Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2012, Síða 8
M
ig langar til að koma heim
en ég þori ekki með Ellu
Dís heim,“segir Ragna Er-
lendsdóttir, móðir Ellu
Dísar. „Við erum í stríði
núna. Þeir eru búnir að lýsa yfir stríði
og ég sé þetta sem stríð,“ bætir hún
við. Með „þeir“ á hún við yfirvöld og
þá barnalækna sem annast hafa Ellu
Dís.
Ragna er stödd í Bretlandi, en yf-
irvöld þar í landi sviptu hana forræð-
inu yfir dóttur sinni að hluta í síðustu
viku.
Hittir Ellu undir eftirliti
Ragna segist ekki hafa haft neitt í
höndunum þegar hún mætti í dóms-
sal. Henni var gert að velja á milli
tveggja afarkosta; að missa forræðið
alveg yfir Ellu Dís eða samþykkja að
missa forræðið að hluta og fá að hitta
hana undir eftirliti. Hún valdi síðari
kostinn. „Þetta voru tveir leiðinleg-
ir valkostir en þetta gildir bara í tvo
mánuði. Ég hef því tíma til að redda
mér pening og húsnæði og tækifæri
til að undirbúa málið mitt.“
Eins og staðan er í dag má Ragna
aðeins hitta dóttur sína undir eftirliti
lækna eða hjúkrunarfræðinga á spít-
alanum. Þá hafa læknar, í samstarfi
við barnaverndaryfirvöld í Bret-
landi, nú læknisfræðilegt forræði yfir
Ellu Dís. Ragna hefur þó andmæla-
rétt og ef hún er ósátt við ákvarðan-
ir læknanna getur hún óskað eftir að
dómari taki lokaákvörðun.
Of vel að sér í læknisfræði
Samkvæmt þeim upplýsingum sem
Ragna fær frá lögfræðingi sínum í
Bretlandi eru barnaverndaryfirvöld
að afla sér upplýsinga um hvort hún
gæti verið með sjúkdóminn Münc-
hausen by proxy. Sem gengur út á að
foreldri ýkir, skáldar, eða veldur veik-
indum barns síns.
Aðspurð hvers vegna hún telji það
vera til skoðunar segir Ragna aðal-
lega tvo þætti skýra það.
„Af því Ella Dís var ósjúkdóms-
greind í svo langan tíma og hrörn-
aði svo mjög hratt. Svo héldu þau
fyrst að ég hefði verið í læknisfræði
því ég er mjög vel að mér um þetta
allt. Þau telja að af því ég er svo vel
að mér í læknisfræði hafi ég gert Ellu
Dís veika.“
Einkenni Münchausen by proxy
Að barn bregðist illa við læknismeð-
ferð og að foreldri virðist óeðlilega
heillað eða vel að sér í læknisfræði
eru einmitt tveir af fjölmörgum þátt-
um sem litið er til þegar grunur leik-
ur á Münchausen by proxy. Önnur
einkenni eru meðal annars: þörf for-
eldris fyrir mikla og stöðuga athygli,
reiði í garð lækna, kröfur um frekari
rannsóknir og aðgerðir, tilfærslur
á milli sjúkrastofnana og sífelldar
beiðnir um álit annarra lækna.
Ragna segir barnaverndaryfirvöld
þó ekki hafa nein sönnunargögn í
höndunum heldur sé mál þeirra ein-
göngu byggt á getgátum. Hún seg-
ist ekki hafa átt annarra kosta völ en
að lesa sér til um ýmsa sjúkdóma og
rannsóknir í læknisfræði vegna veik-
inda Ellu Dísar. Þá treystir hún ekki
læknum á Barnaspítala Hringsins og
segist því hafa þurft að fara úr landi
til að fá álit annarra lækna.
Ætlar ekki að þegja
Fyrir utan Ellu Dís á Ragna tvær aðr-
ar dætur sem staddar eru á Íslandi
hjá móður Rögnu, ásamt föður sín-
um. Íslensk barnaverndaryfirvöld
hafa þeirra mál á sinni könnu og eru
í samstarfi við yfirvöld í Bretlandi.
Lögmenn Rögnu hafa beðið
hana um að halda sér til hlés og
tala ekki við fjölmiðla en hún segist
ekki ætla að hlusta á það. Hún seg-
ist ekki geta þagað á meðan yfirvöld
sýni henni slíka valdníðslu. Eigi að
þagga niður í henni verði að setja á
hana fjölmiðlabann með dómsúr-
skurði.
Óttast að missa börnin
Ragna óttast að missa dætur sínar. Þó
ekki af því hún telji yfirvöld hafa ein-
hver haldbær gögn sem sýni að hún
sé óhæf móðir, heldur vegna þess
hve staða barnaverndaryfirvalda er
sterk.
Hún segist skilja vel að bresk yfir-
völd taki harðar á málum eftir „Baby
P“-málið sem kom upp árið 2007.
Þar lést 17 mánaða drengur eftir að
hafa verið misþyrmt ítrekað af móð-
ur sinni og kærasta hennar í langan
tíma. Læknar höfðu margoft með-
höndlað hann og barnaverndaryfir-
völd eru talin hafa brugðist skelfi-
lega.
Hún fullyrðir þó að yfirvöld fari
offari í hennar máli. Hún hafi gert
allt fyrir dætur sínar og steypt sér
í miklar skuldir vegna læknismeð-
ferða Ellu Dísar.
„Ég á ekki annarra kosta völ en
að berjast og sjá þetta mál lenda.
Klára þetta mál í eitt skipti fyrir öll og
hreinsa mannorð mitt,“ segir Ragna
að lokum.
8 Fréttir 30. janúar 2012 Mánudagur
Fleiri stunda nám en áður
n Félagsfræðabraut orðin vinsælli en náttúrufræðibraut
H
austið 2011 voru skráðir
nemendur á framhalds- og
háskólastigi 48.723. Á fram-
halds- og viðbótarstigi voru
skráðir 29.389 nemendur og 19.334
nemendur á háskóla- og doktors-
stigi. Skráðum nemendum fjölgar
um 3,1 prósent frá fyrra ári og með
þeirri fjölgun er sú fækkun sem varð
árið áður að mestu gengin til baka.
Þetta kemur fram í nýjum upplýs-
ingum sem birtar eru á vef Hagstofu
Íslands.
Þar segir að að skráðum nem-
endum á framhalds- og viðbótar-
stigi fjölgi um tæp 5 prósent og
nemendum á háskóla- og doktors-
stigi um tæpt 1 prósent.
Fjölmennasta einstaka náms-
brautin er félagsfræðabraut til stúd-
entsprófs og hefur hún tekið við af
náttúrufræðibraut sem vinsælasta
námsbrautin. Á þessa námsbraut
eru skráðir 5.494 nemendur. Næst-
fjölmennasta námsbrautin er nátt-
úrufræðibraut til stúdentsprófs
með 5.377 nemendur. Þriðja fjöl-
mennasta brautin er almenn náms-
braut en þar eru skráðir til náms
4.804 nemendur. Þessar þrjár náms-
brautir eru langfjölmennustu náms-
brautirnar í íslenskum skólum ofan
grunnskóla.
Konur voru umtalsvert fleiri en
karlar meðal skráðra nemenda, eða
5.709 fleiri. Alls stunduðu 27.216
konur nám í framhaldsskólum og
háskólum á móti 21.507 körlum.
Konur eru 55,9 prósent nemenda á
öllum skólastigum ofan grunnskóla
en hlutur karla er 44,1 prósent.
Á háskóla- og doktorsstigi eru
konur fleiri en karlar á öllum svið-
um menntunar nema á sviði raun-
vísinda, stærðfræði og tölvunarfræði
sem og í verkfræði, framleiðslu og
mannvirkjagerð. Hlutfallslega eru
konur flestar á sviði heilbrigðis og
velferðar en þar eru þær 86,6% nem-
enda. Á sviði verkfræði, framleiðslu
og mannvirkjagerðar eru konur hlut-
fallslega fæstar, eða 31,8% nemenda.
Kletthálsi 7 - Reykjavík
Fuglavík 18 - Reykjanesbæ
Furuvöllum 15 - Akureyri
Pallettu
tjakkur
EP Pallettu-tjakkur
2 tonna lyftigeta
31.990,-
Nemendum fjölgar Skráðum nemendum á framhalds- og háskólastigi fjölgaði um 3,1
prósent síðasta haust.
n Yfirvöld telja Rögnu óeðlilega vel að sér í læknisfræði
„Við erum í
stríði núna“
„Þau telja að af því
ég er svo vel að
mér í læknisfræði hafi ég
gert Ellu Dís veika.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Erfið barátta „Ég á ekki annarra kosta völ en að berjast og sjá þetta mál lenda. Klára þetta
mál í eitt skipti fyrir öll og hreinsa mannorð mitt,“ segir Ragna meðal annars í samtali við DV.
Ók fram af
snjóhengju
Björgunarsveitin á Hvammstanga
var kölluð út á fjórða tímanum á
laugardag þegar tilkynning barst
um slasaðan vélsleðamann. Hafði
hann ekið fram af snjóhengju í
suðurhluta Vatnsnesfjalls fyrir
ofan Hvammstanga. Svo vel vildi
til að meðlimir björgunarsveitar-
innar voru á heimleið frá æfingu
á Arnarvatnsheiði og voru því til-
tölulega snöggir á slysstað. Björg-
unarsveitin flutti lækni og sjúkra-
flutningamenn á staðinn þar sem
búið var um áverka mannsins og
hann búinn til flutnings í björg-
unarsveitabíl. Reyndist hann vera
bæði handleggs- og fótbrotinn en
með góða meðvitund.
Týnd stúlka
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eft-
ir 16 ára stúlku, Kristbjörgu Lind
Bragadóttur. Kristbjörg er um 153
sentímetrar á hæð og um 52 kíló
að þyngd. Hún er með litað ljóst
sítt hár, rakað á hægri hlið. Hún
var klædd í svartar buxur, svarta
Adidas-peysu með hvítum dopp-
um, svarta 66°N úlpu með loð-
kraga og var í hvítum Nike-striga-
skóm. Talið er að Kristbjörg haldi
til á höfuðborgarsvæðinu. Þeir
sem geta gefið upplýsingar um
ferðir stúlkunnar eru beðnir um
að hafa samband við lögregluna á
Suðurnesjum í síma 420-1800.
Vill verða
biskup
Agnes M. Sigurðardóttir, sókn-
arprestur í Bolungarvík og pró-
fastur í Vestfjarðaprófastsdæmi,
hefur tilkynnt að hún ætli að
bjóða sig fram til biskups. „Þau
sem hafa hvatt mig telja að
ég geti gagnast Kirkjunni vel
á þeim vettvangi og geti leitt
hana á farsælan hátt þjóðinni til
heilla og henni sjálfri til sóma,“
segir Agnes í tilkynningu sem
hún sendi fjölmiðlum.