Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Blaðsíða 20
„Frábært
stuðning“
„Verðum að skjóta á markið“
n Brendan Rodgers er búinn að finna lausn á vanda Liverpool
É
g sagði við þá í hálfleik að við
yrðum að vera grimmari uppi
við markið,“ segir Brendan
Rodgers, knattspyrnustjóri
Liverpool. Liðið hefur farið hörmu-
lega af stað í fyrstu leikjum deildar-
innar og situr eins og er í fallsæti.
Liðið tapaði 2–1 á heimavelli gegn
Manchester United á sunnudag
en þótti leika ágætlega þrátt fyr-
ir að vera manni færri allan síðari
hálfleikinn. Rodgers vill að menn
skjóti meira. „Við verðum að skjóta
á markið. Það þýðir ekkert að halda
boltanum og komast í góð færi ef
menn láta ekki vaða. Maður skor-
ar ekki án þess að skjóta á markið,“
er haft eftir honum í breskum fjöl-
miðlum en ekki liggur fyrir hvort
þessi niðurstaða hans sé afrakstur
taktískrar leikgreiningar eða hvort
hann fékk leiðsögn.
Hann segir ennfremur að erfitt sé
að ætlast til þess að menn byrji allt í
einu að skjóta meira. Sá eiginleiki sé
að miklu leyti meðfæddur og háð-
ur erfðum. Rodgers leitar enn log-
andi ljósi að framherja en liðið hef-
ur aðeins skorað fjögur mörk í fyrstu
fimm leikjum tímabilsins. Hann
segist ætla að styrkja liðið í félaga-
skiptaglugganum í janúar en félag-
ið varð af nokkrum feitum bitum í
sumar; meðal annars Gylfa Þór Sig-
urðssyni sem valdi Tottenham fram
yfir Liverpool. „Við þurfum að bíða
fram í janúar til að fá leikmann sem
getur hjálpað okkur við þetta.“
Þrátt fyrir afleitt gengi liðsins í
upphafi tímabilsins er Rodgers ekki
af baki dottinn. „Við spiluðum frá-
bæra knattspyrnu á köflum á móti
United. Ég sá marga ljósa punkta. Ég
er viss um að innan skamms munum
við fara að vinna leiki. Þá munum við
fá sjálfstraust til að sækja meira og
þá komumst við á flug,“ segir hann
borubrattur. n baldur@dv.is
20 Sport 26. september 2012 Miðvikudagur
Þ
etta leggst bara mjög vel í
mig. Ég er í góðum gír,“ seg-
ir bardagakappinn Gunnar
Nelson sem mætir banda-
ríska reynsluboltanum
DaMarques Johnson í Notthing-
ham á laugardag. Um er að ræða
fyrsta bardaga Gunnars innan UFC,
stærsta sambands heims í blönduð-
um bardagaíþróttum, MMA. Þegar
DV náði tali af Gunnari var hann ný-
lentur í Manchester-borg á Englandi.
Gunnar átti upphaflega að mæta
Þjóðverjandum Pascal Krauss í bar-
daganum á laugardag en hann
meiddist á dögunum og varð að
segja sig frá keppni. Í kjölfarið varð
ljóst að Gunnar myndi mæta Banda-
ríkjamanninum Rich Attonito. Hann
sagði sig hins vegar einnig frá bar-
daganum og var DaMarques John-
son því þriðji valkostur.
Engar áhyggjur
Gunnar segist ekki hafa neinar
áhyggjur af því að mæta Johnson þó
að bardaginn við hann hafi komið
upp með litlum fyrirvara. „Það hef-
ur ekki gefist mikill tími til að stúd-
era eitt eða neitt með hann því það
er stutt síðan ég fékk hann sem and-
stæðing. Það er að vísu bara fínt því
ég hef yfirhöfuð ekkert verið að stúd-
era andstæðinga mína. Ég stúdera
sportið og hvernig er best fyrir mig að
vinna úr því. Þetta breytir voðalega
litlu fyrir mig,“ segir Gunnar sem er
hvergi banginn. Hann á níu bardaga
að baki í MMA sem atvinnumaður
og er enn taplaus; hann hefur unnið
átta viðureignir en ein endaði með
jafntefli. Síðasti bardagi Gunnars
fór fram í febrúar á þessu ári þegar
hann sigraði Úkraínumanninn Al-
exander Butenko örugglega í Cage
Contender-mótaröðinni í Dublin.
Raunveruleikastjarna
Andstæðingurinn sem Gunnar mæt-
ir á laugardag er enginn aukvisi.
DeMarques Johnson á 30 bardaga
að baki í blönduðum bardagaíþrótt-
um, þrefalt fleiri en Gunnar, og hef-
ur unnið 19 af þeim bardögum. Inni
í þessum 30 bardögum og 19 sigrum
eru bardagar sem hann háði í raun-
veruleikaþættinum The Ultimate
Fighter sem nýtur mikilla vinsælda
í Bandaríkjunum. Í þáttunum kepp-
ast menn um að fá samning við UFC.
Da Marques komst í úrslit í þættin-
um þar sem hann tapaði. Hann þótti
hins vegar standa sig svo vel að hann
fékk samning við UFC og hefur barist
undir merkjum sambandsins síðan.
Hann hefur háð 12 bardaga innan
raða UFC og unnið sjö þeirra.
Frábær stuðningur
„Ég hef séð hann berjast og þekki
aðeins til hans en það er lítið til að
byggja á. Hann er frekar sterkur
standandi; góð högg og spörk. Hann
er góður alls staðar en ég myndi
segja að hann væri sterkastur stand-
andi en svo er hann með ágæta lása,“
segir Gunnar um Johnson.
Velgengni Gunnars hefur vakið
mikla athygli og á hann sér gríðar-
marga fylgismenn hér á landi. Til
marks um það munu yfir hundrað
Íslendingar halda utan til að horfa
á bardaga Gunnars í Nottingham.
Það má því búast við góðum stuðn-
ingi sem Gunnar segir ómetan-
legan. „Það er mjög gaman að fólk
skuli hafa svona mikinn áhuga. Það
er frábært fyrir mig að fá svona mik-
inn stuðning frá fólkinu okkar heima.
Það lífgar upp á mann.“
Gunnar segir að óvíst sé hvaða
verkefni taki við eftir bardagann en
það muni koma í ljós á komandi vik-
um eða mánuðum. n
„Það er frábært fyr-
ir mig að fá svona
mikinn stuðning frá fólk-
inu okkar heima.
n Gunnar Nelson mætir DaMarques
Johnson í UFC n „Hann er góður alls staðar“
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Tilbúinn Gunnar segist ekki hafa stúderað Johnson neitt sérstaklega. Hann leggi það
heldur ekki í vana sinn að stúdera andstæðinga sína sérstaklega. Reynslumikill Johnson á þrefalt fleiri
bardaga að baki en Gunnar. Hann hefur þó
tapað nokkrum bardögum – ólíkt Gunnari.
M
y
n
d
M
jö
Ln
iR
/
jó
n
v
ið
a
R
að Fá svona
vonbrigði Rodgers Gengi Liverpool hefur alls ekki staðið undir væntingum í haust.
Bjarki lagði
synina
Hornamaðurinn fyrrverandi
Bjarki Sigurðsson, sem nú þjálf-
ar ÍR, stýrði liði sínu til sigurs í
fyrsta leik í N1-deild karla í hand-
knattleik sem fram fór á mánudag.
Liðið vann þá flottan sigur á Aftur-
eldingu, 28–25, á einum erfiðasta
útivelli deildarinnar. ÍR kom upp
úr fyrstu deild í vor en félagið hef-
ur fengið nokkra góða og gamla
ÍR-inga til liðs við sig; þar á meðal
Björgvin Hólmgeirsson og varnar-
tröllið Ingimund Ingimundarson.
Það sem gerði sigurinn enn
merkilegri fyrir Bjarka er sú stað-
reynd að tveir synir hans leika
með Aftureldingu, þeir Örn Ingi
og Kristinn H. Elísberg. Þá má
geta þess að Bjarki þjálfaði Aftur-
eldingu fyrir fáeinum árum en lét
af störfum haustið 2008.
Önnur úrslit í fyrstu um-
ferðinni urðu þau að Íslands-
meistarar HK lögðu Val, Haukar
unnu Fram örugglega og Akureyri
og FH skildu jöfn fyrir norðan.
Úrslit
Deildarbikarinn
Chelsea – Wolves 6–0
Swindon Town – Burnley 3–1
West Ham – Wigan 1–4
Leeds – Everton 2–1
Preston NE – Middlesbrough 1–3
Southampton – Sheffield Wed 2–0
Crawley Town – Swansea 2–3
MK Dons – Sunderland 0–2
Bradford – Burton Albion 3–2
Manchester City – Aston Villa 2–4
Björn spilaði
gegn Chelsea
Björn Bergmann Sigurðarson,
framherjinn knái í liði Wolves, var
í byrjunarliðinu þegar liðið mætti
Evrópumeisturum Chelsea í 32-
liða úrslitum ensku deildarbik-
arkeppninnar á þriðjudagskvöld.
Björn komst lítt áleiðis gegn sterkri
vörn Chelsea og lauk leiknum með
öruggum 6–0 sigri Chelsea. Leik-
menn Wolves áttu aðeins níu skot
að marki Chelsea en Chelsea 33
skot að marki Wolves. Björn Berg-
mann skoraði sitt fyrsta mark fyr-
ir Wolves um síðustu helgi í sigri
gegn Peterborough. Úrslitin úr
leikjum þriðjudagskvöldsins má
sjá hér að neðan.