Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2012, Blaðsíða 14
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
algengt verð 240,3 kr. 252,7 kr.
algengt verð 240,1 kr 252,5 kr.
höfuðborgin 240,0 kr. 252,4 kr
algengt verð 240,3 kr. 252,7 kr.
algengt verð 242,4 kr. 252,8 kr.
Melabraut 240,1 kr. 252,5 kr.
14 Neytendur 16. janúar 2012 Mánudagur
Góð kaup
n Lofið fær Sportbúðin Krókhálsi
fyrir góða útsölu. „Undanfarna
daga hefur þar verið rýmingarsala
vegna þess að búðin er að flytja í
næsta hús. Afslátturinn er til fyrir-
myndar; flestar vörur eru á
hálfvirði, eða með 50 pró-
senta afslætti, og þjónustan
er góð. Þetta eru alvöru
tilboð og það er hægt
að gera góð kaup,“
segir lesandi sem
vildi koma lofinu á
framfæri.
Illa merkt
n Lastið fær bílastæðahúsið í Hörpu
en tónleikagestur sendi eftir-
farandi inn. „Ég fór á tónleika og
greiddi aðeins 2.900 krónur fyrir
þessa góðu tónleika. Veður var ekki
gott og ég ákvað að leggja bílnum
í bílastæðahúsinu. Ég bjóst við að
þurfa að greiða fyrir að leggja bíln-
um en hvorki ég né neinn annar úr
þeim fimm manna hópi sem ég var
með sá merkingar um greiðslur. Við
gengum því inn í húsið með gleði
og þakklæti fyrir Hörpu. Er tón-
leikum lauk gengum við út af tón-
leikunum tónsödd og glöð en þá
beið eftir okkur sektarmiði upp á
4.900 krónur á öllum
bílunum okkar. Það
mætti alveg vera bet-
ur merkt.“
DV leitaði til for-
svarsmanna bíla-
stæðahússins og náði tali af
Friðriki Sverrissyni, fram-
kvæmdastjóra 115 Security.
„Þetta er vel merkt hjá okkur
en við fengum auglýsingafyrirtæki
sem sérhæfir sig í merkingum fyrir
bílastæðahús til að merkja þetta
fyrir okkur. Þetta er merkt áður en
maður fer í rampann, það er skilti
neðst í rampanum þar sem er til-
kynning og gjaldskrá. Auk þess eru
merkingar á súlum, 6 gjaldmælar
og þegar það eru tónleikar þá fæ ég
4 auka menn til að vera í húsinu.
Við höfum fengið svona kvartanir
áður en ég held að fólk sé svolítið
að flýta sér þegar það fer á tónleika.
Það er þá kannski ekki að horfa
nógu vel í kringum sig,“ segir hann.
Aðspurður hvort þetta sé ekki tölu-
vert hærri sekt en þær sem maður
fær inni í bæ, segir Friðrik að svo
sé en á móti komi að þetta sé bíla-
geymsla þar sem er lýsing, öryggis-
verðir, myndavélakerfi og breiðari
stæði. Gjaldskráin sé þó svipuð og
inni í bæ. „Maður skilur samt að
fólk sé pirrað yfir því að fá svona
háar sektir en ef þú greiðir innan
þriggja daga þarftu að borga 2.900
krónur.“
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
G
ífurlegur munur er á mat-
vörum eftir verslunum en
í verðkönnun DV kemur
fram að tugprósenta mun er
að finna á hæsta og lægsta
verði nokkurra verslana. Svonefndar
klukkuverslanir eru með hæsta verð-
ið í öllum tilvikum og Bónus með
lægsta verðið. Þar má nefna að það
er 68,91 prósents munur á Solgryn-
haframjöli í 500 gramma pakkning-
um, dýrast í verslun 10–11 en ódýrast
í Nóatúni. Fyrirhugaðar verðhækk-
anir eru væntanlegar í janúar og
febrúar.
Óformleg könnun
Könnunin fór fram fimmtudaginn
12. janúar síðastliðinn en skoðað var
verð á nokkrum fyrirfram ákveðnum
vörum. Tekið skal fram að einungis
var farið í fimm verslanir á höfuð-
borgarsvæðinu og því um óformlega
könnun að ræða. Verslanirnar sem
um ræðir eru 10–11 í Glæsibæ, Nóa-
tún í Austurveri, Hagkaup, Víðir og
Bónus í Skeifunni og 11–11 á Laugar-
vegi. Tekið var niður verð á 13 vöru-
tegundum en í einu tilfelli var tekið
fram að um tilboðsverð væri að ræða
og var það á vatnsmelónum í Hag-
kaupi. Í einstaka verslunum er hægt
að fá ódýrari banana sem eru eldri
eða lakari og var ekki tekið tillit til
þess heldur tekið niður almennt verð
á ávextinum.
Eins og sjá má var munur á hæsta
og lægsta verði aldrei undir 31 pró-
senti. Það munar til dæmis 66,38
prósentum á verðinu á vatnsmelón-
um en kílóverðið á þeim er 699 krón-
ur í 10–11 en 235 krónur í Bónus. At-
hygli vekur að 10–11 var með hæsta
kílóverð í könnun sem verðlagseft-
irlit ASÍ framkvæmdi í október en
verðið hefur þó hækkað í þeirri versl-
un síðan þá.
Leiðandi í verði
„Við erum það sem kallast verðleið-
andi matvöruverslun og aðrar búðir
miða sig við okkur og fara undir okk-
ar verð. Þeir sem eru á svipuðu róli
og við eru 11–11 og bensínstöðvar.
Þú getur farið á veitingahús og borg-
að mun meira og þú getur farið í
Bónus og þá borgar þú mun minna.
Við erum í hærri endanum,“ segir
Árni Pétur Jónsson, forstjóri 10–11.
Hann segir að matvöruverð sé byrjað
að hækka og muni halda því áfram í
janúar og febrúar. „Við erum að fá á
okkur hækkanir frá birgjum og það
er í grunninn í næstum öllum vöru-
flokkum. Ég veit ekki nákvæmlega
hve mikið en ég býst við að þetta
verði um 5 til 8 prósenta hækkun að
jafnaði. Svo eru einstök dæmi um
vörur sem munu hækka um allt að 20
prósent.“ Hækkunin mun ná til all-
flestra vöruflokka en verslunin hefur
fengið tilkynningu um hækkanir frá
langflestum birgjum sínum.
Aðspurður um ástæðu þess að
10–11 sé iðulega með hæsta verðið
segir hann að verslanir 10–11 hafi
haft hærri rekstrarkostnað. Þrátt fyrir
að fleiri verslanakeðjur séu nú farnar
að bjóða upp á sólarhringsopnun þá
sé opið lengur í 10–11 á hátíðisdög-
um, svo sem aðfangadag og gaml-
ársdag. Þetta skili sér í hærri launa-
kostnaði og hærra vöruverði.
Spyrnum við fótum
„Framleiðendur og heildsalar hafa
boðað verðhækkanir í mjög mikl-
um mæli. Allt frá 3,5 prósentum upp
í 15 prósent og einstaka hafa boð-
að hækkanir upp á 25 til 35 prósent
á einstaka vöruliðum. Við munum
þó reyna að spyrna gegn þessu eins
og við mögulega getum,“ segir Guð-
mundur Marteinsson, framkvæmda-
stjóri Bónuss. Hann segir þetta ná til
allra vöruflokka og eitthvað af verð-
hækkunum sé farið að tínast inn.
Margar tilkynningar um hækkanir
miðist við 1. febrúar. „Það er þó ekki
víst að þær fari út í verðlagið og við
reynum að komast hjá því með því að
hagræða. Það er hræðileg blanda að
á sama tíma og kaupmáttarrýrnun er
um það bil 25 prósent, þá eru boð-
aðar verðhækkanir. Menn verða bara
að reyna að spyrna við fótum.“
Aðspurður um ástæðu þess að
Bónus sé iðulega með lægsta verðið
segir Guðmundur að Bónus leggi lít-
ið á vörur. „Við erum með lágmarks-
mannskap og við munum ekki fara út
í að lengja opnunartíma eins og aðrar
verslanir. Það þarf nefnilega að verð-
leggja vöruna fyrir þeim kostnaðar-
auka. Auk þess erum við stórir í inn-
kaupum, fáum lágt verð vegna mikils
magns og látum neytendur njóta þess
eins og við mögulega getum.“
Hann hvetur neytendur til að
vanda sig og leita að lægsta verð-
inu. „Ef fólki misbýður getur það
bara sniðgengið vöruna. Það er
sterkasta vopnið og neytendur hafa
valdið.“
„Verslanirnar
sem um ræðir eru
10–11 í Glæsibæ, Nóatún
í Austurveri, Hagkaup,
Víðir og Bónus í Skeifunni
og 11–11 á Laugavegi.
Verðhækkanir
eru yfirvofandi
n Mikill munur er á verði lágvöruverslana og klukkuverslana n Rúmlega 60% munur
á einstökum vörum n Verðhækkanir eru yfirvofandi á flestum vörum matvöruverslana
Verðkönnun
Könnunin var framkvæmd þann 12. janúar.
10–11 Nóatún Hagkaup Víðir Bónus 11–11
Kók 239 kr. 159 kr. 159 kr. 138 kr. * 199 kr. 42,26%
Solgryn-haframjöl 500 g 499 kr. 198 kr. 247 kr. 235 kr. * 269 kr. 60,32%
Weetabix * 517 kr. 217 kr. 495 kr. 479 kr. 698 kr. 68,91%
Bananar 499 kr/kg 369 kr/kg 379 kr/kg 368 kr/kg 239 kr/kg * 52,11%
Vatnsmelóna 699 kr/kg 279 kr/kg 245 kr/kg 389 kr/kg 235 kr/kg * 66,38%
Léttmjólk 169 kr. 110 kr. 110 kr. 108 kr. 108 kr. 139 kr. 36,09%
Gotti * 1.413 kr/kg 1.399 kr/kg 1.403 kr/kg 1279 kr/kg 1.510 kr/kg 15,30%
Heimilisbrauð 349 kr. 332 kr. 334 kr. 296 kr. 305 kr. 429 kr. 31,00%
Egils-malt 249 kr. 163 kr. 169 kr. 155 kr. 139 kr. 199 kr. 44,18%
Neutral Storvask 999 kr. 788 kr. 779 kr. 695 kr. 689 kr. 999 kr. 31,03%
SS-skinka pakki 539 kr. 499 kr. 494 kr. 289 kr. 459 kr. * 46,38%
Kornax-hveiti 2 kg 299 kr. 209 kr. 320 kr. 289 kr. 275 kr. 379 kr. 44,85%
Spergilkál 599 kr/kg 429 kr/kg 399 kr/kg 498 kr/kg 329 kr/kg * 45,08%
Aðrar verðhækkanir
Bensínlítrinn yfir 240 krónur
Mikil hækkun hefur verið á verði bensíns undanfarið og er bensínlítrinn
kominn í 240 krónur. Þetta er töluverð hækkun frá því fyrir ári en þá
var ódýrasti lítrinn á 209,20 krónur og er því um að ræða tæplega 13
prósenta hækkun frá því í byrjun árs 2010. Lægsta verðið föstudaginn 13.
janúar var hjá Orkunni en þar kostaði lítrinn 240,00 krónur en dýrasti lítrinn
var hjá Skeljungi á 242.40. Dísilolían er enn dýrari en kostar nú rúmar 252 krónur.
DV skoðaði verðþróun bensíns síðustu ára í sumar en þá var lítraverð aðeins hærra en í
dag og stóð í um það bil 242 krónum. Í þeirra umfjöllun kom fram að á tveimur árum hafði
bensínlítrinn hækkað um 40 prósent á tveimur árum. Þess var einnig getið að árið 2007
kostaði lítrinn 113 krónur og hafði hann því hækkað um 114 prósent síðan þá.
Leikskóli, dagvist og skólamáltíðir hækka
Verð fyrir skóladagvist í yngri bekkjum grunnskólanna og verð á skólamáltíðum hækkaði
víða um áramótin. Þá hækkaði gjald fyrir skóladagvist mest í Kópavogi en þar hækkaði
gjaldið um 35 prósent á milli ára. Í Reykjavík nam hækkunin 22 prósentum. Skólamáltíðin
hækkað einnig mest í Kópavogi eða um 25 prósent og um 20 prósent í Árborg.
Miklar hækkanir eru á gjaldskrám leikskóla á milli ára en verðlagseftirlit ASÍ kannaði
breytingar á gjaldskrám leikskóla. Mesta hækkunin á almennri gjaldskrá
fyrir átta tíma kennslu með fæði er hjá Reykjanesbæ um 16 prósent,
Hafnarfirði um 15 prósent og Reykjavík um 13 prósent. Það munar 40
prósentum á hæstu og lægstu gjaldskrá sveitarfélaganna. Hæsta
gjaldið er í Ísafjarðarbæ en þar kostar vistunin 34.342 krónur en 24.501
krónur í Reykjavík. Aðeins tvö sveitarfélög af 15 hafa ekki hækkað hjá
sér verðskrána síðan í fyrra, en það eru Ísafjarðabær og Seltjarnarnes-
kaupstaður.
Rafmagn og heitt vatn
Heitt vatn og rafmagn hefur einnig hækkað. Á síðu Hagstofunnar má
finna verðþróun ýmissa vörutegunda og þjónustu. Samkvæmt upp-
lýsingum þar hefur rafmagn sem höfuðborgarbúar greiða fyrir hækkað
um 21,74 prósent á tveimur árum. Á sama tíma hækkaði heitavatnsgjald í
Reykjavík um 32,74 prósent.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Verðhækkanir Boðaðar hafa verið
verðhækkanir og búast má við hærra
vöruverði í flestum vöruflokkum.
MYND GUNNAR GUNNARSSON