Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Blaðsíða 25
Ástfangin og
byrjuð að búa
Fólk 25Mánudagur 29. október 2012
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Þ
au hafa verið að hittast í heilt
ár, þau Michelle Williams og
Jason Segel, og eru nú farin
að búa saman. Michelle er
flutt úr íbúð sinni í Brooklyn
sem hún deildi eitt sinn með Heath
Ledger heitnum. Jason og Michelle
búa áfram í Brooklyn en leigja sér
saman stóra hæð í vöruskemmu sem
hefur verið innréttuð sem lúxusíbúð-
ir. Úr íbúðinni er myndarlegt útsýni
yfir Manhattan.
Michelle og Jason eru bæði 32 ára
og hafa verið mynduð saman fjöl-
mörgum sinnum á árinu, oft með
dóttur Michelle, Matildu, sem verður
sjö ára á sunnudag.
Michelle er fyrsta kærasta Jason
sem hann fellur fyrir og vinir hans
segja hann innilega ástfanginn.
n Michelle Williams og Jason Segel
Flutt úr íbúðinni Michelle og Matilda eru fluttar úr íbúðinni sem
þær bjuggu í með Heath Ledger heitnum og til Jasons Segel.
Fann ástina á ný Michelle hefur ekki
átt sjö dagana sæla eftir sviplegt andlát
fyrrverandi unnusta síns, Heath Ledger, en
hefur fundið ástina á ný.
n Simpson horfir á 24-þættina á hlaupabrettinu
Kílóin hrynja
af Jessicu
J
essica Simpson, sem þyngd-
ist um rúm þrjátíu kíló
þegar hún gekk með dóttur
sína Maxwell Drew sem
kom í heiminn fyrr á þessu
ári, er nú nánast búin að hrista
þau öll af sér. Hún sagði í við-
tali fyrir skömmu að hún hefði
leyft sér að borða hvað sem er á
meðgöngunni og ekkert spáð í
þyngdina. Hún gerði bara ráð fyr-
ir að kílóin hyrfu sjálfkrafa eftir
fæðinguna. Það gerðist hins vegar
ekki. Jessica fór því í stíft átak á
vegum Vigtarráðgjafanna og leið-
beinandi hennar þar segir hana
hafa verið mjög duglega. Sjálf tísti
hún því á Twitter nýlega að nýjasta
æðið hjá henni væri að horfa á
þættina 24 á meðan hún púlar á
hlaupabrettinu. „Jack Bauer er
hetjan mín,“ skrifaði hún.
Dugleg í ræktinni Jessica Simpson
er búin að vera í stífu átaki síðustu
mánuðina og er búin að missa tæp 30
kíló.
S
öngkonan Taylor Swift lýsti
því yfir í sumar þegar hún
var ástfangin upp fyrir haus
af kærastanum sínum Conor
Kennendy að hún ætlaði sér
að kaupa glæsivillu við hliðina á til-
vonandi tengdaforeldrum sínum.
Þrátt fyrir að ástarbálið hafi slokkn-
að og parið hafi hætt saman áður en
af kaupunum varð, þá er Taylor síð-
ur en svo hætt við áformin. Kaupin á
villunni munu líklega ganga í gegn á
næstu vikum.
Taylor fór aldrei leynt með
hrifningu sína á tengdaforeldr-
unum og kemur þetta því vinum
og vandamönnum hennar ekki á
óvart.
n Við hliðina á fyrrverandi tengdaforeldrum
Með fyrrverandi
Taylor og Conor á
meðan allt lék í lyndi.
Taylor kaupir villu