Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Síða 10
10 | Fréttir 7. september 2011 Miðvikudagur
H
agnaður Arion banka frá
hruninu haustið 2008
myndi nægja til að byggja
aðra Hörpu og um það bil
fimm fangelsi á Hólmsheiði.
Bankinn hefur hagnast um rúma
fjörutíu milljarða króna á tímabilinu.
Launaskrið er einnig farið af stað
í bankanum. Launakostnaður bank-
ans jókst um 24 prósent á fyrri helm-
ingi ársins og var þar af 13 prósent
launahækkun hjá starfsmönnum. Til
samanburðar má nefna að laun á al-
mennum vinnumarkaði hækkuðu
um 4,25 prósent í kjölfar kjarasamn-
inga sem samþykktir voru í sumar.
Fjármagnið betur varið en
neytendur
Margréti Tryggvadóttur, þingmanni
Hreyfingarinnar, blöskrar misræm-
ið milli gróða bankanna og stöðu al-
mennings, sem skiptir við þá. „Það er
hræðilegt að horfa upp á þetta. Bank-
arnir voru afhentir án umræðu erlend-
um vogunarsjóðum og svo er bara far-
ið í að innheimta. Ég held að það sé
verið að bjóða upp 100 íbúðir bara í
þessum mánuði. Bankarnir högnuð-
ust gríðarlega á síðasta ári og eru búnir
að skila fáránlegri arðsemi öll árin frá
hruninu,“ segir Margrét.„Svo les mað-
ur það í skýrslum AGS að stór hluti af
lánasafni bankanna sé lán sem eru
í frosti og ekki verið að greiða af. Það
er ekki heil brú í þessu. Hvernig getur
banki verið að skila 20 milljarða hagn-
aði á ári þegar ekki er verið að greiða
af 40 prósenta lánanna,“ segir hún.
20 milljarðar miðast við að hagnaður
Arion banka á síðari helmingi ársins
verði á pari við fyrri helminginn.
Gísli Tryggvason, talsmaður neyt-
enda, gagnrýnir einnig misræmið.
„Þetta finnst mér sýna að fjármagnið
er betur varið en hagsmunir neytenda,
eins og það var fyrir hrun en ég hafði
vonast eftir breytingu þar á.“
Samanlagður hagnaður bankanna
árin 2009 og 2010 var 120 milljarðar
króna. Í ár stefnir í enn meiri gróða.
Óvæntur hagnaður
Rekstur Arion banka virðist ganga
framar björtustu vonum um þessar
mundir. Bankinn skilaði uppgjöri sínu
fyrir fyrstu sex mánuði ársins í gær og
nam hagnaðurinn alls 10,2 milljörð-
um króna. Er það nokkru betra en fyrir
sama tímabil í fyrra þegar hagnaður-
inn nam 7,9 milljörðum króna. Sam-
kvæmt tilkynningu frá bankanum er
hagnaðurinn umfram áætlanir sem
skýrist að stórum hluta af endurmati á
útlánasafni bankans á fyrirtækjasviði.
Seldu stór fyrirtæki
Á þessu ári hefur Arion banki gengið
frá sölu á ýmsum fyrirtækjum. Þann-
ig seldi bankinn 36 prósenta hlut
í Högum í febrúar á rúmlega fjóra
milljarða króna. Var þá greint frá því
að heildarvirði fyrirtækisins væri 24
milljarðar króna. Var í því sambandi
talið að 1998 ehf. sem var í eigu Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu
hefði fengið 30 milljarða króna af-
skrift á skuldum. Einnig seldi Arion
bílaumboðið Heklu á árinu sem og
matvörukeðjuna 10-11. Líklegt verð-
ur að teljast að umræddar sölur skýri
að hluta þá aukningu sem varð í end-
urmati á útlánasafni bankans á fyrir-
tækjasviði.
Þá lauk fjárhagslegri endurskipu-
lagningu olíufélagsins N1 í sumar.
Fer Arion banki með 39 prósent af
hlutafé eftir endurskipulagninguna.
Átti bankinn 20,7 milljarða króna
kröfu á N1 sem var niðurfærð um 60
prósent eða um 12,4 milljarða króna.
Er hlutur bankans í N1 metinn á 8,3
milljónir króna í dag. Athyglisvert er
að bera saman umrædda 60 prósenta
niðurfærslu við þær fimm þúsund
fjölskyldur sem fengu að meðaltali
24,4 prósenta niðurfærslu á skuldum
sínum hjá Arion banka, samkvæmt
árshlutauppgjörinu. Þannig virðast
sum fyrirtæki fá meira en helmingi
meiri niðurfærslu en almenn heim-
ili.
Launaskrið hjá bankanum
Launatengd gjöld bankans aukast
úr 4,5 milljörðum króna í 5,5 millj-
arða króna eða um heil 24 prósent. Á
sama tímabili fjölgar starfsmönnum
einungis um rúmlega níu prósent
en þeir eru nú 1.250 en voru 1.140 á
sama tímabili í fyrra.
Í svari frá Iðu Brá Benediktsdóttur
upplýsingafulltrúa kemur fram að
laun starfsmanna hafi hækkað um 13
prósent á umræddu tímabili. Hækk-
unina megi að hluta rekja til þess að
Valitor varð hluti af Arion banka í lok
árs 2010 og við það hafi launahærri
starfsmenn bæst í hópinn en einnig
hafi „eitthvert launaskrið“ átt sér stað.
Lánasafnið betra
Varúðarráðstöfun á lánasafni bank-
ans minnkar mikið miðað við sama
tímabil í fyrra. Þannig voru rúmlega
13 milljarðar króna af útlánum til
viðskiptavina settir til varúðarráð-
stöfunar í fyrra en núna er þessi tala
neikvæð um rúmlega einn milljarð
króna. Lánasafn bankans virðist því
vera að batna mjög mikið.
Fram kemur að Arion banki hafi
leyst úr fjárhagsvandræðum tæplega
fimm þúsund fjölskyldna og skuldir
þeirra hafi að meðaltali verið færðar
niður um 24,4 prósent. Einnig kemur
fram að bankinn hafi leyst úr vand-
ræðum 470 fyrirtækja en engar upp-
lýsingar eru gefnar um niðurfærslu á
lánum þeirra líkt og hjá fjölskyldum.
Athygli vekur að í árshlutaupp-
gjörinu segir að öllum aðgerðum
til hjálpar einstaklingum í fjárhags-
vanda hafi verið hætt 1. júlí á þessu
ári. Iða Brá segir að þarna sé vísað
til þess að 110 prósent leið stjórn-
valda hafi verið lokað 1. júlí. „Sértæk
skuldaðlögun eða aðrar þær aðgerðir
sem bankinn kann að grípa til í sér-
stökum tilfellum einstaklinga sem
lenda í alvarlegum skuldavanda eru
auðvitað undanskildar enda eru þær
alltaf opnar.“
Mesti hagnaður eftir hrun
Svo virðist sem verðmæti á skulda-
bréfasafni sé að aukast mikið, bæði
vegna einstaklinga sem og fyrirtækja.
Skuldabréfasafn bankans vegna ein-
staklinga eykst úr 40 milljörðum
króna í 57 milljarða króna eða um
rúmlega 40 prósent. Skuldabréfa-
safn á fyrirtæki eykst hins vegar úr
340 miljónum króna í 6,7 milljarða
króna eða um nærri tvö þúsund pró-
sent. Þær skýringar fengust á þessu
að bankinn hafi verið að nota laust fé
sitt til kaupa á skuldabréfum, bæði í
fyrirtækjum og ríkisskuldabréfum,
bæði til styttri og lengri tíma. „Með-
an eftirspurn eftir lánum er lítil þarf
að koma peningum í eignir sem bera
hærri ávöxtun en á bankareikning-
um í Seðlabankanum,“ segir Iða Brá.
Methagnaður frá hruni
Áhugavert er að bera saman hagnað
Arion banka núna við hagnað Kaup-
þings, forvera Arion. Kaupþing skil-
aði methagnaði árið 2006 eða 85
milljörðum króna. Miðað við að Ar-
ion sé að skila um tíu milljarða króna
hagnaði á fyrstu sex mánuðum árs-
ins verður að teljast líklegt að hagn-
aður ársins verði mun meiri en hann
var hjá bankanum á árunum 2008 til
2010. Árið 2008 nam hagnaðurinn
4,8 milljörðum króna, 12,8 milljörð-
um króna 2009 og 12,6 milljörðum
króna 2010.
Þessi mikli hagnaður bankans, og
í raun stóru bankanna þriggja, er at-
hyglisverður í ljósi nýrra upplýsinga
um afskriftir bankanna. Í síðustu
viku kom fram á Alþingi að heildar-
afskriftir þriggja stærstu bankanna
árin 2009 og 2010 nemi rúmum 503
milljörðum króna. Þar af nemi af-
skriftir til einstaklinga rúmum 22
milljörðum króna, eða svipaðri upp-
hæð og gera má ráð fyrir að Arion
banki hagnist um á þessu ári einu. Í
því ljósi er ljóst að bankarnir höfðu
bolmagn til mun meiri afskrifta.
Fram kom á Alþingi að 1,6 prósent af
heildarskuldum heimilanna hafi ver-
n Verulegar launahækkanir í Arion banka
n Bankarnir hafa hagnast um meira en 120 milljarða frá hruni
n Fyrirtæki fengu meira en helmingi meiri niðurfærslu en heimili
n „Hræðilegt að horfa upp á þetta,“ segir þingmaður
Risahagnaður Arion banka
Annas Sigmundsson
as@dv.is
Úttekt
Hagnaður Arion banka
2004 2005 2006 2007 2008* 2009 2010 2011**
18 49 85 70 4
,8 1
2,
8
12
,6 20
,4
* 22.10-31.12.2008
** Miðast við að
hagnaður bankans verði
jafn mikill á síðari hluta
ársins
n Kaupþing
n Arion Banki
10,5
milljarðar
3,2
milljarðar
4,3
milljarðar
6,7
milljarðar
3,4
milljarðar
2,9
milljarðar
10,2
milljarðar
Hagnaður viðskipta-
bankanna þriggja 2009–10
Árstekjur 2.000
verkamanna
Kostnaður við
byggingu Perlunnar
Laun allra leikskóla-
kennara árið 2010
Áætlaður rekstrarkostnaður
sjúkrahússins á Akureyri 2011
Niðurskurður hjá
Landspítalanum 2010
Glerhjúpur Hörpu
Hagnaður Arion banka
fyrstu 6 mánuði ársins
120
milljarðar