Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2011, Side 8
8 | Fréttir 12. október 2011 Miðvikudagur
Þ
að er harmsefni að erindi
Guðrúnar Ebbu til kirkjuráðs
2009 hafi ekki verið svarað
strax skriflega og hefur biskup
beðist afsökunar á því í ræðu og riti
og persónulega,“ segir í yfirlýsingu
sem birtist á vef Þjóðkirkjunnar síð-
degis á þriðjudag um mál Guðrún-
ar Ebbu Ólafsdóttur. Undir yfirlýs-
inguna skrifa Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands, Jón Aðalsteinn Bald-
vinsson, vígslubiskup á Hólum og
Kristján Valur Ingólfsson, vígslubisk-
up í Skálholti.
Karl vildi ekki svara neinum
spurningum um mál Guðrúnar
Ebbu, sem var misnotuð af föður sín-
um, Ólafi heitnum Skúlasyni biskupi,
þegar blaðamaður DV reyndi að
ræða við hann fyrr um daginn.
Biskupinn var staddur í Listasafni
Reykjavíkur við afhendingu Kærleik-
skúlu Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra. „Ekki núna… ég er svo…“ sagði
Karl biskup og rétti fram vinstri hönd
sína og benti á úrið. Þegar blaðamað-
ur spurði hvort hann vildi þá svara
spurningum síðar, kannski í gegnum
síma, sagði Karl hikandi: „Kannski,
þú talar þá við Öddu Steinu upplýs-
ingafulltrúa.“ Karl átti þar við Stein-
unni Arnþrúði Björnsdóttur, sem
starfar á Biskupsstofu. Að því sögðu
gekk Karl hröðum skrefum út úr
Listasafninu. Hávær krafa er uppi um
að hann segi af sér embætti.
Karl kaus sem fyrr segir að birta
yfirlýsingu á vef Kirkjunnar þar sem
fram kemur að viðtalið við Guðrúnu
Ebbu í Kastljósi á sunnudag hafi vak-
ið „mikla sorg, reiði og harm í hug-
um þjóðarinnar“. Þjóðkirkjan muni
ekki líða og ekki sætta sig við ofbeldi
af einum eða neinum toga. „Verið er
að vinna að bættum viðbrögðum og
eftirfylgd kirkjunnar í slíkum málum
bæði með fræðslu og bættum starfs-
reglum og verkferlum.“
„Sorg, reiði og harmur“
n Karl Sigurbjörnsson gaf sér ekki tíma til að ræða við DV en sendi frá sér yfirlýsingu
Karl Sigurbjörnsson Sagðist vera of upptekinn til að ræða við blaðamann á þriðjudag.
Hann, ásamt tveimur öðrum, sendi frá sér yfirlýsingu síðdegis á þriðjudag um mál Guðrúnar.
Græn skref hjá borgarstjórn:
„Þetta bara
kemur úr sorpinu“
„Ég hef reynt að tala fyrir þessu,“
segir Jón Gnarr borgarstjóri sem
kynnti metanvæðingu bílaflota
Reykjavíkurborgar. Borgin hef-
ur keypt 49 metanbíla og þar með
endurnýjað um þriðjung bílaflota
síns, en bílarnir voru teknir í notk-
un á mánudag. „Rafmagn er alveg
pottþétt framtíðin en þangað til
er metan bara algjör snilld,“ bætti
borgarstjórinn við eftir að hafa farið
stuttlega yfir þá bíla sem hann hefur
haft aðgang að. Jón Gnarr hefur
fengið bæði rafmagnsbíl og vetnis-
rafmagnsbíl að láni í borgarstjóratíð
sinni.
Metanbílarnir voru keyptir fyrir
100 milljónir króna en inni í þeirri
tölu er vinnan við að gera þá að
metanbílum. Venjulegir bensínbílar
voru keyptir og þeim síðan breytt.
Jón Gnarr segir að fjárhagslegur
sparnaður sé í þessu fyrir borg-
ina en bendir einnig á jákvæð áhrif
sem notkun metans í stað bensíns
eða olíu hafi á umhverfið. „Met-
anið verður bara til af sjálfu sér,“
segir borgarstjórinn og vísar þar til
þess að metan sé unnið úr lífræn-
um úrgangi. Borgin sér um að safna
þessum úrgangi og er því í rauninni
verið að nýta rusl Reykvíkinga betur
fyrri vikið.
Kaupin á metanbílunum eru
hluti af Grænu skrefunum, sem er
umhverfisátak borgarinnar. „Þetta
er verkefni til að gera Reykjavík vist-
vænni,“ segir Jón aðspurður í hverju
Grænu skrefin felist. Jón sér fyrir sér
að hægt verði að reisa gasgerðarstöð
á höfuðborgarsvæðinu til að vinna
metangas úr sorpi borgarbúa. „Þetta
bara kemur úr sorpinu.“
adalsteinn@dv.is
Stungið beint
í steininn
Karl um þrítugt, sem stal sprengiefni
úr tveimur rammgerðum gámum í
síðustu viku, reyndist vera á reynslu-
lausn úr fangelsi.
Maðurinn er sakaður um að
hafa stolið þrjú hundruð kílóum af
dínamíti úr sprengiefnagámi í Þor-
móðsdal ofan við Hafravatn. Efnið er
stórhættulegt í vörslu þeirra sem vita
ekki hvernig á að meðhöndla það.
Eftir yfirheyslur á mánudag
var hann því færður í Héraðsdóm
Reykjavíkur sem úrskurðaði að mað-
urinn skyldi hefja afplánun aftur
þegar í stað.
Hann var því færður í fangelsi
en um er að ræða eftirstöðvar um
300 daga refsingar. Fram kemur í til-
kynningu frá lögreglu að maðurinn
hefur kært úrskurðinn til Hæsta-
réttar.
Þ
að verður eitthvað stór-
skemmtilegt,“ segir fjárfest-
irinn Skúli Mogensen að-
spurður hvað hann hyggist
gera við jarðirnar Hvamm og
Hvammsvík sem hann keypti nýlega
af Orkuveitu Reykjavíkur. Skúli stað-
festi í samtali við DV að hann hygð-
ist áfram reka ferðaþjónustu á svæð-
inu eins og verið hefur undanfarna
áratugi. Hann vildi þó lítið gefa upp
um hvað það væri nákvæmlega sem
hann hefði í hyggju að gera á jörðun-
um. „Það kemur bara í ljós.“
Samkvæmt vef Orkuveitunnar
greiddi hann samtals 155 milljónir
króna fyrir jarðirnar. Orkuveitan er
áfram eigandi jarðhita á jörðunum.
Skúli, sem er stærsti eigandinn í MP
banka, er með ríkari Íslendingum.
Hann og kona hans, Margrét Ásgeirs-
dóttir, eiga samanlagt tæplega átta
milljarða króna í hreinni eign.
Auðmaður í stað útigangsmanns
Heimildir DV herma að eitt af skil-
yrðum Skúla fyrir kaupunum á jörð-
unum hafi verið að lítil eign sem var
á annarri jörðinni fylgdi með. Þar var
um að ræða sumarhús á litlum land-
skika sem hafði verið í niðurníðslu til
lengri tíma. Samkvæmt heimildum
DV, hafði útigangsmaður haldið til í
húsinu í einhvern tíma. Herma heim-
ildir blaðsins að húsið og landskikinn
sem það var á hafi selst til Orkuveit-
unnar á tæpar 30 milljónir.
Skúli vildi lítið tjá sig um jarðar-
kaupin þegar blaðamaður náði tali
af honum. Aðspurður hvers vegna
Hvammsvík og Hvammur hafir orð-
ið fyrir valinu sagði hann: „Þetta er
náttúruperla nálægt Reykjavík sem
býður upp á margvíslega möguleika
tengda ferðaþjónustu, útivist og úti-
veru almennt. Fleira get ég ekki sagt í
bili.“ Skúli sagðist vera mjög spenntur
fyrir framhaldinu. „Þetta er allt í mót-
un og ég hlakka bara til, þetta verður
skemmtilegt.“
Hann sagðist ekki geta gefið frek-
ari upplýsingar að svo komnu, fram-
haldið ætti eftir að koma í ljós.
Varð ríkur af Oz
Skúli Mogensen er gjarnan kenndur
við hugbúnaðarfyrirtækið Oz, en
hann tók þátt uppbyggingu fyrir-
tækisins á tíunda áratugnum ásamt
helsta stofnanda þess, Guðjóni Má
Guðjónssyni sem enn er kenndur við
fyrirtækið. Þeir stýrðu félaginu næstu
tíu árin og var talað með mikilli virð-
ingu um Oz á þeim tíma. Margir Ís-
lendingar fjárfestu í hlutabréfum í
Oz á þessum tíma og unnu um 250
manns hjá fyrirtækinu þegar mest
var.
Þegar netbólan sprakk árið 2001
fór Oz á hliðina líkt og mörg önn-
ur fyrirtæki sem störfuðu á sviði
hugbúnaðar- og upplýsingatækni.
Stærsti kröfuhafi Oz, Landsbank-
inn, tók fyrirtækið yfir árið 2002
vegna rekstrarerfiðleikanna – sama
ár og bankinn var seldur til Björg-
ólfsfeðga. Skúli eignaðist Oz svo
árið 2003 og flutti fyrirtækið til
Kanada. Heimildir DV herma að
tengslin við Björgólf Thor hafi að
minnsta kosti ekki spillt fyrir þegar
Skúli keypti Oz af Landsbankanum
árið 2003. Skúli seldi hlut sinn í Oz
í Kanada til farsímafyrirtækisins
Nokia fyrir að minnsta kosti nokkra
milljarða króna síðla árs 2008.
Dáist að Einari Ben
Skúli birtist allt í einu aftur á Ís-
landi með fullar hendur fjár í kjöl-
far bankahrunsins þegar hann
keypti stóran hlut í MP banka í
gegnum eignarhaldsfélag sitt Tít-
an, fyrr á þessu ári. Hann mun eiga
um 17,5 prósenta hlut í bankanum
en hluturinn er metinn á um einn
milljarð króna.
Skúli hefur sérstakt dálæti á
Einari Benediktssyni, líkt og nafnið
á fjárfestingarfélagi hans ber með
sér. Fjárfestingarfélag Skúla heitir
Títan, líkt og Fossafélagið Títan
sem Einar Benediktsson stofnaði
í byrjun tuttugustu aldar og ætl-
að var að byggja virkjanir í Þjórsá.
Skúli gefur sig út fyrir að vera frum-
kvöðull, líkt og skáldið, sem hafi
miklar og háar hugmyndir sem
hann vilji hrinda í framkvæmd.
Aðdáun hans á Einari Benedikts-
syni hefur meðal annars komið
fram í því að Skúli hefur haldið er-
indi um hugmyndir Einars Bene-
diktssonar um virkjanir á Íslandi,
meðal annars á viðskiptaþingi Við-
skiptaráðs.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Hvammsvík Skúli gefur lítið upp um hvað hann hyggist gera á jörðunum en staðfestir að hann muni reka ferðaþjónustu þar áfram.
n Skúli Mogensen keypti jarðirnar Hvamm og Hvammsvík n Gefur lítið upp en
segist ætla að gera eitthvað „stórskemmtilegt“ n Stærsti hluthafinn í MP banka
Með ríkari
Íslendingum
Skúli Mogen-
sen, nýr eigandi
jarðanna
Hvamms og
Hvammsvíkur,
er með ríkari
Íslendingum.
Kaupir jarðir
Orkuveitu
Reykjavíkur