Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Blaðsíða 12
12 | Erlent 7. september 2011 Miðvikudagur T vö hundruð bílum var ekið aðfararnótt þriðjudags frá Líbíu og yfir að landa- mærum Níger þar sem hermenn fylgdu þeim inn í landið. Helstu stuðningsmenn Gaddafis og háttsettir menn úr rík- isstjórn hans eru taldir hafa verið farþegar í bílunum, en talsmaður Gaddafis og utanríkisráðherra Níg- er fullyrða þó að Gaddafi hafi ekki verið með í för. Talið er að meiri- hluti þeirra sem fóru yfir landa- mærin hafi verið afrískir hermenn sem hafa stutt Gaddafi í baráttunni við uppreisnarmenn síðustu mán- uði. Fregnir af bílalestinni eru nokk- uð óljósar en fullyrt er að mikið magn gulls og peninga, bæði dollara og evra, hafi verið flutt með lestinni. Mansour Dao, yfirmaður öryggis- mála Gaddafis, er sagður hafa farið fyrir einni bílalestinni og vöknuðu því grunsemdir þess efnis að Gad- dafi væri þar einnig á ferð. Brotin loforð um hæli Bílarnir voru á leið til höfuðborg- ar Níger, Niamey, sem er stutt frá Búrkína Fasó og líklegt þykir að bílalestin haldi för sinni áfram og endi í Búrkína Fasó þar sem Gad- dafi hefur verið boðið hæli. Því töldu margir að Gaddafi hefði ver- ið farþegi um borð í bílalestinni, eða að hann hyggist bætast í bíla- lestina ásamt syni sínum Saif al- Islam. Afríkuríkið Búrkína Fasó hafði boðið honum hæli og hann þarf því að ferðast í gegnum Níger til þess að komast þangað. Nígerski herinn fylgdi bílalest- inni eftir að hún fór yfir landa- mæri Níger, en ekki er vitað um nákvæma staðsetningu bílalestar- innar eða hvort hún hafi farið yfir landamærin til Búrkína Fasó. Það er þó talið ólíklegt þar sem Búrk- ína Fasó hefur nú neitað að hafa boðið Gaddafi hæli. Það er talið vera vegna þess að Búrkína Fasó treystir á stuðning og fjármagn frá Frökkum og þeir óttast að með sýnilegum stuðningi við Gaddafi og menn hans verði sú aðstoð dregin til baka. Án þess að þeir fái heimild frá Frökkum um að veita Gaddafi hæli, er ólíklegt að þeir standi við tilboðið. Frakkar hafa tekið afstöðu með uppreisnar- mönnum í Líbíu og verið í forsvari fyrir hersveitir NATÓ og því verð- ur að segjast að líkurnar á því að þeir styðji fyrirætlanir ríkisstjórn- arinnar í Búrkína Fasó séu hverf- andi. Ekki er útséð með að Gaddafi fái hæli einhvers staðar. Hann gæti leitað hælis í Alsír, þar sem fjöldi ættingja hans hafa þegar leitað hælis og á meðal þeirra sem haf- ast nú við í landinu eru eiginkona Gaddafis, tveir synir hans og dótt- ir. Alsír hefur þó ekki boðið honum hæli opinberlega. Mikið ferðalag Talið er að bílalestin hafi lagt af stað til Níger frá Jufra, bæ sem stuðningsmenn Gaddafis stjórna enn. Bílalestin fór þaðan líklega í gegn um Alsír, þar sem stuðnings- menn Gaddafis hafa geta fengið hæli. Þegar bílalestin kom til Níg- er var henni veitt fylgd af nígerska hernum til borgarinnar Agadez. Talið var mjög líklegt að Gaddafi og sonur hans Saif al-Islam myndu reyna að bætast í bílalestina ein- hvers staðar á leið hennar og að Gaddafi myndi þiggja boð um hæli í Búrkína Fasó. Bandarísk stjórn- völd hafa þó dregið í efa að Gaddafi hafi komist til Níger, en þeir hafa einnig reynt að hvetja stjórnvöld þar til þess að handtaka stuðn- ingsmenn Gaddafis, enda sé líklegt að þeir eigi yfir höfði sér að verða dregnir fyrir alþjóðadómstóla. Staða Gaddafis versnar dag frá degi. Hann hefur sjálfur sagt að hann ætli sér að berjast til síðasta blóðdropa, en enginn veit hvar hann er niðurkominn eða hvort hann er á annað borð enn í Líbíu. Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Líbía Gaddafi Á enGa vini Myrti fyrrver- andi kærustu Karlmaður myrti fyrrverandi kær- ustu sína og svipti sjálfan sig lífi í kjölfarið á miðvikudag á Suður-Sjá- landi í Danmörku. Lögregla telur að um fjölskylduharmleik sé að ræða, en maðurinn réðst inn á heimili fyrr- verandi kærustu sinnar þar sem hún bjó ásamt föður sínum. Nágrannar segja að þeir hafi heyrt hleypt þrisv- ar af skotvopni í húsinu og lögregla hefur staðfest að tvö lík hafi fundist í húsinu. Karlmaður, sem mun vera faðir stúlkunnar, var leiddur af vett- vangi, klæddur í hvítan samfesting. Það var að sögn lögreglu til að varð- veita mikilvæg sönnunargögn, svo sem erfðaefni. Talið er að hann hafi orðið vitni að morðinu. Þau látnu munu hafa átt í mjög stormasömu sambandi sem lauk fyrir stuttu. Blendnar tilfinningar Bush n George W. Bush var létt þegar bin Laden var ráðinn af dögum F yrrverandi forseti Bandaríkj- anna, George W. Bush, segir að hann hafi ekki fundið fyr- ir gleði þegar hryðjuverka- maðurinn og óvinur ríkisstjórnar hans Osama bin Laden var drep- inn. Osama bin Laden lýsti því yfir að hann bæri ábyrgð á hryðju- verkunum 11. september 2001, þegar liðsmenn Al Kaída réðust á tvíburaturnana í New York og varnamálaráðuneytið í Washing- ton. Bush sat á veitingastað í Dallas þegar leyniþjónustumenn sögðu honum að Barack Obama vildi ræða við hann. Obama sagði Bush í kjölfarið frá aftökunni. Bush segir frá þessu í heimildarmynd sem gerð var í tilefni þess að liðin eru 10 ár frá árásunum á Bandaríkin árið 2001. Bush sagðist ekki hafa fund- ið fyrir neinni sérstakri gleði eða ánægju þegar hann heyrði um dauða bin Ladens. Þvert á móti fann hann fyrir ákveðnum létti og sagði að sér fyndist málinu nú loks vera lokið. Bush var staddur í skólastofu í Flórída þegar hann heyrði af árásunum. Í fyrstu taldi hann að lítil flugvél hefði flogið á byggingarnar í New York. „Í fyrstu hugsaði ég að annað- hvort hefði veðrið verið aftakas- læmt eða eitthvað hræðilegt kom- ið fyrir flugmanninn,“ segir Bush í myndinni. Skömmu síðar hvíslaði starfs- mannastjóri Hvíta hússins að hon- um: „Önnur flugvél flaug á hinn tvíburaturninn. Það hefur verið gerð árás á Bandaríkin,“ og skyndi- lega varð Bush að taka afdrifaríkar ákvarðanir sem áttu eftir að reyn- ast mjög umdeildar. Bush vildi þó ekki segja að hann sæi eftir við- brögðum sínum þennan örlaga- ríka dag, en að hann gerði sér grein fyrir því að þau hefðu verið umdeild. astasigrun@dv.is Hótanir vegna offitu Foreldrar of þungra systkina í Skot- landi hafa fengið hótanir þess efnis að geri þeir ekki eitthvað í þyngd barna sinna verði þau tekin af þeim og sett í fóstur eða jafnvel ættleidd vegna vanrækslu foreldranna. Skosk yfirvöld segja að foreldrarnir hafi fengið fjölda viðvarana og ítrekað verið sagt að börn þeirra yrðu að léttast. Börnin eru á aldrinum eins til ellefu ára. Foreldrar þeirra berjast sjálfir við mikla offitu og telja félags- málayfirvöld að þeir séu ekki hæfir til að sinna börnunum og hafi van- rækt þau. Yfirvöld hafa því brugðið á það ráð að hóta því að verði ekki gerð bragarbót á heilsu barnanna gæti verið að þau fjögur yngstu yrðu tekin af heimilinu. Umdeildar ákvarðanir Bush segist meðvitaður um umdeildar ákvarðanir sem voru teknar í kringum 11. september 2001. n Fjölskylda Gaddafis flúin til Alsír n Búrkína Fasó dregur boð um hæli til baka n Bíla- lest flytur burt gull og fé n Bandaríkin vilja að Níger handtaki stuðningsmenn Gaddafis Gull og fé hugsanlega flutt með bílalest Um 200 bílar fóru frá Líbíu til Níger, talið er að með í för hafi verið afrískir hermenn og háttsettir menn frá stjórnartíð Gaddafi. Graphic Story Size Artist Date Reporter Research Code LIBYA-NIGER/CONVOY LIBYA/ 10 x 10 cm deep Fabian Chan 06 / 09 / 11 - - WAR © Copyright Reuters 2011. All rights reserved. http://link.reuters.com/ryt68q 200 mi CONTEXT Scores of Libyan army vehicles have crossed the desert frontier into Niger in what may be a dramatic, secretly negotiated bid by Muammar Gaddafi to seek refuge in a friendly African state, military sources from France and Niger told Reuters on Tuesday 300 km 1 2 3 4 Bílalest frá Líbíu Heimild: Reuters, franski og nígerski herinn. ALSÍR MALÍ TÚNIS Miðjarðarhaf LÍBÍA Trípólí Agades Bani Walid NÍGER BÚRKÍNA FASÓ NÍGERÍA TSJAD MAROKKÓ Bílalestin fór líklega í gegn um Alsír, þar sem eiginkona Gaddafi, dóttir og tveir synir hans fengu skjól í síðustu viku. Mánudagur Bílalest með 200-250 herbílum kemur til Niger og er fylgt til Agadez af Nígerska hernum. Gaddafi og sonur hans Saif al-Islam gætu ákveðið að hitta herforingjann Ali Khana og reyna þannig að sameinast bílalestinni. Bílalestin gæti haldið áfram til Burkina Faso þar sem Gaddafi hefur verið boðið hæli. Bílalest frá Líbíu Vilja banna PowerPoint Nýstofnaður svissneskur stjórn- málaflokkur vill láta banna kynning- arforritið PowerPoint með það fyrir augum að hlífa mannkyninu. Það er aðalstefnumál flokksins. Að sögn Matthias Poehm, formanns flokks- ins, skilur PowerPoint lítið eftir sig þegar það er notað við kennslu eða kynningar og telur hann að það geri fólk afhuga því sem verið er að reyna að kynna því. „Staðreyndin er sú að venjuleg PowerPoint-kynning skap- ar ekkert nema leiðindi,“ segir hann. Hann telur að Sviss gæti sparað sér allt að 350 milljarða evra á ári með því að banna forritið. Stjórnmála- flokkurinn þarf 10,000 meðlimi til að teljast fullgildur flokkur, en aðeins 350 hafa skráð sig í hann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.