Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Page 24
24 Umræða 15.–17. júní 2012 Helgarblað Stefán Gestsson Ein einföld spurning hérna. Af hverju ætti ég að kjósa þig?  Andrea Ólafsdóttir Hver og einn kjósandi velur sér þann frambjóðanda sem best endurspeglar þau gildi sem hann hefur trú á og vill sjá endurspeglast í forseta. Ég hef sagt að ég er sá frambjóðandi sem hef mjög skýra framtíðarsýn á það hvernig megi brúa hina margumtöluðu gjá milli þings og þjóðar og tel það mikilvægasta verkefni næstu ára. Það verður einungis gert með því að fólkið í landinu taki höndum saman um að leysa ákveðin ágreiningsmál sem þinginu hefur ekki tekist að leysa árum eða áratug- um saman. Við sem þjóð þurfum að aðstoða þingið núna til þess að við getum náð samfélagslegri sátt og ég tel okkur einnig þurfa að ná fram okkar eigin uppgjöri eftir hrunið til þess að geta náð samfélagslegri sátt. Ef maður á að hrósa sjálfum sér eða draga fram kosti sína, þá bendi ég á það að ég hef óumbeðin staðið upp fyrir hagsmuni fólksins í kjölfar hrunsins vegna sterkrar réttlætiskenndar minnar og vegna þess að ég tel mikilvægt að horfa á stóru myndina varðandi fjármálahrunið og ábyrgð. Ég hef hugrekki, kjark og þor auk þess að hafa reynslu af því að eiga við „kerfið“ og stjórn- málamenn. Það mætti draga fram marga fleiri kosti, en færi kannski of langur tími í það :) En ég tel mig vera þannig kostum gædd að geta verið sáttasemjari milli þings og þjóðar til þess að við getum endurvakið traust okkar á okkar æðstu lýðræðisstofnun, Alþingi. Kristensa Valdís Gunnarsdóttir Þú segist ætla að berjast fyrir hag heimilanna – getur þú útskýrt það betur?  Andrea Ólafsdóttir Já, ég hef sett það fram sem eitt af stærri málum okkar samtíma – og ég set það fram sem að- ferðarfræði til þess að brúa þessa gjá sem myndast hefur milli þings og þjóðar. Ég valdi málefni sem þinginu hefur ekki tekist að leysa árum eða áratugum saman og ég tel að fólkið sjálft þurfi núna að aðstoða þingið við að leysa. Ég tel mjög mikilvægt að leysa úr lánamálum heimilanna og leiðrétta þá eignatilfærslu sem fólk horfir upp á vegna hrunsins og ég tel það yrði til þess að ná fram uppgjörinu sem fólk þráir að sjá – bæði út frá réttlætissjónarmiðum, heilbrigðri skynsemi vegna þess að skuldastaða fólks bæði hér og um allan heim er ósjálfbær og gengur einfaldlega ekki upp – fjármálakerfið er búið að stunda of mikla peningaprentun og ég held að fólkið sjálft þurfi að taka þessi mál í sínar hendur – ég vil vera milliliður að því valdi sem býr í stjórnarskránni í embætti forseta til þess að leysa þessi mál og ná samfélagslegri sátt … ég vona virkilega að fólk verði tilbúið að sameinast um það. Það er líka mikilvægt að við tökum samfélags- lega ákvörðun um að leysa þetta með okkar hætti til að senda skýr skilaboð til fjármála- kerfisins um að þetta gangi ekki upp og við munum ekki leyfa þessu að gerast án þess að þeir séu látnir axla ábyrgð. Vitna ég þar til orða Simon Johnsons sem er fyrrverandi hagfræðingur hjá AGS og sagði einmitt þetta á ráðstefnu í Hörpu í fyrra; „Þið verðið að passa ykkur að kenna bankamönnunum lexíu. Passa upp á það hvernig skilaboð þið sendið þeim eftir það hvernig þeir höguðu sér og vegna þess að þeir eru ábyrgir fyrir því tjóni sem þið urðuð fyrir.“ Sigurvin Guðmundsson Ef þú yrðir forseti, myndir þú nota málskotsrétt- inn?  Andrea Ólafsdóttir Já, að sjálfsögðu. :) Ég tel okkur vera að taka fyrstu skrefin á áhugaverðri braut í átt að traustara lýðræði. Málskotsrétturinn er fólksins, en ekki forsetans. Fólkið í landinu á þann rétt að koma að stórum ákvörðunum og þar er málskotsrétturinn mjög mikilvægur. Ég hef einnig sagt að ég muni beita mér fyrir því að þjóðaratkvæðagreiðslur verði settar í lög vegna þess að ég tel mikilvægt að fólkið hafi þennan rétt með beinum hætti og ekki eingöngu í gegnum forsetann. Þetta er einmitt eitt af þeim málum sem þinginu hefur ekki tekist að leysa áratugum saman og þarf núna aðstoð okkar fólksins til þess. Jónas Halldórsson Sæl. Ég vil ekki vera dónalegur, en vil spyrja þig beint: Hvernig er að vera í kosningabaráttu þegar maður veit að maður á ekki séns?  Andrea Ólafsdóttir Enginn veit hvernig kosningarnar fara, það er ómögulegt að spá fyrir um framtíðina. En nei, ég ber ennþá von í brjósti um að fólk fari virkilega að spá í þá frambjóðendur sem komnir eru, aðra en sitjandi forseta, og hugsi sig tvisvar um áður en það setur það fordæmi að kjósa mann í það embætti til 20 ára. Fólk horfi líka til þess hvort við þurfum ekki á ákveðinni hreinsun að halda og vegna þess hve stóran þátt hann lék í að byggja spilaborgina „fjármálamiðstöð- ina“ sem hrundi yfir okkur með miklum látum og miklu tjóni fyrir allt samfélagið – ég verð bara að vera hreinskilin :) Birna Björnsdóttir Þú hefur aðeins nefnt í viðtölum að forsetinn geti veitt meira aðhald – hvernig getur forseti veitt ráðherrum aðhald?  Andrea Ólafsdóttir Ég hef til dæmis nefnt að það er áhyggjuefni þegar ráðherrar brjóta af sér í starfi og mér finnst eðlilegt að fólkið sem kaus þá til valda geti líka krafist þess að þeir séu settir af, til dæmis ráðherrar sem ganga þvert gegn vilja og anda þjóðar- innar að vera ávallt hlutlaus hvað varðar árásarstríð á aðrar þjóðir. Ég get séð fyrir mér sviðsmynd þar sem fólkið sjálft myndi krefjast lausnar ráðherra og finnst það fullkomlega lýðræðislegt að fólk geti það. Þá er grein í stjórnarskránni sem forsetinn getur notað til þess sem segir „forsetinn skipar ráðherra og veitir þeim lausn.“ Þorkell Harðarson Telur þú raunhæft að Íslendingar taki virkan þátt í beinu lýðræði miðað við slappa kosninga- þátttöku undanfarin áratug?  Andrea Ólafsdóttir Já, ég tel að ef við fetum okkur áfram á þá braut þá muni fólk fara að taka meiri ábyrgð á því að koma að stórum ákvörðunum – eins er hægt að gera það með þjóðfundum. Þegar fólk fer að upplifa að það geti haft raunveruleg áhrif þá held ég að það muni verða til þess að það hafi meiri áhuga á að taka þátt. Eins tel ég að slíkt gæti orðið til þess að við færum að sjá mun vandaðri umræðu og vinnubrögð á Alþingi. Gylfi Helgason Hvernig ætlar þú, sem forseti, að leysa úr lánamálum heimilanna?  Andrea Ólafsdóttir Ég get leyst úr lánamálunum með fleiri en einum hætti og hef bent á nokkrar lausnir sem miðast að því að það komi alls ekki niður á ríkissjóði. En ég held jafnframt að það verði að koma fram að þótt ég hafi vakið máls á 25. grein stjórnarskrárinnar um að „forsetinn getur látið leggja fram frumvarp til laga“ þá geti verið nóg að fólkið kjósi sér forseta sem er tilbúinn að beita valdheimildum sínum til að leysa mál – og þá muni þingið taka við sér og leysa úr þeim hratt og örugglega. Aðhaldið er komið strax með því að kjósa slíka mann- eskju í embættið. Helgi Eyjólfsson Þú talar um „vilja og anda þjóðarinnar“. Hver er hann eiginlega?  Andrea Ólafsdóttir Í sumum málum er það mjög augljóst og hefur verið staðfest í könnunum margoft – stóru málin eru til dæmis þjóðaratkvæðagreiðslur, þar er og hefur verið ríkur almannavilji til að setja þær í lög. 80 prósent landsmanna eru hlynnt almennum leiðréttingum lána og afnámi verðtryggingar, það er staðfest með fleiri en einn könnun. Síðan hef ég nefnt að slembi- valinn þjóðfundur sem endurspeglar alla samfélagshópa gefur mjög góða mynd af almannavilja og það hefur verið rannsakað árum saman í Stanford-háskóla. Guðrún Konný Pálmadóttir Gætir þú hugsað þér að berjast fyrir hag heimila landsins inni á Alþingi? Væri sú leið ekki árangursríkari en að verða forseti?  Andrea Ólafsdóttir Nei, ég tel mig ekki eiga heima í flokkspólitík – og vil heldur hlúa að lýðræðinu með þessum hætti í gegnum embætti forseta því ég tel að við þurfum á því að halda. Eins er ég að benda á það með framboði mínu að það eru sum stór mál sem þinginu tekst einfaldlega ekki að leysa – og það getur bæði verið vegna skorts á hug- rekki og vegna tengsla við fjármálaveldið og þess vegna tel ég að fólkið sjálft þurfi að aðstoða þingið við þessi stóru mál sem það vill láta leysa – til dæmis með þjóðfundum og með því að beita valdheimildum forseta sem er jú þjóðkjörinn fulltrúi og hluti af bæði löggjafar- og framkvæmdavaldinu. Aðalsteinn Kjartansson Hvern hinna frambjóðendanna myndir þú kjósa værir þú ekki sjálf í framboði?  Andrea Ólafsdóttir Ég vil síður svara því. Erlingur Þorsteinsson Þú hefur verið að standa þig vel varðandi HH. Fórst þú ekki alveg með þetta þegar þú fórst að ræða um lækkun launa til forseta Íslands?  Andrea Ólafsdóttir Nei – þarna er mikill misskilningur á ferðinni og gott að fá tækifæri til að leiðrétta hann. Ég er ekki að mælast til að lækka laun forseta almennt séð; ég var að leggja þetta fram sem aðferðafræði og tímabundna ráðstöfun til þess að ná árangri með þau mál sem ég setti fram. Aðferðafræðin gengur út á að setja mig í spor þeirra sem eru lægst launaðir í samfélaginu og síðan ætlaði ég að gefa restina af launum mínum til góðra málefna því ég tel það einfaldlega mikilvægt. En eins og ég segi, það verður að skiljast að ég setti þetta fram sem aðferðafræði til árangurs og tímabundna ráðstöfun. Og kærar þakkir fyrir hrósið fyrir mín störf hjá HH :) Hilmar Elíasson Mig langar til að vita Andrea af hverju langar þig til að vera forseti?  Andrea Ólafsdóttir Vegna þess að ég tel mig geta orðið til þess að hér náist betri árangur með lýðræðið og að ég geti leitt þjóðina áfram inn í aukna samfélagslega sátt. Mig hefur aldrei dreymt um að verða drottning :) en hef ávallt viljað koma að gagni fyrir samfélagið. Ég tel mig eiga erindi við þjóðina og ég tel að mín sýn á það hvernig megi veita stjórnvöldum og þinginu aðhald með meiri aðkomu fólksins geti orðið til þess að við búum í vandaðra samfélagi í framtíðinni. Ég tel að við þurfum á því að halda núna á þeim tímamótum sem við stöndum á. Heiða Heiðars Hefur þú velt fyrir þér starfsmannahaldi utan um embættið? Og ef svo, þarf að fjölga eða fækka?  Andrea Ólafsdóttir Mér skilst að það hafi haldist óbreytt núna um áratugaskeið – ég hef aðeins velt því fyrir mér hvort mætti til dæmis sleppa bílstjóra og keyra bara sjálf :) En ég tel þó þörf á því að forseti hafi ráð- gjafa og aðstoð við utanumhald skrifstofu. Vania Koleva Telur þú að fjölmiðlar hafi mikil áhrif á forsetakosningarnar?  Andrea Ólafsdóttir Já, umfjöllun fjölmiðla skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli, þeir eru fjórða valdið. Ég tel þó að þeir hafi flestir staðið sig nokkuð vel – Stöð 2 á kannski eftir að bæta sín vinnubrögð :) Guðrún Konný Pálmadóttir Takk fyrir svar þitt. Held að þín sé þörf á þingi – ef hægt væri að kjósa þig persónukjöri til Alþingis (ekki gegnum flokkapólitík) værir þú þá reiðubúin að bjóða þig fram?  Andrea Ólafsdóttir Ég þakka hrósið. Ég er að bjóða mig fram núna í þverpólitískt persónukjör til þess að aðstoða með lýðræðið okkar. Ég tel að við þurfum að hlúa að því og ná fram vandaðri vinnubrögðum í framtíðinni. Addi Atlondres Það má segja að Kína sé án efa næsta stórveldi heimsins og mikil uppbygging og erlendar fjárfestingar í gangi hjá þeim. Ertu hlynnt þeim samskiptum og samstarfi sem Ólafur hefur lagt mikið upp úr?  Andrea Ólafsdóttir Ég hef aðeins velt fyrir mér að við tölum stundum um mannréttindi og nútímaþrælahald eins og það sé aukaat- riði og það er rætt eins og af skyldurækni. Ég held að það verði stórt verkefni þjóðarleið- toga á komandi áratug að beina sjónum að því af fullri alvöru og stuðla að því að mann- réttindi séu virt og að nútímaþrælahald verði stöðvað. Hvers vegna ræðum við ekki fyrst um fólkið og réttindi þeirra í ýmsum löndum heims sem við eigum viðskipti við áður en við skrifum undir stóra viðskiptasamninga? En það er ekki hægt að vera eitt lítið eyland í þessum efnum, það þarf að hvetja til þessa á alþjóðavísu. Þorkell Harðarson Nú varst þú virk í baráttunni gegn Kárahnjúkavirkjun á sínum tíma. Má þjóðin eiga von á áframhaldandi náttúruverndaráherslum þegar þú ert komin á Bessastaði? Eða ber forseta að halda sér til hlés?  Andrea Ólafsdóttir Ég tók þátt í því og vildi umfram allt stuðla að málefnalegri og upplýstri umræðu og þá út frá hnattrænu sjónarhorni líka, við þurfum alltaf að hugsa um stóru myndina. Ég ber djúpstæða umhyggju fyrir bæði landi og þjóð og ég tel að við eigum að vera mjög varfærin og hugsa um raunverulega sjálfbærni varðandi okkar orkuauðlindir og þá líka til hvers þær eru nýttar, hvort þær stuðla að sjálfbærni jarðar, eða hvort nýtingin stuðlar að aukinni sóun. Forsetinn þarf auðvitað að vera ábyrgur og hugsa um stóru myndina og ég tel að eðlilegt sé að hann tali fyrir sjálfbærni þannig að við verndum jörðina og hugum að þeirri vá sem steðjar að henni. Ég taldi á sínum tíma ákaflega mikilvægt að forsetinn beitti málskotsréttinum varð- andi stærstu framkvæmd Íslandssögunnar, Kárahnjúkavirkjun, og lagði mikla áherslu á að þjóðin kæmi að þeirri ákvörðun. Hildur Lilliendahl Viggósdóttir Ert þú hlynnt aðild Íslands að NATO?  Andrea Ólafsdóttir Ég er á því að íslenska þjóðin eigi að fá að kjósa um það – segja hug sinn með þjóðar atkvæðagreiðslu. Sjálf er ég búin að átta mig á að NATO er ekki bara varnarbandalag eins og oft er talað um heldur stendur það beinlínis í árásarstríðum – þá held ég að sé orðið tímabært að við sem þjóð endurskoðum okkar ákvörðun frá fullveldisárinu 1918 um það hvort við ætlum ekki að heiðra þá ákvörðun og standa ávallt utan við stríð og halda hlutleysi okkar. Hildur Lilliendahl Viggósdóttir En hvort ert þú sjálf hlynnt aðildinni að NATO eða ekki?  Andrea Ólafsdóttir Ég er ekki hlynnt henni. En ég legg mikla áherslu á að þjóðin sjálf hafi sjálfsákvörðunarrétt hvað þetta mál varðar, eins og svo mörg önnur sem við höfum ekki fengið að segja til um allan lýðveldistímann. Ég tel að tími sé kominn núna til að þjóðin fái að taka afstöðu til allra þessara stóru mála. Anna Bjarnadóttir Hvaða eftirorð dreymir þig um að verði sögð um þig eftir farsæla setu þínu í stóli forseta?  Andrea Ólafsdóttir Ef mér tækist nú að ná kjöri og koma á þeim lýðræðisumbótum og samfélagslega réttlæti sem mig dreymir um, þá held ég að mín arfleifð yrði „sigur- vegari“;) Arfleifðin sem ég vil sjá er að ná fram betra og traustara lýðræði, að mér hafi tekist að vera sáttasemjari milli þings og þjóðar í risastórum þverpólitískum málum. Kristján Kristjánsson Sæl Andrea, þú ert af alþýðubergi brotin, þess vegna kýs ég þig. Spurning: ef geimverur lentu á Bessastöðum myndir þú a) hringja á sérsveitina, b) ná í myndavélina eða c) panta pítsur?  Andrea Ólafsdóttir Blessaður félagi :) Já, ég er alþýðumanneskja í húð og hár. Ég hef bara aldrei velt því fyrir mér að geimverur kæmu á Bessastaði, en ég held ég myndi grípa myndavélina og bjóða þeim inn í kaffi því ég reikna bara með að þær séu vinveittar ef þær eru til og ef ekki, þá gæti ég hvort sem er ekkert flúið og því væri bara gaman að fá kaffi og spjall með þeim :) Kári Kárason Sæl Andrea, hvernig hefðir þú brugðist við þegar leitað var til ÓRG um frestun á gildistöku laga , svo sem fjölmiðlafrumvarpið og Icesave?  Andrea Ólafsdóttir Það er gott að hafa orðið vitni að þessari þróun og maður getur einmitt lært af fortíðinni til þess að geta farið inn í framtíðina. Ég veit ekki hvernig ég hefði brugðist við þá því ég var ekki forseti. En núna í dag get ég hæglega sagt að mér finnst það eðlilegt að við mótum viðmiðunarreglur fyrir málskots- réttinn og fleiri valdheimildir og notum það til að ná fram traustara lýðræði. Ef ég væri forseti núna þá fyndist mér sem sagt alveg sjálfsagt að veita fólki aðkomu að löggjöf þegar það vill gera það í stórum málum. En ég tel þó að það eitt að hafa slíkan forseta muni gera það að verkum að við sjáum betur ígrunduð lagafrum- vörp og við sjáum minna af því að þingið gangi gegn vilja þjóðarinnar. Þannig að þessi þróun gæti jafnvel orðið til þess að við þyrftum sjaldnar að grípa inn í með málskotinu, aðhaldið er komið með því að hafa slíkan forseta. Jóhannes Jensson Sæl Andrea, hver er afstaða þín til þjóðkirkjunnar? Myndir þú sem forseti mæta til guðþjónustu fyrir þingsetningu eða gera líkt og sumir þingmenn og mæta á aðra samkomu á sama tíma?  Andrea Ólafsdóttir Ég hef reyndar ekki hugsað um það hvort ég myndi mæta þar, en ég hef stundum velt því fyrir mér hvers vegna í ósköpunum þetta eigi einhverja samleið. Þjóðkirkjan er annað mál sem mér finnst tímabært að þjóðin fái að segja til um – hvort hún eigi að vera hluti af ríkinu, eða hvort eigi að aðskilja ríki og kirkju. Hildur Lilliendahl Viggósdóttir Ertu femínisti? Hvaða máli finnst þér skipta að forseti Íslands sé femínisti?  Andrea Ólafsdóttir Já, ég er femínisti. Ég skilgreini femínista sem manneskju sem gerir sér grein fyrir að það ríkir ekki jafnrétti og áttar sig á að það þurfi að gera eitthvað í því. Mér finnst það skipta máli að tala fyrir réttlæti almennt, þar með talið jafnrétti kynjanna og kvenfrelsi, frelsi til þátttöku á öllum stigum samfélagsins. Eins tel ég að forseti geti verið góð fyrirmynd sem slíkur og talað fyrir framgangi kvenna á alþjóðavett- vangi. Ingveldur Þórðardóttir Sæl, Andrea. Hversu gott vald hefur þú á erlendum tungum?  Andrea Ólafsdóttir Ég hef búið erlendis um langt árabil, í Bandaríkjunum, Danmörku og Englandi. Ég tala því bæði ensku og dönsku, en mér finnst það vera þau tungumál sem mestu skipta fyrir forseta á erlendum vettvangi í alþjóðasamskiptum. Birna Björnsdóttir Hvernig er forsetinn aðhald við Alþingi og hvernig getur hann stuðlað að því að mál leysist sem þinginu hefur ekki tekist að leysa?  Andrea Ólafsdóttir Hann er aðhald um leið og hann veitir þjóðinni aðkomu að stórum ákvörðunum. Hann er aðhald um leið og hann er tilbúinn að beita sér fyrir stórum meirihlutamálum sem þinginu hefur ekki tekist að leysa. Hann er aðhald um leið og hann er tilbúinn til þess að bera sig saman við fólkið sjálft og halda þjóðfund. Andrea Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi var á Beinni línu á DV.is á miðvikudag. Nafn: Andrea Jóhanna Ólafsdóttir Titill: Forsetaframbjóðandi Aldur: 39 ára Menntun: Las uppeldis- og menntunarfræði í HÍ „Alþýðumanneskja í húð og hár“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.