Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Síða 10
Lýður reyndi
að hyLma yfir
10 Fréttir 26. september 2012 Miðvikudagur
n Lýður Guðmundsson ákærður n Sagði ekki satt á aðalfundi Exista 2009
L
ýður Guðmundsson, fyrr
verandi aðaleigandi Exista,
gæti fengið tveggja ára fang
elsisdóm verði hann dæmd
ur sekur um lögbrot vegna
hlutafjáraukningar Exista í lok árs
2008. Sérstakur saksóknari gaf út
ákæru á hendur honum og Bjarn
freði Ólafssyni, lögmanni á lög
fræðistofunni Logos, þann 19.
september síðastliðinn. Lýður og
Bjarnfreður greindu þá ranglega
frá því til fyrirtækjaskrár ríkisskatt
stjóra að greitt hefði verið að fullu
fyrir 50 milljarða króna hlutafjár
aukningu hjá Exista þegar sann
leikurinn er sá að aðeins einn
milljarður hafði verið greiddur.
Kaupleigufyrirtæki Exista, Lýsing,
lánaði Lýði og Ágústi bróður hans,
fyrir hlutafjáraukningunni. Hluta
fjáraukningin var liður í tilraun
um Lýðs, og Ágústs bróður hans,
til að halda yfirráðum í Exista eftir
bankahrunið árið 2008.
Um er að ræða fyrstu ákæruna
sem gefin er út á hendur Lýði frá
bankahruninu 2008 en hann var
stjórnarformaður Exista, stærsta
hluthafa Kaupþings og eiganda
VÍS, Símans og Lýsingar fyrir
hrunið 2008. Sérstakur saksóknari
telur að upplýsingagjöfin vegna
hlutafjáraukningarinnar sé brot á
lögum um greiðslu hlutafjár þar
sem eignarhaldsfélag Lýðs hefði
eignast 50 milljarða hluta í Exista
sem ekki var greitt fyrir. Lýður var
jafnframt stjórnarmaður í Kaup
þingi. Lýður hefur verið til rann
sóknar í fjölmörgum málum sem
tengjast rannsóknum sérstaks sak
sóknara.
Ómyrkur í máli
Lýður og Ágúst héldu yfirráðum
sínum í Exista þar til í nóvember
2010 þegar kröfuhafar félagsins yf
irtóku það að fullu. Ýmislegt gekk
þó á í starfsemi Exista frá banka
hruninu og þar til kröfuhafarnir yf
irtóku félagið.
Þannig hélt Lýður mikinn
reiðilestur á aðalfundi Exista í lok
ágúst 2009, ári eftir bankahrunið,
þar sem hann stillti Exista upp sem
fórnarlambi hrunsins og barm
aði sér. „Tilhæfulausar aðdróttan
ir um allt milli himins og jarðar í
viðskiptalífinu hafa því miður ver
ið daglegt brauð frá bankahrun
inu og nær allir sem fyrir þeim
verða virðast sekir þar til þeir hafa
sannað sakleysi sitt. Þannig hefur
grundvallaratriði réttarríkisins ver
ið snúið algerlega á haus.“
Sagði aukninguna milljarð
Þá ræddi Lýður talsvert um hluta
fjáraukninguna sem hann hefur nú
verið ákærður fyrir en án þess þó að
nefna lykilatriði í henni: „Strax eft
ir bankahrunið var boðað til hlut
hafafundar í Exista og þar lýstum
við bræður, sem stærstu eigendur
félagsins, því yfir að við myndum
leggja allt í sölurnar til bjargar fé
laginu. Aukið reiðufé fékkst með
hlutafjáraukningu í desember en
þá lagði BBR, sem er félag í eigu
okkar bræðra, fram einn milljarð
króna í nýju hlutafé sem að okkar
mati skipti sköpum við að skapa
nauðsynlegt svigrúm fyrir fjárhags
lega endurskipulagningu.“
Reyndi að hylma yfir
Athygli vekur að á fundinum talaði
Lýður um 1 milljarðs króna hluta
fjáraukningu en ekki 50 milljarða
– Lýður og Bjarnfreður höfðu þó
staðfest að gengið hefði verið frá
greiðslu á 50 milljörðunum í des
ember árinu áður. Skýringin á
þessu er sú að í lok júní 2009 aft
urkallaði lögmaður Exista hluta
fjáraukninguna með bréfi til fyrir
tækjaskrár ríkisskattstjóra, líkt og
rakið er í ákærunni. Einungis fjór
um dögum síðar úrskurðaði fyr
irtækjaskrá að hlutafjáraukningin
hefði verið ólögmæt og lækk
aði hlutafé félagsins um 50 millj
arða króna. Á grundvelli þessar
ar ólögmætu hlutafjáraukningar
héldu bræðurnir yfirráðum sínum
í Exista lengur en þeir hefðu átt að
gera.
Lýður greindi því ekki réttilega
frá hlutafjáraukningunni á aðal
fundi Exista 2009. Ástæðan er sú að
á þessum tíma var búið að dæma
hlutafjáraukninguna ólögmæta og
Exista hafði reynt að draga í land
með hlutafjáraukninguna tveim
ur mánuðum áður, skömmu áður
en hún var dæmd ólögmæt. Þetta
bendir til að Lýður hafi vitað að
hann hafi brotið af sér í hlutafjár
aukningunni. Viðurkenning á sekt
Lýðs, og Bjarnfreðar, í málinu virð
ist því liggja fyrir þar sem Lýður
og Exista reyndu að búa þannig
um hnútana að 50 milljarða króna
hlutafjáraukningin hefði aldrei átt
sér stað. Sérstakur saksóknari virð
ist því vera með nokkuð sterkt mál
gegn Lýði og Bjarnfreði. n
„Aukið reiðufé
fékkst með hluta-
fjáraukningu í desember
en þá lagði BBR, sem er
félag í eigu okkar bræðra,
fram einn milljarð króna í
nýju hlutafé.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Hlutafjáraukningin í sögulegu ljósi
20. september 2008
Glitnir yfirtekinn af Fjármála-
eftirlitinu. Íslenska efnahags-
hrunið hefst.
8. október 2008
Lýður og Ágúst Guðmundssynir kaupa
tæplega 40 prósenta hlut Exista í Bakkavör út úr Exista.
Viðskiptin eru fjármögnuð með láni frá Exista. Kaup-
verðið var 8,4 milljarðar króna. Bræðurnir réðu yfir Exista
á þessum tíma. Starfsmaður eins kröfuhafa Exista lýsti
viðskiptunum sem „þjófnaði um hábjartan dag“.
9. október 2008
Kaupþing yfirtekið af Fjármálaeftirlitinu. Verðmæti
eignarhlutar Existu í Kaupþingi hrynur í verði. Bræðurnir
tryggðu sér hlutabréf Existu í Bakkavör deginum áður.
8. desember
2008
50 milljarða
hlutafjáraukn-
ing hjá Exista
sem félag í eigu
Lýðs og Ágústs
Guðmundssona
er skrifað fyrir.
Hlutafjáraukningin
er aldrei greidd
til Exista. Hluti
af örvæntingar-
fullum tilraunum
þeirra bræðra til
að halda yfirráðum
yfir félaginu.
25. júní 2009
Exista reynir að afturkalla hlutafjár-
aukninguna með bréfi til fyrirtækja-
skrár ríkisskattstjóra.
29. júní 2009
Ríkisskattstjóri úrskurðar að hluta-
fjárfjáraukning Exista í desember
hafi verið ólögmæt.
28. ágúst 2009
Lýður Guðmundsson segir að
hlutafjáraukning Exista í desember
2008 hafi verið upp á einn milljarð
en ekki 50 - þá var búið að dæma 50
milljarða hlutafjáraukninguna ólög-
mæta þar sem Bakkavararbræður
greiddu aldrei hlutaféð.
27. janúar 2010
Lýður og Ágúst Guðmundssynir
yfirheyrðir hjá embætti sérstaks sak-
sóknara vegna rannsóknar embættisins
á Exista. Húsleitir fóru fram á heimilum
þeirra, í sumarbústað annars þeirra og
skemmu sem þeir hafa til afnota.
15. nóvember 2010
Kröfuhafar Exista yfirtaka félagið að
fullu. Skuldum upp á tvo milljarða
evra, rúmlega 300 milljörðum króna,
breytt í hlutafé í félaginu. Lýður og
Ágúst stýra Bakkavör áfram.
Maí 2011
Lýður Guðmundsson yfir-
heyrður hjá embætti sér-
staks saksóknara vegna
rannsóknar embættisins á
málefnum Vátryggingafé-
lags Íslands, sem var í eigu
Exista.
19. sept. 2012
Sérstakur saksóknari
ákærir Lýð Guðmundsson
og Bjarnfreð Ólafsson fyrir
brot á hlutafélagalögum.
Fyrsta ákæran gegn Lýði Ákæran gegn
Lýði er sú fyrsta sem embætti sérstaks
saksóknara, Ólafs Haukssonar, gefur út á
hendur honum.
Reyndu að draga í land Exista reyndi að draga í land með hlutafjáraukninguna um mitt ár 2009. Skömmu síðar úrskurðaði fyrirtækjaskrá
að hún hefði verið ólögmæt. Lýður sést hér lengst til vinstri á aðalfundi Exista 2007.