Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Page 22
A
lþjóðleg kvikmyndahátíð
í Reykjavík verður sett á
fimmtudag með pompi og
prakt. Heiðursgestirnir í ár
eru Dario Argento sem fær
heiðursverðlaun fyrir framlag sitt
til kvikmyndalistarinnar. Susanna
Bier, fær verðlaun fyrir framúrskar-
andi listfengi, og Marjane Satrapi,
höfundur og leikstjóri Persepolis og
Chicken with Plums, verður heiðruð
á hátíðinni sem upprennandi meist-
ari. Sterkar konur eru því í sviðs-
ljósinu á hátíðinni í ár og metnaður
lagður í að fá á hátíðina myndir eftir
sem flesta kvenleikstjóra.
Á hátíðinni verða sýndar myndir
eftir 58 kvenleikstjóra, en þeir eru 37
prósent leikstjóra hátíðarinnar.
Heiðursboð í franska sendi
ráðinu
Marjane kemur hingað til lands á
föstudag og sækir boð í franska sendi-
ráðinu sem verður haldið henni og
Sólveigu Anspach kvikmyndaleik-
stjóra til heiðurs en opnunarmynd
hátíðarinnar í ár er nýjasta mynd
Sólveigar, gamanmyndin Queen of
Montreuil. Flestir ættu að kannast við
Sólveigu sem leikstjóra myndarinn-
ar Skrapp út sem kom í bíó árið 2008.
Sólveig leikstýrði einnig hinni frönsk/
íslensku mynd Stormviðri sem kom
út árið 2003 og var meðal annars
sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Myndir Marjane verða sýndar þann
30. september og þá mun hún sitja
fyrir svörum um efni mynda sinna.
Sterk rödd íranskra kvenna
Marjane Sitrapi er franskur kvik-
myndaleikstjóri af írönskum ættum.
Teiknimyndasaga hennar
Persepolis: The Story of a Childhood
kom út á ensku árið 2003. Hún sló í
gegn úti í heimi og komst á lista Time
Magazine yfir bestu teiknimynda-
sögur ársins. Árið 2007 var gerð kvik-
mynd eftir teiknimyndasögunni þar
sem Satrapi var sjálf annar leikstjóri
myndarinnar.
Persepolis er sjálfsævisöguleg
frásögn Marjane sem ólst upp
í múslimaríkinu Íran til fjórtán
ára aldurs. Í henni segir frá barn-
æsku söguhetju þar sem blandað er
saman persónulegri reynslu ungr-
ar stúlku og pólitísku umróti í kjöl-
far byltingarinnar árið 1979. Myndin
var tilnefnd til óskarsverðlauna árið
2008. Marjane hefur verið sterk rödd
kvenna af írönskum uppruna á Vest-
urlöndum.
Með íslenskan ríkisborgararétt
Sólveig Anspach kvikmyndaleik-
stjóri er búsett í Frakklandi en fædd
í Vestmannaeyjum. Móðir Sólveigar
er Högna Sigurðardóttir arkitekt og
faðir hennar er bandarískur, fæddur
í Berlín og foreldrar hans voru rúm-
enskir og þýskir. Sólveig hefur ekki
búið á Íslandi en hlaut hins vegar ís-
lenskan ríkisborgararétt árið 2006.
Hún hefur komið hingað til lands til
að vinna að kvikmyndum og kom til
dæmis til Vestmannaeyja á æskuslóð-
irnar til að gera kvikmyndina Stormy
Weather.
Heiðruð á RIFF
Susanne Bier þykir einn fremsti leik-
stjóri Norðurlandanna um þess-
ar mundir og einn fremsti kvenleik-
stjóri heims.
Susanne Bier skaust fyrst fram
22 Menning 26. september 2012 Miðvikudagur
Sterkar konur
í SviðSljóSinu
n Verk 58 kvenleikstjóra sýnd á RIFF n Konur meira áberandi en áður
Marjane Sitrape
Aldur: 42 ára
Uppruni: Íran
Býr í Frakklandi
Helstu verk:
n Persepolis
n Embroideries
n Chicken with
Plums
Sólveig Anspach
Aldur: 52 ára
Uppruni: Ísland
Býr í Frakklandi
Helstu verk:
n Haltu höfði
n Stormviðri
n Made in the USA
n Skrapp út
Susanne Bier
Aldur: 52 ára
Uppruni: Danmörk
Helstu verk:
n Den eneste ene
n Hævnen
n Once in a Lifetime
n Love is All you need
Nokkrir sterkir kvenleikstjórar sögunnar:
Þær verða heiðraðar fyrir verk sín:
Maya
Deren
f. 1917 –
d.1961
Maya kom til
Bandaríkjanna
árið 1922 frá Rúss-
landi. Þá sem Eleanora
Derenkowsky. Hún flúði ofsóknir gegn
rússneskum gyðingum ásamt föður sínum
og móður. Í Bandaríkjunum hóf hún nám
í blaðamennsku og stjórnmálafræði við
Syracuse-háskólann í New York. Þá lauk
hún meistaragráðu í enskum bókmennt-
um frá Smith-háskóla árið 1939.
Árið 1943 gerði hún fyrstu mynd sína,
Meshes of the Afternoon. Maya gerði sex
stuttmyndir og þó nokkrar sem henni
tókst ekki að ljúka. Þar af er ein með
Marchel Duchamp í aðalhlutverki, Witch‘s
Cradle.
Agnés
Varda
f. 1928
Agnés Varda
var kölluð móðir
frönsku nýbylgjunnar.
Þá aðeins 30 ára gömul. Bestu verk Agn-
ésar þykja vera frá nýbylgjutímanum;
L‘Une chante, l‘autre pas (1977), Le
Bonheur (1965) og Cléo de 5 à 7 (1961).
Jane Campion
f. 1954
Jane á 14 myndir
að baki sem
leikstjóri. Hún
er einnig
handritshöf-
undur þeirra
flestra. Hún
öðlaðist
heimsfrægð
með mynd
sinni The Piano
(1993).
Frægðarsólin hefur farið
sígandi. Síðast lauk hún við In
the Cut (2003).
Kathryn
Bigelow
f. 1952
Kathryn braut glerþakið
þegar hún fékk Óskarinn
fyrir The Hurt Locker. Hún er iðin og öguð
kvikmyndagerðarkona sem hefur haslað
sér völl í átakamyndum. Hún sendi frá sér
sína fyrstu mynd 1982, Blue Steel (1990),
Point Break (1991) og Strange Days (1995),
K-19: The Widowmaker (1902) sem Ingvar
E. Sigurðsson leikari lék í.
Lina Wertmüller
f. 1928
Lina er einn virtasti
kvenleikstjóri
sögunnar og
hefur leik-
stýrt 30
myndum á
ferli sínum.
Hún hóf feril
sinn undir
handleiðslu
Fellinis.
Helstu verk
hennar
eru töfrandi
og voru geysivinsæl á áttunda
áratugnum. The Seduction
of Mimi, Love and Anarchy,
Swept Away og Seven
Beauties.
á sjónarsviðið með rómantísku
gamanmyndinni Den eneste
ene fyrir þrettán árum. Myndin
naut mikilla vinsælda í heima-
landi hennar og víðar. Bier öðl-
aðist hins vegar heimsfrægð fyr-
ir myndina Hævnen en hún hlaut
bæði óskarsverðlaun og Golden
Globe-verðlaunin sem besta er-
lenda myndin í fyrra.
Þrjár myndir eftir Bier verða sýnd-
ar á RIFF af þessu tilefni; Elska þig að
eilífu, Eftir brúðkaupið og nýjasta
myndin, Love is all You Need (Den
skaldede frisör), sem er með Pierce
Brosnan og Trine Dyrholm í aðal-
hlutverkum. Bier kemur til landsins
til að veita verðlaununum viðtöku
þann 29. september. Sama kvöld
verður nýja myndin sýnd og Bier
situr fyrir svörum áhorfenda. n
London
brennur
Næstkomandi sunnudag mun
kammerhópurinn Nordic Affect
stíga á svið í Þjóðmenningarhús-
inu og halda tónleika undir yfir-
skriftinni „London brennur“. Á
þeim heldur Nordic Affect aftur
til 17. aldar í London og flytur allt
frá vinsælum lögum til sónata
eftir Purcell og Matteis. Á milli
atriða verður sagt frá bakgrunni
verkanna. Stungið verður inn nefi
á kvöldskemmtanir og inn fyrir
veggi hirðarinnar, auk þess sem
bruninn mikli í London kemur við
sögu. Flytjendur á tónleikunum
eru þrír meðlimir Nordic Affect,
þær Halla Steinunn Stefánsdótt-
ir og Sara DeCorso fiðluleikarar
og Guðrún Óskarsdóttir sembal-
leikari.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16
þann 30. september og miðaverð
er 2.000 krónur og 1.000 krónur
fyrir námsmenn og eldri borgara.
Erró opnar
sölusýningu
Næstkomandi laugardag, þann 29.
september, verður opnuð sölu-
sýning á nýjum olíuverkum frá
listamanninum Guðmundi Guð-
mundssyni, betur þekktum sem
Erró, í Gallery Nútímalist í Skip-
holti 15. Verkin koma öll frá lista-
manninum sjálfum sem fagnaði
áttræðisafmæli sínu í sumar. Hann
hefur ekki haldið sölusýningu á
olíuverkum sínum frá árinu 1982.
Sýningin mun standa yfir til 13.
október næstkomandi og er opin
á virkum dögum frá klukkan 11 til
18 og á laugardögum frá 12 til 16.
Íslendingar á
bókasýningu
Norðurlöndin verða í brennidepli
á bókasýningunni í Gautaborg
sem haldin verður dagana 27. til
30. september næstkomandi. Sýn-
ingin er meðal mikilvægustu bók-
menntaviðburða ár hvert og er
stærst sinnar tegundar í Skandin-
avíu með yfir 100 þúsund gesti.
Fjölmargir íslenskir rithöf-
undar koma fram, kynna verk
sín og ræða þau í samhengi við
bókmenntir heimsins og líðandi
stundu. Má þar meðal annars
nefna Sjón og Einar Má Guð-
mundsson. Sögueyjan Ísland,
Bókmenntasjóður og íslenskir
útgefendur verða með sameigin-
legan bás á sýningunni þar sem ís-
lenskar bókmenntir verða kynntar
erlendum útgefendum.