Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Blaðsíða 22
RúllukRagaboluR-
inn veRðuR heituR
22 Menning 29. október 2012 Mánudagur
Einlægur Gillon
T
ónlistarmaðurinn Gillon
finnur ekki beint upp nýja
leið til að leika tónlist á plöt-
unni Næturgárun. Hér er
um kassagítartónlist að ræða sem
er í nokkurs konar söngvaskálda-
stíl. Gillon er listamannsnafn Gísla
Þórs Ólafssonar en platan Nætur-
gárun kom út í mars síðastliðnum.
Það hefur ekki farið mikið fyrir
tónlist Gillons á öldum ljósvakans
þó svo að það séu allavega nokkur
lög á plötunni sem eiga erindi við
tónlistarunnendur, má þar nefna
hið stórskemmtilega lag sem nefn-
ist Næturkossar. Það lag og Blind-
aður af ást eru að mínu mati bestu
og frambærilegustu lög plötunnar.
Gillon er mjög einlægur á
þessari plötu og eru textarnir
margir hverjir stórskemmtilegir.
Hvort sem Gillon semur texta
sína út frá eigin reynslu eða setur
sig í spor annarra þá er ákveðinn
samhljómur með þeim við flestar
þær tilfinningakreppur sem ungir
menn ganga í gegnum. Eftirsjá
vegna skota sem ekki gengu upp
eða sambandsslita. Það er allavega
mín upplifun af þeim textum sem
fyrirfinnast á plötunni.
Gillon notast við fremur óhefð-
bundinn söngstíl sem einhverj-
ir gætu átt erfitt með að fella sig
við. Hann verður þó seint dreginn
niður fyrir það hér vegna þess að
maður finnur fyrir því að hann hef-
ur greinilega lagt eitthvað af sjálf-
um sér í þessa plötu.
Virðist vera mjög einlægur og
heiðarlegur í því sem hann gerir
og fær prik fyrir það. n
Tónlist
Birgir Olgeirsson
birgir@dv.is
Næturgárun
Flytjandi: Gillon
Næturgárun Einlæg og heiðarleg plata.
H
ér er á ferðinni ein besta
og óvæntasta skemmtun
ársins í tölvuleikjabrans-
anum að mínu mati. Dis-
honored hefur fengið
glimrandi góða dóma gagn-
rýnenda og ekki að ástæðulausu.
Leikurinn gerist á Viktoríutímabil-
inu (1837–1901) í fantasíuborginni
Dunwall sem byggir að stóru leyti
á Lundúnum þess tíma. Þú ert í
hlutverki Corvos, fyrrverandi líf-
varðar keisaradrottningarinn-
ar sem tekin er af lífi af hrottum
borgarinnar sem höfðu það eitt að
markmiði að steypa henni af stóli.
Þú ert handtekinn grunaður um
morðið og þér hent í grjótið. Góð-
viljaður hópur manna veit hins
vegar hið sanna í málinu og með
dyggri aðstoð hópsins sleppur þú
úr fangelsi og hefst nú leiðangur í
leit að misyndismönnunum sem
drápu drottninguna. Rottuplága
geisar í borginni sem nú er stýrt af
spilltum embættismönnum sem
leita allra leiða til að halda sann-
leikanum fjarri dagsljósinu – hvað
sem það kostar.
Dishonored er leikur sem er
í fyrstu persónu og er óhætt að
segja að hann haldi manni við
efnið og rúmlega það. Áður en
spilunin hófst bjóst maður svo
sem ekki við miklu. Leikurinn
er framleiddur af tiltölulega litlu
fyrirtæki, Arkane, sem er einna
þekktast fyrir aðkomu sína að
Bioshock 2 sem kom út árið 2010.
Metnaðurinn virðist hins vegar
hafa verið til staðar enda er leik-
urinn vel heppnaður í nær alla
staði.
Það borgar sig að taka góðan
tíma í að spila Dishonored enda
má finna víða um borgina upp-
lýsingar; bréf og hljóðbrot sem
dæmi sem gefa söguþræðinum
mikla dýpt. Þú hefur úr miklum
fjölda vopna að velja og getur
stuðst við skammbyssur, sverð
og jafnvel handsprengjur. Þar
sem um fantasíuleik er að ræða
getur þú einnig framkvæmt
töfra sem hjálpa þér að komast
á milli staða og koma óvininum
að óvörum. Þá er hægt að finna
rúnir á víð og dreif um borgina
sem hjálpa þér að verða sterkari.
Leikurinn er mjög þéttur og
ávallt nóg um að vera. Þetta er
jákvætt í ljósi þess að þú getur
flakkað um alla borgina ert ekki
í fyrirfram mótuðum skorðum.
Bardagarnir eru nokkuð vel
heppnaðir og raunverulegir þó
að byssubardagarnir séu ekki
beinlínis eins og í Call of Duty-
leikjunum. Þó að leikurinn og
umhverfi hans líti vel út sjást
gallar hér og þar en á heildina
litið eru kostirnir svo mikið fleiri
en gallarnir. Að mínu mati er
Dishonored leikur sem
enginn sannur tölvuleikjaspilari
má láta framhjá sér fara. Þetta
er svona leikur sem er tilvalið
að spila í jólafríinu ef menn vilja
bíða svo lengi.
Tölvuleikur
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Dishonored
Tegund: Ævintýraleikur
Gert fyrir: PS3
n Léttir litir, innblástur í tísku gyðinga n Framsækinni línu fagnað
Þ
etta eru léttir litir og línan er
framsæknari en aðrar sem ég
hef unnið,“ segir Guðmundur
Jörundsson sem frumsýndi
nýtt fatamerki, Jör, á laugar-
daginn. Fatalínan sem hann kynnti á
sýningunni nefnist Jewlia og verður
seld í herrafataverslun Kormáks og
Skjaldar. Meðal þess sem gaf að líta
á sýningunni voru jakkaföt í ljósgrá-
um, laxableikum, bláum og brúnum
litum. Fyrirsæturnar voru málaðar
með augnlínupenna og hughrifin
minntu á allt í senn, gyðinga, glam-
úrrokk og áttunda áratugarepíkina
Clockwork Orange.
Guðmundur hefur vakið mikla
athygli sem yfirhönnuður verslunar-
innar og hlaut menningarverðlaun
DV á síðasta ári fyrir fatalínu sína fyrir
herrafataverslun Kormáks og Skjaldar.
Hann segist enn vinna með klass-
ísk snið þótt lína hans sé framsæknari
en áður og leggur mikið upp úr vönd-
uðum efnum.
Fatnaðurinn er framleiddur í Tyrk-
landi í sömu verksmiðju og Armani og
Paul Smith.
Línan er stór og metnaðarfull,
jakkaföt, yfirhafnir, skyrtur og rúllu-
kragabolir, jafnvel hattar og sólgler-
augu.
Rúllukragana segir hann verða
heita í vetur. „Þeir eiga að vera
þröngir og klæðilegir,“ segir hann.
Guðmundur framleiðir einnig nýja
línu fyrir herrafataverslun Kormáks og
Skjaldar enda vinsældir þess klassíska
fatnaðar miklar. Það er því úr nógu
að velja fyrir karlmenn í herrafata-
tískunni á Íslandi.
kristjana@dv
Verðlauna-
hönnuður
Guðmundur
Jörundsson
fatahönnuður.
Mynd: Eyþór ÁrNasoN
Guðmundur fagnar Guðmundur er vin-
sæll fatahönnuður og vex með hverju árinu.
Sýningu hans á laugardag var fagnað.
Laxableikt Elmar fyrirsæta í
laxableikum jakkafötum.
Innblástur Hughrif sýn-
ingarinnar urðu margþætt,
gyðingatíska, „goth“,
glamúrrokk og kvikmyndin
Clockwork Orange.
Léttir litir Jakkafötin voru í léttari
litum og efnisval afar vandað.
Málaðar fyrirsætur Fyrirsætur
sýningarinnar báru augnmálningu .
Hattar Fyrirsæturnar báru
margar hatta og klúta undir.