Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Page 44
Uppsagnir og lokanir
n Vandræði Nokia halda áfram og 10.000 missa vinnuna
F
arsímarisinn- og stígvéla-
framleiðandinn Nokia til-
kynnti í vikunni áform um
að segja upp 10.000 manns
á heimsvísu auk þess að loka að
minnsta kosti þremur verksmiðj-
um. Nokia var fyrir nokkrum árum
stærsti framleiðandi farsíma í
heiminum en það hefur breyst
mikið.
Með tilkomu snjallsímanna
hefur Nokia einfaldlega orðið eftir
í baráttunni. iPhone og Android-
símar hafa tekið yfir markaðinn á
meðan Nokia setti sitt traust með-
al annars á Lumia-símana sem
hafa Windows-stýrikerfi. Nýjasti
síminn, Lumia 900, kom á mark-
að í vor og hefur fengið góða dóma
og nokkur verðlaun, en hann
kemst ekki nálægt Apple og Sam-
sung í sölutölum. En Nokia er ekki
bara að tapa keppninni í lúxus-
símum því þeir hafa alltaf verið
mjög sterkir í ódýrari símum líka.
Google-símarnir eru þar að taka
af þeim væna flís ásamt fleiri fyrir-
tækjum. Nokia varð greinilega eftir
í þróun farsíma að mati neytenda.
Uppsagnir Nokia verða til þess
að verksmiðjum í Þýskalandi,
Kanada og Finnlandi verður lokað.
Þetta er þó ekki mesta fjöldaupp-
sögnin sem Nokia hefur þurft að
fara í. Því í fyrra sagði Nokia upp í
kringum 14.000 manns.
asgeir@.is
44 Lífsstíll 15.–17. júní 2012 Helgarblað
Dust verðlaunaður
Í
slenski leikjaframleiðandinn
CCP sló heldur betur í gegn á E3-
ráðstefnunni sem fór fram í síð-
ustu viku í Los Angeles. Nýjasti
leikurinn frá þeim, skotleikurinn
Dust 514, hlaut magnaðar viðtökur
og fékk verðlaun og viðurkenningar
frá hinum ýmsu tölvuleikjamiðlum.
Sem dæmi má nefna valdi vef-
miðillinn PlayStation Universe, pcu.
com, Dust besta netleikinn á ráð-
stefnunni þetta árið. Þá varð leik-
urinn í öðru sæti yfir bestu skotleiki
hjá PCU en þann besta töldu þeir
leikinn Far Cry 3. Þá valdi leikja-
vefurinn ING, sem er með þeim
stærri í bransanum, Dust besta
skotleikinn. Einnig valdi tímaritið
Playstation: The Official Magazine
leikinn einn af tíu verðmætustu
leikjunum á ráðstefnunni.
Dust 514 er fyrsti leikurinn sem
CCP framleiðir fyrir PlayStation-
leikjatölvurnar en líkt og EVE-On-
line er gífurlegur metnaður að baki
leiknum. Líkt og EVE flokkast hann
sem MMO-leikur en MMO stendur
fyrir „massive multiplayer online“.
Leikurinn er því aðeins spilaður á
netinu. Reyndar er Dust nátengdur
EVE Online því leikurinn gerist í
sama heimi og þú getur því slegist í
lið með eða barist gegn spilurum úr
EVE. Leiksviðið er gríðarlega stórt
og möguleikarnir nánast óþrjót-
andi.
Hugmyndin er sú að leikmenn
í EVE Online geti í raun ráðið leik-
menn í Dust sem málaliða til þess
að sinna verkefnum og berjast fyrir
sig. Að leikmenn í EVE geti jafnvel
aðstoðað málaliðana með loftárás-
um frá geimskipum sínum eða öðru
í þeim dúr.
Áætlað er að Dust komi út seinna
á árinu og verður hann frír. Notend-
ur PS3 geta sem sagt náð í leikinn og
spilað hann að kostnaðarlausu sem
verður að teljast frábær kostur mið-
að við leikjaverð í dag.
Dust verður í stöðugri þróun líkt
og EVE. Möguleikarnir eru líkt og
fyrr sagði gríðarlegir og heimurinn
sem spilendur hafa aðgang að sá
langstærsti sem er í boði á leikja-
tölvum eins og PS3 og Xbox 360.
asgeir@dv.is
n Leikur frá CCP sló í gegn á E3 n „Besti skotleikurinn“
Samsung
Facebook
Samsung ætlar að opna sinn eig-
inð samskiptavef í anda Face-
book snemma á næsta ári. Verk-
efnið ber hið frumlega vinnuheiti
„Samsung Facebook“. Eins og
ætla má er samfélagsvefnum ætl-
að að fara í samkeppni við Face-
book, Google+ og fleiri slíka.
Vefurinn á að vera aðgengilegur í
gegnum hin ýmsu tæki Samsung,
svo sem myndavélar, síma, sjón-
vörp og Blu-Ray spilara.
Skriðdrekaúr
Nýjasta úrið frá tískurisanum
Diesel er ekkert slor. Það er gert
úr sama málmi og með sömu ker-
amikpúðurhúð og er notuð við
gerð skriðdreka og skotvopna.
Það ætti því að þola eilítið hnjask.
Úrin eru fáanleg með með hefð-
bundinni ól og leðuról og kosta á
bilinu 150 til 325 dali ytra. Hér
heima verður verðið því væntan-
lega á bilinu 40 til 80.000 krónur.
Besti vinur
golfarans
Komið er á markað í Bandaríkj-
unum GPS-tæki fyrir golfara frá
Callaway sem sýnir raunveru-
legar loftmyndir af brautum. Tæk-
ið heitir Callaway Upro MX+ og
kostar ytra 250 dollara. Það er sem
sagt GPS-tæki með snertiskjá þar
sem hægt er að minnka og stækka
raunverulega mynd af brautinni
sem verið er að spila. Þegar eru
yfir 25.000 brautir inni á tækinu og
er sífellt hægt að bæta við. Tækið
er einnig fullkominn fjarlægðar-
mælir sem sýnir hversu langt er í
hvaða punkt sem er á bautinni.
Dust 514 Gæti orðið einn vinsælasti leikur heims.
Sló í gegn Leikurinn vakti mikla athygli á E3.
Gullnu árin Það var sá tími sem Nokia átti hreinlega markaðinn.