Listin að lifa - 01.06.2013, Síða 6
LEB vinnur að mörgum verkefnum
í þágu eldri borgara
Ágrip úr starfi Landssambands eldri borgara árið 2012
Árið 2012 var tileinkað öldruðum í
Evrópu og 1. október var ákveðinn
alþjóðadagur aldraðra. Einkunnarorð
ársins voru aukin virkni, bætt heilsa
og hreyfing aldraðra og aukin sanv
skipti milli kynslóða. Markmið ársins
hafði því óneitanlega áhrif á starfsemi
LEB, sem gerði ýmislegt til þess að
vekja athygli á málefnum aldraðra.
Árið var opnað með stórri ráðstefnu
þann 15.mars sem við höfðum frunv
kvæði að og haldin var í samstarfi við
Oldrunarráð Islands og Velferðarráðu-
neytið. Síðan héldum við fund með
menntamálaráðherra um að hún
beitti sér fyrir því að grunnskólar byðu
öldruðum í heimsókn þann 1. október
og einnig að hvetja Simenntunarmið-
stöðvar í landinu til að auka framboð
á námskeiðum ekki síst í tölvufærni
sem sérstaklega væru ætluð öldruðum.
Jafnframt hvöttum við okkar aðildar-
félög til að heimsækja skóla þennan
dag. Var mikil og góð þátttaka í þessu
verkefni um allt land. Þá stóð LEB að
vorfundi NSK sem eru samtök félaga
eldri borgara á Norðurlöndunum og
var hann haldinn í Hveragerði í maí.
Þann 1. maí tókum við þátt í kröfu-
göngu verkalýðsfélaganna í Reykjavík
og héldum á kröfuspjöldum urn bætt
kjör. 1 nóvember héldum við svo
ráðstefnu um kjaramál eldri borgara
á Hótel Icelandair Natura og þar voru
8 frummælendur með ýmsan fróð-
leik um kjör og stöðu aldraðra. Þá eru
ótaldar margar ráðstefnur og málþing
um málefni aldraðra sem haldnar voru
af öðrurn aðilum, og við tókum þátt í
og var ég oftar en ekki frummælandi
á þeim ráðstefnum, og/eða sat fyrir
svörum. Held það hafi verið um 12 ráð-
stefnur eða fundir sem ég tók þátt í á
árinu að einhverju leyti. Einnig hef ég
skrifað nokkrar blaðagreinar um hags-
munamál aldraðra, sem birst hafa í
blöðum og tímaritum og á netinu. Auk
þess hef ég mætt í viðtöl í fjölmiðlum
urn ýmis hagsmunamál okkar.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
formaður LEB
Formannafundur LEB var haldinn
13. mars í Reykjavík og bauð FEB í
Reykjavík alla aðstöðu við fundinn.
Þar fór fram kynning TR á núgildandi
bótaflokkum. Fundurinn var sóttur af
urn 40 formönnum og tókst prýðilega,
þrátt fyrir forföll vegna flensusýkinga.
Kjaramálin eru alltaf stór mál hjá
stjórn LEB og kjaramálanefndinni sem
hefur sent frá sér ýmsar ályktanir. Eg
og/eða Haukur Ingibergsson höfurn
setið rnarga fundi á árinu í starfshópi
um endurskoðun almannatrygginga
og þar náðist á s.l. hausti samstaða um
tillögu sem fól í sér sameiningu bóta-
flokka og að minnka tekjutengingar í
tryggingakerfinu, sem í dag eru hrein
fátæktargildra. Skyldi það gert í áföng-
um á 4 árum, en þá væri framfærslu-
uppbótin orðin sameinuð ellilífeyri
og skerðingarmörkin hefðu lækkað úr
100% í 45% Starfshópurinn skilaði
þessari tillögu af sér til velferðarráð-
herra í byrjun október og var þá ekki
annað vitað en að tillagan kæmi fram
í frumvarpi á Alþingi fyrir jól, en það
varð ekki. Fyrir frumvarpinu var svo
mælt á Alþingi 7. mars s.l. og þar með
er ljóst að það verður ekki að lögum
i vor. Við erum verulega ósátt við
þennan drátt sem orðið hefur. Hefði
það fengið framgang mundi það bæta
kjör aldraðra verulega á næstu árum,
sérstaklega þeirra sem hafa einhverjar
tekjur úr lífeyrissjóði. I dag er sá sem
hefur 73.000 kr. úr lífeyrissjóði ekkert
betur settur en sá sem hefur einungis
bætur TR. Jafnframt höfurn við lagt
þunga áherslu á að þær skerðingar sem
settar voru á grunnlífeyri 2009 verði
afturkallaðar.
Mörg Þingmál eru send til okkar sem
við þurfum að fjalla um og senda frá
okkur umsögn um til nefnda Alþingis.
Þær umsagnir má sjá í fundargerðum
LEB sem alltaf eru settar á heimasíðu
okkar á netinu. Við höfurn líka samstarf
við Tryggingarstofnun með sameigin-
legum fundum. Þó nokkur vinna hefur
farið á árinu 2012 í nefndarstörf við
fyrirhugaðan flutning málefna aldr-
aðra frá ríki til sveitarfélaga sem fyrir-
hugað er 2015. Þar leggjum við áherslu
á að farið sé varlega og það fjármagn
fáist sem sveitarfélögin telja sig þurfa,
endurskoðun laga um málefni aldraðra
fari fram í tengslum við flutninginn,
þjónusta við aldraða verði samræmd
á landsvísu og heimaþjónustan aukin.
LEB hefur í gegnum árin ályktað um
að þjónustan sé færð til sveitarfélaga
og sýnir reynsla þeirra sveitarfélaga sem
hafa tekið alla þjónustu við aldraða að
sér síðustu ár sem tilraunaverkefni,
að það gefur góða raun og er almenn
ánægja með það.
Frá síðasta landsfundi höfum við
verið að bæta heimasíðuna, þannig að
nú koma fundargerðir og aðrar tilkynn-
ingar reglulega inn á heimasíðuna,
wwwdeb.is Þar er því hægt að fylgjast
með öllu því markverðasta í starfi LEB,
ef fólk hefur aðgang að tölvu. Það
þarf líka að hvetja eldri borgara til að
tileinka sér tölvufærni, því það eykur
verulega lífsgæði þeirra að geta nýtt
sér þær upplýsingar sem þar má finna
bæði til gagns og gamans. Og allir geta
lært svo lengi sem lifir.
Listin að lifa kom út tvisvar á s.l. ári
og blaðið fáið þið ókeypis heirn til ykk-
ar. Þar er efnisval afar fjölbreytt, bæði
6