Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Page 23
Fólk 23Miðvikudagur 26. september 2012
Hvernig reynsla var það að halda á
barninu sínu í fyrsta sinn?
„Ólýsanleg. Hún var tekin með keis
ara og ég fékk hana í fangið örfáum
mínútum eftir að hún fæddist. Ég var
nokkurn veginn það fyrsta sem hún
sá, þannig að það var ekki nema von
að hún öskraði til að byrja með.“
Hvað heitir stúlkan?
„Hún heitir Guðrún Ína Illugadótt
ir. Hún er því alnafna móður minnar.
Guðrúnarnafnið er algengt í fjölskyld
um okkar Brynhildar, tvær lang ömm
ur hennar báru það nafn ásamt föður
systur hennar. Amma mín hét einnig
Guðrún sem og systir mín. Hún er því
umvafin góðum nöfnum í báðar ættir.“
Tekur þú virkan þátt í heimilisstörf-
um? Hvaða heimilisstörfum þá helst?
„Vildi óska að ég gæti svarað því
að ég væri manna duglegastur við
heimilis störfin, svo er ekki. En ég er
ágætlega gagnlegur í eldhúsinu og
mér finnst mjög gaman að elda.“
Hvernig finnst þér föðurhlutverkið?
„Stórkostlegt.“
Hvað leggur þú áherslu á að kenna
stúlkunni þinni?
„Það er merkilegt hvað það er
hægt að reyna að kenna 6 mánaða
gömlu barni, spurningin er
kannski sú hvað síast inn í þenn
an litla koll. Ég þyl endalaust vís
ur fyrir hana og spila fallega tónlist
áður en hún fer að sofa. Greyið litla
á sér enga undankomu, þannig að
ég á í henni ágætan áheyranda af
píanóglamrinu mínu. En það sem
ég reyni auðvitað helst að kenna
henni er traust, að hún geti treyst
á ást foreldra sinna, það held ég að
sé mikilvægast núna.“
Hvað lærðir þú af eigin foreldrum?
„Ég veit auðvitað ekki frekar en aðrir
hvernig foreldrar mínir voru á fyrstu
mánuðum lífs míns. En ef mér tekst
að vera mínu barni jafn gott foreldri
og mínir foreldrar voru mér, þá
verður barnið mitt gæfusamt.“
Hvernig tóku foreldrar þínar á mis-
tökum þínum?
„Þau voru ástríkir og agaðir foreldr
ar, þannig að reglur voru á hreinu.
En mistök er eitt, óþekkt annað. Ég
var uppátækjasamur krakki eins og
gengur og gerist og hafði fullt svig
rúm til að gera mín mistök. En á
óþekkt, frekju og dónaskap var tek
ið af festu.“
Hvernig vilt þú taka á mistökum
hennar í framtíðinni?
„Ætli ég reyni ekki að hafa foreldra
mína til fyrirmyndar í því. Ástríkur
agi er besta veganestið úr foreldra
húsum.“
Hvað eyðir þú miklum tíma með
henni? Hvernig er gæðatími með fjöl-
skyldunni í þínum huga?
„Ég næ að vera með henni fyrst
á morgnana og síðan aftur und
ir lok dagsins. Bestu stundirnar
eru þegar hún er búin að borða
grautinn sinn, þá tek ég hana upp
í svefnherbergi og undirbý hana
undir háttinn. Mér finnst mjög
vont ef ég get ekki verið heima á
þeirri stundu.“
Ertu betri maður eftir að þú varðst faðir?
„Ég veit að þetta er klisjukennt svar,
en já, ég held að ég hafi orðið betri
maður við það að eignast þessa litlu
stúlku. Mér finnst hún vera besta
tækifæri lífs míns til að láta gott af mér
leiða.“
kristjana@dv.is
Illugi og Guðrún Ína
„Ég þyl endalaust vísur
fyrir hana og spila fallega
tónlist áður en hún fer að
sofa, segir Illugi Gunnars-
son, stoltur faðir.
Betri maður með Guðrúnu Ínu „Mér finnst hún vera besta tækifæri lífs míns til að láta
gott af mér leiða.“
Leikur „Ég næ að vera með henni fyrst á morgnana og síðan aftur undir lok dagsins.“
Föðurhlutverkið stórkostlegt Segir
Illugi sem segist betri maður eftir að Guðrún
Ína kom í líf hans.„Bestu stund
irnar eru þegar
hún er búin að borða
grautinn sinn
Alþingismaðurinn Illugi Gunnarsson
og eiginkona hans, Brynhildur Einars-
dóttir, eignuðust dóttur í mars á þessu
ári. Stúlkan er frumburður hjónanna.
DV sló á þráðinn til Illuga og spurði
hann út í föðurhlutverkið.
„Ef við snúum þessu við þá væri
ég ekki viss um að menn væru
bara sáttir við það ef ég myndi
bara taka bút úr myndinni Svartur
á leik og búa til músíkvídeó við
það,“ segir tónlistarmaðurinn
Bergþór Morthens. Hann er ásamt
Bubba Morthens höfundur lagsins
Serbinn, sem notað var í myndinni
Svartur á leik án hans leyfis.
Bergþór sat grunlaus á sýningu
myndarinnar í kvikmyndahúsi
þegar hann skyndilega heyrði
lagið sitt spilað undir. Hann segist
í kjölfarið hafa haft samband við
framleiðendur myndarinnar en
aðeins mætt skætingi. Hann er nú
að skoða rétt sinn og næstu skref.
DV greindi frá því í síðustu viku
að Engilbert Jensen í Hljómum
stæði í málaferlum vegna brots
á sæmdarrétti flytjenda í sömu
kvikmynd, en lagið Þú og ég var
endurhljóðblandað og notað í
myndinni.
Betri maður
eftir að hann
eignaðist
dóttur
Þótti ekki lík-
legur til afreka
Rekstrarhagfræðingurinn, lang
hlauparinn og ólympíufarinn Kári
Steinn Karlsson, þótti svo lélegur í
íþróttum sem barn að honum var
gert að mæta í aukaleikfimitíma
í sex og sjö ára bekk. Þetta kom
fram í Ísþjóðinni með Ragnhildi
Steinunni á sunnudaginn. Þáttur
inn var tileinkaður Kára Steini sem
sagði frá því að þótt hann hefði
alltaf haft mikinn áhuga á íþrótt
um hefði hann þótt allt annað en
flinkur sem barn. „Hreyfiþroski
og íþróttageta þótti ekki alveg jafn
góð og hjá jafnöldrum mínum. Ég
veit ekki hvort það hafi verið þessir
aukatímar í leikfimi eða bara mikill
íþróttaáhugi en alla vega fór ég að
ná miklum árangri í þolprófum.“
Fleiri lög
notuð
í óleyfi
Eiður Smári
á Herbalife
ráðstefnu
Knattspyrnumaðurinn Eiður
Smári Guðjohnsen sat um síðustu
helgi ráðstefnu á vegum Herbalife
í Barcelona og virtist honum líka
vel það sem þar fór fram. Mynd
um úr salnum var varpað upp
á stóran flatskjá á ráðstefnunni
og þar sást í knattspyrnumann
inn knáa, skælbrosandi með ráð
stefnupassann sinn um hálsinn.
Það er óhætt að segja að Eiður
Smári sé á heimavelli í Barcelona
en hann spilaði með knattspyrnu
liði Barcelona í þrjú ár. Síðast spil
aði Eiður Smári með gríska liðinu
AEK í Aþenu en gerði starfsloka
samning við félagið í sumar. Hann
er því utan félags nú.