Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2012, Qupperneq 13
Erlent 13Miðvikudagur 22. febrúar 2012
„Eins og að vera í þvottavél“
n Elyse Saugstad komst lífs af úr snjóflóði en fjórir vinir hennar fórust
É
g óttaðist að þetta gætu ver-
ið síðustu augnablikin í lífi
mínu,“ segir skíðakonan El-
ise Saug stad sem komst lífs af
úr snjóflóði á mánudag. Elise var
við æfingar ásamt félögum sínum í
Stevens-fjallaskarðinu í Washing-
ton í Bandaríkjunum þegar ósköpin
dundu yfir. Fjórir létust í snjóflóðinu,
þrír urðu undir flóðinu en sá fjórði
féll fram af bjargbrún þegar flóðið
hreif hann með sér.
Saugstad lýsti reynslu sinni í sam-
tali við CBS-sjónvarpsstöðina og seg-
ir hún að það sé ótrúlegt að hugsa til
þess hversu hratt flóðið kom. „Félagi
minn öskraði á mig að það væri að
koma snjóflóð. Ég heyrði ekki neitt,
ekki fyrr en flóðið hreif mig skyndi-
lega með sér. Ég hugsaði fyrst að
þetta væri smáspýja, en skyndilega
áttaði ég mig á umfanginu,“ seg-
ir Saugstad en flóðið reyndist mjög
umfangsmikið. Samkvæmt um-
fjöllun CBS-sjónvarpsstöðvarinnar
kastaðist Saugstad 600 metra niður
brekkuna. Hún segir að upplifunin
hafi verið skelfileg. „Ég get ímynd-
að mér að þetta sé eins og að vera í
þvottavél þar sem þú kastast í allar
áttir og veist ekkert hvað snýr upp né
niður,“ segir hún.
Saugstad telur að sérútbúinn bak-
poki hafi bjargað lífi hennar. Í bak-
pokanum var loftpúði sem hún lét
blása út þegar hún áttaði sig á hvað
var í gangi. Loftpúðarnir eru hann-
aðir þannig að þeir verja höfuð,
háls og brjóst og eru þeim eiginleik-
um gæddir að geta skapað loftrými
í kringum höfuðið ef það fer á kaf.
Loftpúðarnir minnka einnig líkurnar
á því að viðkomandi fari á bólakaf en
þegar Saugstad stöðvaðist loksins var
allur líkaminn á kafi í snjó en höfuð-
ið eitt stóð upp úr snjónum. Félagar
Saugstad sem létust voru ekki með
slíka bakpoka.
Í umfjöllun CBS kemur fram að 30
manns láti lífið að meðaltali á hverju
ári af völdum snjóflóða í Bandaríkj-
unum.
M
annrán eru að verða ein
helsta tekjulind talíbana í
Pakistan. Á undanförnum
misserum hefur mann-
ránum talíbana fjölg-
að mjög í landinu en spjótunum er
einna helst beint að ríkum kaup-
sýslumönnum eða hjálparstarfs-
fólki. Hárra fjárhæða er svo krafist í
lausnargjald og oftar en ekki er það
greitt. Talíbanar líta því á þetta sem
auðvelda leið til tekjuöflunar og fjár-
magna með þessum hætti skæru-
hernað sinn. Yfirvöld í Pakistan hafa
átt í stríði við talíbana sem ráða lög-
um og lofum í fjallahéröðum við
landamæri Pakistans og Afganistans.
Líkamlegt ofbeldi
Bandaríska blaðið The New York
Times fjallaði ítarlega um málið á
dögunum en í umfjöllun blaðsins
voru meðal annars tekin viðtöl við
nokkra einstaklinga sem lent hafa
í klóm mannræningja. Einn þeirra
er ungur kaupsýslumaður sem var
haldið föngnum í sex mánuði. Mað-
urinn, sem vildi ekki koma fram und-
ir nafni af ótta við hefndaraðgerðir,
lýsir því að hann hafi mátt þola mik-
ið líkamlegt ofbeldi og honum verið
haldið í skítugum fangaklefa. Hann
segir að fjórir ungir menn hafi verið
í þjálfun hjá kvölurum sínum. Þeir
báru sprengjuvesti sem þeir áttu að
nota til að fremja hryðjuverk og fólst
þjálfunin í því. „Þeim var sagt að það
eina sem þeir þyrftu að gera til að
komast til himna væri að ýta á einn
takka,“ segir hann. Honum var sleppt
úr haldi eftir að fjölskylda hans
komst að samkomulagi við mann-
ræningjana um að greiða lausnar-
gjald.
Kröfðust 800 milljóna
Í mörgum tilfellum eru upphæðirnar
sem mannræningjarnir krefjast ekki
fyrir hvern sem er að greiða. Nýlega
var forríkum iðnjöfri rænt í borginni
Karachi í suðurhluta landsins. Mann-
ræningjarnir kröfðust 6,6 milljóna
dala, eða rúmra 800 milljóna króna,
í lausnargjald. Í desember réðst lög-
reglan til inngöngu þar sem mannin-
um var haldið í gíslingu og voru mann-
ræningjarnir, þrír talsins, skotnir til
bana. Gíslinn slapp án meiðsla.
Talíbanar þykja líka mun
harðari í horn að taka en „hefð-
bundnir smákrimmar“, eins og
Sharfuddin Memon, fulltrúi innan-
ríkisráðuneytisins í Sindh-héraði,
lýsir því. „Samningaviðræður við
hefðbundna glæpamenn geta tek-
ið allt að sex vikur, en viðræður við
talíb ana sex mánuði.“
Samkvæmt umfjöllun The New
York Times er lausnargjaldið sem
krafist er yfirleitt á milli 500 þúsund
dalir til 2,2 milljónir dala, eða frá 60
milljónum króna upp í 270 milljón-
ir. Upphæðirnar geta þó verið lægri
eða hærri. Samningaviðræður skila
sér þó oft í lægra lausnargjaldi.
Svissneskir ferðamenn hurfu
Samkvæmt upplýsingum frá innan-
ríkisráðuneyti Pakistans voru 474
mannrán framin árið 2010 en 467
í fyrra. Þótt þessar tölur hafi lítið
breyst milli ára hefur fjöldinn þar
sem talíbanar koma við sögu auk-
ist mikið. Aðeins er mánuður síð-
an sjötugum þýskum hjálparstarfs-
manni og 24 ára ítölskum kollega
hans var rænt. Þeir hurfu þann 20.
janúar síðastliðinn í borginni Mult-
an og eru í haldi uppreisnarmanna
í Norður-Waziristan. Þá er Shah-
baz Taseer, sonur Salmans Taseer
fyrrverandi ríkisstjóra Punjab-hér-
aðs í Pakistans, í haldi uppreisn-
armanna. Tveir svissneskir ferða-
menn voru numdir á brott þegar
þeir voru á leið til Írans og loks má
nefna Warren Weinstein, sjötug-
an Bandaríkjamann sem bjó í Pak-
istan, en grunur leikur á að hann
sé í haldi al-Kaída. Þetta er aðeins
brot af þeim mikla fjölda sem nú er
í haldi talíbana en í öllum tilfellum
hefur lausnargjalds verið krafist.
n Talíbanar í Pakistan fjármagna starfsemi sína með mannránum
Græða milljónir
á mannránum
„Samningaviðræð-
ur við hefðbundna
glæpamenn geta tekið
allt að sex vikur, en við-
ræður við talíbana sex
mánuði.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Í haldi mannræningja Shahbaz Taseer
var numinn á brott á síðasta ári. Hann er
sonur fyrrverandi ríkisstjóra Punjab-héraðs
og dæmigert skotmark mannræningja.
Mannrán Talíbanar fjár-
magna starfsemi sína meðal
annars með mannránum. Þeir
krefjast oft hundraða milljóna
króna í lausnargjald.
Hamborgari
búinn til á
tilraunastofu
Hollenskir vísindamenn telja sig
hafa fundið leið til að skapa ham-
borgara á tilraunastofu. Nú þegar
hefur þeim tekist að nota stofn-
frumur til að búa til vöðvavefi
og vonast þeir til þess að síðar á
þessu ári verði fyrsti hamborgar-
inn tilbúinn sem búinn er til á
tilraunastofu. Markmið vísinda-
mannanna er að finna skilvirk-
ari leið til kjötframleiðslu en með
slátrun dýra, að því er fram kemur
í umfjöllun Breska ríkisútvarpsins,
BBC. Mark Post, einn þeirra sem
standa að rannsóknunum, kynnti
þessar hugmyndir á vísindaráð-
stefnu sem haldin var í Kanada
fyrir skemmstu.
Vöðvavefirnir sem Post og koll-
egar hans við Maastricht-
háskóla ræktuðu eru
um tveir sentí-
metrar að lengd,
einn sentí-
metri á breidd
og um það bil
einn millimetri
að þykkt. Áfram
verður unnið með
vefina og munu þeir að
lokum mynda stóran og myndar-
legan hamborgara.
Kostnaðurinn við að búa til
borgarann er talinn vera sem nem-
ur tæpum 40 milljónum króna en
Post segir að kostnaðurinn muni
lækka hratt þegar framleiðslu-
ferlinu lýkur. Á blaðamannafundi
sem haldinn var eftir ráðstefnuna
sagði Post að hann íhugaði að láta
stjörnukokkinn Heston Blumen-
thal elda borgarann þegar hann
verður tilbúinn. Hann varaði fólk
þó við að búast við of miklu og að
bragðið yrði vont fyrst um sinn.
„Tilgangurinn með þessu er
ekki að búa til hagkvæma eða arð-
vænlega vöru. Tilgangurinn er fyrst
og fremst að sýna að þetta er hægt,“
sagði Post sem vonast þó til þess
að hægt verði að þróa aðferðina
betur til að hún verði hagkvæm og
gervikjötið verði raunhæfur kostur
fyrir neytendur. Það muni þó kosta
mikla vinnu og ekki síst peninga.
Sean Smukler, prófessor við
háskólann í Bresku Kólumbíu í
Kanada, segir að þörf sé á nýjum
aðferðum í matvælaiðnaði. Ástæð-
an sé sú að samfara hraðri fjölgun
jarðarbúa muni framleiðsla á mat
ekki anna eftirspurn.
Hýddur fyrir
Facebook-
móðgun
Sautján ára drengur frá Sim-
babve verður barinn með staf
á beran rassinn fyrir að skrifa
óviðeigandi athugasemd á
samskiptavefinn Facebook.
Drengurinn tók mynd af kven-
manni, án hennar vitundar,
setti myndina á Facebook og
skrifaði svo við að umrædd
kona væri „dæmigerð vændis-
kona“. Drengurinn bað um
vægð fyrir dómstólum; sagðist
vera munaðarleysingi og að
hann hefði nýlega kynnst sam-
skiptasíðunni. Dómari hlustaði
ekki á þau rök og dæmdi hann
til að þola tvær rassskellingar.
Ekki er óalgengt að börn undir
18 ára aldri, sem gerast brotlegt
við lög, fái slíkar refsingar í Afr-
íkuríkinu.
Komst lífs af Saugstad telur að sérútbúinn bakpoki hafi bjargað lífi hennar. Í pokanum var
sérútbúinn loftpúði sem varð til þess að höfuð hennar fór ekki á bólakaf.