Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Blaðsíða 6
6 Fréttir 29. október 2012 Mánudagur n Kínverskur maður vinnur sleitulaust í íbúð í eigu dóttur Línu Jia og Wei Zhang S tjórnvöldum barst fyrr á þessu ári bréf þar sem kínversk kona að nafni Sun Fulan sakar Línu Jia, fjarskylda frænku sína, um að hafa lokkað sig með gylliboðum um betra líf til Íslands til þess að starfa fyrir sig á nuddstofu sinni í Kópa­ vogi. Í bréfinu segir hún þó að raun­ in hafi verið allt önnur, hún hafi þurft að vinna 14–15 tíma á dag og verið látin sjá um heimilisstörf fyrir frænku sína og mann hennar, bera út blöð og hjálpa þeim að gera upp hús sem þau hafi keypt. Vegabréf hennar hafi verið tekið af henni og hún hafi ekki mátt fara ein út að hitta fólk. Í bréf­ inu kemur einnig fram að hún hafi áhyggjur af því að ungur kínverskur maður, Nan Li, sem einnig hafi starf­ að fyrir Línu og eiginmann hennar, Wei Zhang, sé enn hjá þeim. „Þau voru mjög ströng við Nan Li. Þau læstu hurðinni að herberginu hans, sem kom í veg fyrir að hann væri í samskiptum við heiminn fyrir utan,“ segir hún meðal annars í bréf­ inu sem sagt var frá í helgarblaði DV. Í kjölfar umfjöllunarinnar barst ábending um kínverskan mann sem hefði unnið að endurbótum í íbúð á Hverfisgötu sem er í eigu dóttur hjón­ anna Línu og Wei. Þeim sem lét vita af manninum þykir grunsamlegt að hann sjáist nánast aldrei fara úr íbúð­ inni, nema í för með Línu. Hann mun þó vinna nær sleitulaust allan daginn og langt fram á kvöld, stundum fram á nótt, miðað við þau læti sem berast frá íbúðinni. Heimildir herma einnig að maðurinn tali nánast enga ensku eða íslensku og hafi lítil sem engin samskipti við annað fólk. Á undan lögreglunni Í kjölfar ábendingarinnar fóru blaða­ maður og ljósmyndari DV á stað­ inn til að kanna málið. Húsið sem er þriggja hæða hús með verkstæði í kjallaranum hefur að geyma þrjár íbúðir. Dyrabjallan fyrir neðstu íbúð­ ina var merkt: Kína. Þegar hringt var á bjölluna var ekki svarað, eftir nokkra bið fóru blaðamaður og ljósmyndari inn á hjólaverkstæði sem staðsett er á neðstu hæð hússins. Eftir stutt spjall við eiganda verkstæðisins var reynt á ný að komast inn í húsið. Nágranni opnaði og á sama tíma voru fulltrú­ ar frá lögreglunni inni á stigagangin­ um. Í þann mund sem blaðamaður kom að fyrir utan íbúðina opnaði Wei Zhang dyrnar fyrir óeinkennis­ klæddum fulltrúum lögreglunnar sem voru mættir á til þess að kanna hvort manni væri haldið þarna gegn vilja sínum og hvort brotið væri á honum. Wei Zhang hleypti lög­ reglunni inn en inni í íbúðinni var maður. Ekki er þó vitað hvort þarna sé á ferðinni Nan Li. Tveir menn í íbúðinni Lögreglan stoppaði í nokkra stund inni í íbúðinni og heyra mátti fram á gang þegar spurt var á ensku hvort maðurinn byggi í íbúðinni, hvort hann borðaði þar líka og hvar hann borðaði. Talað var á ensku en lítið virtist vera um svör. Innan við 10 mínútum eftir að lögreglu­ fulltrúarnir, karl og kona, fóru inn í íbúðina komu þau tvö út aftur og mennirnir urðu eftir í íbúðinni. Þau staðfestu að tveir menn hefðu verið inni í íbúðinni en hefðu lítið viljað segja. Það væri lítið að segja um málið að svo stöddu enda væri það á frumstigi og væri í rannsókn. Þau vildu ekkert gefa upp um það hvort eitthvað yrði gert meira í málinu. Eftir að lögreglan fór bankaði blaða­ maður nokkrum sinnum á hurðina til þess að ná tali af mönnunum var ekki svarað þó að augljóst væru að mennirnir væru enn í íbúðinni. Blaðamaður hafði daginn áður hitt Wei Zhang á nuddstofu þeirra hjóna í Kópavogi þar sem hann sagði bréf Sun Fulan vera lygi og hún væri að senda þetta bréf til þess að valda þeim vandræðum. „Ég er ekki vondur maður,“ sagði hann meðal annars og ætlaði að verða sér úti um túlk til þess að geta svarað spurn­ ingum blaðamanns. Hann lét hins vegar ekki ná í sig eftir það. Vinnur allan daginn Þeir sem DV ræddi við sögðu mann­ inn ekki vera inn í íbúðinni allan daginn. Hann sæist þó aldrei fara út úr íbúðinni nema í fylgd Línu. Hann ynni allan daginn og stundum kæmi eiginmaður Línu og stoppaði við í stuttan tíma. „Það eru hljóð hérna allan daginn, jafnvel þó maður sjái eiginmann Línu fara út. Það er mað­ ur sem býr þarna uppi, það er alveg á hreinu,“ segir verkstæðiseigandi á neðstu hæðinni í húsinu. „Hann kemur hérna við og er kannski í smá stund en er svo farinn. Samt heyrir maður unnið á fullu. Það er einhver þarna þó ég hafi ekki séð hann og ég er hérna allan daginn. Frá hálf átta á morgnana til sex á kvöldin.“ Hann segir að þó hann hafi aldrei séð manninn þá viti hann af honum og að íbúar í húsinu hafi séð hann. Þeir hafi stundum þurft að hafa afskipti af honum og biðja hann um að hætta að vinna þegar hann væri að vinna langt fram á kvöld. Stundum jafnvel til hálf eitt á nóttinni. „En það hafa ekki verið mikil læti eftir að að það var farið að fjalla um þau í blöðunum,“ segir hann. Deilur við nágranna Dóttir hjónanna er skráð fyrir íbúð­ inni en heimildir DV herma að þau ætli sér að opna heimagistingu í íbúðinni sem eru rúmir 100 fer­ metrar. Meðal annars hafa þau reynt að fá leyfi hinna íbúanna í húsinu til þess að setja auka skolprör til þess að tengja fleiri klósett. Leyfið fékkst ekki og hafa þau staðið í nokkrum deilum við hina íbúa hússins og, samkvæmt því sem DV heyrir, stundum gengið ansi hart fram í þeim deilum. „Þau reyndu að kaupa íbúðina af einum íbúanum í húsinu en buðu móðgandi verð fyrir hana. Þegar það var ekki samþykkt þá voru þau bara með stæla og fóru að hóta að leigja þá bara út hæðina til nema sem yrðu með partí langt fram á nótt,“ segir verkstæðiseigandinn. Ekki vitað hvort maðurinn sé Nan Li Íbúar hússins hafa orðið varir við manninn um nokkurra mánaða skeið. Að utan sést ekki inn um glugga íbúðarinnar vegna rusls og timburs. Augljóst er þó að miklar framkvæmdir hafa átt sér þar stað og ekki vitað hvort húsnæðið sé íbúðarhæft. Friðrik Smári Björgvinsson, yfir­ lögregluþjónn rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð­ inu, vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu þegar DV leitaði eftir svörum á sunnudaginn. Óljóst er því hvort lögreglan muni aðhafast meira í málinu eða hvort maðurinn í íbúð­ inni sé Nan Li sem Sun Fulan hafði áhyggur af. n NAN LI FUNDINN? „Kína“ Dyrabjallan sem enginn svarar þegar hringt er. Á undan löggunni Blaðamaður DV fór á vettvang í leit að Nan Li. Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Bak við luktar dyr Hér má sjá hurðina að íbúðinni á Hverfisgötu þar sem grunur leik- ur á að Nan Li sé látinn vinna. Íbúðin er skráð á dóttur Línu Jia sem hér sést. MYNDIR: SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.