Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Síða 17
Neytendur 17Miðvikudagur 26. september 2012
Þ
að er lykilatriði að þurrka
blautan farsíma í heilan sól-
arhring að lágmarki áður en
kveik er á honum á nýjan
leik. Þetta er á meðal þess
sem fram kemur í danska blaðinu
Politiken en þar er skref fyrir skref
farið yfir það hvernig auka megi lík-
urnar á því að bjarga síma sem hef-
ur blotnað.
Það geta allir lent í því að missa
símann úr höndunum. Það getur
verið nógu slæmt að missa hann í
gólfið svo ekki sé talað um að missa
hann ofan í vatn. Fjölmargir hafa
misst símann sinn ofan í vask fullan
af vatni, baðker, heitan pott, sund-
laug eða jafnvel klósettskálina. Þetta
verður oftast til þess að símaeig-
andinn þarf að fjárfesta í nýjum síma
en stundum er hægt að bjarga blaut-
um síma. Hér eru nokkur ráð um
hvað skal gera ef síminn hefur blotn-
að.
Svona bjargar
þú blautum Síma
n 8 ráð um hvað eigi gera ef síminn blotnar n Fjarlægðu rafhlöðuna strax
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
1 Þú þarft að bregðast við strax og ná símanum upp úr vatninu
eins fljótt og mögulegt er.
2 Ef þú hefur kost á því að taka rafhlöðuna úr símanum
skaltu gera það sem allra fyrst. Það
minnkar hættuna á skammhlaupi í
símanum.
3 Taktu símann síðan allan í sundur og fjarlægðu sim-
kortið, minniskort og svo framvegis.
4 Þurrkaðu símann vandlega með einhverju sem hnökrar
ekki eða rifnar sem þýðir að þú mátt
ekki nota klósettpappír eða annað
slíkt. Notaðu frekar þurrt handklæði,
sem er ekki alveg nýtt og reyndu
að ná inn í öll horn, sérstaklega þar
sem rafhlaðan á að vera.
5 Nú getur það jafnvel verið freistandi að setja rafhlöðuna á
sinn stað til að athuga hvort síminn
virki. Þá má hins vegar ekki gera, þú
verður að standast freistinguna. Það
getur enn verið bleyta inni í síman-
um sem getur orsakað skammhlaup.
6 Á þessum tímapunkti skaltu heldur setja símann í lokaðan
plastpoka sem hefur verið fylltur af
hrísgrjónum. Einnig er hægt að setja
rafhlöðuna með í pokann en pass-
aðu þá að þessir tveir hlutir liggi ekki
saman og séu huldir hrísgrjónum.
7 Geymdu nú pokann við stofuhita í sólarhring.
8 Eftir þann tíma tekur þú sím-ann úr pokanum og fjarlægir
öll hrísgrjónum af honum. Nú máttu
setja rafhlöðuna í og kveikja á sím-
anum. Með smá heppni getur þú
haldið áfram að nota símann þinn.
Munum að það er alltaf gott að
taka afrit af símaskrá og netföngum
og öðrum upplýsingum úr símum.
Ekki þurrka símann með hárþurrku
Á síðunni wikihow.com er einnig fjallað um blauta síma og þar segir að það sé ekki góð hug-
mynd að reyna að þurrka símann með hárþurrku því það geti skaðað símann
enn frekar. Blásturinn geti þrýst vatni enn lengra inn í símann og ef blásturinn
er heitur gæti hann jafnvel brætt eða eyðilagt smáhluti í símanum. Þá sé
frekar mælt með því að reyna að ryksuga bleytuna úr símanum. Þá skuli
halda stútnum yfir þeim stöðum sem á að þurrka í allt að 20 mínútur en
passa þó að halda honum ekki of nálægt símanum þar sem það geti
framkallað stöðurafmagn sem er mjög slæmt fyrir símann. Þar
segir jafnframt að ryksugun sé jafnvel fljótvirkasta leiðin til
að þurrka símann en þó sé ekki ráðlagt að reyna að kveikja
á símanum of snemma.
Blautur sími Það er aldrei gott
ef síminn blotnar en hrísgrjón
geta mögulega reddað honum.