Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Side 22
22 | Fólk 7. september 2011 Miðvikudagur
Týndi símanum með myndum
n Ásdís Rán býður áritað Playboy-blað í fundarlaun
É
g bý í Búlgaríu og týndi
símanum hér. Fólk get-
ur grætt dágóðan pening
með því að selja myndirn-
ar og upplýsingar úr honum til
fjölmiðla,“ segir Ásdís Rán sem
tekur tapið afar nærri sér. Hún
segir símann hafa verið fullan
af myndum af börnunum sín-
um og sér sjálfri. Þá getur óp-
rúttinn aðili lesið textaskilaboð
í símanum og netpóstinn. Allar
þessar upplýsingar voru í sím-
anum nokkur ár aftur í tímann
og margar hverjar mjög pers-
ónulegar. „Þeir selja símann
síðan náttúrulega líka – þannig
virkar þetta í stóru löndunum.“
Ásdís Rán segir að sem bet-
ur fer séu engin kynlífsmynd-
bönd vera í símanum. „Jú, ég
er í djúpum skít, það eru ekki
miklar líkur á því að ég fái sím-
ann aftur, en ég held í vonina.“
Til að auka líkur á því að sím-
inn finnist og Ásdís fái hugarró
ákvað hún að bjóða fundar-
laun. „Ég var að bjóða um 20
þúsund krónur ef einhver veit
um hann og áritað Playboy- og
Maxim-tímarit í bónus.“
Ásdís Rán hefur dvalið í
Búlgaríu síðustu vikur þar sem
hún hefur staðið í ströngu á
framleiðslu á kjólum í nýrri
fatalínu sem hún setur á mark-
að á næstunni. Garðar skrifar
að öllum líkindum undir hjá
Unterhaching í Þýskalandi og
því munu þau Ásdís flytja bú-
ferlum til Munich í Þýskalandi
á næstunni. Ásdísi finnst erf-
itt að fara frá Búlgaríu en þar
hefur henni tekist að koma ár
sinni vel fyrir borð og er gífur-
lega vinsæl.
„Mér líst ágætlega á þetta
allt saman enda Munich flott
borg sem er eflaust ekki slæmt
að búa í og gott fyrir krakkana.
Við erum svo heppin að hafa
kynnst ólíkum borgum síðustu
árin: Reykjavik - Edinburgh
- Norrköping - Sofia - Linz
og næst Munich svo
þetta verður bara
ánægjulegt ævin-
týri í safnið.“
É
g hef það bara ótrúlega
fínt. Ég er komin 18 vik-
ur á leið svo við vitum
ekki kynin ennþá,“ segir
Tinna Ólafsdóttir dótt-
ir Ólafs Ragnars Grímsson-
ar forseta Íslands en Tinna
og eiginmaður hennar, Karl
Pétur, eiga von á tvíburum á
næsta ári. Þau eiga fyrir tvær
dætur, fjögurra og átta ára
gamlar.
Fleiri þjóðþekktar konur
eiga von á tvíburum. Nafna
Tinnu, leikkonan Tinna
Hrafnsdóttir, á von á sínum
fyrstu börnum ásamt eigin-
manni sínum, leikaranum
Sveini Geirssyni, í byrjun
næsta árs. Katrín Júlíusdótt-
ir iðnaðarráðherra á einnig
von á tvíburum með sínum
manni, Bjarna Bjarnasyni, í
febrúar á næsta ári.
Auk tvíbura Katrínar eru
fleiri börn alþingismanna á
leiðinni en Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, og eiginkona hans,
Þóra Margrét, eiga von á sínu
fjórða barni á næstu dögum
og Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, og eiginkona
hans, Anna Sigurlaug Páls-
dóttir, eiga von á sínu fyrsta.
Katrín tilkynnti samflokks-
mönnum sínum um tvöföldu
hamingjuna á þingflokks-
fundi Samfylkingarinnar.
Þegar hún fer í fæðingarorlof
mun hún feta í fótspor nöfnu
sinnar Jakobsdóttur mennta-
málaráðherra sem var fyrsti
ráðherra Íslandssögunnar
sem varð barnshafandi í emb-
ætti. Katrín og Bjarni eiga
bæði syni fyrir svo barnalánið
er mikið.
Á meðal annarra þjóð-
þekktra barnshafandi kvenna
eru glamúrgellan Kristrún
Ösp og rithöfundurinn Guð-
rún Eva Mínervudóttir.
Barnasprengja
n Margir þjóðþekktir Íslendingar eiga von á barni n Þrjár frægar konur ganga með tvíbura
Hilda Jana
hætt
Sjónvarpskonan knáa Hilda
Jana Gísladóttir mun ekki
keppa fyrir Akureyri í spurn-
ingaþáttunum Útsvari. Hilda
Jana hefur vakið athygli fyrir
frjálslega og skemmtilega
framkomu í þáttunum og ljóst
er að mikill missir verður að
henni. Sú sem tekur hennar
sæti er annar stuðpinni en það
er hin hressa Hildur Eir Bolla-
dóttir, prestur við Akureyrar-
kirkju. Hvort Hildi eigi eftir að
ganga jafn vel og Hildu í að
leika fyrir framan félaga sín á
eftir að koma í ljós en ljóst er
að pressan verður mikil.
Silja á
steypinum
Íþróttakonan og fyrrverandi
íþróttafréttaþulurinn Silja Úlf-
arsdóttir er komin á steypinn
af sínu öðru barni en Silja á að
fæða í næstu viku. Silja hefur
stytt sér stundir þessa síðustu
daga meðgöngunnar með því
að horfa á Heimsmeistara-
mótið í frjálsum íþróttum sem
sýnt var frá í Ríkissjónvarpinu
en Silja er margfaldur meistari
í frjálsum íþróttum. Hún og
maður hennar, júdókappinn
Vignir Grétar Stefánsson, eiga
fyrir soninn Sindra. Þau vita
ekki hvort kynið er á leiðinni
en Silja, sem er ekki þekkt fyrir
þolinmæði, hefur látið hafa
heftir sér að hún ætli pottþétt
að vita kyn á næsta barni svo
hún geti notað tímann á með-
göngunni til að gera allt klárt.
Fjögur börn Bjarni Ben og
eiginkona hans eiga von á sínu fjórða
barni á allra næstu dögum.
Tvíburar á leiðinni Katrín
Júlíusdóttir iðnaðarráðherra á von á
tvíburum ásamt eiginmanni sínum,
Bjarna Bjarnasyni.
Þriðja og fjórða barnið
Tinna Ólafsdóttir og eigin-
maður hennar Karl Pétur
eiga von á tvíburum en þau
eiga tvær dætur fyrir.
Tveir erfingjar á leiðinni Leikaraparið Tinna
Hrafnsdóttir og Sveinn Geirsson eiga von á sínum fyrstu
börnum en Tinna er ófrísk að tvíburum.
Fyrsta barn á leiðinni Sigmundur Davíð og eiginkona
hans Anna Sigurlaug Pálsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni.
Dularfulla
systirin
Ómari Haukssyni meðlimi
Quarashi er óskað til ham-
ingju með nýja systur sína
á Facebook-síðu sinni. En
Bandaríkjamaðurinn Jason
Goldberg hefur sagt frá því að
hann hafi talið sig í alvarlegu
sambandi við konu að nafni
Karen Jóhannsdóttir. Sú hin
sama sagðist vera systir Óm-
ars og sagðist þess utan hafa
verið hljómsveitarmeðlimur
Subterranean og margt fleira
sem á sér litla stoð í raunveru-
leikanum. „Vita foreldrarnir af
þessu?“ segir Ómar greinilega
forviða á þessari vitleysu.
Býður áritað Playboy í fundar-
laun Ásdís Rán er ekki vongóð um
að síminn komi í leitirnar en býður
fundarlaun til að auka líkurnar.
Áhyggjufull Ásdís Rán er hrædd um að
óprúttinn aðili ætli sér að græða á myndum
og persónulegu efni úr símanum.