Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2012, Page 13
Erlent 13Mánudagur 16. janúar 2012
H
ópur starfsmanna raftækja-
framleiðandans Foxconn,
sem framleiðir meðal ann-
ars raftæki fyrir Microsoft,
hótaði að stökkva fram af byggingu
í síðustu viku. Starfsmenn fyrirtæk-
isins, sem breska blaðið The Daily
Telegraph tók tali, segja að óánægja
þeirra snúi meðal annars að því að
til stendur að flytja hluta starfs-
manna yfir á aðra framleiðslulínu
í verksmiðjunni. Áttu laun starfs-
manna að lækka samfara breyt-
ingunum, að því er CNN greinir
frá. Verksmiðjan sem um ræðir er í
borginni Wuhan í Kína.
Starfsmennirnir höfðu komið
sér fyrir á þaki verksmiðjunnar og
hótuðu þeir að stökkva niður ef af
breytingunum yrði. Myndir af mót-
mælum starfsmanna fóru sem eld-
ur í sinu um kínverskar umræðu-
síður. Eftir nokkrar klukkustundir á
þaki verksmiðjunnar ákváðu starfs-
mennirnir að fara stigaleiðina nið-
ur. Talsmaður Foxconn segir að 45
starfsmenn hafi sagt upp störfum
vegna málsins.
Foxconn komst í fréttirnar árið
2010 þegar fjöldi starfsmanna
framdi sjálfsvíg í verksmiðju fyrir-
tækisins í borginni Shenzhen. Í
kjölfarið hækkaði fyrirtækið laun
starfsmanna, sem oft eru ungir og
vinna langan vinnudag. Þá var bætt
úr öryggismálum í verksmiðjum
fyrirtækisins í Kína og fengu starfs-
menn að hitta ráðgjafa. Árið 2011
fækkaði sjálfsvígum meðal starfs-
manna Foxconn sem gaf vísbend-
ingu um að aðferðir fyrirtækisins
hefðu dugað. Foxconn hefur 900
þúsund starfsmenn á sínum snær-
um í Kína, þar af starfa 420 þúsund
í borginni Shenzhen.
ÚTSALA
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
allt að 50%
afsláttur
Lín esi Laugavegi 1 í i 533 2220 www.lindesign.is
Hótuðu hópsjálfsmorði
n Starfsmenn Foxconn í Kína ósáttir
Foxconn Starfsmenn hafa kvartað undan
löngum vinnutíma og lélegum launum á
undanförnum árum. Mynd ReuteRS
n Fjölskylda á vonarvöl fær dóttur sína úrskurðaða látna n Blaðamaður reyndi að leiða grunaðan
í gildru n Joran van der Sloot myrti stúlku sama dag og natalee hvarf – fimm árum seinna
Hver urðu örlög
Natalee Holloway?
N
atalee Ann Holloway var í
vikunni úrskurðuð látin eft-
ir sjö ára árangurslausa leit
að henni. Natalee hvarf árið
2005 þegar hún var í ferða-
lagi á Aruba ásamt félögum sínum og
vinum úr menntaskóla. Hún hafði ný-
verið útskrifast úr menntaskóla og var
í útskriftarferð. Í kjölfar hvarfs henn-
ar varð mikið fjölmiðlafár í Banda-
ríkjunum þar sem rannsókn málsins
þótti ganga hægt og illa og var fólk
hvatt til þess að sniðganga Aruba og
ráðlagt að ferðast ekki þangað. Mað-
urinn sem er talinn hafa myrt hana
virðist aldrei verða ákærður.
Skilaði sér aldrei heim
Natalee, sem var 19 ára árið 2005, átti
að fljúga heim til sín eftir „skemmti-
legasta ferðalag allra tíma“ þann 30.
maí 2005. Hún skilaði sér aldrei í
flugið heim og mundu félagar henn-
ar eftir því að hafa séð hana kvöldið
áður með manni sem þau könnuðust
við frá Aruba, Joran van der Sloot og
tveimur öðrum mönnum, bræðrun-
um Deepak og Satish Kalpe.
Þegar lögregla hóf rannsókn á
hvarfi Natalee voru þeir þrír kallað-
ir til yfirheyrslu þar sem þeir sögð-
ust hafa skilið við hana við hótelið
hennar og kvatt hana. Þeir vissu ekk-
ert hvar hún væri. Mennirnir voru
allir handteknir þrisvar sinnum í
tengslum við rannsóknina, en þar
sem sönnunargögn voru ekki fyrir
hendi var þeim ávallt sleppt úr haldi.
Eftir mikinn þrýsting frá foreldrum
Natalee og bandarískum yfirvöldum
samþykktu yfirvöld á Aruba að leyfa
alríkislögreglunni, FBI, að taka þátt
í leitinni. Hundruð sjálfboðaliða og
lögreglumanna leituðu að Natalee í
marga mánuði bæði á sjó og landi,
en hún fannst aldrei. Í desember árið
2007 var ákveðið að hætta rannsókn
málsins í Aruba, enda lítil sem engin
sönnunargögn fyrirliggjandi í mál-
inu.
Viðurkenndi glæpi í vímu
En skjótt skipast veður í lofti og
árið 2008 barst lögreglu myndband
af manninum sem var einna helst
grunaður um að hafa verið viðriðinn
hvarf Natalee, Joran van der Sloot. Í
myndbandinu játaði hann að hafa
verið viðstaddur þegar Natalee lést.
Í myndbandinu er Joran augljóslega
undir áhrifum vímuefna en hann
mun hafa verið í kannabisvímu.
Hann segir þar að Natalee hafi látist
þann 30. maí 2005 og að það hafi ver-
ið hans ákvörðun að koma líki henn-
ar fyrir svo enginn fyndi hana. Þau
hafi verið að hafa samfarir á strönd-
inni, hún hafi fengið einhvers kon-
ar flog og dáið. Joran hafi því ákveð-
ið að losa sig við líkið í slagtogi við
annan mann. Þessi játning var tekin
upp án vitundar Jorans. Hún var síð-
ar notuð sem hluti af sjónvarpsþætt-
inum Pauw & Witteman, þar sem
hollenski blaðamaðurinn Peter R.
de Vries villti á sér heimildir til að ná
fram játningunni. Játningin var talin
vera gild fyrir dómstólum í Aruba, en
engu að síður ekki nægileg sönnun-
argögn til sakfellingar þar sem Joran
sagðist hafa verið að ljúga á mynd-
bandinu.
Stundaði mansal.
Því var engin lausn í máli Natalee í
sjónmáli. Joran flutti til Taílands og
var búsettur þar í nokkur ár og faldi
sig og notaði dulnefni. Blaðamaður-
inn Peter de Vries, sem er sannfærð-
ur um sekt Jorans, elti hann þang-
að og sýndi síðar myndband í þætti
sínum þar sem Joran sést undirbúa
mansal. Þá ætlaði hann að selja ung-
ar stúlkur frá Taílandi fyrir 1.300 doll-
ara hverja. Enn og aftur kom í ljós að
Joran var harðsvíraður glæpamað-
ur. Mansalssögusagnir komust aftur
í hámæli þegar Joran sagðist í við-
tali við bandarísku sjónvarpstöðina
FOX News að hann hefði selt Natalee
úr landi og að hún væri því fórnar-
lamb mansals. Hann dró þær yfirlýs-
ingar snarlega til baka eftir að viðtal-
ið við hann birtist. Hann var þó ekki
ákærður og ólíklegt þykir að hann
verði það nokkru sinni.
Úrskurðuð látin
Enn sem komið er veit enginn hvar
Natalee Holloway er niðurkomin og
enginn hefur verið ákærður í máli
hennar. Joran van der Sloot hefur hins
vegar verið sakfelldur fyrir morð á
ungri stúlku í Perú sem lést nákvæm-
lega fimm árum eftir dauða Natalee,
eða þann 30. maí 2010. Sá úrskurð-
ur var kveðinn upp 13. janúar 2012.
Hann hefur einnig verið ákærður fyrir
að reyna að kúga fé út úr aðilum sem
vildu fá upplýsingar um hvar Nata-
lee Holloway væri nú. Faðir Nata-
lee fór fram á það sumarið 2011 að
dóttir hans yrði formlega úrskurðuð
látin af dómstólum og var sú beiðni
samþykkt þann 12. janúar 2012, dag-
inn áður en Joran var sakfelldur fyrir
morðið í Perú. Faðir hennar vonast
til að málinu sé því lokið að fullu og
að fjölskyldan geti farið að jafna sig á
missinum og sorginni.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
Hvað varð um natalee? Natalee Holloway hvarf 30. maí 2005 og enginn veit hvar hún
er niðurkomin.
Sakfelldur Joran var ekki sakfelldur í máli
Natalee, en var sakfelldur fyrir að myrða
stúlku í Perú, sama dag en fimm árum eftir
að Natalee hvarf.