Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2011, Page 18
18 | Menning 12. október 2011 Miðvikudagur
Spiluðu undir Kínamúrnum
n Hljómsveitin Bloodgroup komin heim frá Kína
Þ
etta var mjög gaman
og spennandi og öðru-
vísi en það sem við höf-
um verið að gera,“ segir
Sunna Margrét Þórisdóttir,
söngkona hljómsveitarinnar
Bloodgroup en sveitin er ný-
komin heim frá Kína þar sem
hún spilaði á tveimur stórum
tónlistarhátíðum. Sunna seg-
ir Kínverja hafa tekið vel á
móti þeim. „Þetta gekk rosa-
lega vel og fólk var að fíla tón-
listina. Við hittum líka fólk
sem þekkti til okkar og vissi
hver við erum,“ segir Sunna
en á fyrri tónlistarhátíðinni
voru allt að 50 þúsund áhorf-
endur.
Bloodgroup kom til lands-
ins á föstudaginn og spilaði á
Græna Hattinum á Akureyri
á laugardagskvöldið. Næst er
förinni heitið til Egilsstaða og
svo er það Iceland Airwaves.
Það er tvennt ólíkt að spila á
Akureyri eða Pekíng en bæði
jafn skemmtilegt. Hér heima
þekkir maður oftast stóran
hluta af „krádinu“ og það ger-
ir það að sjálfsögðu öðruvísi.“
Hljómsveitarmeðlimir
fengu tækifæri til að skoða sig
um í Kína í ferðalaginu. „Við
vorum túristar í einn dag sem
var mjög gaman. Annars spil-
uðum við undir Kínamúrn-
um á fyrra festivalinu. Við fór-
um ekki upp á hann en sáum
hann á meðan við vorum að
spila sem var mjög sérstakt.“
Aðspurð segist hún aldrei
hafa getað ímyndað sér að
sveitin ætti eftir að spila á
svo stórum tónlistarhátíð-
um í Kína en þau hafa áður
spilað á stórum hátíðum
víða um heiminn. „Annars
hefur þetta allt gengið mjög
vel, alveg síðan ég byrjaði í
sveitinni. Þetta er allt svaka-
lega spennandi og alltaf jafn
ótrúlega skemmtilegt. Ég bíð
bara spennt að sjá hvað gerist
næst, það er fullt framundan.“
Ú
t er komin Reykja-
vík Rocks. Bókin er
hugsuð sem tilval-
in landkynning fyr-
ir ferðamenn sem
sækja landið heim. Eða Ís-
lendinga sem vilja koma
færandi hendi til erlendra
vina. En það er ekki íslenskt
landslag og sveitarómantík
sem einkennir þessa bók.
Hún fjallar um Reykjavík
og nálgunin er harðkjarna
– djamm, hassreykingar,
kaldhæðni og stundum
skemmtileg ósvífni, pabba-
helgar, þorramatur auk alls
kyns skemmtilegs fróðleiks
um landið sem vanalega
er ekki að finna í virðulegri
landkynningarritum.
Bjórblautur Jón Ásgeir
Bak bókarinnar hefur strax
vakið mikla athygli. Á henni
er, að sögn ritstjóra bókarinn-
ar Siggeirs Hafsteinssonar, Jón
Ásgeir Jóhannesson að fá yfir
sig bjórgusur á Boston.
Myndin er sögð hafa verið
tekin kvöld eitt í maí á þessu
ári á Boston þegar Margrét Vil-
hjálmsdóttir leikkona skvetti
úr hvítvínsglasi yfir Jón Ásgeir.
Jón Ásgeir fékk ekki bara þetta
eina hvítvíns glas yfir sig. Yfir
hann gengu bjórgusur og ljós-
myndarinn Björn Loki Björns-
son var á staðnum og náði at-
vikinu á filmu. „Það er bara
snilld að einhver hafi hellt yfir
hann víni. Bókin á samt ekki að
særa neinn, hún er ekki gerð í
þeim tilgangi,“ segir Siggeir.
Mynd tekin í hita leiksins
Óskar Hallgrímsson ljósmynd-
ari hefur yfirumsjón með ljós-
myndum bókarinnar og segist
hafa verið á staðnum ásamt
ljósmyndaranum sjálfum, Birni
Loka Björnssyni.
Blaðamaður spyr hvort það
geti verið að þeir hafi sjálfir hellt
bjórnum á Jón Ásgeir vegna
þess að þeir misstu af því þegar
hvítvíninu var skvett. Óskar hlær
og segir að kannski hafi sitthvað
gerst í hita leiksins sem þeir
muni ekki almennilega eftir.
Björn Loki ljósmyndari vildi
lítið segja um efni myndarinnar
annað en að myndin hafi verið
tekin sama kvöld og Jón Ásgeir
fékk yfir sig kampavín, bjór og
ýmsa aðra drykki á Boston.
Bækur verðmætari en
bankabækur
Hallgrímur Helgason, Örn
Úlfar Sævarson, Jón Atli Jón-
asson og Baldur Ingi Bald-
ursson semja texta bókar-
innar. Hallgrímur Helgason
er staddur á bókamessu í
Frankfurt þegar blaðamaður
nær tali af honum og segir
frá því að texti bókarinnar
sé unnin upp úr gamalli
grein sem hann hafi skrifað.
„Greinin var skrifuð fyrir
hrun í þeim tilgangi að lokka
hingað til lands MTV Music
Awards. Það gekk ekki eftir
en úr varð þessi bók. Text-
inn var svo uppfærður og þá
komu að bókinni fleiri höf-
undar.“
En finnst Hallgrími text-
inn eiga við eftir hrun? Að Ís-
lendingar séu töff og öðru-
vísi? „Já, jafnvel enn meira
nú en áður. Ég verð var við
það hér í Þýskalandi að það
er menningin sem vekur at-
hygli, íslenskir rithöfundar
eru í sviðsljósinu og menn-
ingin. Sérstaklega núna, þeg-
ar bækur eru verðmætari en
bankabækur.“
Killa Hill-samstaða
Myndin af Jóni Ásgeiri er
þó ekki sú mynd sem hefur
vakið mesta lukku. Mynd úr
Fellahverfi í Breiðholti hefur
farið eins og eldur í sinu um
netsamfélagið og jafnvel hafa
verið stofnaðir sérstakir hóp-
ar um myndina. Ritstjórinn
segist sérlega ánægður með
vinsældirnar enda er hann
sjálfur alinn upp í Breiðholt-
inu. Fyrirsögn myndarinnar
er: „You can take a person
out of Breiðholt but you can
never take Breiðholt out of a
person“, og þá er haft á orði
að það sé ekki góð hugmynd
að rugla í Breiðhyltingum.
„Það er rétt. Breiðhylt-
ingar hafa dreift myndinni
og sýna samstöðu. Killa Hill
samstaða.“ En það eru ekki
allir sannir Breiðhylting-
ar vill Siggeir meina. „Ef þú
bjóst í Seljahverfi getur þú
alveg eins hafa búið í Kópa-
vogi. Og Neðra-Breiðholt er
bara sætt sýnishorn af Breið-
holti. Fellararnir eru verstir.“
kristjana@dv.is
n Ljósmyndabókin Reykjavík Rocks vekur athygli n Bjórblautur Jón Ásgeir á baki
bókarinnar n Öðruvísi landkynning n Vinsælasta myndin af blokk í Fellahverfi
Killa Hill-samstaða
Sunna er söngkona Bloodgroup
Sunna segist bíða spennt eftir næstu
ævintýrum hljómsveitarinnar.
Airwaves í Norræna húsinu
INNI sýnd í
Norræna
húsinu
Norræna húsið hefur boðið
upp á þétta tónleikadag-
skrá í tengslum við Iceland
Airwaves síðan 2007. Dag-
skráin er skipulögð í samstarfi
við hátíðina og eru norræn
bönd í fókus líkt og fyrri ár.
Ilmur Gísladóttir, verkefna-
stjóri í Norræna húsinu, segir
að í ár hafi þeim borist tugir
umsókna frá íslenskum bönd-
um um að fá að spila og færri
hafi komist að en vildu. Í ár
verða haldnir 17 tónleikar og
2 kvikmyndasýningar. Ólafur
Arnalds, Hjaltalín og Pétur
Ben munu koma fram. Ilmur
færir einnig aðdáendum Sigur
Rósar þær góðu fregnir að
á sunnudaginn verður sýnd
ný mynd hljómsveitarinnar
Sigur Rósar, INNI. Aðgangur
er ókeypis og myndin verður
sýnd klukkan 14.00.
Styrkja Fjöl-
skylduhjálp
Íslands
Lokasýning á Zombíljóðunum
verður næstkomandi föstudag.
Það kostar ekkert inn á sýn-
inguna en tekið verður á móti
frjálsum framlögum til Fjöl-
skylduhjálpar Íslands. Verkið
fjallar meðal annars um það
hvort manneskjan hafi fórnað
mennskunni fyrir tilveru án
sársauka og meginspurning
verksins fjallar um það hvort
við finnum minna til með
öðrum en áður. Það er því ef til
vill viðeigandi að efna til sam-
hjálpar með þessu móti en
Fjölskylduhjálp Íslands starfar
í þágu kvenna, karla og barna
í neyð. Til þeirra leita öryrkjar,
atvinnulausir, einstæðar mæð-
ur og feður, eldri borgarar, fá-
tækar fjölskyldur og einstæð-
ingar.
Grímur Atlason
Mælir með
Bækur Þórbergs
í uppáhaldi
„Ég ætla að
hafa þetta
mjög einfalt.
Ég mæli með
þrennu:
1. Megasi
2. Öllum bók-
um Þórbergs
Þórðarsonar
3. Bænum
Raufarhöfn.
Fallegasta
bæ lands-
ins.“
Killa Hill „You can take a person out of Breiðholt but you cant take Breiðholt out of a person.“
Bjórblautur Jón Ásgeir á baki
bókarinnar Myndin hefur vakið
mikla athygli og var tekin á Boston í
maí á þessu ári þegar gestir á Boston
létu Jón Ásgeir fá það óþvegið.
Vinsæl bók Mynd úr Fellahverfi í Breiðholti
hefur farið eins og eldur í sinu um netsamfélagið.
Ritstjórinn, Siggeir Hafsteinsson segist sérlega
ánægður með vinsældirnar enda er hann sjálfur
alinn upp í Breiðholtinu. Guðlaugur Guðmundsson
útgefandi er líka kampakátur með viðtökurnar.