Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Blaðsíða 26
26 Viðtal „Aldrei án hennAr“ 15.–17. júní 2012 Helgarblað S aman í 30 ár? Ég er bara orðlaus yfir þessari spurningu. Það er búið að vera svo gaman hjá okk- ur Maríu að okkur finnst við hafa byrjað bara í gær,“ segir fjölskyldufaðirinn og tónlist- armaðurinn Bjartmar Guð- laugsson sem fagnaði sextugs- afmæli á miðvikudaginn. Þegar landsmenn hugsa um Bjartmar sjá flestir fyrir sér svarta, síða hárið, leðurjakk- ann og gítarinn hangandi yfir öxlina á honum. En þarna er líka á ferðinni hamingjusam- lega kvæntur fjölskyldufað- ir sem á þrjár dætur og fimm barnabörn. Ekki nóg með það heldur einnig tvo ketti, þá Simba og Pétur Eilíf, og hund- inn Kormák Héðin. Rokkarinn síkáti segist eiga eiginkonu og dætrum allt að þakka. Hreinlega lífið sjálft því þegar hann gekk í gegnum erf- iðasta tímabil ævi sinnar voru þær stoð hans og stytta. Það var þegar hann fékk „dauða- þrána“ eins og hann orðar það en Bjartmar gekk fótbrotinn í 27 ár og voru kvalirnar orðnar óbærilegar. María Helena Haraldsdótt- ir, eiginkona Bjartmars, hef- ur alla tíð tekið virkan þátt í listsköpun hans og aðstoðað hann í einu og öllu í tónlist og myndlist. Sjálfur segist Bjart- mar taka virkan þátt í hennar lífi og áhugamálum og að það sé galdurinn á bak við gott samband. Dreifð eignaraðild „Þetta gerist í þeim tilfellum þar sem rétt fólk hittist,“ segir Bjart- mar. „Þetta er reyndar ættgengt hjá mér. Foreldrar mínir náðu um 60 árum saman og mikið er um langtímahjónabönd í vinahópnum. Þetta eru allt eld- gömul hjónabönd í kringum mig,“ segir hann og hlær. „Ég var reyndar búinn að eignast tvær stúlkur, þær Örnu og Elmu Björk, áður en ég gekk í hjóna- band. Þannig að ég er með svona dreifða eignaraðild. Þó enginn verði var við það.“ Eins og í öllum sambönd- um er lífið ekki bara dans á rós- um. „Á 30 árum gengur á ýmsu. Númer eitt, tvö og þrjú er að ná sátt í deilumálum en að hafa líka alltaf nóg að gera í sameig- inlegum áhugamálum. Vera ekki að festa sig í því að mað- ur geti ekki byrjað á einhverju nýju. Það sem hefur haldið okk- ur Maríu saman eru áhuga- málin, til dæmis umhverfis- og mannréttindamál af öllu tagi.“ Aldrei án hennar Eins og Bjartmar kom inn á gengur á ýmsu í lífinu og þegar verst lætur segir hann ómetanlegt að eiga lífsföru- naut. Það þekkir Bjartmar vel en hann gekk fótbrotinn í ein 27 ár. Áður en hann fékk bóta sinna mein var hann svo kvalinn að lífsmátturinn var hreinlega að leka úr honum. „Síðustu sjö árin af þessum 27 voru hreinasta víti. Ég var kominn með dauðaþrána. Það er alveg á hreinu að ég hefði aldrei farið í gegnum þetta án hennar. Aldrei án hennar,“ segir Bjartmar og þagnar í smástund. „Þegar maður er kom- inn í þá stöðu sem ég er í í dag, svona þakklátur, þá vill maður bara halda sér til hlés, brosa og vera ekkert að tjá sig of mikið. Þegar maður hef- ur kynnst þessu þunglyndi og svarta, svarta myrkri, þá langar mann ekki þangað aftur og gerir það sem maður þarf til að komast hjá því. Ræktar garðinn sinn.“ Negldi stjörnuna Bjartmar kynntist Maríu í gegnum tónlistina og heill- aðist strax af henni. „Ég vissi alltaf hver hún var. Hún var söngkonan í Íslenskri kjöt- súpu og hún var stelpan sem söng með Ragga Bjarna á Hótel Sögu. Ég heillaðist af henni og röddinni. Það má eiginlega bara segja að ég hafi verið grúppía. En ég negldi stjörnuna,“ segir hann glettinn og skellir upp úr. „Við náðum strax saman, í gegnum tónlistina. Hún hafði verið í Söngskólanum og í tón- listarnámi og ég fór mínar leið- ir. Það hefur verið alveg ómet- anlegt fyrir mig að hafa hana í gegnum tíðina því ég hef aldrei lært neitt í tónlist nema af því fólki sem ég hef unnið með á hverjum tíma. En að vera með hana tónlistarlærða í nótna- skrifum og svoleiðis hefur verið mér ómetanlegt.“ Auðæfin í fjölskyldunni Hann segir Maríu líka hafa haldið utan um textana hans í gegnum árin. „Ég á ofboðs- lega erfitt með að skrifa text- ana mína á eitt blað. Þetta er alltaf úti um allt. María hefur alltaf safnað þeim saman og skrifað textana niður því að lokaútgáfan kemur oft ekki fyrr en bara þegar ég loka augunum og fer að syngja þetta inni í stúdíóinu. Svona höfum við starfað saman alla tíð. Hún skipuleggur til dæm- is afmælistónleikana nánast að öllu leyti sem eru í Há- skólabíói og er allt í öllu með mér í þessu,“ segir Bjartmar og vísar þar í afmælistónleika sína laugardaginn 16. júní. „Svo hefur hún séð mik- ið til um bakraddasönginn hjá mér þar sem ég hef notað bakraddir á plötunum. Hún syngur líka á tónleikunum ásamt dóttur minni Berg- lindi og frænku þeirra Anítu Maríu.“ Bjartmar sækir ekki síður styrk til dætra sinna og barna- barna en hann segir að með aldrinum átti maður sig bet- ur og betur á þessum verð- mætum. „Ég passa vel upp á stelpurnar mínar og þær eru þvílík auðæfi. Það er ekki bara frasi. Maður gerir sér ekki grein fyrir því fyrr en maður er kominn á þennan aldur. Þá fattar maður gildið í fjöl- skyldunni, gildið í hvert öðru og í að vera vinir.“ Erfitt að velja og hafna Bjartmar segir það hafa ver- ið erfitt verk að skipuleggja afmælistónleikana þar sem stiklað verður á stóru á löng- um ferli. „Á heildina litið er þetta allt liður í minni hugs- un. Ég hef aldrei eytt tíma í að flokka þetta sérstaklega og alltaf sent efni frá mér eftir að hafa pælt mikið í því. Það er mjög lítið sem ég hefði ekki viljað hafa gert. Það er erfitt að taka 2–300 lög og velja 60. Það voru jafn mörg út und- an og komust inn.“ Í tilefni af áfanganum er Bjartmar að senda frá sér svokallað box sem inniheldur 60 lög af ferl- inum. Bjartmar Guðlaugsson stendur á tíma- mótum, sextugur. Hann segir aldurinn kalla á uppgjör og stefnir á að koma því til skila á næstu plötu sinni. Rokkarinn og ljóðskáldið segist eiga konu sinni og dætrum allt að þakka. Án þeirra hefði hann ekki komist í gegnum erfiðustu kafla lífs síns. Ásgeir Jónsson ræddi við Bjartmar um þakklætið, virðinguna fyrir landi og þjóð, rauðvínslegna ráðherra og heiðarleikann sem hann ein- beitir sér að í verkum sínum. Ásgeir Jónsson asgeir@dv.is Viðtal Saman í 30 ár „Ég heillaðist af henni og röddinni. Það má eiginlega bara segja að ég hafi verið grúppía.“ myND Eyþór ÁrNASoN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.