Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2011, Qupperneq 29
Viðtal | 29Helgarblað 8.–10. júlí 2011
Ég væri alveg til í að hitta mann,
verða ástfangin og jafnvel að
eignast börn með honum. Ég
geri hins vegar ekkert frekar ráð
fyrir því. En stundum finnst mér
að aðrir hljóti að halda að konur
eins og ég hugsi um stöðu sína
öllum stundum. Það er eiginlega
ferlega fyndið,“ segir Bryndís og
brosir.
Hún segist til dæmis furðu-
lega oft hafa verið spurð að því af
hverju hún sé ekki gift einhverj-
um moldríkum karli í útlöndum.
Hún geti það nefnilega alveg, haf-
andi verið fyrirsæta!
„Ég er sjálfstæð kona og finnst
það fínt. Vissulega finnst fólki af
annarri kynslóð það skelfilegt,“
segir hún og hlær.
Hlær að sjálfri sér
En hvaða eiginleikar einkenna
sjálfstæðar konur að mati Bryn-
dísar?
„Ég get nefnt ýmis skapgerð-
areinkenni eða mannkosti sem
ég met mikils og gildir þá einu
um hvort kynið er að ræða,“ seg-
ir Bryndís.
„Það er hægt að nefna ótal-
margt en sjálfsvirðing, víðsýni,
heiðarleiki og hugrekki ber hæst
í mínum huga, að ógleymdu afl-
inu sem felst í öllum hinu marg-
víslegu ástríðum til lífsins og
hæfileikanum til að hlæja að
sjálfum sér sem er lífsnauðsyn-
legt afl. Ég hef til dæmis oft and-
ast úr hlátri yfir sjálfri mér enda
tilefnin ófá en sjaldan fundist ég
jafnlifandi fyrir vikið!“
Bryndís telur að kynin búi
yfir ólíkum eiginleikum. „Þó að
ég nefni hér til sögunnar mann-
kosti sem ég vil ekki binda á
klafa kynjagreiningar (eða
kynjamismununar), þá er það
engu að síður svo að kynin búa
sannarlega yfir ólíkum eigin-
leikum. Flest er áunnið, bund-
ið í orðræðuna og menninguna,
annað er meðfætt. Vandinn er
sá að það sem telst til karlægra
eiginleika hefur alla tíð verið
lofsamað og gert hærra undir
höfði en kvenlægum kostum.“
Karllæg skynsemisdýrkun
mærir græðgi
Sú karllæga hugsun sem Bryn-
dís telur hafa verið gert hærra
undir höfði telur hún vera skyn-
semisdýrkun sem hafi slæm
áhrif á samfélagið.
„Hin kalda, karllæga, rök-
lega sýn á veruleikann, sýn sem
greinir allt og flokkar, er hugs-
anategund sem hefur gegnum-
sýrt allt í vestrænu samfélagi
um árþúsundir. Af þessu ofmati
á jákvæðum eiginleikum skyn-
seminnar sem hinu karlmann-
lega, virka og ráðandi afli, hef-
ur samsvarandi verið gert lítið
úr öðrum eiginleikum af því að
þeir hafa talist til hins óvirka,
kvenlega og undirgefna hluta
mannskepnunnar. Af þess-
ari karllægu skynsemisdýrkun
fæddist rörsýn á samfélagið og
einstaklingshyggja, sem mær-
ir græðgi, keppnisanda og yfir-
ráðasemi.“
Ofmetnir karllægir
eiginleikar
Kvenlægir eiginleikar hafa orðið
undir í sögunni að mati Bryn-
dísar og hún spyr sig í kjölfar
hrunsins hvort karllægir eigin-
leikar hafi ekki verið ofmetnir.
„Eiginleikar eins og til dæm-
is samkennd og hæfileikinn að
hugsa um heildina fremur en
hluta hennar, eða annað í þeim
dúr, þóttu eiginleikar sem alls
ekki var gott að rækta með sér af
því þeir báru vott um kvenlægt
veiklyndi og jafnvel stjórnleysi.
Sjáðu til dæmis hvernig Forn-
grikkir hugsuðu sér þetta. Þeir
áttu til hugtak yfir tilfinningar
sem var orðið „paþos“ en það
þýddi þjáningu, ástríðu og það
var ávallt með einhverjum hætti
tengt geðraunum, sársauka eða
sjúkdómum. Allt sem talist gat
til kvenlægra eiginleika var eins
og krankleiki í sálinni. Kven-
lægir eiginleikar voru tengdir
hugmyndum um „óæðri“ hluta
sálarinnar, þeim sem tengist
líkamanum, og truflar „æðri“
vitsmunalega starfsemi henn-
ar. Það er dálítið athyglisvert að
skoða þessa skiptingu í sögunni
og hvað hefur orðið ofan á í því
samfélagi sem við búum í.
Núna í uppgjörinu við hrun-
ið er ekki hvað síst nauðsynlegt
að spyrja sig hvaða eiginleika
við viljum rækta með okkur og
hvort karllægir eiginleikar hafi
ekki verið ofmetnir!“
„Móðurhlutverkið gerði mig
sterka“
Dóttir Bryndísar, Melkorka,
er fjórtán ára gömul og þeg-
ar blaðamaður hittir Bryndísi
er hún á leið með henni í frí til
Spánar.
„Hún er kominn á þennan
aldur,“ segir Bryndís og hristir
höfuðið. „Þetta er sá aldur sem
foreldrar kvíða hvað mest fyrir.“
Bryndís segir móðurhlut-
verkið hafa mótað sig mikið og
gert sig sterkari. „Auðvitað er
ég ekkert öðruvísi en aðrir for-
eldrar hvað það varðar. En sjálf-
stæði mitt fékk ég fyrst fyrir al-
vöru þegar ég þurfti að kenna
það öðrum.“
Dóttir Bryndísar er með
asperger-heilkenni á vægu stigi.
Bryndís segist halda að dóttir
sín eigi eftir að njóta sín vel, hún
hafi fengið gott atlæti og stuðn-
ing. Það sama gildi hins vegar
fjarri því um fleiri með raskanir
af þessu tagi. Ég var að tala við
móður drengs sem var að út-
skrifast úr menntaskóla og er
með asperger, námsárin voru
honum gjöful en svo útskrifast
hann og hvað tekur við þá?
Það er ekkert sem blasir við.
Samfélagið verður svo miklu rík-
ara þegar við gefum öllum vægi.
Það eiga allir að fá að finna fyr-
ir því að þeir skipta máli og að
þeirra bíði hlutverk.“
Kærkomið frí
Bryndís verður í tvær vikur á
Spáni, en afi og amma Mel-
korku eru Bryndís Schram og
Jón Baldvin Hannibalsson. Þau
eiga sumarhús á Spáni. Bryndís
ætlar svo að keyra með dóttur
sinni um Spán og njóta fegurð-
ar landsins.
„Þetta verður kærkomið frí,
það hefur verið mikið að gera
hjá mér í vetur og vor og mikil
átök fram undan. Það er gott að
njóta inni á milli.“
Karlmenn eru ofmetnir
M
Y
N
D
IR
s
IG
TR
Y
G
G
U
R
A
R
I
Forréttindi að starfa við mannréttindi „Það eru vissulega forréttindi að
fá að starfa við það að berjast fyrir betri heimi. Ég get ekki hugsað mér að gera
nokkuð annað, þetta er ástríða og ég er þakklát fyrir að fá að sinna þessu starfi.“
„Af þessari
karllægu skyn-
semisdýrkun fæddist
rörsýn á samfélagið
og einstaklingshyggja,
sem mærir græðgi,
keppnisanda og
yfirráðasemi.