Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Síða 56
Hvenær fæ ég að vera á forsíðunni? Elskendur tókust á n Spurningakeppni stéttanna var haldin í síðasta sinn í Virk- um morgnum á Rás 2 í gær. Það var nokkuð óvanaleg stétt sem áttist við að þessu sinni og ekki starfsstétt líkt og venja er. Stéttin var „elskendur“ og það voru þau Guðrún Gunnarsdóttir söng- kona og Hannes Friðbjarnarson trommari sem kepptu. Guðrún bar sigur úr býtum og var leyst út með gjöfum. Hannes fór þó ekki tómhentur heim og fengu þau bæði glæsilegar RÚV-der- húfur til að „nota í göngutúrun- um,“ eins og Andri Freyr Viðarsson orðaði það. Tímarím í loftið n Hagfræðingurinn Ólafur Arnar- son hefur hleypt af stokkunum vefriti sínu timarim.is. Ýmislegt er að finna á síðunni sem Ólaf- ur sér að mestu um sjálfur, þar á meðal uppáhaldslög hans og liðinn Rúsínuna í pylsuendanum þar sem hann skefur ekki utan af hlutunum. Í fyrsta ritstjórnar pistli sínum þakkar hann Birni Inga Hrafnssyni og félögum samstarf- ið á Pressunni undanfarin þrjú ár en Ólafur var einn vinsælasti bloggarinn þar. Pistlar hans koma þó til með að birt- ast fyrst um sinn á Pressunni líka. Cruise og Jóhannes n Stórleikarinn Tom Cruise kom til Íslands í gær. Hann er kom- inn hingað til að leika hlutverk í kvikmynd sem byggð er á skáld- sögunni Oblivion. Tökur hefj- ast í Hrossaborgum í Mývatns- sveit þann 18. júlí. Heimildir DV herma að starfsmenn hótels- ins hafi laumað Cruise inn bak- dyramegin á hótelið til að forða honum frá sviðsljósinu. Þaðan tók hann lyftuna beint upp í for- setasvítu hótelsins. Eins og DV greindi frá í vikunni mun Cruise dveljast að Hrafnabjörgum í Eyja- firði meðan á tök- um myndarinnar stendur, en það er húsið sem Jóhannes Jóns- son kaupmaður byggði fyrir fá- einum árum, en missti. V ið ákváðum að búa til sex mis- munandi forsíður með blað- inu og gefa hverjum og ein- um forsetaframbjóðanda sína forsíðu,“ segir Haukur Sigurbjörn Magnússon, yfirritstjóri tímarits- ins Reykjavík Grapevine, um blaðið sem kemur út í dag, föstudag. Þar er einnig að finna viðtöl við alla fram- bjóðendurna að Herdísi Þorgeirs- dóttur undanskilinni, en hún hætti við að taka þátt á síðustu stundu. Fyrirmynd forsíðumyndanna er opinber forsetamynd af Ólafi Ragnari sem tekin var árið 1996. „Þar er Ólafur Ragnar allur skreyttur orð- um og lítur mjög forsetalega út. Hug- myndin var að fólk gæti fengið að reyna að sjá fyrir sér mismunandi frambjóðendur í hlutverki forsetans. Það er saga sem hefur verið lífseig innan auglýsingabransans að Ólafi hafi árið 1996 tekist að sigra í kosn- ingunum út á heilsíðuauglýsingu sem hann var með með forsetamynd af sér. Þá hafi fólk getað séð hann fyr- ir sér í hlutverkinu.“ Hugmyndin að hafa alla forseta- frambjóðendurna með gekk þó ekki alveg upp þar sem Herdís Þorgeirs- dóttir, einn frambjóðandanna, hætti við að taka þátt í verkefninu. „Í gær, þegar við vorum að klára tökur, þá hringdi Herdís og tjáði okkur að hún vildi ekki taka þátt. Hún hafði sam- þykkt með semingi að vera með, en þótti þetta eftir einhverja umhugs- un ekki samrýmast sínum markmið- um. Hún lagði þó áherslu á að henni þætti hugmyndin góð, en þetta bara hentaði henni ekki. Við skildum þó í góðu og förum út með hinum fram- bjóðendunum fimm,“ segir Haukur Sigurbjörn og lofar góðu blaði. hanna@dv.is Herdís hætti við að vera í Grapevine n Allir forsetaframbjóðendurnir á forsíðu nema Herdís Þorgeirsdóttir Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 15.–17. Júní 2012 68. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr. Hætti við Herdís Þorgeirsdóttir vildi ekki vera á forsíðu tímaritsins Reykjavík Grapevine.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.