Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2012, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2012, Síða 6
Björn of örlátur við sjálfan sig 6 Fréttir 22. febrúar 2012 Miðvikudagur Alþingi getur skipt um skoðun n Lögfræðingur Alþingis vinnur nýtt minnisblað um Geir L ögfræðingur Alþingis telur ekk- ert því til fyrirstöðu að fella úr gildi fyrri ákvarðanir þingsins. Þetta kemur fram í minnisblaði frá 20. febrúar, sem lögfræðingur þingsins vann fyrir Valgerði Bjarna- dóttur, formann stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vegna tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálf- stæðisflokksins, um að fallið verði frá landsdómsákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð- herra. Lögfræðingur segir enn frem- ur að þingsályktunartillögur verði ekki takmarkaðar við ákvarðanir þingsins samkvæmt stjórnarskránni enda geti Alþingi með þingsályktun „… lýst vilja sínum um svo að segja hvers konar málefni.“ Þá bendir lögfræðingur á að Al- þingi fari samkvæmt stjórnarskrá með löggjafarvald og geti því breytt eigin ákvörðunum. Máli sínu til rök- stuðnings nefnir lögfræðingur þings- ins þingsályktun Alþingis frá febrúar 1985, þar sem samþykkt var ályktun Alþjóðahvalveiðiráðsins um að tak- mörkun hvalveiða yrði ekki mót- mælt. Árið 1999 var þeirri ákvörðun svo breytt og ný þingsályktunartillaga samþykkt. „Alþingi ályktar að hefja skuli hið fyrsta hvalveiðar hér á landi og tekur fram að ályktun þess frá 2. febrúar 1983 stendur ekki í vegi fyr- ir því,“ segir í ályktun þingsins. Þing- lögfræðingur segir að sú afstaða sem birtist í þessari ákvörðun Alþingis sé í samræmi við þá skoðun að þing- ið geti ályktað á ný um þau mál sem það hefur þegar ályktað um. Af þessu virðist sem svo að lög- fræðingur þingsins telji ekkert því til fyrirstöðu að Alþingi taki tillögu Bjarna Benediktssonar til seinni um- ræðu. Meirihluti þingmanna hafnaði frávísun á tillögu Bjarna þegar hún var til umræðu á Alþingi um miðj- an janúar og síðan þá hefur stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd fjallað um málið. Á mánudaginn fór fram, í Hér- aðsdómi Reykjavíkur, aðal- meðferð í einu af fjórum rift- unarmálum sem þrotabú Þreks ehf. höfðaði gegn Laug- um ehf. Björn Leifsson, fyrrverandi eigandi Þreks og einn aðaleigandi Lauga, keypti rekstur líkamsræktar- stöðva World Class út úr Þreki í sept- ember árið 2009, sama dag og félagið fór í þrot. Dómsmálið í héraðsdómi á mánudag snérist um tæplega 95 milljóna viðskiptaskuld Lauga við Þrek sem breytt var í vaxtalaust verð- tryggt skuldabréf til tíu ára án nokk- urra veðtrygginga, í febrúar árið 2009. Að mati þrotabúsins er um að ræða bæði óeðlileg lánskjör og óeðli- lega langan lánstíma. Tilgangurinn var að gefa Ólafur Kjartansson, lögmaður þrota- bús Þreks ehf., nú ÞS69 ehf., sagði fyrir dómi að um augljósan „örlætis- gjörning“ hefði verið að ræða sem leiddi til þess að ákveðnar eignir voru ekki til reiðu í þrotabúinu. Hann vill meina að gjörningurinn hafi leitt til þess að 24 milljóna króna verðmæt- arýrnun hafi orðið á fénu ef miðað er við 5,9 prósenta ávöxtunarkröfu. Sú upphæð sé jafnframt auðgun stefnda og samsvari tjóni þrotabúsins. Þrota- búið krefst því að Laugar greiði ÞS69 upphæð sem því nemur en skulda- bréfið haldist engu að síður óbreytt. Ólafur benti á að um væri að ræða samning á milli mjög tengdra aðila enda hefði Björn Leifsson verið eig- andi beggja félaganna á þeim tíma sem kröfunni var breytt í skulda- bréf. Í viðskiptum við sjálfan sig hefði Björn því í raun boðið sjálfum sér kjör sem honum hefðu ekki staðið til boða á almennum markaði. Tilgang- urinn með því hlyti að hafa verið að gefa, sagði Ólafur í málflutningi sín- um. Verðtrygging þjónar sama til- gangi og vextir Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Björns, hélt því fram í málflutningi sínum að ekki hefði verið sýnt fram á að Laugar hefðu auðgast með ein- hverjum hætti í kjölfar útgáfu skulda- bréfsins. Engin réttindi hefðu verið gefin eftir enda hefði alltaf verið greitt af bréfinu. Þá sagði hann verð- trygginguna sjaldan álitna sem gjöf. „Ég hef ekki hitt þann Íslending sem telur það gjöf að hafa tekið verð- tryggt lán.“ Sigurður sagði að í raun þjónaði verðtryggingin sama hlutverki og vextirnir – að tryggja að sá sem lán- aði fé fengi verðmæti þess til baka. „Nú er það svo að það er frjálst í ís- lensku samfélagi að semja um vexti á skuldir og verðtryggingu og að skuld- ir beri verðtryggingu og vexti. Það er ekkert sem bannar það.“ Sigurður sagði að ekki væri fótur fyrir því að um örlætisgjörning hefði verið að ræða. Umbreyting kröfunn- ar yfir í skuldabréf hefði einfaldlega verð frágangur á viðskiptareikningi sem hafði blásið út vegna þess að báðir aðilar höfðu tekið mikið af lán- um og lagt fram mikið fé í tengslum við byggingu íþróttamannvirkis World Class á Seltjarnarnesi á sínum tíma. Björn mætti ekki í dómsal á mánudag. Teiknaður upp sem fórnarlamb Aðalmeðferð fór fram í öðru máli þrotabús Þreks ehf. gegn Laugum ehf. í lok janúar. Þá teiknaði Sigurður Björn upp sem hálfgert fórnarlamb í málinu. „Björn Leifsson hefur bara fengið ónot frá fjölmiðlum, verið kallaður kennitöluflakkari og svik- ari,“ sagði hann meðal annars. Líkt og DV hefur áður greint frá, samkvæmt heimildum, voru allar ráðstafanir og gjörningurinn í kring- um gjaldþrot Þreks ehf. kærður til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra síðastliðið vor. Deildin sam- einaðist embætti sérstaks saksókn- ara 1. september og liggur málið því nú inni á borði þess embættis til rannsóknar. Kært er fyrir skilasvik. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is n Þrotabú stefnir Bjössa í World Class fyrir dóm í fjórða málinu Málin gegn Laugum ehf. 1 Krafist er riftunar á kaupum Björns á rekstri World Class út úr Þreki ehf. í gegnum Laugar ehf. á 25 milljónir króna. Gjörningurinn átti sér stað í september árið 2009, sama dag og Þrek fór í þrot. DV hefur greint frá því, samkvæmt heimildum, að dómkvaddir matsmenn hafi metið rekstur World Class á 800 til 1.000 milljónir króna. Kaupverðið var því einungis tæp 3 prósent af matsverði. Samkvæmt Sigurbirni Ársæli Þorbergs- syni þrotabússtjóra ÞS69 ehf. er nú beðið eftir nýrri matsgerð dómkvaddra matsmanna, en Björn var ósáttur við fyrra matið. 2 Krafist er riftunar á meintum 300 milljóna króna „gjafagjörningi“, þar sem peningar voru færðir úr Þreki ehf. yfir í Laugar í tengslum við lántöku vegna byggingar íþróttamannvirkis á Seltjarnarnesi árið 2008. 3 Krafist er 24 milljóna króna greiðslu vegna meintrar verðmætarýrnunar í kjölfar þess að 95 milljóna króna viðskiptaskuld Lauga ehf. við Þrek ehf. var breytt í vaxtalaust skuldabréf til tíu ára í febrúar 2009. 4 Ekki fengust upplýsingar um fjórða málið, en því hefur verið lokið með samkomulagi. Örlætisgjörningur ÞS69 ehf. krefst þess að Laugar ehf. greiði 24 milljónir króna vegna verðamætarýrnunar á vaxtalausu skuldabréfi. Gjaldþrot Astraeus átökin um world class Bjössi gaf sjálfum w w w .d v .i s F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 23.–24. nóvember 2 011 miðvikudagur/fimmtudagur 13 5 . t b l . 10 1. á r g . l e ið b . v e r ð 4 2 9 k r . sér 97% afslátt „ Nei, nei, ég hef ekkert um þetta að segja n World Class metið á milljarð n Dómurinn skipaði matsmann n Bjössi seldi sjálfum sér á 25 milljónir n Segist hafa borgað 274 milljónir n Efast um matið og vill nýtt n Hvað er svona merkilegt? n Algjör draumur fyrir Íslendinga Auðmaðurinn í kröggum með Frumherja Íris Kristinsdóttir Kauptu frá útlöndum „Algjör draumur fyrir Íslendinga Finnur veðsetti mælinn þinn Vestmannaeyjar Ódýrar jólagjafir á netinu Gengur með tvíbura Lindex-æðið á Íslandi 23 3 14–15 411 10 grimm örlög lolu Útrásarvíkingurinn á milljarða eftir góðærið 2–3 fellir ekki Pálma 23. nóvember 2011 Skora á forseta að beita sér Stjórn Hagsmunasamtaka heimil- anna (HH) átti á mánudag fund á Bessastöðum með forseta Ís- lands, Ólafi Ragnari Grímssyni. Þar voru honum voru afhentar 38 þúsund undirskriftir sem safnast hafa í undirskriftasöfnun samtak- anna að undanförnu til stuðnings kröfunni um „almenna og rétt- láta leiðréttingu á stökkbreyttum lánum heimilanna og afnám verð- tryggingar eða þjóðaratkvæða- greiðslu þar um.“ Samkvæmt til- kynningu frá HH var stjórninni vel tekið af forsetanum sem mun hafa boðið upp á bollur á Bessastöð- um í tilefni bolludagsins. Fulltrúar HH ræddu ítarlega um baráttumál samtakanna og segir í tilkynningu að augljóst sé að forsetinn hafi hugsað mikið um þau mál. „Og virtist hann sammála stjórn HH um að finna þurfi úrlausn þeirra mála með einum eða öðrum hætti.“ Barnið laust í framsætinu Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanni við leik- skóla fyrir nýliðna helgi. Í fram- sæti bílsins var einn fullorðinn far- þegi með lítið barn laust í fanginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umferðarstofu sem vill sérstaklega vekja athygli á málinu í þeirri von að það endurtaki sig ekki. „Hefði bíllinn lent í árekstri eða ökumað- ur þurft að nauðhemla af einhverj- um ástæðum hefðu afleiðingar getað orðið mjög alvarlegar fyrir barnið. Eins og flestir vita eiga börn að sitja í viðeigandi öryggis- búnaði sem hæfir þyngd þeirra,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur enn fremur fram að ökumaðurinn hafi ekki verið með ökuskírteini og við athugun hafi komið í ljós að hann hafði misst ökuréttindi fyrir nokkrum árum, en látið hjá líða að taka próf að nýju til að endurheimta þau. Öku- maðurinn á von á kæru og lög- regla sendir almennt skýrslu um slík mál til yfirvalda barnavernd- armála, sem síðan ákveða hvort og þá til hvaða aðgerða sé rétt að grípa. Verður hætt við allt saman? Á myndinni heilsar Geir saksóknaranum í landsdómsmálinu. Tveir sviptir ökuréttindum Fáein erindi komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu á þriðjudaginn. Fyrir hádegi var tilkynnt um þjófnað á skráningarmerkjum, DD-804, af bifreið sem stóð við Skútu- vog og um klukkan hálf tólf barst lögreglunni tilkynning um bláa tunnu merkta „Toxic“ á Geldinganesi. Hún innihélt eitthvert efni og var slökkvilið- inu falið að fjarlægja tunnuna sem einhver hafði losað sig við. Tveir ökumenn voru sviptir réttindum til bráðabirgða eftir að hafa ekið á 74 og 66 kíló- metra hraða þar sem hámarks- hraðinn var 30. Þeir mega eiga von á sektum. Þá var lagt hald á fíkniefni í húsi við Hverfisgötu. „Nú er það svo að það er frjálst í íslensku samfélagi að semja um vexti á skuldir og verðtryggingu og að skuldir beri verðtryggingu og vexti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.