Listin að lifa - 01.06.2013, Síða 15
Mikilvægt skref
stigið í samskiptum stjórnvalda og Landssambands eldri borgara:
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir formað-
ur Landssambands eldri borgara undir-
ritaði hinn 26. febrúar samning LEB
við Velferðarráðuneytið um starfsemi
Landssambands eldri borgara. Samn-
ingurinn er mikilvægt skref í að styrkja
samskipti stjórnvalda og Landssanv
bands eldri borgara, marka fyrirkomu-
lag samstarfsins og styrkja stöðu LEB og
eldri borgara gagnvart stjórnvöldum.
Með samningnum gera stjórnvöld
sem verkkaupi í fyrsta sinn samning
við LEB sem verksala sem vinnur að til-
teknum viðfangsefnum. I öðru lagi er
samið um það fjármagn sem stjórnvöld
greiða LEB fyrir að sinna viðfangsefn-
unum. I þriðja lagi miðar samningur-
inn að langtíma samstarfi, er í upphafi
til tveggja ára, 2013 og 2014, og franv
lengist síðan ár frá ári. Það fyrirkomu-
lag kemur í stað þess að áður, eftir
mikil fundarhöld og bréfaskriftir, fékk
LEB fjárveitingu frá Alþingi af fjárlög-
um hvers árs sem hvorki var samnings-
bundin, tók til sérstakra viðfangsefna
eða var beintengd þeim stjórnvöldum
Haukur Ingibergsson
sem fóru með málefni aldraðra. 1
fjórða lagi skapar samningurinn vett-
vang til þróunar samstarfsins þar sem
ákvæði er um að samningurinn skuli
endurskoðaður árlega og hvor aðili geti
óskað eftir að einstök ákvæði samtv
ingsins eða samningurinn í heild verði
tekinn til endurskoðunar enda séu
færð fyrir því efnisleg rök.
Markmið samningsins er að styrkja
LEB til að sinna hlutverki sinu sem
heildarsamtök aldraðra á Islandi, vinna
að hagsmunamálum aldraðra og koma
fram fyrir hönd aðildarfélaganna gagtv
vart stjórnvöldum. Þrjú viðfangsefni
eru tiltekin sérstaklega til að mæta
markmiðum samningsins. í fyrsta lagi
að veita stjórnvöldum ráðgjöf varðandi
stefnumótun og áform um aðgerðir í
þágu eldri borgara. I öðru lagi að veita
stjórnvöldum umsagnir um lagafrum-
vörp og reglugerðir eftir því sem við á.
I þriðja lagi að miðla upplýsingum og
fræðslu til aðildarfélaga, meðal annars
með útgáfu tímaritsins Listin að lifa og
rekstri heimasíðu.
Með þessum samningi hefur LEB tek-
ist, undir farsælli forystu Jónu Valgerðar
Kristjánsdóttur, ásamt ötulli vinnu
stjórnarmanna í LEB að koma sanv
skiptum við stjórnvöld vegna málefna
aldraðra á nýtt stig. Hlutverk LEB gagtv
vart ráðuneytinu hefúr verið formlega
skilgreint, samskiptaleiðir LEB og ráðu-
neytisins markaðar og meiri festa sköpuð
í fjármálum LEB. Eitt mikilvægasta verk-
efni LEB á næstu árum verður að sækja
fram á grundvelli þeirra tækifæra sem
samningurinn skapar.
Vel heppnað átaktil að brúa kynslóðabilið
Félag eldri borgara á Suðurnesjum
Félag eldri borgara á Suðurnesjum
var tilnefnt til samfélagsverðlauna af
Fréttablaðinu fyrir árið 2013. Viður-
kenningin var í flokki „Frá kynslóð
til kynslóðar" fyrir frumkvæði félags-
ins í samstarfi við nemendur í grunn-
skóla á Suðurnesjum sem nefnt var
„Ævintýrið“. Yfirskrift verkefnisins var
að stuðla að því að kynslóðirnar starfi
saman með virðingu hver fyrir annarri
og brúa þannig bilið á milli þeirra.
Árið 2012 var Evrópuár aldraðra og
var fyrsti október 2012 nefndur dagur
aldraðra i Evrópu. Af þessu tilefni
beitti Landssamband eldri borgara sér
fyrir því að auka samstarf milli eldri
borgara og grunnskólanemenda. Verk-
efnið á Suðurnesjum byggðist á gagn-
kvæmum heimsóknum og samvinnu
eldri og yngri kynslóða. Eldri borgarar
leiðbeindu t.a.m. nemendum í grunn-
skólum á svæðinu við lestur með góð-
um árangri.
I bréfi sem Félag eldri borgara á
Suðurnesjum ritaði í september í fyrra
var leitað eftir samstarfi við skólayfir-
völd og nemendaráð. Þar sagði að til-
gangurinn væri gagnkvæmar heim-
sóknir í skóla og félagsheimili félagsins
til að efla skilning á högum ungra sem
aldinna. „Þessar heimsóknir gætu leitt
til frekara samstarfs við nemendur
sem allir hefðu gagn og gaman að. Við
stefnum á að grunnskólar bjóði til sín
í heimsókn fulltrúum aldraðra, ef til
vill gömlum nemendum sínum til að
rifja upp endurminningar sínar og sitji
fyrir svörum nemenda, t.d. um eigin
bernsku, skólagöngu og lífshætti áður
fyrr. Eldri borgarar þurfa að geta fræðst
um upplýsingatækni, internetið og
annað sem í boði er. Nemendur hafa
meiri þekkingu á þessari tækni en eldri
borgarar,“ segir jafnframt í bréfi FEBS.
Félag eldri borgara á Suðurnesjum
hefur verið starfandi um árabil, en í
það félag geta allir Suðurnesjamenn 60
ára og eldri gengið. Markmið félagsins
er að huga að hagsmunum aldraðra,
sinna tómstundum við hæfi og stuðla
að góðum efri árum. Lögð er áhersla á
að allir eldri borgarar á Suðurnesjum
taki þátt og gerist félagar. Eyjólfur Ey-
steinsson er formaður Félags eldri
borgara á Suðurnesjum.
15