Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2012, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2012, Síða 2
2 Fréttir hefur löngum deilt við björgólfsfeðga G unnar Þorvaldur Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlits- ins, mun að öllum líkind- um bráðlega hætta störfum eftir að stjórn FME ákvað að reka hann. Gunnar hefur rétt til að andmæla ákvörðun stjórnarinnar og þarf að svara stjórninni eigi síðar en á fimmtudagskvöld. Gunnar á að baki langan og við- burðaríkan feril, þar sem leiðir hans og feðganna Björgólfs Guðmunds- sonar og Björgólfs Thors Björgólfs- sonar hafa legið saman með afdrifa- ríkum afleiðingum. Hann hjálpaði til við margfræga blaðagrein um Hafskipsmálið á miðjum níunda áratugnum og bar síðar vitni gegn Björgólfi Guðmundssyni fyrir dómi. Hann hætti hjá Landsbankanum þegar feðgarnir keyptu bankann árið 2002 og nú 10 árum síðar eru störf hans fyrir bankann að verða honum að falli. Gunnar er 63 ára. Hann er sonur Hans G. Andersen, fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og bjó sjálfur lengi í Bandaríkjunum. Hann er með MBA-gráðu frá Háskól- anum í Minnesota og starfaði meðal annars hjá Pepsi Cola í Bandaríkjun- um og Sameinuðu þjóðunum sem fjárfestingarfulltrúi áður en hann haslaði sér völl á Íslandi. Bar vitni gegn Björgólfi Þegar saga Gunnars er skoðuð kemur sem fyrr segir í ljós að hann og Björgólfsfeðgar og aðilar þeim tengdir hafa lengi eldað grátt silfur. Sagan hófst þegar Gunnar var for- stjóri Cosmos, dótturfélags Hafskips í Bandaríkjunum fyrir um aldarfjórð- ungi síðan. Óhætt er segja að Gunnar hafi ekki siglt lygnan sjó hjá Hafskipi. Hafskipsmálið svokallaða hófst árið 1985 þegar blaðamaðurinn Halldór Halldórsson skrifaði úttekt um málefni skipafélagsins í Helgar- póstinn sáluga. Málinu var slegið upp á forsíðu blaðsins með fyrir- sögninni: „Er Hafskip að sökkva?“ Meðfylgjandi mynd á forsíðu sýndi síðan gámaflutningaskip merkt Haf- skip, brotið í tvennt að sökkva í sjó- inn. Gunnar hefur gengist við því að hafa verið einn af heimildarmönn- um blaðsins við vinnslu fréttarinnar. „Já, ég var einn af mörgum heimild- armönnum. Þar var þó ekki verið að brjóta þagnarskylduákvæði og þeir brutu lög og fengu dóm,“ sagði Gunn- ar í viðtali við Viðskiptablaðið árið 2009. „Þar var gífurleg óstjórn á fyr- irtækinu og stundaðir óeðlilegir við- skiptahættir og misvísandi og rangar færslur.“ Hafskipsmálið vatt í kjölfarið ræki- lega upp á sig og varð að einu stærsta og frægasta dómsmáli níunda ára- tugarins. Fyrir dómi bar Gunnar vitni gegn stjórnendum félagsins, meðal annars Björgólfi Guðmundssyni, og sagði þá hafa framið lögbrot. Hann hefur sagt að honum hafi ekki líkað starfið hjá Hafskipi og það hafi ekki samræmst upplifun sinni af siðferði. Gunnar var eitt af lykilvitnun- um í Hafskipsmálinu og lagði vitn- isburður hans lóð á vogaskálar ákæruvaldsins, sem leiddi meðal annars til þess að Björgólfur Guð- mundsson var dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi árið 1990. Hætti út af Björgólfsfeðgum Skömmu eftir að Hafskipsmálinu lauk fyrir dómi með fyrrgreindum afleið- ingum fyrir Björgólf, hóf Gunnar störf hjá Landsbankanum. Gunnar starfaði hjá Landsbankanum frá 1991 til 2002, þar af síðustu fjögur árin sem fram- kvæmdastjóri alþjóða- og fjármála- sviðs bankans. Gunnar lét af störf- um árið 2002, en fram kom í fréttum á þeim tíma að hann hefði hætt að eigin ósk að vandlega íhuguðu máli. Það var hins vegar ekki farið nánar út í ástæðurnar sem lágu að baki upp- sögn Gunnars hjá bankanum, en um þetta leyti voru Björgólfsfeðgar í félagi við Magnús Þorsteinsson að ganga frá kaupum á Landsbankanum. Eftir það sem á undan var gengið í samskiptum Gunnars og Björgólfs, hlaut að teljast útilokað að Gunnar gæti orðið lykil- stjórnandi félags í hans eigu. Hefði Gunnar ekki sagt upp störfum sjálf- um, hefði hann sennilega verið rek- inn úr starfi hvort eð er. Gunnar fór ekki í launkofa með það í viðtali við Viðskiptablaðið 2009 að hann hefði hætt hjá Landsbankanum vegna þess að honum hefði ekki líkað hið nýja eignarhald bankans. Um samstarf sitt við Björgólf eldri, sagði hann að þeim hefði ekki tekist að starfa vel saman. Sagður vera heimildarmaður Árið 2002 birti fjármálatímaritið Euro money stóra grein í tilefni þess að þremenningarnir voru að ganga frá kaupum á Landsbankan- um undir merkjum Samson Hold- ings. Í greininni voru Björgólfsfeðgar gagnrýndir harðlega fyrir reynslu- leysi á sviði bankastarfsemi og bak- grunnur þeirra í viðskiptum dreginn í efa, en þeir höfðu þá nýverið selt drykkjarverksmiðju sína til Heine- ken fyrir háar fjárhæðir. „Kaup þeirra á drykkjarverksmiðjunni í St. Pét- ursborg hafa valdið miklum deilum og málaferlum bæði í Rússlandi og á Íslandi,“ sagði í greininni. Þá voru yfirvöld hér á landi einnig gagnrýnd fyrir að taka lítið tillit til vafasamrar viðskiptasögu Björgólfs eldri, en með gjaldþroti Hafskips dróst Útvegs- bankinn niður í svaðið og var Björg- ólfur á endanum dæmdur í 12 mán- aða skilorðsbundið fangelsi. „Svo er það spurningin hvers vegna eru for- sætisráðuneytið, einkavæðingar- nefnd, fjármálaráðuneytið og Seðla- bankinn svona áhugalaus um þátt Björgólfs í að draga íslenskan banka í svaðið á níunda áratugnum?“ Greinin vakti mikla athygli á sín- um tíma, enda ímynd Björgólfs- feðga á þeim tíma að mestu slétt og felld þrátt fyrir Hafskipsmálið. Meðal annars hefur verið sagt að Gunnar Þ. Andersen og Ingimar Ingimarsson, fyrrverandi viðskiptafélagi Björgólfs- feðga í Rússlandi, hafi verið helstu heimildarmenn Euromoney við vinnslu greinarinnar, þó að það hafi aldrei fengist staðfest. Vissi að Landsbankinn blekkti FME Það eru einmitt störf hans fyrir Landsbankann, sem eru að verða honum að falli núna sem forstjóri FME. Eins og fram hefur komið vissi Gunnar að Landsbankinn hefði blekkt FME árið 2001, þegar eftir- litið spurðist fyrir um aflandsfélög á vegum bankans. Í því ljósi gæti hæfi hans sem forstjóri FME ekki verið hafið yfir allan vafa. Í greinargerð Ásbjörns Björnsson- ar endurskoðanda og Ástráðs Har- aldssonar lögmanns um hæfi Gunn- ars, segir orðrétt: „Við teljum að þrátt fyrir meinta óvissu um lagaleg tengsl „ Já, ég var einn af mörgum heim- ildarmönnum. Þar var þó ekki verið að brjóta þagn- arskylduákvæði og þeir brutu lög og fengu dóm. n Ferill Gunnars Þ. Andersen er viðburðaríkur n Var lykilvitni í Hafskipsmálinu 22. febrúar 2012 Miðvikudagur Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Gunnar Þ. Andersen Brottrekinn forstjóri Fjármálaeftirlitsins og Björgólfsfeðgar hafa lengi eldað grátt silfur. Vildi ekkert með þá hafa Eftir að Gunnar hafði lagt lóð á vogaskálar ákæruvaldsins sem vitni í Hafskipsmálinu kom ekki til greina að hann héldi áfram sem lykilstjórnandi hjá Landsbankanum eftir að Samson Holdings keypti bankann. Bankastjóri til rannsóknar Lögmaður Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, hefur farið mikinn í gagnrýni á Gunnar og krafist brottrekstrar hans. Ræningjar játa sök: Lélegt tímakaup Þrír karlar á þrítugsaldri sem hand- teknir voru grunaðir um tvö inn- brot í austurborginni á mánu- dag, þar sem peningaskápum var stolið, hafa játað sök. Lögreglan komst á slóð innbrotsþjófanna út frá skófari á vettvangi glæpsins. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu brutust mennirnir inn í fyrirtæki en í fyrrinótt urðu þeir frá að hverfa tómhentir þar sem þeim tókst hvorki að opna stóran og þungan peningaskáp né flytja hann annað. Þeir neituðu þó að gefast upp og brutust inn hjá öðru fyrirtæki í nágrenninu og fundu þar tvo peningaskápa, öllu minni, sem þeir höfðu með sér af vettvangi. Fóru þeir á afvikinn stað, brutu þar upp skápana og hirtu reiðufé sem í þeim var að finna og skiptu á milli sín. Eftir að lögreglu barst tilkynning um innbrotin þennan sama morgun var á litlu að byggja við rann- sókn málsins utan þess að skófar sást á vettvangi. Það og brjóstvit lögreglumanna leiddi til þess að skömmu síðar var bankað upp á hjá manni sem hefur áður kom- ist í kast við lögin. Sá kom svefn- drukkinn til dyra og var lítt um þessa heimsókn gefið. Í forstofu hans var hins vegar að finna skó sem ástæða þótti til að skoða nánar og þá tók hringinn að þrengja en húsráðandi var hand- tekinn og fluttur á lögreglustöð. Annar maður var svo vakinn upp af værum blundi skömmu seinna í öðru húsi á höfuðborg- arsvæðinu en hann var sömu- leiðis viðriðinn málið og því færður til yfirheyrslu. Peningar fundust á báðum heimilum. Þriðji maðurinn var svo hand- tekinn um hádegisbil. Sá hafði þegar eytt sínum hluta af ráns- fengnum en peningana notaði hann meðal annars til að kaupa sér áfengi. Bæði innbrotin teljast upplýst. Tekist hefur að endur- heimta meirihlutann af ráns- fengnum en það verður að segjast að tímakaup þremenn- inganna við þessa vafasömu iðju var frekar lélegt enda voru ekki miklir fjármunir í peningaskáp- unum. Þess má geta að mennirn- ir hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu. Banna bjórkvöld menntskælinga Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði bjórkvöld framhalds- skólanemenda um helgina. Slíkar samkomur eru alla jafna ólög- legar þar sem nemarnir eru fæstir orðnir tvítugir. Í þessu tilfelli voru einstaklingar sem voru aðeins sextán ára gamlir saman komnir á skemmtistað og var sala áfeng- is stöðvuð og staðnum lokað. Ábyrgðin á slíkum kvöldum hvílir á leyfishafa skemmtistaðarins, en slíkar skemmtanir eru ekki skil- greindar sem skólaskemmtanir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.