Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1915, Blaðsíða 9
Inng’ang'ur.
Introduction.
I. Athugasemdir um tilhögun skýrslnanna. Samanburður við toilreikningana.
Remarques préliminaires.
Verslunarskýrslueyðublöðin fyrir árið 1913 voru í sama formi
eins og næstu árin á undan, og við samtalningu skýrslnanna hefur
verið fylgt sömu niðurröðun, sem tíðkast hefur að undanförnu. Eins
og í verslunarskj'rslunum 1912 hefur líka aðllutlum og útfluttum
peningum, sern tilfærðir hafa verið á verslunarskýrslueyðublöðunum,
verið algerlega slept, með því að einsætt þykir, að meginið af því,
sem svo er talið, sje ekki peningamynt heldur ávísanir.
f*ar sem um tollvörur er að ræða, hefur útkoman úr verslun-
arskýrslunum verið borin þar sem unt er saman við vörumagn það,
sem tollur hefur verið greiddur af. Eins og að undanförnu hefur það
hvervetna komið í ljós, að upphæðin verður minni eftir verslunar-
skýrslunum heldur en eftir tollreikningunum. En þar sem það liggur
i augum uppi, að minna hefur ekki verið flutt inn eða út af toll-
vörum heldur en tollreikningarnir telja, þá hefur því sem á vantar
alls staðar verið bætt við útkomuna úr verslunarskýrslunum, þannig
að sama verð lieíur verið sett á það, sem á vantaði, eins og á því,
sem upp var gefið, og er sú viðbót allsstaðar innifalinn í þeim töfl-
um, sem lijer eru prentaðar. Eftirfarandi yfirlit (bls. 8*) sýnir mismuninn
á tollreikningunum og þvi, sem skýrslur hafa fengist um, og hve mikl-
um hluta af öllum að- eða útflutningi af hverri vörugrein það nem-
ur, sem á vantar og því hefur orðið að bæta við á eftir.
Verðupphæð þeirra vörutegunda, sem taldar eru í yfirlitinu á
bls. 8*, nemur alls (að meðtaldri viðbótinni við það, sem skýrslur
liafa fengist um): aðílult 9 924 639 kr., útflutt 12 885 762 kr., samtals
22 810 401 kr., en það sem á vantar þessa upphæð i skýrslunum og
orðið liefur að bæta við á eftir, til þess að koma þeirn heim við
tollreikningana, nemur alls:
aðílutt. . . . 1 579 882 kr. eða 15.9°/o
útflutt. . . . 3 79.5 455 — — 29,5 -
Samtals: 5 375 337 kr. eða 23,(;°/o