Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 12. október 2011 Miðvikudagur
S
paribankinn, nýr viðskipta-
banki, verður opnaður á
fyrsta ársfjórðungi næsta árs,
ef áætlanir ganga eftir. Þetta
segir Ingólfur H. Ingólfsson fjár-
málaráðgjafi sem fer fyrir hópi fólks
sem stendur að bankanum. „Það
eru tæknileg atriði sem við erum að
vinna í núna,“ segir hann aðspurð-
ur um gang mála. „Við ætluðum að
vera búin með ákveðna áfanga fyrir
sumarið en lentum í sumrinu með
það þannig að það fór eiginlega einn
sumarmánuðurinn í súginn.“
Það er þó mest á áætlun og ekki
teljandi seinkun. Undirbúnings-
vinna er á fullum skriði og telur Ing-
ólfur að ekki sé ýkja langt í opnun.
„Ef allt gengur verðum við tilbúin á
fyrsta ársfjórðungi árið 2012,“ segir
hann aðspurður hvenær hann geri
ráð fyrir að allt verði klappað og klárt
fyrir opnun. Áætlunum Ingólfs og
félaga hefur þó seinkað um nokkra
mánuði frá því að fyrst var greint
frá stofnun bankans í byrjun ágúst
á síðasta ári. Þá sagði Ingólfur að ef
allt gengi eftir yrði bankinn opnaður
í ágúst á þessu ári, eða réttu ári eftir
að greint var frá því að bankinn væri í
burðarliðnum.
Sparibankinn verður þó enginn
venjulegur banki, eins og við höf-
um kynnst á undanförnum árum.
Bankinn mun aðeins þjónusta ein-
staklinga og smærri fyrirtæki og
grundvallaráhersla verður lögð á
skynsamlega nýtingu fjármuna.
„Þetta verður banki sem verður leið-
beinandi. Bankinn er með ákveðna
sérfræðiþekkingu á meðferð fjár-
muna og þessari fjárþekkingu ætlum
við að miðla bæði til heimila og fyrir-
tækja,“ sagði Ingólfur á síðasta ári um
bankann en hann hefur sjálfur starf-
að sem sparnaðarráðgjafi um árabil.
adalsteinn@dv.is
n Nokkurra mánaða seinkun á opnun nýs viðskiptabanka
Sparibankinn opnaður eftir áramót
Smá seinkun Nokkurra mánaða seinkun
verður á opnun Sparibankans miðað við það
sem Ingólfur talaði um á síðasta ári. Ef allt
gengur eftir verður bankinn opnaður innan
nokkurra mánaða.
Á
rni Johnsen, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, lagði til við
undirbúningsvinnu árshá-
tíðar þingmanna í mars síð-
astliðnum að hljómsveit sem
þar skemmti yrði greitt svart. Slíkt
hefði vitaskuld verið lögbrot og fékk
tillaga Árna ekki góðar undirtektir í
undirbúningsnefnd árshátíðarinnar,
samkvæmt öruggum heimildum DV.
Hljómsveitin fékk því á endanum
greitt eftir öðrum löglegri leiðum.
Alþingi styrkti árshátíð
Hópur þingmanna úr öllum flokk-
um, nema Hreyfingunni, fékk það
verkefni í sérstakri undirbúnings-
nefnd að endurvekja árshátíð þing-
manna sem blásin hafði verið af
fyrst eftir hrun. Það var að frum-
kvæði þingmanna sem ákveðið var
að halda árshátíðina fyrr á þessu
ári og ætluðu þingmenn í fyrstu að
greiða sjálfir allan kostnað við veisl-
una sem haldin var á veitingastaðn-
um Nítjánda í Turninum við Smára-
torg í Kópavogi.
Þegar vinna við hátíðina var kom-
in af stað ákvað Alþingi sem vinnu-
staður að styrkja veisluhöldin með
fjárframlagi. Ákveðið var að leggja
fram sömu upphæð og lögð hafði
verið til árshátíðar annarra starfs-
manna Alþingis. Svo fór að skrifstofa
Alþingis sá á endanum um að greiða
reikninga og dró mismuninn af laun-
um þingmanna.
Áttu að taka með reiðufé
fyrir bandið
Í undirbúningsnefnd árshátíðar-
innar lagði Árni Johnsen til að þing-
menn myndu leggja pening inn á
reikning fyrir árshátíðinni en að þeir
tækju með sér tvö þúsund krón-
ur í reiðufé svo hægt væri að greiða
hljómsveitinni svart fyrir störf sín.
Samkvæmt heimildum DV furðuðu
aðrir í undirbúningsnefndinni sig á
tillögunni og lýstu, svo enginn vafi
lék á, vanþóknun sinni á henni. Fór
svo að tillagan var slegin köld út af
borðinu og varð niðurstaðan sem
fyrr segir að dregið var af launum
þingmanna fyrir kostnaðinum.
Árni kannast ekki við neitt
DV bar heimildir sínar undir Árna
Johnsen sem kannaðist ekkert við að
hafa lagt til að greiða hljómsveitinni
svart. „Ég kannast ekki við það, ég
veit ekki hvað þú ert að tala um. Það
kom aldrei neitt slíkt til greina.“ Þeg-
ar fyrirspurnin var ítrekuð sagðist
þingmaðurinn ekki nenna að svara
svona „bölvuðu rugli“ og hló en
kvaddi með þeim orðum að árshá-
tíðin hefði gengið vel.
Samkvæmt upplýsingum DV sá
Árni síðan um veislustjórn á árshá-
tíðinni þar sem hann lék við hvurn
sinn fingur. Hátíðin sjálf þóttist
heppnast afar vel enda var hún með
nokkuð öðru sniði en á árum áður
þar sem árshátíðir þingmanna þóttu
afar formfastar og íhaldssamar sam-
kundur.
n Árni Johnsen var stoppaður af í undirbúningi árshátíðar
þingmanna n Vildi borga hljómsveitinni í reiðufé svart
Árni vildi greiða
hljómsveit svart
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
n Árni Johnsen var árið 2003 dæmdur
í tveggja ára fangelsi í Hæstarétti fyrir
fjárdrátt og umboðssvik í opinberu starfi,
mútuþægni og fyrir að gefa rangar skýrslur
til yfirvalda. Alls var hann sakfelldur í 22
ákæruliðum, meðal annars fyrir viðskipti
með svokallaða óðalssteina, þéttidúk og
ýmiss konar vörur sem hann keypti í nafni
byggingarnefndar Þjóðleikshússins en
enduðu heima hjá honum í Vestmanna-
eyjum. Reyndi hann þá að hylma yfir
viðskiptin og varð uppvís að því að ljúga
opinberlega. Eftir að hafa lokið afplánun
sinni á Kvíabryggju fékk Árni uppreist æru
frá yfirvöldum vegna dómsins. Á meðan
Ólafur Ragnar Grímsson forseti var erlendis
ákváðu handhafar forsetavaldsins að veita
Árna uppreist æru. Það voru Geir H. Haarde
forsætisráðherra, Gunnlaugur Claessen,
forseti Hæstaréttar, og Sólveig Péturs-
dóttir, forseti Alþingis. Gjörningurinn var
umdeildur en stóð óhaggaður. Í ágúst í fyrra
komst Árni enn í fréttirnar þegar DV greindi
frá því að þingmaðurinn hefði ekki fengið
tilskilin leyfi hjá Vestmannaeyjabæ fyrir
efnistöku á sex stórum móbergshellum við
Klaufina þar í bæ. Árni lét sækja hellurnar
með traktor og fundust þær við heimili hans
að Höfðabóli. Forsvarsmaður Náttúrustofu
Suðurlands gagnrýndi Árna harðlega og
sakaði þingmanninn um náttúruspjöll.
Fékk uppreist æru
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
sýknað karlmann af ákæru um
kynferðisbrot gegn tólf ára dóttur
fyrrverandi sambýliskonu sinnar.
Manninum var gefið að sök að
hafa á tímabilinu 2005 til febrúar
2011 brotið með margvíslegum
hætti gegn stúlkunni, meðal
annars látið hana fróa sér og hafa
munnmök við sig. Það var hjúkr-
unarfræðingur í skóla stúlkunnar
sem tilkynnti málið til barna-
verndar og sagði að stúlkan hefði
orðið fyrir líkamlegu og kynferð-
islegu ofbeldi heima hjá sér.
Maðurinn neitaði sök fyrir
dómi og sagði aðspurður um
ásakanir stúlkunnar að hún
væri ekki hrifin af sér. Hann setti
henni reglur um útivist og fleira
sem hún væri ekki ánægð með.
Þá kvaðst hann refsa henni með
því að láta hana vera inni í her-
bergi ef hún hlýddi ekki.
Það var mat dómsins að stúlk-
an hefði gefið trúverðuga skýrslu
þegar hún lýsti því sem stjúpfaðir
hennar átti að hafa gert henni.
Á hinn bóginn var einnig litið
til þess að framburður manns-
ins, sem staðfastlega neitaði sök,
væri ekki ótrúverðugur. Var mað-
urinn því sýknaður af ákærunni.
Ákærður fyrir brot gegn ungri stúlku:
Sýknaður í
héraðsdómi
Kæft í nefnd Árni Johnsen býr yfir ára-
tugareynslu í tónlistargeiranum og þekkir
hvernig uppgjör fyrir slíkt fer fram. Hann
komst þó ekki langt með hugmyndir sínar
fyrir árshátíð þingmanna. MyNd Sigtryggur Ari
„Fór svo að
tillagan
var slegin köld
út af borðinu
Vinsæll pizzastaður
Höfum til sölu pizzastað á höfuðborgarsvæðinu.
Er í rúmgóðu húsnæði og með góðan búnað, m.a. eldofn.
Vinsæll í take away þjónustu. 3ja–5 ára leigusamningur.
Fæst á mjög góðu verði. Upplýsingar í síma 773 4700.
Frábært tækifæri á ferðinni!
Fyrirtækjasala Íslands
Ánanaustum | www.atv.is
Hótaði lífláti
49 ára karlmaður hefur verið
ákærður fyrir að hóta saksóknara
ofbeldi og lögreglumönnum lífláti.
Þá er hann einnig ákærður fyrir
fíkniefnalagabrot.
Í mars síðastliðnum var gerð
húsleit á heimili hans í Hafnar-
firði og fundust þar fíkniefni. Lög-
regla fór fram á gæsluvarðhald yfir
manninum og var orðið við henni í
Héraðsdómi Reykjaness. Þar missti
maðurinn stjórn á sér. Hann hótaði
saksóknaranum ofbeldi og tók upp
stálstól, sveiflaði honum fyrir aftan
sig og sýndi tilburði til að kasta
honum í lögreglumann. Nokkrum
dögum síðar hótaði maðurinn öðr-
um lögreglumönnum. Ákæran var
þingfest á mánudag.