Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Blaðsíða 13
Þ
að veldur mér miklum
áhyggjum að valdamesta
þjóð heims, Bandaríkin,
trúi ekki því sem allir aðr-
ir sjá bersýnilega – að jörðin
sé að hlýna. Ég veit ekki hvað menn
eiga að gera í því,“ segir líffræðingur-
inn og sjónvarpsmaðurinn Dav-
id Attenborough um hlýnun jarðar-
innar. Í viðtali við breska blaðið The
Guardian viðrar hann áhyggjur sínar
af umhverfinu, sérstaklega í ljósi þess
að hvorugur forsetaframbjóðend-
anna í Bandaríkjunum hefur minnst
að ráði á þá hnattrænu hlýnun sem
nú á sér stað. „Ástandið á heim-
skautunum er verra en við héldum.
Ísinn bráðnar í hrönnum og málið er
miklu flóknara en við sáum fyrir.“
Hvorki Mitt Romney né Barack
Obama ræddu hlýnun jarðarinnar í
þeim þremur kappræðum sem hafa
átt í, enda voru þeir ekki einu sinni
spurðir út í málið. Telja margir að þar
hafi glatast tækifæri til þess að ná til
bandarísks almennings, en könnun
sem framkvæmd var af Texas-há-
skóla í sumar sýndi fram á að 70 pró-
sent Bandaríkjamanna trúa því að
jörðin sé að hlýna. Aftur á móti grein-
ir New York Times frá því að olía og
annað jarðefnaeldsneyti hafi verið
ofar á baugi í kappræðum frambjóð-
endanna.
„Auðveldara að loka augunum“
„Það er auðveldara að loka augunum
fyrir staðreyndunum,“ segir Atten-
borough. Aðspurður hvað þurfi til
þess að vekja fólk til umhugsunar
um hlýnun jarðarinnar segir hann:
„Náttúruhamfarir. Það er hræðilegt
að segja þetta, ekki satt? Það hafa
verið hamfarir í Bandaríkjunum, flóð
og fellibyljir, en samt neitar fólk að
trúa þessu.“
Attenborough segir það auð-
veldara fyrir suma bandaríska stjórn-
málamenn að neita því að jörðin sé
að hlýna og hundsa þar með vísinda-
samfélagið. Ástæðan sé sú að viður-
kenni menn vandann þá þýði það að
eyða þurfi miklu af fjármagni banda-
ríska ríkisins í að takast á við hann.
„Það er fjöldi stjórnmálamanna sem
glaður myndi neita þessu og segja:
„Engar áhyggjur, við ætlum ekki að
hækka skatta.“ En ísinn er náttúru-
lega að bráðna hraðar en við héld-
um.“
Forsetaframbjóðendur hljóðir
Hvorki Romney né Obama hefur látið
neitt í ljósi varðandi stefnu sína gagn-
vart hlýnun jarðar. Báðir eru þeir þó
sammála um að hlýnun jarðar sé stað-
reynd og að mönnum sé að minnsta
kosti að hluta til um að kenna. Obama
hefur fyrst og fremst talað um græna
orku, en hann hefur lagt til skatta-
ívilnanir til fyrirtækja sem framleiða
raforku með notkun vinds, svo dæmi
sé tekið. Stefnir hann að því að allt að
áttatíu prósent af orku Bandaríkjanna
muni koma frá sjálfbærum auðlind-
um árið 2035. Romney er mótfallinn
ofangreindum ívilnunum, en hann
kveðst treysta á að einkaframtakið
tryggi nýsköpun á sviði endurnýjan-
legrar orku.
„Algjörlega úr takti við
heiminn“
„Varðandi hlýnun jarðarinnar þá er
pólitíska umræðan hér algjörlega úr
takti við heiminn, og reyndar einnig
við bandarískan almenning. Kann-
anir hafa sýnt fram á að tveir þriðju
Bandaríkjamanna telja að þetta sé
raunverulegt vandamál sem þurfi að
takast á við,“ segir Andrew Steer við
New York Times, en hann starfar hjá
Alþjóðlegu auðlindamiðstöðinni (e.
World Resource Institute). Í svipað-
an streng tekur Christiana Figueres,
hátt settur diplómat hjá Sameinuðu
þjóðunum: „Það gildir einu hver
verður kosinn þann sjötta nóvember.
Hvort sem að hann trúir því að jörðin
sé að hlýna eða ekki, þá breytir það
ekki vísindunum. Næsta stjórn
Bandaríkjanna verður að líta vand-
ann alvarlegum augum. Það mun
ekki einungis verða heiminum dýr-
keypt að hundsa hlýnun jarðarinnar,
heldur Bandaríkjunum líka. Ráða-
menn verða að spyrja sig: „Hvað
mun það kosta að gera ekki nóg?“ n
„Trúa því ekki að
jörðin sé að hlýna“
Erlent 13Mánudagur 29. október 2012
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
n David Attenborough áhyggjufullur n Forsetaframbjóðendur ræða ekki hlýnun jarðar
„Hvað mun
það kosta
að gera ekki nóg?
Hundsa hlýnun
jarðar Mitt Romney
og Barack Obama hafa
ekki rætt hlýnun jarðar-
innar og mögulegar
aðgerðir til þess að
sporna við þeirri þróun.
Mikilvægt málefni er
hundsað þar.
David og otur „Það hafa verið hamfarir í Bandaríkjunum, flóð og fellibyljir, en samt neitar
fólk að trúa,“ segir líffræðingurinn og sjónvarpsmaðurinn David Attenborough, sem hefur
áhyggjur af hlýnun jarðarinnar. Hann er þekktur fyrir að tala inn á náttúrulífsþættina Planet
Earth og Life.