Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Síða 11
„Ég er búin að fá nóg“ n Snjólaug varð fyrir miklu einelti n Búin að fá nóg af því að vera kölluð ljótum nöfnum Þ ó ég sé feit, ljót og strákaleg hvað á ég að gera í því? Ég á alla vega ekki að vera lögð í einelti vegna þess að einelti lagar ekkert. Sorry, ákvað að koma þessu hingað en ef ykkur finnst þetta asnalegt þá má ykkur finnast það mér er alveg sama. :´( plízz hættiði að leggja mig í einelti er komin með nóg. :´( .“ Þetta skrifar Snjólaug Ósk Björns- dóttir, 15 ára, undir mynd af sjálfri sér á Facebook. Fjölmargir hafa dreift myndinni en Snjólaug segist hafa sett myndina inn því hún hafi ver- ið búin að fá nóg af því að vera lögð í einelti. Hún vill bara fá að vera eins og hún er – í friði. „Ég er bara búin að fá nóg. Mig langar bara að sýna fólki hvað einelti er hættulegt og hvað það getur gert fólki. Ég hef nú alveg ætlað að láta mig hverfa en ég hef ekki haft kjark í það. Ég hef hugsað um að láta verða af því svona tvisvar eða þrisvar,“ segir Snjólaug, en segist sem betur fer hafa hugsað til fjölskyldu sinnar og því ekki látið verða af því. Sögð feit og ljót Í mörg ár hefur Snjólaug þurft að þola níðglósur skólafélaga sinna um út- lit sitt og persónu. Eineltið byrjaði fljótlega eftir að hún flutti með fjöl- skyldu sinni frá Húsavík til Egilsstaða. Hún segir það ömurlega tilfinningu að þurfa stanslaust að sitja undir því að mega ekki vera hún sjálf. Skólafé- lagarnir fundu sífellt að útliti hennar og kölluðu hana ljótum nöfnum og sögðu hana lykta illa. „Ég var kölluð feit og sögð vera ljót. Ég var með sítt hár en svo klippti ég á mér hárið og þá var sagt að ég væri strákaleg og þetta væri ljótt. Krakkarnir sögðu að það væri vond lykt af mér og stanslaust eitthvað svona. Alltaf verið að finna eitthvað að mér. Ég mátti bara ekki vera ég sjálf,“ segir Snjólaug. „Eineltið var mest frá 4.–8. bekk. Síðan minnk- aði það aðeins,“ segir hún. Þrátt fyrir að eineltið hafið minnkað þá hafi það þó enn verið til staðar. Hún hafi verið hundsuð og skilin út undan. Vildi ekki fara í skólann Snjólaug er þakklát grunnskóla- kennaranum sínum, Söndru Ösp Valdimarsdóttur, sem hún segir að hafi hjálpað sér í gegnum skólagöngu sína ásamt fjölskyldu sinni sem hef- ur stutt hana í gegnum eineltið. „Ef Sandra hefði ekki verið til staðar fyrir mig þá veit ég ekki hvar ég væri. Hún gerði mér lífið bærilegt. Hún hjálp- aði mér í gegnum allt. Hún talaði við krakkana en það hafði ekki mikil áhrif. Þau héldu áfram en það minnk- aði. Eineltið var ekki jafn mikið eftir það en var samt til staðar. Fjölskylda mín hefur stutt við bakið á mér og ég er mjög þakklát fyrir það.“ Snjólaug segist oft hafa kviðið því að mæta í skólann og mæta kvölur- um sínum. „Ég reyndi að sleppa því að fara í skólann. Stundum hringdi mamma í skólann og sagði að ég ætlaði aðeins að bíða heima eftir að skólinn hæfist áður en ég mætti. Ég vildi helst ekki fara.“ Finnur mikinn stuðning Hún segir eineltið hafa minnkað eftir að hún byrjaði í menntaskóla núna í haust en Snjólaug verður 16 ára í des- ember. Hún eigi þó ekki marga vini í skólanum en einhverjir standi með henni og hún fái að mestu að vera í friði. Eftir að hún birti myndina á Facebook þá hefur margt breyst og hún hefur fundið fyrir miklum stuðn- ingi úr ólíkum áttum. Fólk sem hún þekki ekki neitt hrósar henni fyr- ir hugrekkið og það eflir hana. „Ég er mikið ein í skólanum en það er öðruvísi. Ég á tvo bræður sem eru að verða tvítugir og vinir þeirra sem eru í þessum skóla standa með mér. Eftir að ég setti þessa mynd á Face- book þá eru bræður mínir búnir að hjálpa mér mikið. Þó það séu kannski ekki margir búnir að koma og tala við mig beint í skólanum þá hef ég feng- ið mikið af skilaboðum frá fólki sem ég þekki ekki neitt á Facebook sem hrósar mér fyrir að hafa gert þetta. Ég sé líka að það eru margir úr mennta- skólanum búnir að dreifa þessari mynd og „like-a“ hana.“ Vekur vonandi til umhugsunar Hugmyndina að því að setja inn myndina fékk hún eftir að hafa séð mynd frá annarri stelpu sem gekk á Facebook. Sú stelpa hafði líka orðið fyrir einelti og bað um frið til þess að fá að vera hún sjálf. „Ég sá myndina og hugsaði: Hún hefur verið lögð í einelti og hefur kjark til þess að gera þetta. Þá hlýt ég að geta gert þetta. Það eru ekki allir sem hafa kjark í að gera þetta.“ Snjólaug segist viss um að fólk geri sér ekki alltaf grein fyrir því hversu mikil áhrif einelti hefur á þá sem fyr- ir því verða. „Ég held að gerendurn- ir geri sér oft ekki grein fyrir því hvað þetta er alvarlegt. Það eru sumir sem gera sér alveg grein fyrir því hvað þeir eru að gera, og hafa vit á því að hætta – aðrir ekki.“ Snjólaug vonast til þess að með því að stíga fram, þá átti fólk sig á því hversu alvarlegur hlutur einelti er. „Þeir sem eru að leggja í einelti eru oft fólk sem á sjálft við vandamál að stríða og er að reyna að koma vanda- málum sínum yfir á aðra, til að öðr- um líði illa. Vonandi fær þetta fólk til að hugsa aðeins hvað það sé að gera öðru fólki. Þetta fólk sem hefur lagt mig í einelti á ábyggilega ekki eftir að vera sátt þegar þau sjá hvað þau hafa gert mér og hvað þetta er alvarlegt. Vonandi fær þetta fólk til að hugsa aðeins um afleiðingarnar.“ n Fréttir 11Miðvikudagur 26. september 2012 Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Ég er bara búin að fá nóg. Mig langar bara að sýna fólki hvað einelti er hættulegt og hvað það getur gert fólki. Vildi deyja Snjólaug segir að hún hafi hugsað um að láta sig hverfa en hafi ekki látið verða af því vegna fjölskyldu sinnar. Hún segir að einelti geti verið lífshættulegt og hún vill að fólk leiði hugann að því hversu illa það fer með fólk sem lendir í því. Mynd: Sing Myndin Þessa mynd með textanum sem sést á myndinni setti Snjólaug inn á Facebook. Fjölmargir hafa dreift myndinni og Snjólaug vonast til að það verði til þess að fá fólk til að hugsa um hversu alvarlegt einelti sé. „Ég er svo stolt af henni“ n Móðir Snjólaugar segir hana eiga rétt á því að vera eins og hún er „Það er svo rosalega stór saga á bak við þessa mynd. Í rauninni er hún að segja: Látið mig vera, ég er eins og ég er. Hún sagði bara þó ég sé feit og ljót. Hún er það ekki, bara stór og mikil og sæt, eins og ég. Hún á að mega vera hún sjálf. Hún á rétt á því,“ segir Eva Hovland, móðir Snjólaugar. Hún er afar stolt af dóttur sinni og segir ömurlegt að hafa þurft að horfa upp á dóttur sína verða fyrir einelti. „Mér finnst hún bara alveg ótrúlega hugrökk. Þetta er búið að ýta svolítið stórum bolta á undan sér. Ég er svo stolt af henni. Myndin er búin að fá frábær viðbrögð á Facebook og margir sem hafa dreift henni. Mér finnst bara að fólk eigi aðeins að vakna og gera sér grein fyrir því hvað sé í gangi. Mér finnst fáránlegt að barnið mitt megi ekki vera eins og það vill vera. Hún megi ekki vera í íþróttabuxum og nenna ekki að mála sig án þess að vera hundsuð útaf því. Mér finnst það stundum gleymast í umræðunni um einelti að það er ekki bara einelti að vera lamin á skólalóð. Það er oft þannig að ef þú ert ekki nákvæmlega eins og allir hinir og passar inn í pakkann þá verðurðu útundan. Þetta er þessi hundsun og að fá ekki að vera með.“ Hún segir eineltið hafa haft mikil áhrif á Snjólaugu. „Það varð meðal annars til þess að hún hætti að fara í sund. Hún elskaði sund og fór oft í viku og sat og spjallaði í heita pottinum við fólk. Hún elskar vatn og allt sem viðkemur sundi. Svo fór hún að finna fyrir pískri og fannst vera talað um sig. Þá hætti hún að fara og hefur ekki farið síðan.“ Eva hefur sjálf upplifað einelti. „Ég veit hvað þetta er ömurlegt því ég varð sjálf fyrir einelti. Svo skipti ég um skóla og lenti í frábærum vinahópi og eignaðist góða vini sem ég er enn í sambandi við. Þetta var öfugt hjá henni, hún missti sína vini þegar við fluttum frá Húsavík,“ segir Eva sem á alls fjögur börn. Tvíburasyni sem eru 19 ára og svo á Snjólaug tvíburasystur sem er svo heppin að hafa sloppið við einelti. „Þetta barn, það er svo klárt. Hún er sífellt að koma okkur á óvart. Ég er alveg ótrúlega stolt af henni og vona að þetta verði til þess að fólk hugsi sig betur um hvað þetta er alvarlegt.“ „Þó ég sé feit, ljót og strákaleg, hvað á ég að gera í því?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.