Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2012, Page 18
H
esturinn Joey er
keyptur á uppboði af
fátækum bónda. Al-
bert sonur hans (Irv-
ine) elur hann upp
og þjálfar en þarf svo að sjá á
eftir honum til hersins þegar
fyrri heimsstyrjöldin skellur á.
Við fylgjum hestinum skipta
um eigendur beggja vegna
víglínunnar og sjáum styrj-
öldina með hans augum.
Myndin er byggð á barna-
bók Michaels Morpurgo frá
1982 og leiksýningu byggðri
á bókinni frá 2007 eftir Nick
Stafford.
Leikstjóranum Steven
Spielberg hættir til að keyra
dramatík og tilfinningasemi
upp úr öllu valdi og getur það
komið harkalega niður á við-
fangsefninu. Hér velur hann
enn einu sinni að fara væmnu
leiðina og virkar myndin því
á köflum sem hreint tilfinn-
ingaklám. Tengslin við aðal-
persónurnar eru þar að auki
í algjöru lágmarki, svo að til-
finningasemin hefur takmörk-
uð áhrif. Allt sem áhorfandinn
á að finna er beinlínis hrópað
að manni með dramatískri
tónlist og myndatöku í stíl.
Leikaraliðið er þó í heild
sinni gott. Eftirminnilegir eru
Peter Mullan og Tom Hiddle-
ston í aukahlutverkum, en
upp úr stendur Niels Arestrup
í hlutverki aldraðs berja-
bónda sem annast hestinn
um sinn í stríðinu.
Einstakir þættir í War
Horse eru góðir út af fyrir
sig. Tónlist Johns Williams
er til að mynda mjög falleg.
Myndataka Janusz Kaminski
er oft á tíðum glæsileg og
leikarahópurinn traustur. En
þegar öllu þessu er blandað
saman er útkoman veisla fyrir
tilfinningaklámhunda. Það
eru aðstæður sem ég vil pers-
ónulega forðast. n
Beitt skvísubók
V
ið tilheyrum sama
myrkrinu er saman-
safn nokkurra smá-
sagna, ljóðs og fjölda
teikninga. Allt efnið á það
sameiginlegt að vera skáld-
skapur þar sem leikkonurnar
og fegurðardísirnar Marilyn
Monroe og Greta Garbo eru í
aðalhlutverki.
Í sögunum eru Marilyn og
Greta vinkonur og ræða sam-
an um lífið og tilveruna, segja
hvor annarri sögur milli þess
sem þær prjóna og glugga í
heimsbókmenntir. Samræð-
ur þeirra snúa á hvolf hug-
myndum flestra um fegurð-
ardísirnar Marilyn og Gretu.
Og kannski fegurðardísir al-
mennt.
Í skáldskap Kristínar Óm-
arsdóttur eru þær breiðir
persónuleikar sem leiftra af
gáfum og af skemmtilegri
meinhæðni. Kristín teygir
og togar og snýr. Samræður
þeirra og sögur verða óhefð-
bundnar. Af því að þær eru
dáðar fegurðardísir og það
er einhver broddur í því.
Áminning um það hversu
langt skáldskapurinn teygir
sig í raunveruleikann. En líka
um það að já, við tilheyrum
sama myrkrinu. Við búum til
okkar eigin hugmyndir um
fólk. Sérstaklega hetjur og feg-
urðardísir. Marilyn Monroe
var víst víðlesin kona, orti ljóð
og dáði ritað orð. Það er hins
vegar kynþokki hennar og
fegurð sem er eins og stöðv-
unarskilti. Við leitum ekki
lengra. En Kristín gerir það
og það er virkilega gaman að
því. Hún yrkir ljóð í munn
Marilyn Monroe og teikning-
arnar í bókinni koma upp um
skáldið. Hún augsýnilega dáir
hana, sem og Gretu Garbo.
Teikningarnar eru sérlega
skemmtilegar og bókin er
eiguleg. Það er Kristín sjálf
sem hefur teiknað myndirnar
síðustu ár. Þær eru skemmti-
lega skakkar og naívar og inn
á þær skrifar Kristín athuga-
semdir eða línur úr kvik-
myndum sem þær hafa leikið
í. Á einni mynd af Marilyn og
Gretu stendur skrifað: „Við
erum báðar tvær mjög góðar í
reikningi.“
Stíll Kristínar minnir mig
á áratugagamlar skvísubæk-
ur. Louisa May Alcott kemur
strax upp í hugann. En þar
endar samanburðurinn. Inni-
hald bókar Kristínar er beitt-
ara.
18 Menning 30. janúar 2012 Mánudagur
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Bækur
Við tilheyrum
sama myrkrinu
Af vináttu: Marilyn Monroe og Greta Garbo
Höfundur: Kristín Ómarsdóttir
Útgáfa: Stella
96 blaðsíður
Tileinkuð
fegurðar-
dísum
Í sögum
Kristínar
Ómarsdóttur
eru Marilyn
og Greta
vinkonur og
ræða saman
um lífið og
tilveruna
Barbie gömlu
meistaranna
Franska listakonan Jocelyne
Grivaud endurgerði listaverk
nokkurra sögufrægra lista-
manna og notaði Barbie sem
fyrirsætu. Í verkum sínum
kannar Jocelyn hvernig
ímynd kvenna hefur breyst í
gegnum tíðina og útkoman
er nokkuð áhrifamikil. Hér
sést Barbie sem Mona Lisa
Leonardos Da Vinci.
Lífleg
Íslandssaga
Um helgina hófust á Litla
sviði Borgarleikhússins sýn-
ingar á sjóntónleiknum Sögu
þjóðar með hljómsveitinni
Hundur í óskilum við góðar
undirtektir.
Tveggja manna stórsveit-
in Hundur í óskilum skoðar
Íslandssöguna í tónum og
leik og er uppfærslan lífleg. Í
Sögu þjóðar hafa þeir fengið
Benedikt Erlingsson leik-
stjóra sér til aðstoðar. Næsta
sýning er 2. febrúar næst-
komandi.
Götulist
í galleríi
Samsýning níu götulista-
manna í samstarfi við net-
galleríið muses.is var opnuð
á laugardaginn við mikla
gleði. Listamennirnir hafa
fært listsköpun sína frá
veggjum götunnar inn í hið
hefðbundna sýningarrými
gallerís. Verkin eru undir
sterkum áhrifum frá götulist-
inni og birtast þau í ýmsum
formum. Verkið hér að ofan
er eftir Örn Tönsberg.
Fallega
skreytt
Hávamál
Kristín Ragna Gunnarsdótt-
ir hlaut Dimmalimm-verð-
launin fyrir bestu mynd-
skreytingu barnabókar árið
2011. Verðlaunin hlaut hún
fyrir bókina Hávamál en þar
enduryrkir Þórarinn Eldjárn
hina fornu speki Óðins. Þau
Þórarinn og Kristín Ragna
hafa áður átt farsælt sam-
starf en saman unnu þau
bókina Völuspá sem kom út
árið 2005.
Klámið hans
Spielbergs
Jón Ingi Stefánsson
joningi@dv.is
Bíómynd
War Horse
IMDb 7,3 RottenTomatoes 76% Metacritic 72
Leikstjóri: Steven Spielberg.
Handrit: Lee Hall og Richard Curtis,
byggt á bók Michael Morpurgo.
Leikarar: Jeremy Irvine, Emily Watson,
David Thewlis, Peter Mullan, Niels
Arestrup, Tom Hiddleston.
146 mínútur
Tilfinningaklám Myndin
gerir að stórum hluta út á
ómerkilegt tilfinningaklám
og dramatíska tónlist.
Þetta hefði kannski virkað
ef áhorfendur mynduðu
tengsl við aðalpersónuna.
Stríðshesturinn
Myndin sýnir fyrra
stríðið með augum
hestsins Joey.