Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Blaðsíða 16
A
lþingismaðurinn Þórunn
Sveinbjarnardóttir ákvað að
segja upp vinnunni sinni.
Áframhaldandi þingseta
heillaði hana ekki og hún
ákvað að fara í skóla til að nema sið-
fræði. Ekkert er athugavert við það að
hún snúi baki við vinnustað sínum
og söðli um. Það sem stingur í augun
er að þingmaðurinn nýtur þeirra frá-
bæru kjara að geta hætt í vinnunni en
verið samt mánuðum saman á laun-
um. Þetta er einstakt fyrirkomulag
sem hlýtur að teljast vafasamt þótt
það gangi ekki á svig við lög. Hugs-
unin með biðlaunum þingmanna
var sú að með þeim næðu þeir að
fóta sig þegar starfsmissi bæri óvænt
að. Þórunn virðist hafa ákveðið að
hætta síðasta vor þegar hún sótti um
skólavist en mætti til þings í haust og
tilkynnti síðan óvænt að hún væri á
förum. Með þeirri tilkynningu hófst
taka biðlauna.
Ákvörðun Þórunnar um að fara í
nám kostar íslenska skattgreiðend-
ur milljónir króna. Í einföldu máli er
þetta þannig að launþeginn hættir í
vinnunni sinni og það þarf að kalla
til nýjan mann. Báðir eru á laun-
um næstu sex mánuðina. Á hinum
frjálsa vinnumarkaði ganga málin
ekki svona fyrir sig. Launþegar sem
fyrirvaralaust hætta í vinnunni eiga
ekki kost á því að halda launum sín-
um mánuðum saman.
Alþingismenn á Íslandi eru ekki
ofhaldnir af launum sínum sem losa
500 þúsund krónur á mánuði. Ekkert
bendir til annars en að Þórunn hafi
sem þingmaður unnið fyrir kaupinu
sínu og jafnvel rúmlega það. Það er
full ástæða til að endurskoða þessi
laun og tryggja þingmönnum þannig
afkomu að þeir uni við starf sitt. Þar
mætti hugsa sér að fækka þingmönn-
um og hækka laun þeirra sem eft-
ir sitja. Aðalatriðið er endurskoðun
á kjörum til samræmis við það sem
gerist á almennum markaði. Þann-
ig á fólk ekki að geta tekið einhliða
ákvörðun um að hætta og velt kostn-
aðinum yfir á vinnuveitandann. Slíkt
er ekki boðlegt.
Til eru þeir strútar sem stinga
hausnum í sandinn og fordæma um-
fjöllun um mál Þórunnar sem í engu
hafi farið á svig við lög. Sjálf sagði
hún við DV að mál sitt væri „einka-
mál“.
„Hvernig ég ráðstafa mínu
einkalífi er mitt einkamál,“ sagði hún
og vildi ekki tjá sig frekar um að-
draganda starfslokanna. Það er mik-
ill misskilningur hjá þingmanninum
sem var í vinnu hjá fólkinu í land-
inu. Það er ekki einkamál þegar um
er að ræða starfslok af þessu tagi. Og
þótt allt sé með löglegum hætti er full
ástæða til þess að staldra við og finna
leið til þess að útiloka það að starfs-
fólk almennings njóti slíkra kjara
sem þarna birtast. Þarna er um að
ræða löglega sjálftöku.
16 | Umræða 7. september 2011 Miðvikudagur
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
kristjana guðbrandsdóttir, kristjana@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Leiðari Reynir Traustason ritstjóri skrifar.
Bókstaflega
Öflug í Hólminum
n Móðir Hreiðars Más Sigurðssonar,
Gréta Sigurðardóttir, hefur undan-
farin ár rekið gistiheimilið Bænir og
brauð í Stykkis-
hólmi. Nú berast
þau tíðindi úr
Hólminum að
Gréta ætli sér
að opna annað
gistiheimili í
bænum. Gréta
keypti nýlega hið
fornfræga Egil-
senshús í Aðalgötu 2. Seljandinn er
Stykkishólmsbær og var kaupverðið
38 milljónir króna. Gistihúsarekstur
Grétu í bænum virðist því hafa geng-
ið vel síðustu ár En Gréta er einnig
loðin um lófana eftir ábatasöm við-
skipti við Kaupþing, sem sonur
hennar stýrði, á árunum fyrir hrun.
Fjármálastjóri
Pálma hættur
n Fjármálastjóri ferðaskrifstof unnar
Iceland Express, Lára Árnadóttir,
hefur látið af störfum hjá fyrirtækinu
eftir sex ára starf.
Lára er annar hátt
setti starfsmaður
fyrirtækja Pálma
Haraldssonar sem
hættir störfum
hjá félögum hans
á skömmum
tíma. Nýverið
hætti forstjóri
flugfélagsins Astraeus, Mario Fulgoni.
Ástæða starfsloka Láru er sögð sú að
hún hafi hug á að róa á önnur mið.
Í báðum tilfellunum eru deilur við
Pálma ekki nefndar sem formlegar
ástæður starfslokanna. Þó er vitað að
Pálmi er ekki auðveldur húsbóndi.
Eggert dýrmætur
n Ein af tíðindum vikunnar eru
líklega þau að írski knattspyrnu-
kappinn Roy Keane kunni að taka
við íslenska fótboltalandsliðinu.
Eitt af því sem margir spurðu þegar
tíðindin bárust var hvernig KSÍ
komst í samband við Roy Keane.
Svarið var skammt undan því fyrr-
verandi formaður sambandsins,
Eggert Magnússon, var milliliður í
samskiptunum. Eggert þekkir vel
til í ensku knattspyrnunni þar sem
hann var stjórnarformaður West
Ham 2006- 2007. Þá ýtti Björgólfur
Guðmundsson honum úr starfinu.
Eggert öðlaðist hins vegar frægð í
Bretlandi þótt árangur hans hefði
verið misjafn.
Framsókn sem strætó
n Guðni Ágústsson, fyrrverandi
formaður Framsóknarflokksins,
var nýlega gestur á fundi Rótarí í
Hafnarfirði. Þar
var hann spurð-
ur hvort brott-
hvarf Guðmundar
Steingrímssonar
alþingismanns
væri ekki baga-
legt fyrir flokk-
inn. ,,Alls ekki,“
sagði Guðni og
benti á að flokkurinn væri eins og
velbyggður strætó, opinn í báða
enda. Fólk kæmi inn að framan og
þeir sem það kysu færu út að aft-
an. Þótti samlíkingin vera snjöll.
Sandkorn
H
vað gerir maður ef járn-
brautarlest stefnir á fjóra
menn, sem bundnir eru
við lestarteinana, og mað-
ur hefur val um að láta
hana skipta um teina, þar sem
aðeins einn maður er bundinn?
Jú, maður lætur lestina flakka yfir
þann eina.
E
ftir fjögurra mánaða sum-
arfrí kom Þórunn Svein-
bjarnardóttir aftur til vinnu
og tilkynnti að hún væri
hætt, enda hefði hún meiri
áhuga á því að fara í siðfræði-
nám en vera á þingi. Þá bættust
við 7 mánaða biðlaun. Almenn-
ingur borgar. Fjölmiðlar sögðu frá
þessu. Og hinn siðprúði þingmað-
ur Þráinn Bertelsson varð auðvit-
að reiður. Honum fannst þetta til
skammar. Það er að segja, að segja
frá þessu.
Þ
essi blaðamennska er ein-
faldlega til skammar,“ urr-
aði Þráinn á Facebook.
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, mesti leiðtogi hins
ærlega vinstri vængs í íslenskum
stjórnmálum síðustu áratugi, var
beinlínis orðlaus. Hún var orðlaus
yfir umræðunni, ekki viðfangs-
efni umræðunnar. „Stundum fæ
ég varla orða bundist yfir fimbul-
fambinu í net- og fjölmiðlaum-
ræðunni. En oftar verð ég orðlaus,“
sagði hún á netinu. Fleiri stuðn-
ingsmenn Samfylkingarinnar voru
yfir sig hneykslaðir á því að fjöl-
miðlar dirfðust að segja frá þessu.
Þeir áttu að þegja, því þetta var eft-
ir allt saman löglegt hjá Þórunni.
L
íklega vissi hún það snemma
sumars að hún væri að fara í
skóla. Ef hún hefði sagt af sér
þingmennsku þá hefði bið-
launarétturinn ekki náð eins
langt inn í skólaárið. Hún hefði
þurft að lifa á smánarlegum náms-
lánum, eins og aðrir námsmenn,
og ofan á allt þurft að borga þau til
baka! Auðvitað gerir hún það ekki.
Hvers konar umræða er þetta?
V
enjulegt fólk sem hættir
störfum til að fara í skóla
getur ekki vænst þess að fá
borguð laun frá fyrirtækinu
í sjö mánuði. Reglurnar og
lögin eru bara þannig. En reglurnar
fyrir alþingismenn eru öðruvísi. Þór-
unn má bíða fram yfir sumarfrí og
vinna í nokkra daga fram yfir mán-
aðamótin ágúst/september og til-
kynna um afsögn sína strax eftir það,
til þess að hámarka peninginn sem
hún fær meðan hún er í námi. Hún
má græða þrjá mánuði með því að
bíða með að tilkynna afsögnina. Hún
má fá laun í sjö mánuði eftir að hún
hættir. Svo lengi sem þetta er löglegt
má það.
E
itt það fyrsta sem Þórunn
mun læra í siðfræðinámi sínu
í Háskóla Íslands er að lög og
siðferði eru ekki það sama.
Sjálfstæðismenn hafa orð-
ið fyrir gagnrýni fyrir minni sakir en
að láta ríkið fjármagna skólagöngu
sína. Þeir hafa oft verið sakaðir um
lagahyggju, þar sem þeim finnst þeir
mega gera hvað sem er, svo lengi
sem það er löglegt. Til dæmis að
safna milljónum í leynistyrki frá fyr-
irtækjum, rétt áður en lög gera skylt
að opinbera þá. Siðferði eða óskrif-
aðar reglur eru ekki til í huga sumra;
eins og það að leggja ekki krók á leið
sína til að fá laun frá almenningi sem
lengst. En Þórunn og félagar eru ekki
siðlaus þegar nánar er að gáð. O, nei.
Þ
ótt Þórunn sýni siðleysi með
því að nýta sér glufur til að
láta almenning fjármagna
skólagöngu sína, er þetta
ekki siðlaust í raun. Því til-
gangurinn helgar meðalið. Þórunn
fremur einn siðlausan verknað í
þeim æðri tilgangi að læra siðferði.
Þetta er eins og að fórna einni mann-
eskju til að bjarga fjórum. Klassískt
dæmi í siðfræði. Stundum getur ver-
ið rétt að gera rangt, til að koma réttu
til leiðar. Og þá getur orðið rangt að
gera rétt. Það er til dæmis rangt hjá
fjölmiðlum að segja frá siðleysi Þór-
unnar, þótt það sé almennt rétt að
segja frá slíku, vegna þess að í þessu
tilfelli er stærri siðferðislegur ávinn-
ingur af hinu ranga en af hinu rétta,
og umfjöllun vegur að hinum æðri
siðferðislega tilgangi og ávinningi.
Á
n þess að brjóta gegn sið-
ferðinu hefði Þórunn átt
erfiðara með að öðlast lær-
dóm siðferðisins, sem hún
getur síðan nýtt til þess að
siðvæða félaga sína á Alþingi.
Dæmi í siðfræði „Hvernig ég ráðstafa mínu einkalífi er mitt einkamál.“n Þórunn Sveinbjarnardóttir heldur launum frá ríkinu á meðan hún lærir
siðfræði. – DV
„Ég var flutt inn
til hans, hafði
tapað minni íbúð
og hafði gert alls
kyns áætlanir en ég flutti
út nokkrum dögum
síðar.“
n Kristrún Ösp fór frá Sveini Andra
eftir að hafa skoðað símann hans og
Facebook-síðu. – Vikan
„Það er ekki
ólíklegt að sá
maður sé afi
einhvers sem er með
ökuréttindi.“
n Sigurður Helgason hjá umferðar-
stofu um kappakstur 67 ára og 25 ára
ökumanna sem endaði með
slysi. – Vísir
„Hann er að vitna
í eitthvað sem ég
hef aldrei séð. Ég hef
aldrei fengið þessa
greiningu.“
n Persónulegar heilsufars-
upplýsingar um Pál
Sverrisson voru birtar í
Læknablaðinu. – DV
„Ég málaði hann
þegar hann var ungur og
sætur. Ég geri ef til vill
aðra mynd í rólegheitun-
um um Líbíu.“
n Myndlistarmaðurinn Erró getur vel
hugsað sér að mála mynd af gaddafi,
fyrrverandi einræðisherra Líbíu. – DV
Ertu lýtalaus?
„Ég er ekki
lýtalaus en ég
er heldur ekki
allslaus.“ segir
Þorbjörg alda
Marinósdóttir,
Tobba Marinós,
sem var að gefa
út þriðju bók sína,
Lýtalaus. Hún
er sjálfstætt framhald af bókinni
Makalaus sem naut mikilla vinsælda
og gerð var sjónvarpsþáttasería eftir.
Spurningin
Svarthöfði
Einkamál Þórunnar
„Áframhaldandi
þingseta heillaði
hana ekki.