Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Blaðsíða 11
ið afskrifaðar en 4,7 prósent af heild- arskuldum fyrirtækja. Svigrúm til að afskrifa skuldir almennings Margrét Tryggvadóttir telur alveg ljóst að svigrúm sé til þess að afskrifa skuldir almennings. Vandinn sé hins vegar sá að eigendur bankanna séu ekki fúsir til að reisa samfélagið við. „Tveir af stóru bönkunum voru afhentir erlendum kröfuhöfum. Mikið til eru þetta erlendir vogunar- sjóðir og það eru ekki þeir sem voru að lána bönkunum. Þetta eru þeir sem keyptu kröfur á fimm prósent af virði þeirra. Auðvitað eru einhverjir sem lánuðu peninga og eru að tapa en við vitum að það var rosalega grár markaður með þessar kröfur og fullt af gullgröfurum að versla með þær. Þessir aðilar hafa engan hag af því að íslenskt samfélag rétti úr kútn- um og það gerir það ekki fyrr en við erum komin með sanngjarna lausn í skuldamálum.“ Í apríl árið 2009, stuttu eftir að Framsóknarflokkurinn lagði fram tillögu um 20 prósent flatan nið- urskurð húsnæðislán, lagði Gísli Tryggvason, talsamaður neytenda, til heildarlausn á skuldavandan- um. Hann lagði til að neytendalán yrðu færð niður með gerðardómi, meðal annars vegna forsendu- brests. „Þetta sýnir að tillaga mín í apríl 2009 um heildarlausn á skuldavanda heimilanna, hafi ekki bara verið sterk lögfræðilega heldur hafi hún einnig verið fjárhagslega tæk. Mér þótti lögfræðilegar röksemdir fyrir því að skipta tjóninu á milli bank- anna og neytenda.“ Næststærsti banki Þýskalands hagnast um 4 milljarða Margir hafa furðað sig á góðu gengi íslensku bankanna eft- ir hrun. Landsbankinn, Íslands- banki og Arion banki hafa verið að skila góðum uppgjörum sem er líklega svolítið í mótsögn við nið- ursveiflu í efnahagslífi Íslands og þá sérstaklega hjá mörgum fyrir- tækjum og einstaklingum. Einnig má nefna að flestir bankar í Evrópu hafa ekki verið að skila methagnaði. Þannig má nefna að það hlýtur að vera nokk- uð ótrúlegt að Commerzbank, næststærsti banki Þýskalands, skilaði einungis níu milljarða króna hagnaði á öðrum ársfjórð- ungi eða svipað mikið og Arion banki gerir á sama tímabili. Skýr- ist það að stórum hluta af því að Commerzbank þurfti að afskrifa um 125 milljarða króna af grískum skuldabréfum. Þannig dróst hagn- aður bankans saman um 93 pró- sent miðað við sama tímabil 2010. Þess skal getið að Commerzbank er 140 sinnum stærri banki en Ar- ion. Nema eignir hans 112 þúsund milljörðum króna á meðan eignir Arion banka nema 805 milljörðum króna. Þannig nemur hagnaður í hlutfalli við eignir á öðrum árs- fjórðungi 1,27 prósent hjá Arion á meðan að hlutfallið er einungis 0,008 prósent hjá Commerzbank. Stærsti banki Þýskalands, Deutsche Bank, hagnaðist hins vegar um 200 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi en þurfti líka að afskrifa grísk skuldabréf fyrir um 25 milljarða króna. Einnig má nefna að Danske bank skilaði 42 milljarða króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins 2011. Fréttir | 11Miðvikudagur 7. september 2011 Risahagnaður Arion banka D V greindi frá því í vor að sex æðstu stjórnendur Arion banka hafi fengið 156 millj- ónir króna í laun á síðasta ári. Bankastjórarnir sem stýrðu bank- anum í fyrra, þeir Finnur Svein- björnsson, sem hætti störfum í júní, og Höskuldur H. Ólafsson, sem tók við þá, höfðu saman 46 milljónir króna í árslaun í fyrra og fimm fram- kvæmdastjórar bankans fengu sam- tals 109,9 milljónir króna í laun. Samanburður á ársskýrslum bankans sýndir að mánaðarlaun á hvert stöðugildi hjá Arion banka hækkuðu um 19 prósent á milli ár- anna 2009 til 2010 – úr 575 þúsund krónum á mánuði að jafnaði í 686 þúsund krónur. Til samanburðar hækkuðu launin í Íslandsbanka um 17 prósent. Um 1.100 manns vinna hjá hvorum banka. n Sex toppar fengu 156 milljónir í fyrra Ofurlaun yfirmanna Háar upphæðir Það gefur vel að vera yfirmaður hjá Arion banka. Hvað finnst þér um 24 prósenta hækkun launakostnaðar Arion banka? „Mér finnst það forkastanlegt.“ Hulda Egilsdóttir á besta aldri í barneignarleyfi „Mér finnst bara að það mætti lækka launin hjá forstjóranum. Mér finnst þau allt í lagi hjá hinum.“ Ásdís Kristjánsdóttir 42 ára innheimtufulltrú „Maður þarf virkilega að fá skýringar á því af hverju það er svo mikil hækkun.“ Ása Jóhannsdóttir 49 ára grafískur hönnuður „Ég hef ekkert kynnt mér málið en það hljómar að minnsta kosti eins og argasta tímaskekkja.“ Stefán Rafn Sigurbjörnsson 21 árs „Ég segi bara pass.“ Arnór Bjarki Svarfdal 21 árs nemi Dómstóll götunnar Skrifaði bankastjóra Arion banka opið bréf í mars: „Maður fær æluna upp í háls“ Þ etta er svo yfirgengilegt rugl að maður bara hlær,“ segir Halldór Lárusson, viðskipta- vinur Arion banka um hvað honum finnst um að Arion banki hafi hagnast um 10,3 milljarða á fyrri helmingi þessa árs. Halldór skrifaði bankastjóra bankans opið bréf í mars síðastliðnum þar sem hann gagnrýndi framkomu bank- ans gagnvart viðskiptavinum sín- um. „Ég spyr: Hvernig stenst þetta? Fyrirtækjum og fjölskyldum í land- inu er að blæða út og Arion banki græðir á tá og fingri á þessum fyr- irtækjum og fjölskyldum!? Get ég fengið útskýringar?“ skrifaði Hall- dór í bréfi sínu til bankastjórans í mars, en Arion banki hafði þá ný- lega tilkynnt um 12,6 milljarða króna hagnað á árinu 2010. Halldór og kona hans höfðu á þeim tíma að hætt að greiða af húsnæðislánum sínum til að eiga fyrir mat handa börnunum. Hann er næstum orðlaus yfir fréttum af hagnaði bankans á fyrri helmingi þessa árs. „Á meðan við megum éta það sem úti frýs þá græða þeir á tá og fingri.“ Hall- dór segir fjöl- skyldu sína ná endum saman með alls kon- ar æfingum í dag og að hafi bankinn fryst einhver lán hjá þeim. „Ég kemst ekkert úr viðskiptum hjá þeim,“ segir Halldór, en hann er með íbúðalán hjá bankanum sem hann segir að kosti eina millj- ón króna að færa í annan banka. „Maður er bara í klónum á mafí- unni og maður lítur á bankann sem glæpamenn.“ Hann segir bankann eingöngu spá í peninga, hagnað og gróða, en ekki fólkið. „Þegar maður er að horfa á einhverjar auglýsingar í sjónvarpinu af brosandi fólki sem Arion banki vill gera allt fyrir þá fær maður bara æluna upp í háls,“ seg- ir Halldór sem er mjög ósáttur við bankann sinn. solrun@dv.is Bankastjóri á ofurlaunum Höskuldur Ólafsson er með um 2,9 milljónir króna í föst mánaðarlaun en hafði þó að jafnaði um 4,3 milljónir króna mánaðarlega í fyrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.