Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Page 46
Lokkaprúðir Leikmenn em
K
nattspyrnumen eru
margir hverjir gefnir
fyrir mikinn hégóma.
Ein stærsta tískuyfir-
lýsing sem knattspyrn-
umaður getur gefið út er með
hárgreiðslunni sem hann
skartar á stórmóti þegar
heimurinn fylgist með hverri
hreyfingu hans. Sumir virðast
oft og tíðum hafa meiri áhuga
hárgreiðslunni en því sem er
að gerast inni á vellinum. Á EM
2012 er kannski enginn sem
gengið hefur fram af fólki með
furðulegum stíl. Í liðakeppn-
inni í þeim efnum er þó ljóst að
Portúgalar eru sér á báti. Fyrir
þeim hópi fer Cristiano Rona-
ldo sem einn fárra leikmanna
hefur afrekað það að breyta
um greiðslu í leikhléi. DV tók
saman ýmsar skrautlegar og
öðruvísi hárgreiðslur sem má
sjá á mótinu í ár, sem og nokkr-
ar gamlar og góðar sem gleym-
ast seint.
46 Sport
Skipað að skipta um nærbrækur
n Bendtner nýtti markaskorun til að auglýsa
É
g vissi ekki að ég væri að
brjóta einhverjar regl-
ur, en ég veit það núna,“
segir danski framherj-
inn Nicklas Bendtner eftir
að hann fékk ávítur fyrir það
hvernig hann fagnaði einu
marka sinna gegn Portúgal
á miðvikudag. Eftir að hann
skoraði síðara mark sitt lyfti
Bendtner upp treyju sinni,
dró stuttbuxur sínar eilítið
niður til að afhjúpa skær-
grænar nærbuxur sem hann
skartaði þar undir. Á nær-
buxunum var nefnilega aug-
lýsing frá veðmálafyrirtæk-
inu Paddy Power.
Danska knattspyrnusam-
bandið er styrkt af öðru veð-
málafyrirtæki, Ladbrokes,
og var því skiljanlega ekki
mjög ánægt með uppátæki
danska framherjans.
Sú lending fékkst í mál-
inu að Bendtner hefur ver-
ið skipað að skipta um nær-
brækur fyrir lokaleik B-riðils
gegn Þýskalandi á sunnu-
dag. „Við höfum rætt við
leikmanninn og hann mun
ekki nota þessar nærbuxur
aftur,“ hefur Ekstra Bladet
eftir Lars Berendt, tals-
manni Ladbrokes.
„Þetta eru bara happa-
buxur sem ég notaði í fyrsta
leiknum og hef líka notað
fyrir mótið,“ segir Bendtner
um málið. Það virðist hins
vegar augljóst að uppátækið
var fyrirfram ákveðið því
andartökum eftir að Bend-
tner skoraði birtist færsla á
Twitter-síðu Paddy Power
með mynd af Bendtner í
„happabuxunum.“ Ótrúleg
tilviljun.
UEFA gæti þá einnig haft
sitthvað um auglýsingar-
uppátækið að segja þar sem
túlka má nærbuxnaauglýs-
inguna sem brot á reglum
EM 2012 sem banna auglýs-
ingar á klæðnaði.
n Stórmót eru ekki bara fótboltasýning, heldur einnig tískusýning
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Cristiano
Ronaldo
Dýrari týpan. Ronaldo hefur
tekið við af David Beckham
sem tískufyrirmynd.
Spurning hversu margir
skarta þessari klippingu á
pollamótunum í sumar.
Fyrri hálfleikur Ronaldo með
hárið sleikt í fyrri hálfleik gegn
Þýskalandi í fyrstu umferð B-riðils.
Seinni hálfleikur Flestir veittu
því athygli í síðari hálfleik sama
leiks að Ronaldo hafði skipt um
greiðslu og var orðinn úfinn.
Zlatan
Ibrahimovic
Í leikjum er hann með stíft tagl með Zorro-
skeggið sitt svo enginn trúir því að hann sé frá
Svíþjóð. Utan vallar losar hann um og leyfir
lokkunum að flæða.
Alessandro Diamanti
Ítalski sóknarmaðurinn má helst ekki standa kyrr of lengi því þá reyna fuglar
að setjast að hreiðrinu á höfði hans.
Philippe Mexés
Franski varnarmaðurinn býður upp á rakað
upp í hliðarnar og hátt rammbundið tagl sem
sveiflast tignarlega til í skallaboltunum.
Petr Jiracek
Ætlum ekki að saka tékkneska tröllið um að
fá sér permanent en síðir krullulokkar, smá
spöng í hárið til að temja kvikindin, þetta
var móðins fyrir 18 árum.
Bjánalegt Nicklas Bendtner er
ekki alveg eins og fólk er flest. Hann
girti niður um sig gegn Portúgal.
Laudrup
að taka við
Swansea
Velska liðið Swansea City er
við að klófesta dönsku goð-
sögnina Michael Laudrup
sem næsta knattspyrnu-
stjóra sinn. Swansea hefur
leitaði logandi ljósi að nýj-
um stjóra eftir að félagið
missti Brendan Rodgers til
Liverpool. BBC greinir frá
því að Huw Jenkins, stjórn-
arformaður liðsins, hafi átt
í viðræðum við Laudrup
sem gengið hafi vel. Jenk-
ins ku hrifinn af hugmynda-
fræði Laudrups sem sé í takt
við það sem þekkst hefur
hjá Swansea undir stjórn
Rodgers. Sjálfur hefur Dan-
inn lýst því yfir að hann vilji
spreyta sig í ensku úrvals-
deildinni.
„Vorum slakir“
Bert van Marwijk, lands-
liðsþjálfari Hollands, var
allt annað en sáttur við
frammistöðu sinna manna
sem töpuðu 2–1 fyrir Þýska-
landi á miðvikudagskvöld.
„Við vörðumst ekki og sam-
vinna miðju og varnar var
afar slök,“ sagði þjálfar-
inn eftir leikinn. Þetta er í
fyrsta skipti síðan á HM 98
sem Holland tapar tveimur
landsleikjum í röð, í öllum
keppnum, og sumir vilja tala
um krísu í því sambandi.
Holland þarf að sigra Portú-
gal með tveimur mörkum
í lokaleiknum og treysta á
þýskan sigur gegn Dönum til
að komast áfram.
Sakna
Rooneys
Roy Hodgson, landsliðs-
þjálfari Englands, viður-
kennir að hans menn sakni
mjög Wayne Rooney og það
hafi verið augljóst í fyrsta
leik liðsins á EM gegn Frökk-
um. Rooney klárar leikbann
sitt með því að sitja af sér
leikinn gegn Svíum á föstu-
dag. „Við höfum saknað
hans, án nokkurs vafa. Hann
er heimsklassaleikmaður
og þegar við endurheimtum
hann erum við strax orðn-
ir miklu sterkari sóknar-
lega. Þegar þú talar um Sví-
þjóð þá talar þú um Zlatan
Ibrahimovic og hversu mik-
ilvægur hann er þeirra liði.
Við eigum einn slíkan leik-
mann líka, og hann heitir
Wayne Rooney.“
15.–17. júní 2012 Helgarblað