Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2011, Page 13
Erlent | 13Miðvikudagur 12. október 2011
C
amila Vallejo, 23 ára stúlka frá
Chile, hefur þrátt fyrir ung-
an aldur markað sér spor sem
nýjasti byltingarleiðtogi Suð-
ur-Ameríku. Barátta hennar
fyrir bættum aðstæðum menntafólks
í Chile hefur undið upp á sig að und-
anförnu og eftir viku, þann 18. og 19.
október næstkomandi, er fyrirhugað
allsherjarverkfall í landinu. Vinsældir
Camilu, sem er leiðtogi stærstu náms-
mannahreyfingar Chile, hafa farið ört
vaxandi undanfarið. Hún á yfir 300
þúsund aðdáendur á Twitter og eru
vinsældir hennar farnar að breiðast
út til annarra landa Suður-Ameríku,
meðal annars Brasilíu.
Hafa ekki efni á menntun
Barátta Camilu, sem er landafræði-
nemi við Chile-háskólinn, er góð
áminning þess að af litlum neista
verður oft mikið bál. Barátta náms-
mannanna í Chile snýr einna helst að
markaðshyggju ríkisstjórnar forset-
ans, Sebastiáns Piñera. Að mati náms-
mannanna er menntakerfið ekkert
annað en gróðrarstía peningamanna.
Flestir háskólar í landinu eru einka-
reknir og frá tímum Augustos Pino-
chet, fyrrverandi einræðisherra Chile,
hafa engir ríkisreknir háskólar verið
stofnaðir. Þetta hefur gert að verkum
að ungt fólk hefur ekki tækifæri til að
mennta sig í góðum skólum þar sem
kostnaðurinn við það er allt of mik-
ill. Vilja námsmenn að allir íbúar eigi
kost á ókeypis menntun. Baráttan
snýst ekki einungis um menntakerfið
heldur er ástandið í heilbrigðiskerf-
inu svipað. Allt snýst um hagnað. Tal-
ið er að mótmælin í Chile að undan-
förnu séu þau mestu frá þeim tíma
þegar stjórnarandstæðingar börðust
gegn ógnarstjórn Pinochets undir lok
níunda áratugarins.
Mótmælin barin niður
Camila Vallejo hefur verið í framvarða-
sveit mótmælanna sem hófust í maí á
þessu ári. Hún er meðlimur í ungliða-
sveit kommúnista (Juventudes Com-
unistas de Chile) og varð önnur konan
í sögunni til að taka við embætti for-
manns stúdentaráðs Chile-háskóla.
Síðastliðinn fimmtudag var hún hætt
komin þegar lögregla barði niður mót-
mæli sem hún skipulagði í miðborg
Santiago, höfuðborgar Chile. Lög-
regla sprautaði á hana táragasi þegar
hún söng baráttusöngva ásamt öðr-
um ungmennum og hún þeyttist í göt-
una þegar vatni var sprautað á hana úr
öflugri vatnsbyssu. „Við reyndum að
berjast á móti en það var ekki hægt.
Við gátum ekki andað þannig að við
hlupum burt,“ segir Vallejo í samtali
við Guardian. Á næstu klukkustund-
um voru 250 manns handteknir, þar á
meðal blaðamenn sem voru að sinna
vinnu sinni.
Gríðarlegur stuðningur
Mótmælin á fimmtudag voru ekkert
einsdæmi. Á undanförnum mánuðum
hafa mótmæli verið daglegt brauð og
hafa þúsundir verið handtekin. Þrátt
fyrir að mótmælin á fimmtudag hafi
verið barin niður er Camila ánægð
með árangurinn til þessa. „Á undan-
förnum árum hefur nýfrjálshyggjan
verið borin á borð fyrir unga fólkið.
Það snýst allt um einstaklinginn og
það er enginn náungakærleikur. Unga
fólkið hefur nú tekið við stjórninni,“
sagði Camila á skrifstofu sinni í sam-
tali við blaðamann Observer. Á veggn-
um fyrir ofan skrifborðið hékk mynd af
Karli Marx.
Útgeislun og sannfæringarkraft-
ur þessarar ungu stúlku hefur gert
hana að þekktasta andliti mótmæl-
anna. Sem fyrr segir eru aðdáendur
hennar á Twitter 300 þúsund. Hún var
gerð að heiðursforseta einnar stærstu
námsmannahreyfingar Brasilíu fyrir
skemmstu og þá hefur barátta hennar
fengið stuðning frá stúdentahreyfingu
stærsta háskóla Suður-Ameríku sem
er í Mexíkó.
„Þessi stuðningur hefur verið okkur
mikilvægur. Við heyrum það stöðugt
að barátta okkar og markmið séu von-
laus. En við fáum svo mikinn stuðning
frá öllum heimshornum, sérstaklega
frá ungu fólki, að við getum ekki gef-
ist upp. Núna erum við á mikilvægum
tímapunkti og alþjóðlegur stuðningur
er lykilatriði.“
Allsherjarverkfall
Undanfarið hafa námsmenn, undir
forystu Vallejo, verið í samningavið-
ræðum við ríkisstjórn Piñera. Þær við-
ræður hafa hins vegar engu skilað og
nú hafa verkalýðsfélög og stúdentar
tekið höndum saman í baráttunni og
boðað til allsherjarverkfalls í næstu
viku. Í ágúst síðastliðnum var einnig
boðað til allsherjarverkfalls sem entist
í tvo daga. Þá reyndi lögregla að berja
mótmælin niður og slösuðust margir í
átökunum. „Við erum mjög leið yfir því
að stúdentar hafi gripið til þessa ráðs,“
sagði Andres Chadwick, talsmaður
ríkisstjórnar Chile, og vísaði í verkfalls-
boðunina. Piñera forseti hefur gefið út
að hann vonist til að námsmenn setj-
ist aftur við samningaborðið og lofað
að létta undir með námsmönnum í
fjárþörf. Hann hefur hins vegar hafn-
að því að nám verði ókeypis fyrir alla
háskólanema og að ríkið taki að sér að
reka alla háskóla landsins.
Byltingarhetjan sem
ætlar að breyta Chile
n Boðað til allsherjarverkfalls í Chile í næstu viku n Háskólastúdentar vilja ókeypis menntun og vilja gróða-
sjónarmið burt n 23 ára landafræðinemi er í framvarðasveit mótmælanna og nýtur stuðnings hundruð þúsunda
„Það snýst allt um
einstaklinginn og
það er enginn náunga-
kærleikur. Unga fólkið hef-
ur nú tekið við stjórninni.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Leiðtoginn Camila Vallejo hefur þrátt
fyrir ungan aldur náð að hrista rækilega upp
í stjórnkerfi Chile. Hún er leiðtogi stærstu
námsmannahreyfingar landsins. Mynd ReuteRs
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæð
Bremsur
Spindilkúlur
Stýrisendar
ofl, ofl
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað