Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Side 4
Verðið ekki óraunhæft
n Tilboð Almennings í nýju ljósi eftir afskriftir Árvakurs
V
ið þetta mál er ekkert að segja
annað en að ég tók eftir því,
að verð okkar var ekki óraun
hæft,“ segir Vilhjálmur Bjarna
son viðskiptafræðingur í samtali við
DV. Árið 2009 lagði félagið Almenn
ingur hf., undir forystu Vilhjálms,
fram tilboð í Árvakur. Eins og greint
hefur verið frá afskrifaði Íslandsbanki
944 milljónir hjá Árvakri á síðasta ári. Í
ljósi þess segir Vilhjálmur að tilboð al
menningshlutafélagsins, sem var það
þriðja hæsta á sínum tíma, hafi ekki
verið óraunhæft. Þórsmörk ehf. átti
hæsta tilboðið en Palumbo Holdings
ehf, félag Steve Cosser og Everhard
Visser, átti næsthæsta tilboðið.
Þórsmörk tók yfir skuldir Árvak
urs og kom með nýtt hlutafé inn í fyr
irtækið snemma á árinu 2009. Kaup
verð fékkst ekki gefið upp en um 200
milljóna króna munur var á hæsta og
næsthæsta tilboði.
„Ég er enn áskrifandi,“ segir Vil
hjálmur þegar málið er borið undir
hann. „Þessu máli lauk af minni hálfu
þegar við fengum þetta ekki. Og þar
með er það bara búið. Það er svona
ákveðin huggun að vita að við höfum
ekki verið að bjóða út í einhverja tóma
vitleysu,“ segir Vilhjálmur.
Á heimasíðu Almennings hf. kom
fram um félagið: „Forsvarsmenn hóps
ins sem hafa hug á að stofna almenn
ingshlutafélag um Morgunblaðið, eru
áhugafólk um að reka frjálsan, gagn
rýnan og óháðan fjölmiðil. Fjölmið
il sem verður ótengdur hagsmunum
viðskiptablokka eða stjórnmálaflokka.
Meginmarkmið félagsins er að
reka öflugan fjölmiðil með raunveru
legra dreifðu eignarhaldi. Enginn
einn aðili, viðskiptablokk eða hags
munahópur verði ráðandi, heldur
verði hér á ferð félag sem raunveru
lega verði í höndum almennings.“
thordur@dv.is
4 Fréttir 25. júlí 2012 Miðvikudagur
Raunhæft tilboð „Það er svona ákveðin
huggun að vita að við höfum ekki verið að
bjóða út í einhverja tóma vitleysu,“ segir
Vilhjálmur.
Lagði hendur á
eiginkonu sína
Karlmaður var handtekinn á
mánudagskvöld á Krýsuvíkur
afleggjaranum við Hafnarfjörð eft
ir að að hann hafði lagt hendur á
eiginkonu sína. Með hjónunum í
bifreiðinni sem konan ók var barn
þeirra að því er RÚV greinir frá.
Konan varð að forða sér út úr bíln
um eftir að maðurinn hafði veist
að henni og náði hún að hringja
eftir aðstoð. Maðurinn, sem var
ölvaður, brást ókvæða við afskipt
um lögreglumanna en féllst að
lokum á að setjast inn í lögreglu
bílinn.
Skammar
Moggann
„Þetta er algjör della,“ segir Guð
mundur Kristjánsson, útgerðar
maður í Brimi, þegar hann er
spurður hvort bandaríski leikar
inn Ben Stiller leigi af honum hús
næði. Mbl.is birti frétt á þriðjudag
þess efnis að Guðmundur hefði
leigt leikaranum húsnæði með
an hann er hér á landi við tökur á
kvikmyndinni The Secret Life of
Walter Mitty. „Ég var einmitt að
skamma þá fyrir að tala ekki við
mig áður,“ segir Guðmundur en
Morgunblaðið fjarlægði fréttina.
Stiller hefur farið víða um
landið vegna vinnslu myndarinn
ar en hann sagði nýverið í samtali
við DV að hann ráðgerði að vera
hér á landi í þrjá mánuði. Bætti
hann við að yfir 100 manna teymi
yrði honum til halds og trausts.
Ríkið hætti að
skipta sér af
Stjórn Sambands ungra sjálfstæð
ismanna krefst þess að ríkið hætti
afskiptum af mannanöfnum og
segir í ályktun stjórnarinnar að
ungir sjálfstæðismenn vilji að lög
um mannanöfn verði afnumin.
„Með því myndi ríkið hætta öllum
afskiptum af því hvað fólk kýs að
nefna sig og mannanafnanefnd
yrði lögð niður,“ segir í ályktun
SUS sem segir nefndina takmarka
frelsi einstaklinga.
Baltasar kaupir
brellufyrirtæki
Þ
ær hugmyndir voru uppi hjá
Framestore að láta loka úti
búinu. Þess vegna ákváðum
við að kaupa það,“ segir leik
stjórinn Baltasar Kormákur
um kaup hans og Daða Einarssonar,
sérfræðings í stafrænum brellum, á ís
lensku útibúi kvikmyndafyrirtækisins
Framestore. Hann vill ekki gefa upp
kaupverðið.
Gerir brellur í stórum myndum
Framestore er breskt kvikmynda
fyrirtæki sem sérhæfir sig í stafræn
um brellum í kvikmyndum og er með
stærstu fyrirtækjum í heimi á sínu
sviði. Framestore hefur séð um staf
rænar brellur í myndum á heimsmæli
kvarða, til dæmis Avatar, Sherlock
Holmes og Harry Potter myndirn
ar, svo örfá dæmi séu nefnd. Það
gerði einnig brellur fyrir kvikmyndina
Contraband sem Baltasar Kormákur
leikstýrði. Höfuðstöðvar Framestore
eru í London en útibúin í New York í
Bandaríkjunum og Reykjavík – þangað
til Baltasar Kormákur og Daði Einars
son keyptu það síðarnefnda.
Jafn stórt og kvikmyndafyrirtæki
erlendis
Baltasar Kormákur og Daði Einars
son eiga nú helmingshlut hvor í fyr
irtækinu. Því telst fyrirtækið ekki
lengur vera útibú Framestore held
ur sjálfstætt kvikmyndafyrirtæki.
„Þetta er sama fyrirtækið þrátt fyr
ir breytt eignarhald vegna þess að
sama starfsfólkið vinnur þarna enn
þá og því er sama reynslan innan fyr
irtækisins. Áður var þetta útibú sem
var úthlutað verkefnum frá Frame
store í Bretlandi. Það eru þó vina
leg tengsl á milli okkar fyrirtækis og
Framestore þótt eignarhaldið sé nú
aðskilið.“ Baltasar Kormákur segir
um 30–40 manns starfa í fyrirtækinu
sem er til húsa í Aðalstræti í Reykja
vík. „Á næstunni munu líklega fleiri
verkefni bætast við því núna getum
við boðið í verkefni og fengið þau
til Íslands og þá mun starfsfólki fyr
irtækisins að öllum líkindum fjölga
til muna.“ Áform Baltasars Kormáks
eru að byggja fyrirtækið upp og gera
það stærra – jafn stórt og stærstu
kvikmyndafyrirtæki erlendis. „Kvik
myndabransinn er samt ekki auð
veldur og þar ríkir mikil samkeppni.
Á Íslandi eru góð fyrirtæki sem sér
hæfa sig í stafrænum brellum í kvik
myndum.“
Hugsjónin réði för
Baltasar Kormákur segir mikilvægt
að styðja við íslenska kvikmynda
framleiðslu og að það hafi verið
honum ofarlega í huga þegar hann
festi kaup á fyrirtækinu. „Þetta snýst
um að Ísland sé samkeppnishæft í
kvikmyndabransanum. Mér finnst
mjög mikilvægt fyrir íslenskan kvik
myndaiðnað að það sé til kvik
myndafyrirtæki á Íslandi sem er af
þessari stærðargráðu og geri kvik
myndir á heimsmælikvarða. Því réð
ust kaupin fyrst og fremst af hugsjón
og ég lét mig gróðasjónarmið litlu
varða þegar ég keypti fyrirtækið þótt
ég vilji auðvitað að fyrirtækin mín
séu arðbær.“
Mælist vel fyrir
Spurður hvort hið nýja kvikmynda
fyrirtæki hans og Daða muni héðan
í frá gera allar stafrænar brellur fyr
ir kvikmyndir hans, segir Baltasar
Kormákur það ekki fast í hendi. „Ég
get aldrei sett það sem skilyrði að
fyrirtækið komi að öllum myndun
um mínum. Það mælist samt svo vel
fyrir alls staðar og fólk í kvikmynda
bransanum hefur yfirleitt mikinn
áhuga á að vinna með fyrirtækinu.“
n Telur mikilvægt fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað að fyrirtækið verði á Íslandi
Styður íslenskan kvikmyndaiðnað Hugsaði ekki um hagnaðinn þegar hann keypti útibúið af Framestore.
Vann að Contraband Framestore sérhæfir sig í stafrænum brellum og vann meðal
annars að Contraband, kvikmynd sem Baltasar Kormákur leikstýrði. Daði Einarsson hefur
unnið að ýmsum verkefnum fyrir Framestore.
Elín Ingimundardóttir
blaðamaður skrifar elin@dv.is
„Á næstunni munu
líklega fleiri verk-
efni bætast við því núna
getum við boðið í verkefni
og fengið þau til Íslands