Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Side 8
Óttast að vera frá börnunum 25 þúsund innflytjendur n 36,3 prósent innflytjenda á Íslandi upprunnir frá Póllandi H inn 1. janúar 2012 voru 25.442 innflytjendur á Ís­ landi, eða 8 prósent mann­ fjöldans. Það er fækkun frá árinu 2011, þegar innflytjendur voru 8,1 prósent landsmanna og 25.693 alls. Þetta kemur fram í nýj­ um tölum sem Hagstofa Íslands birti á þriðjudag. Fjallað er um málið á vef stofn­ unarinnar og þar kemur fram að nokkuð hafi fjölgað í annarri kyn­ slóð innflytjenda á milli áranna 2011 og 2012, eða úr 2.582 í 2.876. Samanlagt var fyrsta og önnur kyn­ slóð innflytjenda 8,9 prósent af mannfjöldanum 1. janúar 2012, sem er það sama og hún var 2011. Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og af foreldrum sem eru líka fæddir erlendis, sem og afar og ömmur í báðar ættir. Önnur kynslóð innflytjenda eru einstakl­ ingar sem eru fæddir á Íslandi af for­ eldrum sem eru báðir innflytjendur. Eins og síðustu ár voru Pólverj­ ar langfjölmennasti hópur inn­ flytjenda hér á landi árið 2012. Alls eru 9.228 einstaklingar upprunnir frá Póllandi, eða 36,3 prósent allra innflytjenda. Pólskir karlar voru 40,1 prósent allra karlkyns innflytj­ enda 1. janúar 2012, eða 4.886 af 12.190. Pólskar konur voru 32,8 pró­ sent kvenkyns innflytjenda. Næst­ fjölmennasti hópur innflytjenda fæddist í Litháen, 5,6 prósent en 5,4 prósent innflytjenda fæddust á Fil­ ippseyjum. Hinn 1. janúar 2012 bjuggu 18.940 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjenda á höfuðborgarsvæðinu, eða 66,9 prósent innflytjenda sem búsettir voru á landinu. Hlutfallið af mannfjölda var hæst á Vestfjörð­ um, en þar eru 13,4 prósent mann­ fjöldans innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. n 8 Fréttir 26. september 2012 Miðvikudagur David Miliband í háskólanum David Miliband, fyrrverandi utan­ ríkisráðherra Bretlands, er á Ís­ landi þessa dagana í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Ís­ lands, en þeir voru fyrr á þessu ári meðal ræðumanna á Heims­ þingi um höfin sem vikuritið The Economist efndi til í Singapúr. David Miliband er með­ al þekktustu stjórnmálaleiðtoga sinnar kynslóðar og var utanríkis­ ráðherra og umhverfisráðherra í ríkisstjórn Tonys Blair. Hann flytur fyrirlestur í Há­ tíðarsal Háskóla Íslands í dag, miðvikudag, klukkan 12. Fyrir­ lesturinn, sem ber heitið The Fut­ ure of Europe: Economics, Politics and Identity (Framtíð Evrópu — efnahagslíf, stjórnmál og sjálfs­ mynd), er opinn almenningi og er hann liður í fyrirlestraröðinni Nýir straumar sem forseti Íslands stofnaði til fyrir nokkrum árum. Fyrirlesturinn er haldinn í sam­ vinnu við Háskóla Íslands. David Miliband mun einnig eiga fundi með Jóhönnu Sigurðar­ dóttur forsætisráðherra, Stein­ grími J. Sigfússyni, atvinnuvega­ og nýsköpunarráðherra og Má Guðmundssyni seðlabankastjóra. Hann mun síðan snæða kvöldverð á Bessastöðum með hópi al­ þingismanna og eiga viðræð­ ur við íslenska sérfræðinga og vísindamenn. Hann mun kynna sér nýtingu hreinnar orku með heimsóknum í Jarðhitaskóla Sam­ einuðu þjóðanna, Svartsengi, Bláa lónið, Haustak, Hellisheiðarvirkj­ un og fleiri staði. Örlítil fækkun Innflytjendum hefur fækkað örlítið frá árinu 2011. Mynd Eyþór Árnason A ðalmeðferð í máli mæðgn­ anna Emmu Trinh Thi Nguyen og Jennýjar Ngoc Anh Mánadóttur fór fram á þriðjudag í Héraðs­ dómi Reykjavíkur. Þar játuðu þær að mestu þann yfirgripsmikla og skipulagða þjófnað á verðmætum tískufatnaði, skóm og snyrtivörum sem þær eru ákærðar fyrir. Móðir­ in er einnig ákærð fyrir að hafa haft á heimili sínu 21 kannabisplöntu og 129,9 grömm af kannabislaufum. sérútbúinn poki og vírklippur Mæðgunum er gefið að sök að hafa stundað skipulagðan búðarþjófn­ að á tímabilinu frá janúar 2010 til október 2011 þegar þær voru góm aðar við iðju sína í Smára­ lind. Þjófnaðurinn var vel skipulagður en til hans notuðu þær sérútbúna poka, klædda með álpappír og móðirin not­ aði vírklippur í einhverjum til­ vikum. Þegar lögreglan kom á heimili þeirra fundust rúmlega 1.000 hlutir. Lögreglan þurfti að verðleggja hvern einasta hlut til þess að hægt væri að finna út heildarverðmæti þýfisins, það tók hátt á áttunda mánuð enda magnið gífurlegt. óttast að vera frá börnunum Mæðgurnar játuðu brot sín að mestu en þó voru ákæruliðir sem þær játuðu ekki, það voru vörur sem voru óverðmerktar í ákæruskjölum og engin búð­ anna kannaðist við. Þær sögðu þá hluti hafa verið í sinni eigu og ættingja sinna. Brot Emmu, móð­ urinnar, eru talsvert umfangsmeiri. Í dómi sagði verjandi Emmu að hún hefði tekið sig verulega á eftir að hún var tekin. Hún væri hætt afbrotum og óttaðist mest að vegna gjörða sinna yrði hún að vera frá dætrum sínum til lengri tíma ef hún yrði dæmd til fangelsisvistar. Hún er einstæð og tvær dætur hennar, 15 ára og 11 ára, búa hjá henni og eru á hennar fram­ færi. Auk þess dveldust stundum dóttir hennar Jenný og barnabarn hennar, 2 ára dóttir Jennýar stundum hjá henni. Gæsluvarðhaldið hefði haft djúp áhrif á hana og það hefði orðið breyting á lífi hennar eftir það og hún leitað sér hjálpar „innan síns hóps“ eins og verjandi orðaði það. deilt um verðmæti hlutanna Deilt var um tjón ákærenda í saln­ um. Verjendur mæðgnanna halda því fram að vörurnar liggi fyrir nýj­ ar og ónotaðar og því ekki um tjón að ræða. Bótakröfur væru ekki nægilega vel reifaðar í bótakröfu Haga og Eros en aðrir bótakröfu­ hafar mættu ekki við þingfestingu málsins og því féll bótakrafa þeirra frá. Upphaflega bótakrafan var upp á 14 milljónir króna en er töluvert lægri núna. Kristín Ólafsdóttir lögfræðing­ ur sem mætti fyrir hönd Haga sagði vörurnar vera óseljanlegar, bæði vegna þess að þær hefðu legið á heimili ákærðu og ekki væri vitað hvernig hefði verið farið með vörurn­ ar. Auk þess væru þær „last season“ eða frá síðasta tímabili. Vörurnar væru því ekki lengur til sölu í búðun­ um og því hefði verðmæti þeirra rýrnað töluvert. Verjendur mæðgnanna vildu að tjónið yrðu metið út frá inn­ kaupsverði, það væri hið raunveru­ lega tjón sem bótakrefjendur hefðu orðið fyrir. Kristín hafnaði því og sagði tjónið vera metið út frá því verði sem ekki fengist fyrir hana ef hún væri seld út úr búðinni. Vegna þessa væri ekki gerð krafa um að fá vörurnar til baka heldur tjón­ ið greitt. Verðmæti hlutanna var reiknað með virðisaukaskatti en verjendur mæðgnanna höfnuðu því að verðmæti þeirra væri reikn­ að þannig. Féllst Kristín á það fyrir hönd Haga að virði hlutanna væri reiknað án virðisaukaskatts. 16 til 18 mánaða fangelsi Ákæruvaldið fer fram á að Emma verði dæmd í 16–18 mánaða óskil­ orðsbundið fangelsi og Jenný í 5–6 mánuði skilorðsbundið. Auk þess að greiða þær kröfur sem kröfuhaf­ ar setji fram, sem og málskostnað og laun verjenda. Verjendur þeirra höfnuðu bótakröfunum og vilja að þeim sé vísað frá dómi, til vara að þær séu sýknaðar af þeim. Dóm­ ur verður kveðinn upp í málinu á næstu dögum. n n Þjófamæðgurnar játa n Móðirin segist hafa tekið sig á og hætt afbrotum Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Smæð íslensks samfélags skapar miklu frem- ur forsendur fyrir fyrir- greiðslupólitík. Fyrir dóm Mæðgurnar mættu fyrir dóm á þriðjudag og játuðu að mestum hluta þann þjófnað sem þær eru ákærðar fyrir. 5. september 2012 Íslendingar í haldi í danmörku: Risavaxið fíkniefnamál Líkt og DV greindi frá í síðustu viku var hópur Íslendinga hand­ tekinn í Danmörku í tengslum við fíkniefnamál sem teygir anga sína víða um Evrópu. Fréttastofa Stöðv­ ar 2 greindi frá því á þriðjudags­ kvöld að lögreglan í Danmörku hefði lagt hald á 35 kíló af am­ fetamíni og sagði að söluandvirðið væri um 175 milljónir króna. Er þá miðað við að grammið kosti fimm þúsund krónur. Þá sagðist Stöð 2 hafa heimildir fyrir því að einn þeirra handteknu væri Guðmundur Ingi Þórodds­ son en hann hefur hlotið þunga dóma hér á landi fyrir innflutning á e­töflum. Hann fékk sjö ára dóm í Hæstarétti árið 2000 en alls hlutu ellefu einstaklingar dóm í málinu sem varðaði innflutning á fjög­ ur þúsund e­töflum. Guðmundur hlaut þyngstan dóm í málinu. Hefur Stöð 2 heimildir fyrir því að málið teygi anga sína frá Spáni til Amsterdam, Kaupmannahafn­ ar, Óslóar og Reykjavíkur. Lög­ regluyfirvöld hér á landi og er­ lendis hafa ekki viljað tjá sig um málið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.