Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2012, Blaðsíða 10
10 Fréttir 22. febrúar 2012 Miðvikudagur
D
avíð fór illa með aumingja
Styrmi þegar sá síðari ætl-
aði að taka hann í bakaríið
fyrir að breiða út um bæinn
hvernig skuldastaða hans
væri í bankakerfinu,“ skrifaði höf-
undur nafnlauss hótunarbréfs sem
sent var til Matthíasar Johannes-
sen, ritstjóra Morgunblaðsins, í apríl
árið 1998. Tilefni bréfsins, sem að
öllum líkindum var samið af Kjart-
ani Gunnarssyni framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins og formanni
bankaráðs Landsbankans, var að
hóta ritstjórum Morgunblaðsins
undir rós vegna umfjöllunar blaðs-
ins og aðsendra greina, meðal ann-
ars eftir Sverri Hermannsson, sem
komu illa við kaunin á forystu Sjálf-
stæðisflokksins. Tilgangur bréfsins
virðist hafa verið að fá ritstjóra Morg-
unblaðsins til að skrifa með ógagn-
rýnari hætti um Sjálfstæðisflokkinn.
Hótunin sem kom fram í bréfinu
var meðal annars sú, virðist vera, að
framámenn í Sjálfstæðisflokknum
gætu gert Styrmi Gunnarssyni skrá-
veifu með því að ræða um skuldamál
hans opinberlega. Vísaði Kjartan til
þess með orðum í bréfinu sem vitn-
að er til hér að ofan að Davíð Odds-
son, þáverandi formaður Sjálfstæð-
isflokksins, hefði þá þegar breitt út
sögur um erfiða skuldastöðu Styrmis
og að forsætisráðherrann og ritstjór-
inn hefðu tekist á um efnið áður. Í
kjölfarið á tilvitnuninni hér að ofan
segir í bréfinu: „[Davíð, innskot
blaðamanns] Svaraði honum fullum
hálsi og sagði það rétt og að honum
dytti ekki í hug að liggja á því. Úr því
að hann notaði Moggann til að rakka
sig niður skyldi hann launa honum
lambið gráa með því að upplýsa sem
flesta um þessi mál hans. Þeir skyldu
bara sjá til hvor lifði þetta af, hann
eða Styrmir.“ Með bréfinu til Matth-
íasar virðist forysta Sjálfstæðisflokks-
ins aftur hafa ætlað að nota vitneskju
sína um skuldastöðu Styrmis til að fá
Morgunblaðið til að láta af skrifum
sem komu sér illa fyrir flokkinn, að
þeirra mati.
Bréfið sem aldrei var birt
Afrit af bréfinu sem vísað er til hér
hefur ekki áður verið birt opinber-
lega en Sverrir skrifaði bréfið upp
á vefsíðu sinni í apríl 2009. Ekki var
mikið rætt um bréfið þá. DV hef-
ur hins vegar undir höndum afrit af
bréfinu og er það birt með greininni.
Í blaðaviðtali árið 2007 sagðist Sverr-
ir hafa bréfið undir höndum en að
hann geymdi það í bankahólfi. Um-
fjöllun um bréfið var tekin út úr bók-
inni Sverrir – skuldaskil, sem Pálmi
Jónasson fréttamaður skráði, en
hún kom út árið 2003. Bókin fjallaði
um kafla úr ævi Sverris Hermanns-
sonar, fyrrverandi alþingismanns
Sjálfstæðisflokksins og bankastjóra
Landsbankans. Sverrir var rekinn úr
bankastjórastóli Landsbankans, sem
þá var enn í eigu ríkisins, vorið 1998
fyrir að misnota aðstöðu sína í bank-
anum. Sverrir fékk í kjölfarið birtar
aðsendar greinar í Morgunblaðinu
þar sem hann gagnrýndi forystu þá-
verandi ríkisstjórnarflokka, Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins, meðal annars Davíð
Oddsson og Finn Ingólfsson, sem
höfðu rekið hann frá bankanum.
Ástæða þess að umfjöllun um
bréfið var tekin út úr bókinni var
opinberlega sú að lögfræðileg atriði,
svo sem eins og upplýsingar um erf-
iða skuldastöðu Styrmis sem kynnu
að vera háðar bankaleynd, mæltu
gegn birtingu hennar. DV hefur hins
vegar heimildir fyrir því að óbein-
ar hótanir hafi einnig átt þátt í því
að umfjöllunin um bréfið var tek-
in út úr bókinni. Meðal þess sem
mun hafa verið nefnt var að Har-
aldur Johannessen ríkislögreglu-
stjóri, sonur Matthíasar, væri opin-
ber starfsmaður hjá stofnun sem lyti
pólitísku valdi, auk þess sem Ragn-
hildur Sverrisdóttir, dóttir Sverris
Hermannssonar, var blaðamaður
Morgunblaðsins á þeim tíma. Þrýst-
ingurinn í málinu var á endanum
svo mikill að umfjöllunin um bréf-
ið rataði ekki í prentaða útgáfu bók-
arinnar. Einnig ber að geta þess að
Kjartan Gunnarsson sat í stjórn út-
gáfufélagsins sem gaf bókina út,
Eddu, og var fyrirtækið í eigu Björg-
ólfs Guðmundssonar. Eigendavald-
ið kann því einnig að hafa spilað inn í.
Hótanirnar gegn Styrmi
Þetta var ekki í fyrsta skipti sem
fjármál Styrmis Gunnarssonar
höfðu komið til umræðu hjá Kjart-
ani. Á heimasíðunni sem Sverrir
opnaði árið 2009 sagði hann frá því
að árið 1995 hefði Kjartan komið á
sinn fund í Landsbankanum, sem
Sverrir stýrði á þeim tíma, og beðið
um að skuldir Styrmis við bankann
yrðu gjaldfelldar. Miklar sögur hafa
löngum gengið um erfiða skulda-
stöðu Styrmis, en talið er að skuldir
hans við Landsbankann hafi numið
um 80 milljónum króna um miðjan
tíunda áratuginn.
Ástæðan fyrir því að Kjartan
bað Sverri um þetta var sú, að hans
sögn, að forystu Sjálfstæðisflokks-
ins líkaði ekki umfjöllun Morgun-
blaðsins um stjórnmál á þeim tíma.
Styrmir og Jón Baldvin Hannibals-
son, formaður Alþýðuflokksins
sem sat í ríkisstjórn með Sjálfstæð-
isflokknum, eru gamlir skólafélag-
ar og vinir. Stjórnarsamstarf Dav-
íðs og Jóns Baldvins var orðið stirt
á þessum tíma. Sverrir segir að
með þessu hafi Davíð og Kjartan
ætlað að kúga Styrmi til að fjalla
betur um Sjálfstæðisflokkinn sem
þeir töldu á hallað á síðum Morg-
unblaðsins á þessum tíma. „Erind-
ið kvað Kjartan vera að Davíð telji
Styrmi Gunnarsson stjórna Morg-
unblaðinu með þeim hætti að hann
liggi þar undir áföllum sjálfur, en
Styrmir mylji hinsvegar undir Jón
Baldvin. Davíð vilji ekki við þetta
una, og ætli að koma Styrmi á kné.
Davíð hafi komizt að því, að Styrm-
ir væri það skuldum vafinn að hægt
væri að ganga að honum og gera
hann gjaldþrota. „Hvað höfum við
á hann?“ varð Davíð jafnan að orði
þegar hann þóttist þurfa að ná sér
niðri á mönnum,“ sagði Sverrir á
heimasíðunni.
Sverrir tók ekki í mál að gjald-
fella
Sverrir sagði á heimasíðunni sinni
að hann hefði ekki tekið í mál að
verða við beiðni Kjartans. „En svör-
in gáfust Kjartani von bráðar, sem sé
þau að nærri slíkum vinnubrögðum
muni hann aldrei koma. Með það
svar fór Kjartan af fundi, mjög las-
meyr, hækilbjúgur og hældreginn
á göngunni, svo vitnað sé í Banda-
mannasögu.“
Í óbirtu bókarhandriti sem Sverrir
hefur unnið að, sem ber heitið Und-
ir íslenzkri ráðstjórn – aðdragandi
„Þeir skyldu bara sjá
til hvor lifði Þetta af“
n DV birtir hótunarbréfið til ritstjóra Morgunblaðsins
n Vildu umfjöllun sem væri hliðhollari Sjálfstæðisflokknum
„En stundum segja
menn að friður
óttans sé besti friðurinn
og sá varanlegasti.
Hótanirnar gegn Styrmi Davíð Oddsson og Kjartan Gunnarsson hótuðu Styrmi Gunnarssyni, ritstjóra Morgunblaðsins, að minnsta kosti tvisvar, beint eða óbeint, á tíunda áratugnum.
Tók sæti í nefnd Davíðs Styrmir tók
sæti í auðlindanefnd á vegum Davíðs
Oddssonar sumarið 1998. Fram að því höfðu
verið miklar deilur á milli Davíðs og ritstjóra
Morgunblaðsins. Bréf Kjartans var skrifað
einungis nokkrum mánuðum áður.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is