Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2012, Side 22
Gerði lítið úr eigin reynslu Bryndís
segist lengi hafa verið í skápnum með
fyrirsætustörf sín en nú hafa öðlast
ákveðna fjarlægð og geta notað
reynsluna sjálfri sér og öðrum til góða.
Svekktur en sáttur
n Hebba kom mikið á óvart að komast ekki í úrslit Söngvakeppninnar
I
nternetið er bara búið að
loga út af þessu,“ segir tón-
listarmaðurinn Herbert
Guðmundsson sem komst
ekki áfram í úrslit Söngva-
keppni Sjónvarpsins á laugar-
dagskvöldið með lag sitt Eilíf
ást. Þess í stað fór lag Sveins
Rúnars Sigurðssonar, Hugarró
í flutningi Magna Ásgeirsson-
ar, áfram ásamt Aldrei sleppa
mér, sem samið er af Gretu
Salóme en hún á tvö lög í úr-
slitum eins og Sveinn Rúnar.
„Ég skil þetta bara ekki.
Við vorum öll mjög viss um að
lagið okkar færi áfram. Þegar
Hrútspungarnir fóru áfram
þá hlutum við að fara áfram,“
segir Herbert sem viðurkennir
vonbrigði þegar úrslitin voru
kunngjörð. „Auðvitað var ég
svekktur fyrst en svo byrjaði ég
að fá símtöl og sá hvað var að
gerast á Facebook. Þar stóðu
allir með mér og allir spurðu
hreinlega hvað væri að gerast.“
Herbert er þó ánægður
með tækifærið til að fá að taka
þátt í keppninni. „Þetta var
rosalega gaman. Ég er þakk-
látur fyrir að hafa fengið að
vinna við keppnina og kynnast
þessu. Svo fékk ég þarna nátt-
úrlega rosalega auglýsingu á
mig sem söngvara,“ segir Her-
bert en von er á laginu með
enskum texta og í annarri út-
gáfu.
„Hann Berndsen talaði við
mig frá Portúgal og bað um að
fá að gera eitís-útgáfu af lag-
inu. Það er alaveg rosalega flott
og smekklega gert. Þetta lag er
smellur og það á eftir að lifa,“
segir Herbert sem skemmti í
afmæli á laugardagskvöldið og
þar var ljóst að lagið snerti fólk.
„Ég var að syngja í fimm-
tugsafmæli sem var með svona
Eurovision-þema. Ég tók lagið
þar og allir sungu með. Mér
var bara fagnað eins og stór-
stjörnu,“ segir Herbert sem
útilokar ekki að taka þátt í
Söngvakeppninni aftur.
„Maður veit aldrei. Ég er
enginn mikill Eurovision-pæl-
ari en ég datt bara inn á þetta
lag og fannst vera Eurovision-
lykt af því. En það má aldrei
segja aldrei,“ segir Herbert
Guðmundsson.
22 Fólk 30. janúar 2012 Mánudagur
Vinnur með
Sonyu
Svala Björgvins er ekki að-
eins að gera það gott með
hljómsveit sinni Steed Lord
úti í Los Angeles heldur er
hún einnig að vekja athygli
fyrir hönnun. Svala hannaði
búninga í nýrri danssýningu
danshöfundarins fræga So-
nyau Tayeh sem Íslendingar
þekkja úr þáttunum So you
think you can dance. Eins og
áður hefur komið fram eru
Svala og Sonya góðar vin-
konur. Dansatriðið var frum-
sýnt í Avalon í Hollywood í
vikunni við góðar undirtektir
áhorfenda enda Sonya vön
að koma á óvart. Svala bjó til
búningana úr sokkabuxum.
Mugison í
New York
Glöggir flugfarþegar á leið
með Icelandair til New York
í byrjun vikunnar tóku eftir
skeggjaða tónlistarmann-
inum Erni Elíasi Guðmunds-
syni, sem oftast er kallað-
ur Mugison. Mugison var
klárlega einn vinsælasti
tónlistarmaður ársins hér á
landi á síðasta ári. Hann hélt
feiknarlega vel heppnaða
tónleikaröð í Hörpu og víðar
þar sem hann bauð Íslend-
ingum frítt til að fagna góð-
um viðtökum sem plata hans
Haglél fékk. Greint var frá því
að Mugison hefði hagnast
um 20 milljónir á árinu en
það verður að teljast ágætur
árangur.
Með 10 fingur
og 10 tær
Sveppi og unnusta hans Íris
Ösp Bergþórsdóttir eignuð-
ust sitt þriðja barn á dög-
unum. Sveppi og Íris hafa
verið saman í meira en 10 ár
og áttu fyrir tvö börn, strák
og stelpu. „Ég er alsæll og
í skýjunum, drengurinn er
með 10 tær og 10 fingur og
allt eins og það á að vera.“
Byrjaði of ung
í bransanum
Þ
að er svo margt sem ber að
varast í þessum heimi og þá er
gott að fá reynslubolta eins og
mig sem þekkir þennan heim
til að miðla reynslunni,“ segir
fyrirsætan fyrrverandi Bryndís Bjarna-
dóttir sem sér um framkomu- og fyrir-
sætunámskeið hjá Fashion Academy
Reykjavík.
Bryndís, sem er heimspekingur og
mannréttindafræðingur að mennt og
starfar hjá Amnesty International, gerði
það gott á yngri árum sem fyrirsæta en
hún var með samning hjá Elite og birt-
ist til að mynda bæði í tímaritunum Elle
og Cosmo og starfaði með heimsfræga
ljósmyndaranum Helmut Newton.
„Ég sé þetta námskeið fyrst og
fremst fyrir mér sem sjálfsstyrking-
arnámskeið. Ég hef nokkuð frjáls-
ar hendur um það hvernig ég byggi
þetta upp og megintilgangurinn mun
verða að byggja upp og styrkja sjálfs-
mynd nemenda. Góð sjálfsmynd ung-
linga getur byggt á mörgum ólíkum
þáttum, eins og félags- og samskipta-
færni, sjálfsþekkingu, hæfileikanum
til að tjá sig óþvingað og af öryggi,
getunni til að vinna með öðrum og
hæfninni til að sýna öðrum tillitssemi
og virðingu. Ég mun kappkosta að
styrkja alla þessa þætti. Einnig verða
krakkarnir fræddir um heilsu og nær-
ingu, hvernig hugsa skal vel um húð
og hár, og það hvernig við setjum
okkur og öðrum mörk. Svo mun jafn-
ingjafræðsla hjá Hinu húsinu sjá um
fíkniefnafræðslu,“ segir Bryndís og
bætir við að sjálf eigi hún 15 ára ung-
ling.
„Ég hugsa þetta út frá því hvernig
fyrirmynd ég vil vera dóttur minni og
hvaða áherslu ég legg á að byggja upp
góða sjálfsmynd hjá henni. Námskeið-
ið er fyrir stelpur á aldrinum 14–16 ára,
af öllum stærðum og gerðum, og við
munum leggja ofurkapp á að styrkja
hverja og eina, svo hver og ein finni sig
og læri að nýta sín sérkenni og hæfi-
leika eftir bestu getu.“
Bryndís gerði lengi vel lítið úr eigin
velgengni innan heims tískunnar. „Ég
var lengi í skápnum með mín fyrirsætu-
störf og hef verið að agnúast út í þenn-
an heim þótt ég hafi sjálf búið í honum
um tíma. Þegar maður eldist og öðlast
ákveðna fjarlægð og yfirsýn sér maður
að það er hægt að taka það besta úr
sinni reynslu og nýta það sjálfum sér
og öðrum til góða. Að sjálfsögðu mun
ég nota mína reynslu til að sýna stelp-
unum það slæma við þennan heim en
líka það góða. Sjálf fór ég allt of ung út
í þennan bransa. Ég vissi varla hvað
snéri upp og hvað niður. Ég var hrædd
og óörugg og hefði viljað hafa feng-
ið einhverja innsýn inn í það sem ég
átti von á og þá hefði til dæmis svona
námskeið komið sér vel,“ segir Bryndís
sem hlakkar til að vinna með ungling-
um. „Mín aðalvinna er við mannrétt-
indastörf en ég tekst á við þetta verk-
efni af mikilli tilhlökkun. Unglingsárin
eru spennandi aldur því þá eru krakk-
ar svo opnir, hugmyndaríkir og frjóir.
Ég hlakka til að taka þátt í þessu.“
n Sér um framkomu- og fyrirsætunámskeið n Nýtir reynslu úr fyrisætustörfunum
Tónelskir feðgar Herbert og Svanur sömdu lagið saman. Mynd LáruS KarL