Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Blaðsíða 32
32 15.–17. júní 2012 Helgarblað
Stórafmæli Guðmundur Bjarni Benediktsson verður þrítugur laugardaginn 16. júní
25 ára 16. júní
Grínleikkonan Abby Elliott úr Saturday
Night Live er ung og hæfileikarík.
32 ára 17. júní
Tennisstjarnan sigursæla Venus Willliams
er komin á fertugsaldurinn og er alltaf
ungleg og frísk.
48 ára 15. júní
Hin gullfallega leikkona Courtney Cox lítur
ekki út fyrir að vera deginum eldri en þrítug.
15. júní
1752 – Benjamin Franklin upp
götvaði að elding er rafmagn.
1926 – Almannafriður á helgi
dögum þjóðkirkjunnar var
lögfestur.
1926 – Dönsku konungs
hjónin lögðu hornstein að
byggingu Landspítala Ís
lands sem konur beittu sér fyrir í
tilefni af kosningarétti sínum.
1952 – Byggðasafn var opnað
í Glaumbæ í Skagafirði.
1954 – UEFA (Union
des Associations
Européennes
de Football)
var stofnað
í Basel í Sviss.
1981 – Bjartsýnisverðlaun
Brøstes voru veitt í fyrsta sinn og
hlaut þau Garðar Cortes óperu
söngvari.
1987 – Fiskmarkaður
inn í Hafnarfirði hélt fyrsta upp
boðið á ferskum fiski á Íslandi og
þótti þetta merk nýjung.
16. júní
1487 – Orrustan á Stoke Field,
síðasti bardagi Rósastríðanna.
1877 – Ísafoldarprentsmiðja var
stofnuð formlega og prentaði
blaðið Ísafold í fyrsta skipti.
1940 – Þýskur kafbátur
sökkti breska herskipinu And
ania suður af Ingólfshöfða.
Áhöfn togarans Skallagríms vann
það afrek að bjarga 353 mönn
um.
1944 – Alþingi hélt fund
í Reykjavík og felldi nið
ur sambandslög Íslands
og Danmerkur og setti
nýja stjórnarskrá í gildi.
1946 – Haldið var upp á aldar
afmæli Menntaskólans í Reykja
vík. Gengin var skrúðganga að
leiði Sveinbjarnar Egilsson
ar í Hólavallagarði en Sveinbjörn
var fyrsti rektor skólans.
1960 – Kvikmynd Alfreds
Hitchcocks, Psycho, var frum
sýnd.
1980 – Gufuneskirkjugarður
í Reykjavík var tekinn í notkun.
1982 – Lögreglan staðfesti að
hún hefði lagt hald á maríjúana
sendingu, alls 189 kíló, en ekki var
vitað hvert hún átti að fara. Efnið
var sent frá Jamaíka.
2008 – Ísbjörn
(Hraunsbirnan) kom
á land við Hraun á
Skaga. Þetta var
öldruð birna sem var
felld daginn eftir, 17.
júní.
2010 – Hæstiréttur Ís
lands dæmdi gengistryggð lán
ólögmæt.
17. júní
1811 – Jón Sigurðsson fæddist
á Hrafnseyri við Arnarfjörð.
1911 – Háskóli Íslands var
stofnaður og settur í fyrsta sinn.
Tók hann yfir rekstur Prestaskól
ans, Læknaskólans og Laga
skólans.
1915 – Fyrsta bílprófið var tekið
í Reykjavík. Handhafi skírtein
is númer eitt var Hafliði Hjartar
son trésmiður, 28 ára gamall.
1944 – Íslenska lýðveldið var
stofnað á Þingvöll
um og jafnframt
var fyrsta stjórn
arskrá lýðveld
isins staðfest.
Einnig var Sveinn
Björnsson ríkisstjóri kjörinn
fyrsti forseti lýðveldisins. Síðan
þá hefur dagurinn verið þjóðhá
tíðardagur Íslands.
1980 – Ísbjarnarblús, fyrsta
plata Bubba Morthens, kom út.
Merkis-
atburðir
Kjúklingur með spínati og mozzarella
n Kjúklingaréttur sem allir í fjölskyldunni elska
Á
vefsíðunni skinnytaste.
com er að finna fjöld-
ann allan af girnilegum
og hollum uppskriftum.
Þar á meðal er þessi kjúklinga-
réttur sem hentar vel fyrir stór-
ar veislur eða bara þegar fjöl-
skyldan vill hafa það kósí.
Bakaðar kjúklingabringur
- með spínati, ricotta,
tómötum og mozzarella
n Fjórar kjúklingabringur
(hver bringa þverskorin svo
útkoman verði átta þunnar
sneiðar)
n 1/2 bolli brauðmylsna
n 1/4 bolli sneiddur parmesa-
nostur
n Lúka af frosnu spínati (allur
safi kreistur í burtu)
n 6 teskeiðar af ricotta-osti
n 2 teskeiðar af mozzarella-
osti
n 1 dós af söxuðum
niðursoðnum tómötum
n Salt og pipar
Þvoðu og þurrkaðu bring-
urnar, kryddaðu með salti og
pipar.
Blandaðu brauðmylsn-
unni og tveimum teskeiðum
af parmesan saman í skál og
settu 1/4 bolla af eggjahvítu í
aðra skál.
Settu afganginn af ostin-
um saman við þurrt spínatið
auk tveggja teskeiða af eggja-
hvítunni.
Legðu kjúklinginn á bretti
og smyrðu spínati og osti
yfir hverja sneið. Rúllaðu
sneiðunum saman. Dýfðu í
eggin og svo í brauðmylsna
og settu í eldfastmót.
Bakað alls í 25 mín-
útur. Taktu réttinn síðan út
úr bakarofninum og settu
tómatana yfir og svo mozzar-
ella í sneiðum. Settu aftur
inn í ofninn í cirka þrjár mín-
útur eða þar til osturinn er
bráðnaður.
Einfalt og gott Á vefnum skinnytaste.com eru fjöldinn allur af sniðugum uppskriftum.
Ekki degi eldri en 18
M
ér finnst þetta hálf-
óraunverulegt því
mér finnst eins og
ég sé nýbúinn með
menntaskóla,“ seg-
ir Guðmundur Bjarni Bene-
diktsson sem verður þrítug-
ur laugardaginn 16. júní.
Guðmundur Bjarni býst ekki
við að halda stórt afmælispar-
tí í tilefni dagsins. „Ég hélt upp
á daginn þegar ég varð tvítugur
og 25 ára en þetta verður bara
rólegt. Flestir vina minna eru
fluttir út og auðvitað væri gam-
an að geta kíkt til þeirra en það
verður seinna. Ég er líka að fara
að heimsækja bróður minn
til Danmerkur í ágúst,“ segir
Guðmundur sem býst við að
fara með foreldrum sínum og
kærasta út á borða um kvöldið.
„Ég gæti hugsað mér að fara í
bröns á Reykjavík Natura eða
á Vox um morguninn. Svo býst
ég við að mamma og pabbi
bjóði okkur út um kvöldið. Svo
er aldrei að vita hvort maður
kíki út á djammið.“
Guðmundur Bjarni ólst
upp í Reykjavík. Hann gekk í
Grandaskóla og Hagaskóla og
fór þaðan í Menntaskólann
í Reykjavík. Þessa dagana er
hann að leggja lokahönd á BS-
nám í sálfræði við Háskóla Ís-
lands en auk þess starfar hann
í gestamóttökunni á Reykjavík
Natura.
Hann segist hafa gam-
an af skólanum. „Ég er samt
enginn námshestur og hafði
prófað ýmislegt áður en ég
fann mig í sálfræðinni. Ég fór
til að mynda í læknisfræði og
heilbrigðisverkfræði auk þess
sem ég prófaði viðskiptafræði.
Ég fíla sálfræðina og ætla að
læra eitthvað meira. Kannski
mannúðarstjórnum,“ seg-
ir Guðmundur Bjarni og bæt-
ir við að hann langi út í skóla.
„Kærastinn minn er að læra
dönsku en hann hefur mikinn
áhuga á öllu dönsku og sjálfur
hef ég gaman af því að heim-
sækja Norðurlöndin. Mér
finnst líklegt að Norðurlöndin
verði fyrir valinu fyrir frekara
nám.“
Kærasti og sambýlismaður
Guðmundar heitir Arten Glus-
hchenko og er frá Rússlandi.
Hann segir kærastann líklega
eiga eftir að koma sér eitthvað
á óvart í tilefni dagsins. Art-
en hefur verið á Íslandi frá ár-
inu 2009 en Guðmundur sem
hefur ekki enn farið með hon-
um til Rússlands. „Ég á alveg
eftir að gera það,“ segir hann
og bætir við að hann gæti vel
hugsað sér að setjast þar að ef
hann myndi læra rússnesku
og fá góða vinnu.
Aðspurður segir Guð-
mundur skrítið að komast
á fertugsaldurinn. „Ég er að
verða svo gamall,“ segir hann
hlæjandi og bætir við að fyrir
tveimur árum hafi hann fund-
ið líffræðiverkefni sem hann
hafði gert þegar hann var tíu
ára. „Þar hafði ég skrifað að
þegar ég væri orðinn tvítugur
þá yrði ég kominn með fjöl-
skyldu og börn. Þá fannst mér
eins og ég yrði þá orðinn mjög
gamall. En hins vegar finnst
mér ég ekki degi eldri en 18 í
dag þótt ég sé kominn á fer-
tugsaldur. Fertugsaldur? Það
hljómar svolítið illa,“ segir
hann hlæjandi að lokum.
indiana@dv.is
Fjölskylda
Guðmundar
n Systkini: Valgerður, 28 ára,
skipulagsfræðingur í Svíþjóð.
Jóhanna, 37 ára, listamaður.
Jón Freyr, 34 ára, námsmaður í
Danmörku.
n Foreldrar: Benedikt Jónsson
byggingarverkfræðingur, f. 1946.
Anna Guðmundsdóttir sölu
maður, f. 1949.
Þrítugur Guðmundur býst
við að fara út að borða með
foreldrum sínum og kærasta.