Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Síða 18
konur og nærföt n Samkvæmt sálfræðingi er hægt að lesa ýmislegt út úr nærfötum 1 Pífur og slaufur Samkvæmt Jennifer Baum­gartner, sálfræðingi og höfundi bókarinnar You Are What You Wear, eru konur sem klæðast nærfötum skreytt­ um pífum og slaufum að pakka sér inn sem gjöf handa þeim heppna. „Sem þýðir að hún vill að þú metir sig og látir henni líða eins og einu konunni í veröldinni,“ segir Baumgartner sem mælir með kertaljósum og kampavíni fyrir kærasta hennar til að losa um villtu hlið hennar. Baumgartner segir enn fremur að konur sem velji slík nærföt vilji karlmannlega elskhuga sem taki af þeim völdin. 2 G-strengur Dawson segir mikinn mun á g­streng og þveng. „Þvengur er úr alvöru efni, g­strengur er að­ eins örmjó ól á breidd við tannþráð,“ segir hún og bætir við að kona í g­streng sendi skýr skilaboð um að hún elskist ekki bara með ljósin slökkt. „Kona í g­streng er örugg með sig. Hún veit hver hún er og er allt annað en tepra,“ segir Baum­ gartner sem segir konur sem vilja slík nærföt elska athygli. „Mundu bara að hrósa henni fyrir lögulegan afturendann,“ bætir Dawson við. 3 „Boy shorts“ Þessar eru í uppáhaldi hjá Dawson sem segir þær sýna nógu mikið hold til að gera karlmanninn vitlausan en fela nægilega mikið til að hann sé forvitinn um það sem leynist undir. „Boy shorts eru fyrir þær stríðnu,“ segir Baumgartner. „Kona í slíkum nærbuxum elskar að láta ganga á eftir sér. Ef hún fær langan forleik færðu það margfalt borgað til baka.“ 4 Hvítar bómullarbuxur Kona sem velur hvítar bómullar nærbuxur er ekki dýr í rekstri, samkvæmt Dawson. „Hún er laus við allt óþarfa skraut,“ tekur Baum­ gartner undir sem segir slíka konu ekki þurfa á kynþokka­ fullri efnispjötlu eða villtu prenti á brók til að upplifa sig kynþokkafulla. „Valið gefur einnig til kynna að henni líði vel í kringum þig og líki nógu vel við þig til að sýna sig berskjald­ aða. Slíkt val á nærfatnaði er eins og að vera ómáluð með kærastanum í fyrsta skiptið.“ 5 Retro-nærföt Í fyrsta lagi, segir Dawson, eru retro­nærföt ekki fegrunarheiti fyrir „ömmubrækur“. Retro­nærföt eru há í mittið og hylja næstum allan rassinn en þó eru áhrif þeirra mikil. Samkvæmt Baumgartner ýkir þessi stíll lögun líkamans. „Konan vill að þú takir eftir kvenlegum línum hennar. Hún er týpan sem líður vel í kvenleika sínum – en ætlast samt til að þú takir fyrsta skrefið.“ Þýðing Dawsons á kenningu Baumgarnter: „Hún vill kannski byrja í trúboða­ stellingunni en það er engin leið að segja til um framhaldið.“ 6 Nærbuxur með yfirlýsingum Ef þú rennir niður gallabuxum hennar og sérð hjálpleg skilaboð yfir rassinn á henni er hún annað hvort að fá þig til að hlæja eða er að biðja um að vera flengd, segir Dawson. Samkvæmt Baumgartner er þetta tilraun hennar til að brjóta ísinn. „Fyrsta skiptið getur verið vandræðalegt. Kannski notar hún húmor til að takast á við hlutina. Bíttu á agnið. Segðu eitt­ hvað hnyttið um skilaboðin og léttu þannig andrúmsloftið.“ E f skórnir skapa manninn þá skapa nærfötin konuna.“ Þetta segir blaðakona net- miðilsins www.modern- man.com, Erin Dawson, sem segir ýmislegt hægt að lesa út úr vali kvenna á nærfatnaði. „Konur, sem ætla í bólið í fyrsta skiptið með nýja kærastanum, pæla mikið í vali á nærfötum fyrir stóra kvöldið,“ seg- ir Dawson og bætir við að margar konur eyði töluverðum tíma fyr- ir framan spegilinn, veltandi vöng- um yfir því hvort nærfötin undir- striki réttu áherslurnar. „Viljum við vita hvort nærfötin séu of glyðru- leg? Eða ekki nógu glyðruleg? Sýnir silkiþvengur rétta mynd af mér sem mögulegri kærustu?“ spyr Dawson sem leitaði til sálfræðingsins Jenni- fer Baumgartner í von um að kom- ast að því hvað nærfötin segja um okkur persónulega og sem kynver- ur. Að sjálfsögðu eru engin geimvís- indi á bak við fræði og kenningar Daw- sons og Baumgartners enda greinin skrifuð til að hafa gaman af. n Er í lagi að... Hvað má og hvað má ekki á meðgöngu? ...naglalakka sig? Margir halda því fram að naglalakk geti skaðað fóstrið en samkvæmt rannsóknum ættu verðandi mæður að geta naglalakkað sig af og til á meðgönunni án áhættu. Athugaðu hvort naglalakkið þitt sé laust við þrjú hættulegustu efnin, DBP (dibutyl phthalate), toluene og formaldehyde. ... drekka kaffi? Flestir sér­ fræðingar mæla með takmarkaðri neyslu á koffín. Koffín er þvagörvandi sem þýðir að það dregur vökva frá þér og fóstrinu og veldur því að þú þarft oftar á klósettið. Koffín hefur ekkert nær­ ingargildi en getur haft neikvæð áhrif á skapið, svefninn og upptöku járns. Mundu að koffín finnst líka í flestum tegundum af tei, mörgum gosdrykkjum og súkkulaði. ... borða sushi? Hrár fiskur getur innihaldið listeríu sem er hættuleg baktería fyrir fóstrið. Forðastu allan hráan, grafinn og kaldreyktan fisk. Það á líka við um harðfisk. ... stunda líkamsrækt? Flestar konur ættu endilega að hreyfa sig á meðgöngunni. Talaðu við ljósmóður áður en þú ferð af stað. 18 Lífsstíll 26. september 2012 Miðvikudagur Í dag kl. 13:00 Hallgrímur Helgason svarar spurningum þínum á Beinni línu DV.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.