Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2012, Blaðsíða 6
6 Fréttir 30. janúar 2012 Mánudagur
Ný dagvist fyrir aldraða
n Tekin verða í notkun þrjátíu ný dagvistarúrræði fyrir aldraða
K
ópavogsbær og Sjómanna-
dagsráð Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðar, eigandi Hrafnistu-
heimilanna, hafa samið um
rekstur og starfsemi þjónustumið-
stöðvarinnar í Boðaþingi, sem meðal
annars felur í sér að tekin verða í notk-
un þrjátíu ný dagvistarúrræði fyrir
aldraða í Kópavogi. Í tilkynningu frá
Kópavogsbæ og Sjómannadagsráði
kemur fram að samningurinn létti
verulega á brýnni þörf fyrir dagvist í
bæjarfélaginu og gera megi ráð fyrir
að allt að níutíu manns geti nýtt sér
þjónustuna. Bæjarstjóri Kópavogs,
Guðrún Pálsdóttir, og Guðmundur
Hallvarðsson, formaður Sjómanna-
dagsráðs, undirrituðu samkomulagið
í Boðaþingi á föstudag
Samkomulagið felur í sér mikla
breytingu á þjónustu við aldraða í
bænum en fyrir hafa Kópavogsbúar
dagvistarúrræði í Sunnuhlíð. Dagvist-
un er eitt af þeim úrræðum sem boðið
er upp á til að fólk geti búið sem lengst
heima. Með slíku úrræði fá aldraðir
fjölbreytta þjónustu í formi heilsuefl-
ingar og afþreyingar. Það dregur jafn-
framt úr einangrun og örvar fólk bæði
félagslega og andlega.
Hrafnista mun annast rekstur
dagvistarrýmanna á annarri hæð
þjónustumiðstöðvarinnar í Boða-
þingi en Kópavogsbær mun eftir
sem áður greiða fastan kostnað af
mannvirkinu, viðhald, hita og raf-
magn. Þá tekur bærinn þátt í stofn-
kostnaði við dagvistunina til jafns á
við hjúkrunarheimilið. Í samkomu-
laginu er einnig kveðið á um að DAS
reki áfram, í eitt ár til viðbótar, sund-
laug fyrir eldri íbúa Kópavogsbæjar
í Boðaþingi en laugin var vígð í maí
í fyrra. Áætlað er að dagvistin taki
formlega til starfa á hlaupársdaginn
29. febrúar næstkomandi, og er þeim
bæjarbúum í Kópavogi sem hafa
áhuga á að nýta sér þjónustuna bent
á að hafa samband í síma 693 9506.
Útsala
30 - 70%
Falleg olíumálverk í úrvali
á einstökum verðum
Allt orginal málverk
Púðalaus kona
fékk bréf frá Jens
É
g varð bara hrædd fyrst,“ seg-
ir næringarráðgjafinn Guð-
rún Þóra Hjaltadóttir sem á
fimmtudag barst tilkynning
um að hennar biði ábyrgðar-
bréf á pósthúsi. Í ljós kom að þar var
bréf frá Jens Kjartanssyni lýtalækni
þar sem hann útskýrir PIP-brjóstap-
úðaskandalinn og hvetur hana til að
láta skoða fyllingar sem hún var sögð
hafa fengið í aðgerð árið 2008.
Aldrei farið í brjóstastækkun
Á þessu reyndist þó einn nokkuð stór
hængur. Guðrún Þóra kannast nefni-
lega ekkert við að hafa farið í brjósta-
stækkunaraðgerð. Hún er afar ósátt
og spyr sig hvernig bókhaldinu sé
háttað í þessum geira.
„Ég hef aldrei farið í brjóstaað-
gerð. Ég hef farið til Jens á stofu út af
fæðingarblettum og öðru en aldrei
út af brjóstum. Mér fannst þetta bara
sláandi því þú veist að það eru aldrei
nein gleðitíðindi í ábyrgðarbréfi,“
segir Guðrún í samtali við DV. En í
umræddu bréfi stóð orðrétt: „Ég vil
með þessu bréfi hvetja þig til að láta
skoða fyllingar þínar sem þú fékkst í
aðgerð árið 2008.“
Hvar er bókhaldið?
Þegar hún kom heim af pósthúsinu
beið hennar önnur tilkynning um
ábyrgðarbréf. Í þetta skipti reynd-
ist það frá velferðarráðuneytinu þar
sem úrræði vegna brjóstapúðanna
varasömu voru kynnt. Bullið með
meinta brjóstaaðgerð Guðrúnar var
því komið inn á borð hjá ráðuneyt-
inu líka.
„Það sem mér finnst verst, og það
sem mér finnst sláandi er: Hvar er
bókhaldið? Ég er búin að vera sjúk-
lingur alla mína ævi og ég yrði held-
ur betur hvumsa ef sykursýkislækn-
irinn minn hefði ekki betra bókhald.
Því þarna er um lækna að ræða og líf
geta verið að veði. Mér finnst þetta
allavega afar sjúskað bókhald og
vinnubrögð og það stuðar mig mest.“
Guðrún segir dóttur sína hafa
látið Jens fjarlægja ör fyrir nokkrum
árum og hún hafi einnig spurt sig
hvort hún ætti von á að fá svona bréf.
Guðrún ímyndar sér að þarna hafi
bara verið send bréf upp úr spjald-
skrá án þess að fyrir því væri fótur.
Hún kveðst þekkja Jens, hún heilsi
honum úti á götu og þyki því skrýtið
að hafa verið á þessum lista.
Ekki traustvekjandi
Einhverjir gætu hugsað með sér við
að lesa þetta að betra væri fyrir Jens
og aðra lýtalækna sem notuðu PIP-
púðana að senda fleiri bréf en færri.
En það sem Guðrún og fleiri hljóta
að spyrja sig er hvort Jens og kolleg-
ar hans séu hreinlega með nákvæm-
ar skrár yfir þær aðgerðir sem þeir
framkvæmdu og þá viðskiptavini sem
keyptu þessa þjónustu af þeim. „Mað-
ur spyr sig hvort þetta sé svona víðar
í heilbrigðiskerfinu. Mér finnst þetta
ekki traustvekjandi,“ segir Guðrún
sem ætlar að koma athugasemdum
sínum til þeirra er málið varðar.
„Ég er staðráðin í því að senda
landlækni bréf og hafa samband við
Guðbjart Hannesson velferðarráð-
herra. Mér finnst að þeir þurfi að vita
af þessu. Nú er ég til dæmis komin í
einhvern hóp í ráðuneytinu sem ég
kæri mig ekkert um að vera í.“
En Guðrún nær þó að líta á björtu
hliðarnar á málinu og kveðst hafa
sagt frá bréfunum sem henni bárust
á vinnustað sínum. „Og þeir segjast
vera komnir með skemmtiatriði fyrir
þorrablótið,“ segir hin PIP-púðalausa
Guðrún Þóra að lokum.
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
n Hvött til að láta skoða fyllingar sem hún átti að hafa fengið árið 2008„Ég hef aldrei farið í
brjóstaaðgerð.
Ósátt Guðrún Þóra
er hér með bréfin sem
hún fékk frá Jens og
frá velferðarráðuneyt-
inu. Mynd: PrEssPHoTos.biz
samningur undirritaður Forsvarsmenn
Kópavogsbæjar og Sjómannadagsráðs
Reykjavíkur undirrita hér samninginn.
Jökulhlaup
úr Gígjukvísl
Vatnshæð og leiðni í Gígjukvísl
á Skeiðarársandi hækkaði tals-
vert á laugardag og er talið líklegt
að hlaupið hafi úr Grímsvötnum,
samkvæmt upplýsingum frá Eftir-
lits- og spásviði Veðurstofu Íslands.
Vatnið í ánni er dökkt að lit og
einnig fannst brennisteinslykt við
brúna síðdegis á laugardag. Mæl-
ingar sem þá voru gerðar sýndu
ekki mjög mikla hækkun á vatns-
hæð en líklegt er að áin hafi grafið
sig niður og því gæti vatnshæðin
verið meiri. Talsverður ís var einnig
í ánni.
Hagnaður
hjá Nexus
Rekstur afþreyingarverslunar-
innar Nexus við Hverfisgötu
virðist ganga vel, en samkvæmt
ársreikningi félagsins sem rekur
verslunina, Nexus afþreying
ehf., skilaði það 1,2 milljóna
króna hagnaði árið 2010. Árið
2009 var hagnaðurinn 3,2 millj-
ónir króna. Frá þessu greindi
Viðskiptablaðið um helgina. Í
verslun Nexus er meðal annars
að finna teiknimyndasögur, spil,
kvikmyndir og leikföng. Sam-
kvæmt frétt Viðskiptablaðsins
námu rekstrartekjur 135,3 millj-
ónum króna árið 2010 og voru
eignir félagsins í árslok 40,2
milljónir króna.
Verðbólga í
kjölfar hækkana
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi-
tala neysluverðs hækkað um 6,5
prósent og vísitalan án húsnæðis
um 5,7 prósent. Undanfarna þrjá
mánuði hefur vísitalan hækkað
um 0,7 prósent sem jafngildir 2,6
prósenta verðbólgu á ári. Þetta
kemur fram í nýjum tölum Hag-
stofunnar. Vísitala neysluverðs
miðuð við verðlag í janúar hækk-
aði um 0,28 prósent frá fyrra mán-
uði. Án húsnæðis hækkaði hún um
0,05 prósent frá desember. Sam-
kvæmt upplýsingum Hagstofu Ís-
lands voru vísitöluáhrif af hækkun
opinberra gjalda á áfengi, tóbak og
bílaeldsneyti 0,16 prósent.