Listin að lifa - 01.06.2013, Page 12

Listin að lifa - 01.06.2013, Page 12
Eldra fólk og velferðartækni Tækifæri í þjónustu og nýjar samskiptaleiðir Á síðustu árum hefur á vettvangi nor- ræns samstarfs verið umræða og vinna með þróun hugmynda um áhrif tölvu- tækni, upplýsinga- og samfélagsmiðla, á vinnuaðferðir í þjónustu við ýmsa hópa velferðarþjónustunnar á Norður- löndum. Þar er t.d. horft til áhrifa tækniþróunar innan heilbrigðisþjón- ustu (hátækni-sjúkrahús), áhrifa tækni á úrræði fyrir fatlað fólk, áhrifa tækni- legrar þróunar á kennsluaðferðir fyrir börn og einnig áhrif á stjórnsýsluna og rafræn samskipti. Stór þáttur í vel- ferðartækni snýr svo að eldra fólki og öldrunarþjónustu. Velferðartækni (velfærds-teknologi) er nýlegt hugtak. Skilgreining þess er nokkuð ólík eftir því hve víð eða þröng hún er. Víðari skilgreiningin vísar til tækni sem sérstaklega gagnast notand- anum við að sækja sér eða nýta velferðar- þjónustu og er til þess fallin að viðhalda eða auka lífsgæði hans. Hér undir getur fallið margháttuð nútímatækni, allt frá gleraugum eða heyrnartækjum til fjar- stýringa á fullkomnum vélbúnaði, hug- búnaður, hjálpartæki, öryggisbúnaður eða myndsamtöl í gegnum netið. Almennt er viðurkennt að nauðsyn- legt sé að leita nýrra leiða i velferðar- þjónustunni vegna hækkandi lífaldurs, fjölgunar eldra fólks og fækkandi yngri skattgreiðendum. Hingað til hefur um- ræða um öldrunarþjónustu á Norður- löndum fremur einkennst af upp- hrópunum og kröfum um þrjú sömu atriðin. Það vanti - fleira starfsfólk - meira fjármagn - fleiri stofnanarými. Ein af afleiðingunum svo einhæfrar framsetningar er minna horft á innra starf, nýja möguleika og þróunarstarf. Sem dæmi má nefna að ef einstak- lingur á öldrunarstofnun dettur og er liggjandi í einhverja stund, þá er dæmi- gert viðbragð og umræða um það atvik með fókus á skort á starfsfólki, pen- ingaskort og hvað aldraðir eru miklu veikari en áður. Einmitt þar liggur lokun umræð- unnar, því þessi úrræði eru takmörkuð. Skortur er og verður á vinnuafli og þörfin fyrir meira fé er víðar í velferðar- Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri OA og lektor við félagsráðgjafardeild Hl kerfinu. Meira fé til öldrunarþjónustu myndi kalla á aukna skatta eða skerð- ingar hjá öðrum og er því ekki nærtæk lausn heldur til þess fallin til að drepa úrlausnum á dreif. Því verður að leita nýrra leiða og skoða lausnarmiðaðri nálgun í ofangreindu dæmi, sem væri t.d. að ræða þörfina á hreyfi- eða fall- skynjurum. Samtal eða heimsókn ? Skjásímar og dagbækur, samskipti og áminningar um lyfjatöku eða viðburði Innleiðing á aukinni tækni og tækni- legum lausnum í þjónustu við eldra fólk, bæði heima og á stofnunum, er og verður næsta stóra skrefið í þróun öldrunarþjónustunnar. Slik þróun skapar ávinning fyrir alla, notandann, samfélagið, aðstandendur og atvinnu- lífið. Markmið velferðartækni í öldr- unarþjónustu á að vera aukin gæði þjónustunnar, aukið sjálfstæði og lífs- gæði notandans og aukin hagkvæmni. Þróunarverkefni á Akureyri Oldrunarheimili Akureyrar (ÖA) ákváðu í byrjun árs 2013 að setja vel- ferðartækni sérstaklega á dagskrá, huga að nýjum möguleikum og setja af stað tilrauna- og þróunarverkefni innan heimilanna. Rekja má ákvörðunina til tillagna vinnuhóps um viðhorf til öldr- unarþjónustunnar á Akureyri, Eden- hugmyndafræðinnar og ráðstefnu um velferðartækni sem undirritaður hafði sótt. Fyrsti áfangi verkefnisins er að setja upp þráðlaust net, upplýsingaskjái um viðburði og fréttir, kaupa spjaldtölvur á heimilin, styrkja upplýsingamiðlun í gegnum heimasíðu og samfélagsmiðla og nota upplýsinga-og tölvutækni sem hluta af úrræðum og tilboðum í félagsstarfi og virknihvetjandi starfi fyrir íbúa. Fyrsti áfangi verður unnin á tveimur af fimm heimilum (deildum). Sem dæmi mun viðburðum, matseðli, tilkynningum og öðru slíku efni miðl- að til íbúa, aðstandenda og starfsfólks í gegnum vefinn og mun það birtast á tölvum og sjónvörpum í sameiginlegu rými. Aðstandendur munu jafnvel eiga kost á að gera slíkt í gegnum eigin tölvur, Fésbókarsíðu ÖA eða síma með viðbótum (apps). Þá munu íbúar hafa aðgang að spjaldtölvum og fartölvum til nota við blaðalestur, spil eða töfl eða álíka sem er þeim til tómstunda eða virkni. Einn þáttur í því er að nota leikjatölvur til að spila golf, tennis og fleiri hreyfileiki. Áformað er t.d. að nýta tölvur og upptökur/YouTube fyrir morgunleikfimi og í hópastarfi með íbúum. Þá er á döfinni samstarf við framhaldsskólanemendur um tölvu- kennslu fyrir íbúa og starfsfólk. Mikilsverð vídd í velferðartækni á ÖA er að nota tæknina til að auka samskipti milli íbúa og aðstandenda og draga þannig úr hindrum vegna fjar- lægða. Slíkt er auðvelt að gera í gegn- 12

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.