Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Síða 16
16 Neytendur 26. september 2012 Miðvikudagur Algengt verð 257,4 kr. 260,6 kr. Algengt verð 257,2 kr. 260,4 kr. Höfuðborgarsvæðið 257,1 kr. 260,3 kr. Algengt verð 257,4 kr. 260,6 kr. Algengt verð 259,6 kr. 260,6 kr. Melabraut 257,2 kr. 260,4 kr. Eldsneytisverð 26. sept. Bensín Dísilolía Þjónusta til eftirbreytni n Lofið fær Nova. Starfsmaður hringdi í viðskiptavin til nokkurra ára og bauð honum að lækka sím­ reikninginn. „Oftast þegar fyrirtæki bjóða svona hangir eitthvað annað á spítunni en það var ekki í þetta sinn,“ skrifar hann til DV og heldur áfram: „Mér var sagt að þar sem ég væri búinn að nota um 1.100 mega­ bæt af niðurhali í símann þennan mánuðinn myndi það eitt kosta liðlega fimm þúsund krónur við óbreytt ástand. Hann sagði að þetta væri hefðbundin notkun hjá mér, að því er virtist. Svo bauð hann mér að borga 990 krónur í fastan kostn­ að á mánuði og það myndi dekka gagnamagn upp að 1.100 mega­ bætum. Þannig mun ég spara mér um 4.000 krónur á mánuði. Áður en hann kvaddi bauðst hann til að láta þetta gilda fyrir ágúst líka, sem þó var nánast liðinn. Með símtalinu varð Nova því strax af þó nokkurri upphæð sem ég hefði greitt án athugasemda, eins og ég hafði gert fram að því. Nú greiði ég reikningana bein­ línis með bros á vör enda er þetta þjónusta til eftirbreytni.“ Textavarpið dettur út n „Sjónvarpið leggur mikla áherslu á HD útsendingarnar sínar. Þetta eru hágæðaútsendingar sem koma skal í öll tæki í gegnum Símann. Þetta er allt mjög gott og gæðin frá­ bær. Það er bara einn stór galli sem kominn er í ljós. Þeir sem setja HD inn hjá sér missa þá textavarpið al­ veg út. Ef haft er samband við Sím­ ann eða Sjónvarpið þá er alltaf sama svarið: Það er mikið kvartað undan þessu en við vitum ekki af hverju þetta gerist né hvernig á að lagfæra það,“ segir viðskiptavinur. Margrét Stefánsdóttir upplýsinga­ fulltrúi Símans varð fyrir svörum; „Símanum þykir leitt að viðskipta­ vinurinn skuli ekki hafa fengið eftir­ farandi upplýsingar þegar eftir þeim var leitað: Textavarp (Tele text) flutn­ ingur er ekki studdur um HDMI­ tengi, sem veitir háskerpugæði, á sama hátt og SCART­tengi. Til þess að horfa á sjónvarpsmynd í háskerpugæðum er nauðsynlegt að tengja myndlykilinn við sjónvarpið með HDMI­snúru. Samtímis má þó tengja SCART­snúruna og skipta yfir á þann inngang þegar ætlunin er að skoða textavarp. Á nýj ustu kynslóð mynd­ lykla hjá Síman­ um hefur þó verið útbúinn stuðning­ ur þar sem kalla má upp textavarpið, með því að velja Menu – Textavarp. Birtist þá textavarpið á sjónvarpsskjánum.“ Lof og last Sendið lof eða last á neytendur@dv.is Þ eir sem búa á landsbyggð­ inni geta átt erfiðara með að nýta sér afslátt sem Strætó bs. veitir af far­ gjöldum sínum en margir munu þurfa að kaupa afsláttarkort á netinu og fá þau send heim. „Strætó er búinn að auglýsa frá­ bæra þjónustu og lágt gjald fyrir ungmenni og börn en við fengum blað frá þeim í ágúst með upplýs­ ingum um þetta,“ segir kona sem ætlaði að nýta sér lágt fargjald þegar hún þurfti að kaupa far fyrir þrjú börn frá Staðarskála til Reykja­ víkur. Konan, sem býr á bóndabæ, varð hins vegar svekkt þegar hún komst að því við komuna í Staðar­ skála að ekki væri hægt að kaupa afsláttarmiða þar og hefði því þurft að greiða margfalt hærra verð fyrir börnin í þetta skiptið. Miðinn á fullu verði „Það sem ég er ósátt við er að þetta kom aldrei fram í bæklingnum frá Strætó, að það væri ekki hægt að kaupa slíka miða í Staðarskála. Við gátum borgað fyrir farið í vagnin­ um en þá bara fullt verð sem hefði þá kostað okkur um 14.000 krón­ ur fyrir þá þrjá en ekki 450 krón­ ur á mann eins og stóð í bæklingn­ um. Ég hefði getað keyrt fram og til baka til Reykjavíkur nokkrum sinnum fyrir þann pening,“ segir konan sem vill ekki láta nafns síns getið. Getur keypt miðana á netinu Hún segist hafa hringt í Strætó og fengið þau svör að þetta væri í vinnslu og starfsmaðurinn sagðist ekki geta sagt til um hvenær hægt yrði að kaupa miðana í Staðar­ skála. „Hins vegar á ég að geta keypt miða á netinu. Á netinu get­ ur þú valið um tvo afhendingar­ möguleika á miðunum, að sækja þá í Mjódd eða á Hlemm eða að fá farmiðaspjöld send með póstinum sem tekur um tvo virka daga. Með öðrum orðum átti ég að ganga frá þessu á þriðjudaginn til að geta sent þá með rútu á föstudaginn. Önnur leið fyrir mig er að keyra á Akranes og kaupa miðana. Er þetta ekki mismunun? Hefði Strætó ekki geta fundið millileið með að selja miða í rútunni á þeim stoppistöðv­ um sem stoppað er á og ég tek það fram að bíllinn stoppar í 15 mín­ útur við Staðarskála? Er 1.000 pró­ senta álagning boðleg?“ segir hún og bætir við að vegna búsetu geti þau ekki nýtt sér þennan afslátt nema með margra daga fyrirvara og fyrirhöfn. Veita ríkulega afslætti DV hafði samband við Reyni Jóns­ son, framkvæmdastjóra Strætós bs., sem segir að almennt fargjald í strætisvagna sé 350 krónur á hvert gjaldsvæði og skipti þá engu hvort um sé að ræða börn, ungmenni eða fullorðna. „Eins og sjá má í okkar gjaldskrá er síðan boðið upp á fargjöld á afslætti frá þessu verði, annars vegar í formi afsláttarmiða og hins vegar í formi tímabilskorta. Markmið þessara afsláttarforma er að veita ríkulega afslætti gegn því að fargjöld séu keypt fyrirfram. Sá munur er á milli höfuðborgar­ svæðisins og landsbyggðarinn­ ar að á höfuðborgarsvæðinu þarf að kaupa tíu miða fyrirfram séu keyptir farmiðar. Því er ekki til að dreifa á landsbyggðinni og skýrist af því að ferðin er lengri og því dýr­ ari. Í þessu tilfelli er hún tíu sinn­ um dýrari.“ ekki víst að staðarskáli muni selja miða Reynir bendir á að almenna söluleiðin sé að farmiða skuli kaupa á söluvef Strætós bs. og fá þá heimsenda í pósti, sem taki vissulega tvo til þrjá daga en önnur leið sé að kaupa farmiðaspjöld á sölustöðum. Í dag séu komnir tíu sölustaðir á Vestur­ og Norður­ landi og nefnir hann til saman­ burðar að það er 21 sölustaður á höfuðborgarsvæðinu öllu. Það að Staðarskáli sé ekki orðinn sölu­ staður geti meðal annars skýrst af því að þessum stöðum er í sjálfs­ vald sett hvort þeir selji farmiða eða ekki. Þarna sé um að ræða mikil verðmæti sem hafi viðskipta­ lega litla hagsmuni í för með sér fyrir viðkomandi sölustað. Þannig sé mögulegt að miðar verði aldrei til sölu í Staðarskála. sala í vögnum gegn tilgangi sínum „Ég fæ ekki með neinu móti séð að þetta sé mismunun þar sem þetta kerfi á sölunni er eins alls stað­ ar og gildir einu hvar þú býrð. Ef fullorðinn einstaklingur kemur með barn um borð í vagn á höf­ uðborgarsvæðinu án barnamiða greiðist fyrir barnið fullt gjald. Hvort fólk sé svo sátt við þetta fyr­ irkomulag er önnur saga.“ Hann segir að sala á afsláttar­ miðum um borð í vagninum færi því gegn tilgangi sínum. Í fyrsta lagi tæki afgreiðsla almennt of langan tíma og hefði áhrif á tíma­ töflu vagna og í öðru lagi yrði hvat­ inn fyrir farþega til að kaupa fyr­ irfram og fá afslátt að engu. Hann bendir á að hér sé ekki um 1.000 prósenta álagningu að ræða en hins vegar megi fá miðana á mikl­ um afslætti séu þeir keyptir fyrir­ fram. Til að mynda fá fullorðnir 15 prósenta afslátt, ungmenni fá 67 prósenta afslátt og börn fá nærri því 90 prósenta afslátt. Hið sama gildi um aldraða og öryrkja sem fá 70 prósenta afslátt. n Segir Strætó mismuna fólki á landsbyggðinni n Er ósátt við að geta ekki keypt afsláttarkort í strætó í Staðarskála Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is „Það sem ég er ósátt við er að þetta kom aldrei fram í bæklinginum frá Strætó, að það væri ekki hægt að kaupa slíka miða í Staðarskála. Reynir Jónsson Framkvæmdastjóri hjá Strætó bs. segir um almenna söluleið að ræða. strætó Börn fá nærri því 90 prósenta afslátt með kortum keyptum á netinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.