækja landið.
einar@dv.is
Fyrsta skóflustungan Það var Guðrún
Þórisdóttir, sölustjóri Allrahanda, sem tók fyrstu
skóflustunguna á laugardag. Mynd Gunnar Guðjónsson
Lögregla skoðar fingraför:
Enginn verið
handtekinn
Enginn hefur verið handtekinn í
tengslum við rannsókn lögreglu á
bréfi sem barst á ritstjórnarskrifstofu
DV á mánudag þar sem tuttugu fyrr-
verandi ráðherrum er hótað. Allir
höfðu þeir stutt Icesave-samninginn
opinberlega.
Að sögn Friðriks Smára Björg-
vinssonar hjá rannsóknardeild lög-
reglunnar verður leitað að fingraför-
um á bréfinu í von um að hafa upp
á þeim sem bréfið sendi. Rannsókn
málsins er því haldið áfram, þrátt
fyrir að fram hafi komið á mánudag
að bréfið hafi ekki þótt mjög trúverð-
ugt er ljóst að innihald þess er tekið
alvarlega og málið rannsakað.
Friðrik Smári segir engan þeirra
sem tilgreindir eru í bréfinu hafa
kært hótunina til lögreglu. Eftir því
sem DV kemst næst barst engum
þeirra bréfið í pósti persónulega.
Eins og fram hefur komið var bréfið
skilið eftir í póstkassa DV.
Hafa þurft á líf-
vörðum að halda
DV leitaði til sagnfræðingsins
Guðna Th. Jóhannessonar á þriðju-
dag og spurði um hótanir sem
þessar í gegnum tíðina. Og það
þurfti ekki að fara lengra aftur en til
október 2008, eftir hrun bankanna,
til að finna nýlegasta dæmið. Geir
H. Haarde, þáverandi forsætis-
ráðherra, og Davíð Oddsson, þá-
verandi seðlabankastjóri, þurftu
á lífvörðum að halda eins og DV
greindi frá á sínum tíma. Björgvin
G. Sigurðsson, þáverandi viðskipta-
ráðherra, fékk einnig fylgd lífvarða.
Guðni bendir einnig á það í
svari sínu við fyrirspurn DV að
þegar aðild að NATO var samþykkt
hafi hitnað í kolunum. Nánar til-
tekið í mars 1949. „Þá var mikill hiti
í mönnum og einkum fékk Bjarni
Benediktsson utanríkisráðherra
að finna fyrir því. Þá var um stund
öryggisgæsla við heimili hans og
börn hans (m.a. Björn Bjarnason)
gistu annars staðar um stundarsak-
ir,“ rifjar Guðni upp.
Þriðja dæmið sem sagnfræð-
ingurinn man eftir í fljótu bragði er
í kringum þingrofið árið 1931. Þá
var hitinn sv mikill í mönnum að
velunnarar Tryggva Þórhallssonar
forsætisráherra höfðu uppi gæslu
við heimili hans.
Maðurinn sem situr í gæsluvarð-
haldi grunaður um gróf kynferðis-
brot gegn sjö ára syni sínum hefur
í gegnum tíðina verið dæmdur fyrir
ýmiss konar brot. Gert var hæfnis-
mat á manninum að beiðni barna-
verndarnefndar Hafnarfjarðar fyrir
nokkrum árum. Þar var hann, sam-
kvæmt heimildum DV, metinn hæf-
ur til að vera með drenginn á móti
móður hans. Manninum var dæmd
full umgengni við drenginn, sem
þýðir að hann mátti hafa hann aðra
hverja helgi, önnur hver jól og fjórar
vikur á sumrin.
Beitt dagsektum
Móðir drengsins vildi ekki leyfa
manninum að umgangast hann
vegna gruns um að maðurinn væri
í fíkniefnaneyslu og neitaði að fara
eftir dómnum, samkvæmt heim-
ildum DV. Mun hafa verið mikil
togstreita á milli þeirra en móðirin
hefur verið beitt dagsektum vegna
þessa.
Síðastliðið sumar byrjaði að
reyna meira á umgengnisréttinn
þar sem faðirinn fór að sækja það
fastar að fá að hitta son sinn. Þar
sem maðurinn virtist vera í betra
formi en áður fór drengurinn oftar
til hans en samkvæmt heimildum
DV hefur hann einungis gist tvisvar
hjá föður sínum yfir nótt.
Var á Breiðavík
Brotaferill mannsins, sem er um
fimmtugt, er langur og hefur hann
meðal annars verið dæmdur fyrir
að ráðast á barnsmóður sína og
föður hennar, ásamt því að fremja
skemmdarverk á bíl föðurins. Aðr-
ir dómar varða meðal annars fíkni-
efnalagabrot, fjársvik, þjófnað og
hylmingu. Frændi mannsins, á fer-
tugsaldri, var einnig handtekinn í
tengslum við málið. Húsleit var gerð
heima hjá þeim báðum að fengnum
úrskurði dómara. Á báðum heimil-
unum fundust fíkniefni, meðal ann-
ars marijúana.
Þá var lagt hald á tölvur beggja
mannanna vegna gruns um að í
þeim væri að finna myndir sem
sýna börn, þar á meðal unga dreng-
inn, á klámfenginn og kynferðisleg-
an hátt. Mennirnir voru úrskurðað-
ir í gæsluvarðhald skömmu eftir að
þeir voru handteknir.
Faðirinn dvaldi á vistheimilinu
Breiðavík á sínum yngri árum og
hefur verið í mikilli óreglu sem
hófst, samkvæmt heimildum blaðs-
ins, á unglingsaldri.
Árið 2004 skildi hann við barns-
móður sína og fór fram á jafnan
umgengnisrétt við drenginn. Sam-
kvæmt heimildum DV sótti mað-
urinn ekki mikið í samskipti við son
sinn fyrr en síðastliðið sumar en
vegna neyslu og óreglu var barns-
móðir hans mótfallin því að veita
honum umgengni.
Frekari skýrslutökur
Maðurinn var úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 6. apríl en Björgvin
Björgvinsson, yfirmaður kynferðis-
brotadeildar lögreglunnar í Reykja-
vík, segir óvíst hvort farið verði fram
á áframhaldandi gæsluvarðhald
yfir manninum. „Það eru síðustu
skýrslutökur yfir honum á morgun
[á miðvikudag, innskot blaða-
manns]. Við erum að bíða eftir nið-
urstöðu tölvurannsóknardeildar og
ég get í raun og veru ekki sagt neitt
um það fyrr,“ segir Björgvin.
Spurður hvort fjölskyldu drengs-
ins verði veitt vernd gagnvart mann-
inum, sem hefur verið dæmdur fyr-
ir að ráðast á barnsmóður sína líkt
og áður kom fram, segir Björgvin að
ýmis úrræði séu til staðar fyrir fólk í
aðstöðu sem þessari en það verði að
koma í ljós hvað verði gert í því máli.
Metinn hæfur til að
uMgangast drenginn
n Grunaður um kynferðisbrot gegn syni sínum n Metinn hæfur af Barnavernd
n Móðirin beitt dagsektum n óvíst með áframhaldandi gæsluvarðhald
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
„Brotaferill manns-
ins, sem er um
fimmtugt, er langur og
hefur hann meðal ann-
ars verið dæmdur fyrir
líkams árás á hendur
barnsmóður sinni og
föður hennar.
dæmdur fyrir ýmiss konar brot Maðurinn sem
situr í gæsluvarðhaldi vegna meints kynferðisbrots
gegn ungum syni sínum á að baki langan sakaferil.
• Bylting fyrir bakið
• Styrkir magavöðvana
• Frelsi í hreyfingum
• Margviðurkenndur stóll
Swopper vinnustóllinn
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25