Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2011, Page 20
20 | Sport 12. október 2011 Miðvikudagur
E
ftir umdeilt atvik í F1-
kappakstrinum í Singapúr
þar sem Lewis Hamilton
keyrði aftan á Felipe Massa
mættust þeir aftur í brautinni í
Japan á sunnudaginn þegar Se-
bastian Vettel varð heimsmeist-
ari. Í Singapúr tókust þeir á í
tímatökum og eftir áreksturinn í
keppninni klappaði Massa kald-
hæðnislega fyrir Hamilton, aug-
ljóslega ekki sáttur.
Hamilton var refsað fyrir það
atvik með því að vera skikkaður
til að aka í gegnum þjónustu-
svæðið. Þeir mættust svo aftur í
brautinni í Japan en á 22. hring í
baráttunni um fjórða sætið rák-
ust bílar þeirra saman. Hvorug-
um var þó refsað fyrir það atvik.
Eftir keppnina sagði Ha-
milton að hann hefði ekki séð
Massa en Brasilíumaðurinn
var ekki á sama máli. „Mér er
alveg sama hvað Hamilton
sagði ef ég á að vera heiðarleg-
ur. Það eina sem skiptir máli er
það sem hann gerði. Hann var
alltof hægur og hélt sig hægra
megin við mig. Ég var mun
fljótari þannig að þegar ég fór
yfir vinstra megin og brems-
aði þar færði hann sig um stað
á brautinni og snerti minn bíl.
Það er ekkert meira um þetta
að segja. Mér er alveg sama
hvað hann segir, það skiptir
bara máli hvað Alþjóða akst-
ursíþróttasambandið segir,“
segir Massa.
Hamilton hefur verið mjög
umdeildur í ár og lent í mörg-
um árekstrum og þurft að taka
út mörg víti. Massa vill að Al-
þjóða akstursíþróttasamband-
ið, FIA, fari að taka á þessu.
„Það er búið að refsa Hamilton
og öðrum fyrir mun minna en
hann gerði í Japan. Þetta er líka í
annað skiptið í röð sem hann er
að keyra inn í mig. Hann er bú-
inn að vera að þessu allt tíma-
bilið. FIA verður að fara að taka
á þessu,“ segir Felipe Massa.
Vill að tekið verði á Hamilton
n Keyrði á Brasilíumanninn í tveimur keppnum í röð
Þreyttur á Hamilton
Massa er ósáttur við fyrrverandi
heimsmeistarann.
Stefnir á
þriðja sæti
Bretinn Andy Murray hefur sett
stefnuna á þriðja sæti heims-
listans og ætlar þar að komast
upp fyrir Sviss-
lendinginn
Roger Fede-
rer. Murray er
fullur sjálfs-
trausts eftir að
hafa valtað yfir
efsta mann
heimslistans, Rafael Nadal,
í úrslitaleik opna japanska
mótsins um síðastliðna helgi.
Murray, sem er eina von Breta
í tennis, á enn eftir að vinna
risamót en hann strandar ávallt
á þremur bestu tennisköpp-
um heims, Federer, Nadal og
Serbanum Novak Djokovic.
Murray er sem stendur í fjórða
sæti heimslistans, 500 stigum á
eftir Federer.
Arsenal
býðst
Vargas
Ítalska efstu deildar liðið Fior-
entina er tilbúið að skoða til-
boð í perúska vængmanninn
Juan Manuel Vargas í janúar.
Arsenal, sem reyndi að landa
honum í sumar, gæti boðist
hann í janúar á tólf milljónir
punda. Þegar Arsenal reyndi
að næla í Vargas í sumar vildi
Fiorentina ekki hlusta á tilboð
í hann og keypti Lundúnalið-
ið því brasilíska bakvörðinn
Andre Santos frá Fenerbache í
staðinn. Vargas hefur ekki far-
ið nægilega vel af stað í ítölsku
A-deildinni í vetur og er Fio-
rentina því tilbúið að selja
kappann sem virðist ekki vera
nægilega sáttur eftir að hafa
ekki fengið að fara í sumar.
Real gæti
bjargað Tevez
Spænski fótboltarisinn Real
Madrid ætlar að bjarga Car-
los Tevez frá Manchester
City samkvæmt breska götu-
blaðinu Mirror. Tevez mun
ekki spila fleiri leiki fyrir City
eftir að hafa neitað að koma
inn á í Meistaradeildarleik
gegn FC Bayern og er nú í
tveggja vikna straffi. City vill
fá 35 milljónir punda fyrir Te-
vez en Jose Mourinho, stjóri
Real, er sagður áhugasamur
um að landa Argentínumann-
inum. Tevez mun þó þurfa að
sætta sig við launaskerðingu
því Real ætlar ekki að borga
honum þau 250.000 pund
sem hann hefur í vikulaun hjá
Manchester City.
I
celand Express-deildin
í körfubolta hefst á mið-
vikudagskvöldið þegar
konurnar ríða á vaðið.
Karlaboltinn rúllar svo
að stað á fimmtudagskvöldið
þar sem tveir afar áhugaverð-
ir leikir fara fram. Benedikt
Guðmundsson mætir með
sína drengi í Þór úr Þorláks-
höfn á sinn gamla heimavöll,
DHL-höllina, og mætir þar Ís-
landsmeisturum KR. Bene-
dikt gerði KR tvívegis að Ís-
landsmeisturum, árin 2007
og 2009. Þá mætast einnig
Grindavík og Keflavík í sann-
kölluðum Suðurnesjaslag í
Röstinni í Grindavík. Grinda-
vík hefur styrkt sig mikið fyrir
tímabilið, fengið Sigurð Þor-
steinsson, miðherjann öfluga
frá Keflavík, og Jóhann Árna
Ólafsson frá Njarðvík. Bjugg-
ust margir við að Grindavík
yrði spáð titlinum í árlegri spá
þjálfara, fyrirliða og forráða-
manna liðanna. Íslandsmeist-
urum KR er þó spáð titlinum,
Grindavík öðru sæti og Stjarn-
an aðeins stigi á eftir þeim
gulu. Hjá konunum er Kefla-
vík spáð Íslandsmeistaratitl-
inum en liðið varð tvöfaldur
meistari í fyrra. KR, sem valt-
aði yfir Keflavík í úrslitaleik
Lengjubikarsins á sunnudag-
inn, er spáð öðru sætinu.
Stórveldi spáð falli
Það brá mörgum við að sjá
stórveldinu úr Njarðvík spáð
11. sæti og þar með falli.
Njarðvík hefur unnið Íslands-
meistaratitilinn oftast allra
liða eða þrettán sinnum og
alla þrettán á síðustu 30 árum.
Síðast var liðið meistari 2006
og lék svo til úrslita árið 2007.
Njarðvík hefur þó verið í nokk-
urri lægt og var lengi vel í falls-
æti á síðasta tímabili. Það var
áður en liðið réð Einar Árna
Jóhannsson og Friðrik Ragn-
arsson sem þjálfara og styrkti
sig með útlendingum. Það
kom Njarðvík í úrslitakeppn-
ina þar sem liðið tapaði svo
gegn KR í tveimur leikjum.
Miklar mannabreytingar
hafa verið hjá Njarðvíkurlið-
inu núna og hefur það misst
marga leikmenn. Erlendu
leikmennirnir þrír sem léku
með liðinu í fyrra komu ekki
aftur og þá lögðu þeir Brenton
Birmingham, Friðrik Stefáns-
son og Páll Kristinsson allir
skóna á hilluna. Guðmundur
Jónsson gekk í raðir Þórs frá
Þorlákshöfn, Jóhann Árni
Ólafsson fór til Grindavíkur og
þá er hinn risavaxni Egill Jóns-
son hættur hjá liðinu sem og
Kristján Sigurðsson. Njarðvík
teflir því fram ungu og breyttu
liði í ár en það hefur þó styrkt
sig með tveimur bandarískum
leikmönnum.
Mæta nýliðunum
Fyrsta umferðin í Iceland Ex-
press-deild karla verður leik-
in á fimmtudag og föstudag.
Á fimmtudagskvöldið mæt-
ir Grindavík Keflavík, nýlið-
ar Þórs frá Þorlákshöfn sækja
Íslandsmeistara KR heim í
DHL-höllina og Fjölnir tekur á
móti ÍR en þeim liðum er spáð
níunda og sjötta sæti. Á föstu-
dagskvöldið sækir Njarðvík
svo heim nýliða Vals sem eru
aftur að spila með þeim bestu
eftir smá hlé. Valsmönnum
er spáð falli úr deildinni og
það nokkuð örugglega. Sama
kvöld taka Haukar á móti
Snæfelli og Stjarnan sækir
Tindastól heim. Allir leikirnir
hefjast klukkan 19.15.
Njarðvík spáð falli
n Iceland Express-deildin í körfubolta hefst á fimmtudaginn n KR og Keflavík verja
Íslandsmeistaratitla ef marka má spána n Sigursælasta liðinu spáð falli niður um deild
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Körfubolti
Iceland Express-deild
karla
1. KR 395 stig
2. Grindavík 374
3. Stjarnan 373
4. Snæfell 328
5. Keflavík 293
6. ÍR 244
7. Þór Þ 169
8. Haukar 149
9. Fjölnir 145
10. Tindastóll 136
11. Njarðvík 134
12. Valur 71
Iceland Express-deild
kvenna
1. Keflavík 166 stig
2. KR 163
3.–4. Haukar 135
3.–4. Valur 135
5. Snæfell 90
6. UMFN 84
7. Hamar 54
8. Fjölnir 37
Spáin
Hvort á sínum endanum KR er
spáð Íslandsmeistaratitlinum og
Njarðvík er spáð falli. Mynd SIgRygguR ARI
Fer á sinn gamla heimavöll
Benedikt Guðmundsson og drengir
hans í Þór úr Þorlákshöfn mæta KR í
Vesturbænum. Mynd dAvÍð ÞóR